Fréttablaðið - 19.12.2020, Page 34

Fréttablaðið - 19.12.2020, Page 34
að snjórinn er sirka 10 til 20 senti­ metrum frá loftinu báðum megin við mig og að herbergið hennar Ölmu er fullt af snjó. Útidyrahurðin var farin og forstofan full. Ég átta mig strax á að ég geti ekki grafið Ölmu út með höndunum svo ég klifra yfir skaflinn og sé þá að það er lítill snjór inni hjá hinum börnunum og heyri í þeim. Yngri dóttirin sat þar stjörf í rúmi sínu þangað sem snjórinn hafði náð og var í miklu sjokki.“ Anna heyrði svo síðar að Siggi, níu ára sonur þeirra, var þá þegar búinn að láta Neyðarlínuna vita. „Hann var fyrstur til að láta vita að f lóð hefði fallið á efri byggðina en allir voru þá með hugann við flóðið sem rétt áður hafði fallið á höfnina.“ Hélt fast í vonina Anna sendi Sigga út um gluggann, á sokkunum, yfir til nágrannakonu og í sömu andrá sér hún fyrsta björg­ unarmanninn koma að húsinu. „Hann hafði verið klár í að fara niður að höfn. Hver mínúta skiptir máli í svona aðstæðum og það bjargaði Ölmu alveg örugglega að björgunarsveitarmennirnir voru til­ búnir í göllunum á leið í hitt f lóðið og komu því innan nokkurra mín­ útna,“ segir Anna og bætir við að hún fái seint fullþakkað björgunar­ sveitinni Sæbjörgu á Flateyri sem bjargaði lífi dóttur hennar. Önnu og börnunum tveimur var komið fyrir í bíl í götunni þar sem þau biðu í um hálftíma, fjörutíu mínútur. „Ég hringdi strax í Óla og í pabba hennar Ölmu sem bjó fyrir sunnan.“ Anna hélt ró sinni allan tímann á meðan hún fékk reglulega fréttir af því að ekki hefði enn náðst að finna dóttur hennar. „Þegar aðstæður verða svona alvarlegar kemur yfir mig ró en oft kemur sjokkið svo seinna meir. Ég var líka með svo mikla sannfæringu um að henni yrði bjargað. Það fór ýmislegt í gegnum hugann á þeim tíma sem leið, en ég hélt fast í vonina.“ Óli beið á Ísafirði og átti erfiðara með að halda rónni. „Ég veit alveg hversu hratt líkurnar á að þú lifir af ofan í f lóði hrapa og þetta stóð virkilega tæpt. Ég var í raun orðinn viss um að hún væri dáin.“ Fjögurra tíma sigling til Ísafjarðar Um leið og Alma fannst fékk Anna fréttirnar en á þeim tímapunkti var þó ekkert vitað um ástand hennar. Anna segir tilfinninguna þegar hún svo fékk fréttirnar um að dóttir hennar væri á lífi hafa verið ólýsan­ lega. „Þá var farið með hana til að­ hlynningar í íþróttahúsinu og við sigldum svo með varðskipinu yfir til Ísafjarðar í versta sjóveðri sem ég get ímyndað mér. Ölmu voru gefin róandi lyf og komið í hana hita en ég og læknirinn lágum á gólfinu og ældum til skiptis í þá fjóra tíma sem það tók að sigla þessa stuttu leið. Við vörðum svo nóttinni á sjúkrahúsinu á Ísafirði.“ Anna fór aftur með börnin til Flateyrar þremur dögum eftir f lóðið. „Pabbi Ölmu bauð henni að koma suður til hans en við vildum vera áfram og hún klára grunn­ skólann.“ Anna segir rústabjörgunarsveit­ ina hafa unnið magnað starf og nán­ ast hver einasti litli hlutur fundist. „Þessu var svo öllu raðað á pallettur í frystihúsinu auk þess sem konur um allt þorp voru að þvo af okkur föt og þurrka skó. En þetta eru bara hlutir, eftir svona upplifun er manni sama um þá. Við fundum ótrúlegan samhug og það var magnað að finna andrúmsloftið í þessu þorpi þar sem margir hafa misst nákomna í snjó­ flóði.“ Krassaði alveg Þær mæðgur vöktu athygli fyrir yfir­ vegun og æðruleysi í fjölmiðlum eftir áfallið en Anna segir að afleiðingarn­ ar hafi komið síðar í hennar tilfelli. Í mars, þegar veður fór aftur versn­ andi, kom bakslag. „Við vorum flutt á mikið öruggari stað niðri á Eyrinni en ég varð óróleg og fór að hugsa um hvar flóðið gæti farið yfir garðana, hverjir væru í hættu og svo fram­ vegis.“ Anna segir dótturina hafa jafnað sig fljótt, þó að vel hafi verið fylgst með líðan hennar og hún sagt: „Mamma, ég held að þetta hafi haft mikið meiri áhrif á þig en mig.“ Hún er ótrúlega jarðbundin týpa eins og pabbi hennar. Sem kom sér vel í þessum aðstæðum.“ Viku eftir flóðið var Anna mætt til vinnu og segir allt hafa gengið ágæt­ lega framan af. „En eftir vonda veðrið í mars varð allt erfiðara. Ég þoldi illa álag í vinnunni og smám saman fann ég að ég var ekki að ráða við aðstæð­ ur svo ég minnkaði starfshlutfallið VIÐ VORUM FLUTT Á MIKIÐ ÖRUGGARI STAÐ NIÐRI Á EYRINNI EN ÉG VARÐ ÓRÓLEG OG FÓR AÐ HUGSA UM HVAR FLÓÐIÐ GÆTI FARIÐ YFIR GARÐ- ANA, HVERJIR VÆRU Í HÆTTU OG SVO FRAM- VEGIS. Anna Hús Önnu og barnanna á Flateyri illa farið eftir flóðið sem fór í gegnum það á tveimur stöðum. MYND/ÖNUNDUR PÁLSSON Alma gáir til veðurs þegar kom til rýmingar í efri hluta þorpsins í kjölfar snjóflóðahættu í mars, en fjölskyldan var þá flutt neðar á eyrina. MYND/AÐSEND Anna Sigga er sambýlismann- inum og gull- smiðnum Óla innan handar á verkstæði hans í Íshúsi Hafnar- fjarðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN eftir að hafa ráðfært mig við áfalla­ sálfræðing. Í lok maí krassaði ég svo alveg. Ég kom heim úr vinnu einn daginn og brotnaði niður og gat ekki hætt að gráta.“ Ekki meðvitað að flýja hugsanir Í framhaldi var tekin ákvörðun um að Anna færi í orlof, sem enn stendur yfir. „Ég átti að vera heima og æfa mig í að gera ekki neitt, bara leggja mig, fara í göngutúr og horfa á sjónvarp­ ið,“ segir Anna sem þurfti að endur­ byggja þanið taugakerfið. „Ég áttaði mig þá á að ég hafði í raun aldrei slakað á síðan þetta gerðist. Ég var ekki meðvitað að f lýja einhverjar hugsanir en þetta var mín leið til að halda dampi.“ Orlofið átti upphaflega að standa fram á haust en að ráði sérfræðings var það framlengt til áramóta. „Ég er fegin að hún tók fram fyrir hend­ urnar á mér enda er maður sjálfur ekkert endilega bestur til að meta eigið ástand.“ Erfitt að vera áfram Forsendur breyttust eðlilega þegar ákveðið var að Anna hyrfi ekki aftur til starfa um haustið. „Mér fannst erfið tilhugsun að vera á Flateyri, horfa á skólann byrja og vera sjálf ekkert að gera og ákvað því að flytja í bæinn. Mér fannst líka erfitt að leggja það á alla að vera þarna annan vetur. Á pabba sem er í bænum og krakkana, sérstaklega yngstu dóttur okkar sem var mjög skelkuð eftir veturinn, mátti ekki heyra vindhviður og var alltaf úti í glugga að líta til veðurs,“ útskýrir Anna og Óli rifjar upp þegar hún dvaldi hjá honum á Ísafirði þar sem hann leigði kjallaraíbúð og hún dró upp gardínuna og sá bara snjó: „Hún hreinlega hvítnaði í framan. Þetta hafði mest áhrif á hana.“ Náðu saman á ný Anna segist þó strax hafa fengið sam­ viskubit yfir að flytja aftur í bæinn enda hafði Óli elt fjölskylduna vestur og komið sér vel fyrir. „Hann studdi mig þó í þessari ákvörðun og á endanum flutti hann líka suður. Við vorum líka aðeins farin að stinga saman nefjum seinni­ part sumars,“ segir Anna og Óli bætir við að hann hafi viljað fara varlega í það enda búið að reyna á sam­ bandið áður. „Ég var ákveðinn í því að ef við myndum taka saman aftur yrðu línur að vera skýrar. En það var eitthvað breytt og við náðum vel saman.“ Anna hefur undanfarna mánuði einbeitt sér að sjálfsvinnu og meðal annars sótt námskeið á vegum Virk. Eins hefur hún staðið við hlið Óla á gullsmíðaverkstæði hans í Íshúsinu í Hafnarfirði og er ekki annað að sjá en að parið sé einkar samstíga í lífi og leik. 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.