Fréttablaðið - 19.12.2020, Page 59
Umsóknarfrestur er til og með 19. janúar 2021.
Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið postur@anr.is.
Upplýsingar um starfið veitir Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytis-
stjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu (postur@anr.is).
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur
verið tekin.
— MEGIN STARFSSVIÐ:
• Stjórnun, leiðsögn og forysta
• Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi
• Ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð
• Samskipti við stjórnvöld, stofnanir og atvinnulíf
• Forysta um erlent samstarf og samskipti
• Forstjóri er talsmaður stofnunarinnar
— MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Háskólapróf á verkefnasviði stofnunarinnar
• Árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri,
þar með talið gerð rekstraráætlana
• Góð hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
• Vald á einu Norðurlandamáli er kostur
• Þekking og reynsla af alþjóðasamstarfi er kostur
Stofnunin er sjálfstæð rannsókna- og ráðgjafarstofnun sem heyrir
undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Stofnunin á í víðtæku
samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknastofnanir, atvinnulíf
og samfélag. Stofnunin rekur, auk aðalstöðva í Hafnarfirði, starfs-
stöðvar víða um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hefur
að jafnaði um 190 starfsmenn í þjónustu sinni. Heildarútgjöld
Hafrannsóknastofnunar nema um 4 ma. kr. á ári.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir
hæfniskröfur fyrir starfið. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja
um embættið. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun skipa
þriggja manna hæfisnefnd sem metur hæfni umsækjenda og skilar
greinargerð til ráðherra.
Embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar, rannsókna-
og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna, laust til umsóknar.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar í embættið til fimm ára
frá 1. apríl 2021.
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur leiðtogahæfileika, er framsýnn
í hugsun, hefur sýnt hæfni í samskiptum og samvinnu og býr yfir
metnaði til að ná árangri í þágu almennings og atvinnulífs.
Forstjóri
Hafrannsóknastofnunar