Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 43

Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 43
Gunnar Mýrdal brjóstholsskurðlæknir lést fyrir aldur fram þann 10. september síðastliðinn eftir baráttu við erfiðan illkynja sjúk- dóm. Hann var fæddur 11. apríl 1964 og því aðeins 56 ára gamall er hann lést. Gunnar var stúdent frá Fjölbrautaskóla Vesturlands 1984 og lauk embættisprófi frá læknadeild vorið 1991. Gunnar fékk sér- fræðiréttindi í almennum skurðlækningum 1998 og í brjósthols- skurðlækningum árið 2001 frá Uppsala Akademiska sjúkrahús- inu og Uppsalaháskóla. Hann varði doktorsritgerð sína við sömu stofnun árið 2003. Fjallaði hún um nýgengi og árangur meðferðar lungnakrabbameins í Svíþjóð. Gunnar flutti heim til Íslands árið 2008 til starfa á brjósthols- skurðdeild Landspítala sem sérfræðingur og sem yfirlæknir frá árinu 2016. Hann lauk MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík 2015. Undirritaður kynntist Gunnari Mýrdal fyrst fyrir tæpum 30 árum þegar við störfuðum saman tveir ungir læknar á sjúkrahús- inu á Akranesi á tvískiptum vöktum. Ég að stíga mín fyrstu skref í starfi og hann að taka sitt annað ár eftir útskrift. Gunnars minnist ég sem hjálpsams og góðs félaga sem þá þegar var góð fyrirmynd í starfi. Hann var umhyggjusamur við sjúklinga sína og áhugasamur um starf sitt, vingjarnlegur og liðlegur í samskiptum. Enda vin- sæll meðal samstarfsfólks og sjúklinga. Augljóst var strax á þess- um árum hversu skurðlækningar lágu vel fyrir honum, lipur og áræðinn en ábyrgur við störf sín. Gunnar Mýrdal var í samskiptum hreinskiptinn með þægilega nærveru og fjörugt og stundum gáskafullt skopskyn. Leiðir okk- ar lágu meira saman aftur síðustu misserin í störfum fyrir okkar nýstofnað Félag sjúkrahúslækna og var ljóst að þrátt fyrr þroska ár- anna bjó Gunnar enn að óspilltum sínum góðu eiginleikum. Gunn- ar sat meðal annars sem annar fulltrúi Félags sjúkrahúslækna í stjórn Læknafélags Íslands þar til veikindi hans hindruðu þátttöku. Margir eiga um sárt að binda við fráfall Gunnars Mýrdal. Sérstak- lega hans stóra fjölskylda en hann lætur eftir sig 8 börn og þar með talda eina nýfædda dóttur. Eftirlifandi eiginkona Gunnars Mýrdal er Ingibjörg Kristjánsdóttir sérfræðingur í hjartalyflækningum. Læknafélag Íslands og Félag sjúkrahúslækna vottar þeim sína dýpstu samúð. Stórt skarð er höggvið í íslenska læknastétt með ótímabæru fráfalli Gunnars Mýrdal. Blessuð sé minning góðs drengs og kollega. Gunnar Mýrdal sérfræðingur í brjóstholsskurðlækningum Kveðja frá Læknafélagi Íslands og Félagi sjúkrahúslækna In Memoriam Ólafur Samúelsson www.sak.is/atvinna Öryggi | Samvinna | Framsýni Yfirlæknir í hjartalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri Laus er til umsóknar staða yfirlæknis í hjartalækningum. Um er að ræða 100% starf sem veitist frá 1. janúar 2021 eða eftir nánara samkomulagi. Yfirlæknir mun hafa ábyrgð á sviði hjartalækninga á lyflæknissviði og sinna m.a. deildarvinnu, göngudeildarmóttöku, vinnu við lífeðlisfræðideild, ásamt kennslu nema í starfsþjálfun og klínísku námi. Íslensk sérfræðiréttindi í hjartalækningum og lyflækningum er krafa. Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2020 Allar nánari upplýsingar á vef
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.