Fréttablaðið - 19.12.2020, Side 72
Platan hefur hlotið frábærar viðtökur líkt og eldri systirin. Á plötunni eru textarnir í
aðalhlutverki og sækir Swift efni
við víða. Líkt og hún gerði á folk
lore, þá eru mörg lögin skrifuð frá
sjónarhorni ímyndaðra og raun
verulegra persóna.
Hjartnæmir hugarórar
Líkt og á folklore er platan að
miklu leyti unnin í samstarfi við
Aaron Dessner í hljómsveitinni
The National. Þá kemur Jack
Antonoff, sem Swift hefur unnið
mikið með undanfarin ár, einn
ig við sögu en þó bara í tveimur
lögum að þessu sinni, popplaginu
gold rush og ivy.
Eftir útgáfu folklore veltu margir
vöngum yfir því hver William
Bowery væri, en hann var skráður
sem einn höfunda laganna betty
og exile. Ein algengasta uppá
stungan var sú að þetta væri kær
asti Swift, leikarinn Joe Alwyn, og
reyndist það tilfellið. Á evermore
snýr hann aftur og er skráður fyrir
þremur lögum.
Í gegnum tíðina hefur Swift
lagt það að í vana sinn að setja til
finningaríkustu lögin sem fimmtu
lög plötunnar og á evermore er þar
engin undantekning. Í laginu segir
frá konu í ástarsambandi sem upp
lifir að ást sín sé ekki endurgoldin.
Einhverjir töldu að hún væri
mögulega að skrifa út frá sjónar
horni myndlistarkonunnar Fridu
Kahlo, þar sem söguhetjan segir
elskhuga sinn vera eldri og vitrari
en hún og að hún velji bestu litina
fyrir portrettmyndina af honum.
Óður til ömmu
Tilfinningaríkasta lag plötunnar
er þó sennilega frekar þrettánda
lag plötunnar, marjorie. Lagið er
óður Swift til móðurömmu sinnar,
óperusöngkonunnar Marjorie
Finley, sem lést árið 2003. Í laginu
rifjar hún upp hjartfólgnar minn
ingar af ömmu sinni sem augljós
lega var mikill áhrifavaldur í lífi
hennar. Í textamyndbandinu við
lagið má sjá fjölda myndbrota af
ömmu hennar og má heyra rödd
hennar í bakgrunni.
Rob Sheffield, blaðamaður hjá
Rolling Stone, segir lagið vera eitt
merkilegasta lag Swift og bendir á
að lagið eigi sérstaklega við á þeim
tímum sem við nú lifum þegar
margir syrgja ástvini sína. Þá er
gaman að geta þess að á folklore
var lagið epiphany númer þrettán,
en þar vísaði hún til afa síns sem
barðist í seinni heimsstyrjöldinni
og tengdi það við raunir heilbrigð
isstarfsfólks á okkar tímum.
Einnig er áhugavert að talan
þrettán er Swift afar hugleikin en
hún er fædd þann 13. desember
árið 1989 og hefur notað töluna
þrettán á svo marga og marg
slungna vegu að ómögulegt er að
gera því skil nema með umtals
verðri rannsóknarvinnu.
Fjörugasta lag plötunnar er
sennilega lagið long story short þar
sem rödd Swift og trommuheili
eru í aðalhlutverki. Í laginu, sem er
ástaróður til núverandi elskhuga,
vísar hún til ævintýra á borð við
Lísu í Undralandi þegar hún segist
hafa dottið ofan í kanínuholu en
þó lifað af.
Óhætt er að fullyrða að árið
2020 hafi verið fullt af myrkri og
vonbrigðum, en Taylor Swift til
heyrir þeim ekki.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Að eilífu Taylor
Taylor Swift gaf nýverið út sína níundu plötu, evermore.
Hún lýsir henni sem systur folklore sem kom út í sumar.
Taylor Swift
varð 31 árs
13. desember
síðastliðinn,
tveimur dögum
eftir að hún gaf
út sína níundu
plötu. Til
samanburðar er
gaman að geta
þess að Leonard
Cohen var 33
ára gamall
þegar hann gaf
út sína fyrstu
plötu.
Taylor Swift
hefur verið afar
akastamikil
undanfarið ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Taylor Swift
syngur meðal
annars um
ömmu sína á
nýju plötunni.
SKRUDDA
Hamarshöfða 1 – 110 – Reykjavík
skrudda@skrudda.is – 5528866
www.skrudda.is
Pottþéttar
bækur
12 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R