Fréttablaðið - 19.12.2020, Page 46
Þuríður Ottesen, eigandi BÓEL, hreifst af Trippen skónum eftir að fjöldi við-
skiptavina kom að kaupa fatnað í
þessum fallegu skóm. Sum pörin
voru komin til ára sinna en þau
voru alltaf f lott.
„Fatnaðurinn í BÓEL er svo-
lítið öðruvísi og með vísun í
Japan og boho og avant garde
hönnunarstíl. Það er mikill
samhljómur í þessu og skónum
frá Trippen og þegar viðskipta-
vinir tvinna saman fatnaðinn og
skóna myndast skemmtileg heild
og stundum hreinasti galdur,“
útskýrir Þuríður.
„Trippen skór eru sannarlega
lífsstíll, enda er hvert par lista-
verk. Skórnir eru handgerðir
og framleiddir af mikilli alúð í
verksmiðju sem er rétt fyrir utan
Berlín,“ segir Þuríður. „Þar er
séð vel um starfsmenn, enda er
starfmannavelta lítil og nokkrir
starfsmenn búnir að vinna þar í
næstum 30 ár.“
Endingargóðir og
umhverfisvænir
„Trippen hefur líka unnið til fjölda
verðlauna fyrir endingu, sem er
eitthvað sem við þurfum öll að
huga að í dag, og umhverfissjónar-
mið eru höfð að leiðarljósi í fram-
leiðslunni,“ segir Þuríður. „Það
er notast við náttúrulega liti og
með því að framleiða þá úr besta
hráefni sem völ er á í Evrópu er
hægt að tryggja einstaklega góða
endingu, sem lágmarkar sóun.
Ég er ánægð með að bjóða upp
á skó og fatnað sem er gaman að
eiga lengi og er alltaf smart og við
viljum vera þekkt fyrir það,“ segir
Þuríður. „Það er þessi hugsjón sem
drífur mig áfram í rekstri BÓEL.
Mér finnst það einstaklega
ánægjulegt þegar viðskiptavinir,
sem eru oft í 10-15 ára gömlum
skóm, fjárfesta í nýjum Trippen
skóm og og segja: „Ég er sko ekki að
fara að granda gömlu skónum, af
því að það er hægt að gera þá upp.“
Það býr til vinnu handa skósmið-
um, sem geta gert þá næstum eins
og nýja,“ útskýrir Þuríður og heyra
má að henni er annt um sjálf bærni
og umhverfisvernd.
Tilboð og kaupaukar í boði
En hvað skyldi vera að seljast mest
núna fyrir jólin?
„Það fer mjög mikið af skóm,
handtöskum og fatnaði,“ segir
Þuríður. „Svo eru lífrænu snyrti-
vörurnar frá Antipodes líka mjög
vinsælar, en það er 20 prósenta
afsláttur af þeim núna fyrir jólin.
Allir sem kaupa Trippen skó
fyrir jólin fá líka andlitsgrímu að
gjöf. Gríman er með silki næst
vitunum sem er mjög gott að anda
í gegnum og rannsóknir sýna að
silki sé það efni sem helst hrindir
frá sér bakteríum og vírusum,“
útskýrir Þuríður. „Svo er hún
geggjað flott og með réttu skila-
boðin. Einn viðskiptavinur sem
var sérstaklega ánægður með
grímuna sagði: „Loksins get ég
andað í gegnum grímuna og fæ
ekki útbrot í kringum munninn.““
Fyrir hönd BÓEL langar mig
svo bara að þakka kærlega fyrir
þá uppörvun að heyra margoft
nú fyrir jólin frá eiginmönnum og
börnum viðskiptavina: „Mamma
eða konan mín vill fá jólagjöf úr
BÓEL af því það er uppáhalds-
búðin hennar.“ Mig langar líka að
þakka öllum frábæru viðskipta-
vinunum sem leggja leið sína á
Óðinsgötuna til okkar. Gleðilega
hátíð!“ segir Þuríður að lokum.
Á heimasíðu BÓEL, www.boel.is,
er hægt að skoða og panta flest
allt það sem er til sölu í búðinni.
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Þuríður segir að
Trippen skórnir
hafi einstaklega
góða endingu og
umhverfissjónar-
mið séu höfð
að leiðarljósi í
framleiðslunni.
Hvert par er lista-
verk, en skórnir
eru handgerðir
og framleiddir
af mikilli alúð í
verksmiðju rétt
fyrir utan Berlín.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Glæsileg Trippen Seath stígvél. Litur: Steel. Verð: 66.000 kr.
Trippen Fuchsia ökklaskór. Litur: Bleikur. Verð: 49.000 kr.
Töff Trippen Average uppreimuð leðurstígvél. Verð: 56.000 kr.
Antipodes húðvörurnar eru á 20 prósenta afslætti núna
fyrir jólin. Þær eru frábær gjöf.
Flottu og þægilegu I NEED SPACE grímurnar eru með
silki næst vitunum og kosta 3.900 kr.
Ég er ánægð með
að bjóða upp á skó
og fatnað sem er gaman
að eiga lengi og er alltaf
smart og við viljum vera
þekkt fyrir það.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R