Fréttablaðið - 19.12.2020, Qupperneq 44
Ungar fjölskyldur með börn eru oft á ferð-inni um jólin. Fara til ömmu og afa eða annarra ættingja. Þá kemur stundum upp
smá þrýstingur um að vera ekki að
flýta sér heim, vera lengur. Ekki er
óalgengt að við sem vinnum með
svefnvanda barna séum spurð um
hvort þetta sé skynsamlegt,“ segir
Arna og bendir á að svarið sé í raun
ekki einfalt þar sem sum börn þoli
slíkar breytingar vel á meðan önnur
geri það ekki.
„Flest þeirra þola þetta eitt og eitt
kvöld en ekki of mörg kvöld í röð.
Venjulega hefur maður þá reglu að
ef á að snúa svefntímanum í heild,
bæði fara seinna að sofa og seinna á
fætur, þá sé það ekki gert nema fyrir
tveggja til þriggja vikna frí.
En þá þarf líka að gefa sér tíma til
að snúa þeim aftur við tímanlega
þegar fríið er búið. Þó sum börn geti
gert það á einum til tveimur dögum
þá þurfa langflest börn fleiri daga
til þess. Alltaf að muna að það hve-
nær dagur byrjar, það er hvenær þau
vakna að morgni, er stýripunktur í
hvenær þau sofna að kvöldi. Fyrir
þau yngri sem sofa daglúr þá er það
einnig hvenær síðasta daglúr lýkur,“
útskýrir Arna.
Mjög ung börn (á fyrsta ári)
Best er fyrir ungbörnin að halda
sínum svefntíma svona að mestu.
Foreldrar geta þá látið barnið sofna
hjá ömmu og afa á sama eða svip-
uðum tíma og venjulega. Síðan er
annaðhvort gist með barninu hjá
ömmu og afa eða farið með barnið
heim sofandi, þá er það háttað áður
en það sofnar og farið með það heim
í náttfötunum.
Passið þá að raska ró barnsins sem
minnst. Verið búin að hita bílinn
áður en farið er með barnið þangað.
Gott er að annað foreldrið sitji aftur
í hjá barninu og haldi sænginni upp
að andliti, kinn, þess. Hafið svo
rólegt og slökkt ljós þegar það er
borið sofandi inn og úr bílnum.
Næsta morgun þarf að byrja dag-
inn á sama eða svipuðum tíma og
venjulega.
Mikilvægt er að muna að sólar-
hringur byrjar að morgni. Þannig
að ekki rugla því klukkan hvað þau
vakna morguninn eftir. Þá vaknar
einhver með þeim og hefur morg-
uninn góðan, í leik og kúri. Látið
barnið svo fara í daglúr á sama tíma
og venjulega. Ef nóttin hefur verið
eitthvað styttri en venjulega, barnið
ef til vill sofnað aðeins seinna, þá er
hægt að bæta aðeins við fyrri daglúr,
en ekki of mikið. Til dæmis mætti
vekja barnið sirka 30 mínútum
seinna en það vaknar venjulega úr
þeim lúr. Eða ef barn sefur aðeins
einn daglúr þá þeim lúr.
Eldri börn (sirka 2-5 ára)
Oft er erfiðara að flakka með barn
sofandi á þessum aldri því þau eru
varari um sig en ungbarn.
Næturgisting
Langbesta staðan fyrir þessi börn
ef þau eiga að vaka fram yfir venju-
legan háttatíma er að þau fái að gista.
Að þau sofni þá hjá ömmu og afa á
þeim stað sem þau mega síðan sofa
á yfir nóttina.
Að vera lengur í boðinu og láta
þau sofna seinna að kvöldinu þola
f lest börn í eitt og eitt skipti. En þá
er gott að hafa fært daglúr, ef barn
sefur daglúr, aðeins seinna að deg-
inum þannig að þau séu ekki að
vaka allt of lengi fyrir nætursvefn.
Ekki samt yfirkeyra þetta, það er
að segja, láta þau vaka allt of lengi,
því sum börn geta það auðveldlega
en þá getur verið erfitt að fá þau
til að sofna. Best er oftast að hátta
þau áður en farið er í bílinn og leyfa
þeim að sofna á leiðinni og bera þau
inn heima hjá sér sofandi.
Best er að passa að tíminn sem
þau vakna morguninn eftir sé sá
sami eða svipaður og venjulega, það
er að segja, að honum sé ekki breytt
of mikið. Þannig að ruglingurinn
sé bara einn og einn dag en ekki of
marga daga í röð.
Skólakrakkar eiga oftast mjög
auðvelt með að vaka lengur á
kvöldin enda f lest hin ánægðustu
með það. Hjá þessum hóp þarf
meira að passa upp á hvenær þau
vakna að morgni svo snúningurinn
verði ekki of mikill. Mikilvægt er að
muna eins og með alla að vera ekki
að rugla of oft í svefntímum fram
og til baka. Betra er að færa hann
til yfir hátíðarnar í til dæmis frá
klukkan 22 til 9, ef barnið sefur
venjulega 11 tíma nótt, eða frá
klukkan 23 til 9 ef barnið sefur
venjulega 10 tíma nótt.
Þegar nær dregur því að skól-
inn byrji aftur, þá þarf að færa
svefntímann tímanlega til baka
um 30-60 mínútur á nokkurra
daga fresti. Þá skiptir öllu að
byrja á því hvenær þau vakna
að morgni. Það þýðir að það
kvöld sem barnið á að fara
að sofa klukkan
21 þarf að gæta
þess að barnið
s é v a k n a ð
klukkan átta.
Það skiptir
nefnilega öllu
máli hvað þau
hafa vakað lengi. Barn sem sefur 10
tíma nótt þarf að vaka 14 tíma frá
því það vaknar að morgni þangað til
það er tilbúið að sofna að kvöldinu.
Sprengjuhávaði um áramót
Sum börn, sérstaklega ungbörn,
sem eru það sem kallað er auð-
trufluð að upplagi, það er að segja,
eru viðkvæm fyrir umhverfistrufl-
unum, þarf að passa upp á varðandi
sprengjuhávaða á gamlárskvöld.
Gott ráð er að setja útvarp í
gluggann á herberg-
inu sem þau sofa
í, hafa kveikt
á þv í þegar
þau sofna, til
dæmis með
rólega tónlist
á, en hækka
síðan í því
eftir því sem
s p r e n g j u -
hávaðinn úti
hækkar þegar
líður á kvöldið.
Þeim allra
viðk væmustu
þarf að sitja hjá
og halda blíð-
lega fyrir eyrun á
þeim í mesta hávaðanum svo
þau vakni ekki.
Svefnrútína barna í jólafríinu
Fram undan er jólafrí og þekkja flestir foreldrar hvernig það er að koma börnum í rútínu eftir slíkt. Arna Skúla-
dóttir, hjúkrunarfræðingur og höfundur bókarinnar Draumalandið, lumar á góðum ráðum fyrir þá foreldra.
Arna Skúla-
dóttir
hjúkrunar-
fræðingur
gaf út bókina
Draumaland
fyrst árið 2006
en nýverið kom
út önnur og
uppfærð útgáfa
bókarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Arna segir
mikilvægt að ef
svefnrútínu er
breytt í fríinu
þurfi að gefa
sér tíma til að
snúa henni
aftur við að fríi
loknu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Lovísa Arnardóttir
lovisaa@frettabladid.is
Björk Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is VENJULEGA HEFUR MAÐUR
ÞÁ REGLU AÐ EF Á AÐ SNÚA
SVEFNTÍMANUM Í HEILD,
BÆÐI FARA SEINNA AÐ
SOFA OG SEINNA Á FÆTUR,
ÞÁ SÉ ÞAÐ EKKI GERT
NEMA FYRIR TVEGGJA
TIL ÞRIGGJA VIKNA FRÍ.
1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð