Fréttablaðið - 19.12.2020, Síða 100
ÞÓTT HEIMURINN OG
MANNFÓLKIÐ SÉU
GALLAGRIPIR ÞÁ ER STUNDUM
GAMAN.
VÉL er þriðja ljóðabók Stein-u nnar A r nbjargar Stef-ánsdóttur. Hún er selló-
leikari, bjó lengi í Frakklandi en
nú á Akureyri. „Bókin er ofin úr
mörgum þráðum. Smíði hennar
hófst í f lugvélum og á f lugvöllum,
og fjallar hún í eina röndina af
mörgum um ferðalagið frá Frakk-
landi til Íslands sem ég þráði oft og
mjög. Svo vatt þetta utan á sig og
eftir stendur nokkurs konar vanga-
velta um mannkynið, veturinn og/
eða hversdaginn. Hinum kvenlega
kveinstafaþræði bregður fyrir,
en hann uppgötvaði ég, þökk sé
grein sem ég las eftir Helgu Kress í
fyrra,“ segir Steinunn. Einnig her-
skáum ljóðum og saknaðar. Stein-
unn segir síst vera þunglyndistón
í ljóðunum: „Þótt heimurinn og
mannfólkið séu gallagripir þá er
stundum gaman.“
Steinunn byrjaði ung að yrkja.
„Ég hnoðaði saman vísur þegar ég
var krakki eins og gengur og réðst
svo af einbeittari ásetningi í ljóða-
gerð þegar ég var unglingur.“
Sellóleikur og tónsmíðar tóku
síðan við en Steinunn hefur tals-
vert samið tónlist við eigin ljóð. „Ég
var rúmlega tvítug þegar ég samdi
fyrsta lagið við ljóð eftir sjálfa mig.
Það þótti mér vera fyrsta almenni-
lega lagið sem ég bjó til. Framan af
hafði ég áhuga á skáldskap og ljóða-
gerð án þess að tengja það beinlínis
við tónlistina. En svo varð þetta að
einni þvíþátta f léttu, eða vafningi.
Tónlistin og ljóðlistin eru sama sem
ein rödd.“ kolbrunb@frettabladid.is
Sama sem ein rödd
Bókin er ofin
úr mörgum
þráðum,
segir Stein-
unn. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Sumarliði R. Ísleifsson er höfundur bókarinnar Í fjarska norðursins – Ísland og Grænland – viðhorfa-saga í þúsund ár. Bókin er tilnefnd til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna. Hún er tæpar
400 síður, skiptist í fjóra hluta og í
henni eru um 200 myndir.
Vildi fá samanburð
„Hugmyndir annarra um Ísland og
sjálfsmyndir þjóðarinnar hafa lengi
verið mér hugstæðar og ekki síst
samspil þeirra. Oft hef ég velt því
fyrir mér hvernig viðhorf Íslendinga
til sjálfra sín hafa mótast. Við þeirri
spurningu eru mörg svör. Eitt þeirra
er viðhorfin að utan, og hvaða áhrif
þessi viðhorf hafa á það hvernig við
lítum á okkur sjálf,“ segir Sumarliði.
„Svo fannst mér ég ekki geta fjallað
um þetta eitt og sér, heldur vildi
fá samanburð við eitthvert annað
land og þá var nærtækast að taka
Grænland. Það er margt svipað
með þessum löndum en líka ýmis-
legt ólíkt og það gefur tækifæri til að
draga fram hvað er sérstakt við hug-
myndir manna um þessi tvö lönd.
Í bókinni fjalla ég um það hvernig
hugmyndir um fólk og þjóðir verða
til, hvers eðlis þessar hugmyndir
eru, hvernig þær eru byggðar upp
og hvernig þær birtast.“
Útópía Evrópu
Um efni bókarinnar segir Sumar-
liði: „Fyrst ræði ég um miðalda-
lýsingar frá því í kringum 1100 og
fram um 1500. Á þessu tímabili
eru löndin nánast óþekkt, örfáar
en áhrifaríkar lýsingar eru til frá
þessum tíma, engar frá sjónar-
vottum.
Næsta tímabil nær frá því um
1500 til miðrar 18. aldar. Hér eru
aðallega ráðandi tvenns konar við-
horf, annars vegar um hinn göfuga
villimann og hins vegar um hinn
siðlausa villimann og þessi við-
horf eru heimfærð upp á löndin
tvö. Fólk álítur að þetta sé eitt og
sama svæðið og þar búi fólk sem
lifi sams konar lífi og standi nánast
utan heimsins.
Þriðja tímabilið nær frá ofan-
verðri 18. öld og fram um 1900;
hér má segja að skilji leiðir á milli
Íslands og Grænlands. Ísland varð
á þessum tíma hluti Evrópu, nánast
eins og safn um lífið í frum-Ger-
maníu en Grænlendingar héldu
áfram að vera fjarlægir, frumstæðir
og framandi.
Á fjórða tímabilinu birtist Ísland
oft sem útópía Evrópu, en Græn-
land birtist iðulega sem andstæða
Íslands. Vitaskuld má sjá margvís-
legar breytingar frá elstu lýsingum
á löndunum tveimur og samtíma-
lýsingum. En samt er margt furðu
líkt við upphaf og lok tímabilsins
þegar nánar er að gáð.
Hluti af ímynd þessara svæða
er efasemdir um það hvernig lönd
þetta eru. Í hugum fólks geta þau
verið siðlaus og villimannleg en
líka menningarleg og siðleg. Fólk
veit að þau eru ólík þeim löndum
sem það þekkir og öðruvísi, en það
gerir líka að verkum að fólk hefur
áhuga á þessum tveimur löndum
og langar að fara þangað.“
Hugmyndir um Ísland og Grænland
Sumarliði R. Ísleifsson er höfundur bókar um viðhorf til Íslands og Grænlands.
Segir hluta af ímynd þessara svæða vera efasemdir um hvernig lönd þetta eru.
Hef velt því fyrir mér hvernig viðhorf Íslendinga til sjálfra sín hafa mótast, segir Sumarliði. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Starfsfólk bókaverslana er ann-álað fyrir góðan bókmennta-smekk. Á dögunum var
tilkynnt um úrslit í bókmennta-
verðlaunum þeirra. Listinn yfir
verðlaunabækurnar er á þessa
leið:
Besta skáldsagan
Snerting eftir Ólaf
Jóhann Ólafsson
Besta þýdda skáld-
verkið
Beðið eftir barbörun-
um eftir J. M. Coetzee
Besta ljóðabókin
Sonur grafarans
eftir Brynjólf Þor-
steinsson
Besta ungmenna-
bókin
Skógurinn eftir
Hildi Knútsdóttur
Besta ævisagan
Berskjaldaður eftir Gunnhildi
Örnu Gunnarsdóttur
Besta barnabókin
Grísafjörður eftir Lóu Hlín Hjálm-
týsdóttur
Besta þýdda
barnabókin
Múmínálfar – stór-
bók 3 eftir Tove
Jansson
Besta fræðibókin
Konur sem kjósa eftir
ýmsa höfunda
Bóksalar velja
það besta
Í BÓKINNI FJALLA ÉG
UM ÞAÐ HVERNIG
HUGMYNDIR UM FÓLK OG
ÞJÓÐIR VERÐA TIL, HVERS
EÐLIS ÞESSAR HUGMYNDIR ERU,
HVERNIG ÞÆR ERU BYGGÐAR
UPP OG HVERNIG ÞÆR BIRTAST.
Úlfar Örn sýnir verk á mynd-listarsýningunni Haustar í Gallery Grásteini á Skóla-
vörðustíg. Úlfar Örn er kunnur fyrir
málverk sín af íslenska hestinum.
Úlfar Örn stundaði nám í MHÍ
í Reykjavík og Konstfack í Stokk-
hólmi og lærði þar grafíska hönnun
og myndskreytingar. Hann starf-
aði við hönnun og auglýsingagerð
í mörg ár ásamt því að iðka list sína.
Undanfarin ár hefur hann alfarið
getað helgað sig myndlistinni. Úlfar
hefur haldið fjölmargar einkasýn-
ingar á Íslandi og tekið þátt í sam-
sýningum erlendis.
Sýningin í Gallery Grásteini
stendur til 29. desember.
Úlfar Örn sýnir
hestamálverk
Úlfar sýnir verk á myndlistarsýning-
unni Haustar í Gallery Grásteini.
1 9 . D E S E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R68 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING