Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 30
524 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106
F R É T T I R
Alls fékk 41% smitaðra hita yfir 38 gráður
vegna COVID-19 veikinda á tímabilinu 17.
mars til 30. apríl og innan við helmingur,
47%, fékk hita yfirhöfuð. 59% þeirra sem
greindust einkennalaus með COVID-19
fundu ekki fyrir því að hafa smitast af
veirunni en alls voru 5,3% þeirra 1564 sem
greindust á tímabilinu einkennalaus og
veiktust 41% þeirra í kjölfarið.
„Þetta gefur ekki rétt hlutfall ein-
kennalausra í samfélaginu því flest
þessara höfðu jú ástæðu til að vera skim-
uð,“ benti Elías S. Eyþórsson, sérnáms-
læknir í lyflækningum á Landspítala,
þegar hann fór yfir klínískar birtingar-
myndir COVID-19 á árlegri uppskeruhátíð
vísindastarfs hjá Landspítala þann 7.
október, Vísindi að hausti, og var gefið
út fylgirit með Læknablaðinu sem geymir
ágrip af efninu: laeknabladid.is/fylgirit/.
Betur mætti meta hlutfallið þegar slembi-
þýði Íslenskrar erfðagreiningar væri skoð-
að en þar hafi 30% þeirra sem greindust
verið einkennalaus.
„Einn áhugaverður flötur á þessu er
að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin og Smit-
sjúkdóma- og forvarnarstofnun Banda-
ríkjanna (Centers for Disease Control and
Prevention), hafa sett greiningarskilmerki
sem einstaklingur ætti að uppfylla til þess
að ástæða sé til að taka kjarnsýrumögn-
Minnihluti COVID-19 smitaðra fær hita
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Meirihluti þeirra sem greindust einkennalausir með
SARS-CoV-2 veirusmit veiktust ekki. Þetta kom fram á
árlegri uppskeruhátíð vísindastarfs Landspítala. Hér er
sjúklingur skoðaður á COVID-19 göngudeildinni í vor.
Mynd/Landspítali/Þorkell Þorkelsson
Aðeins tæpur helmingur þeirra sem greindust með COVID-19 í vor fékk hita. Sérnámslæknir bendir á að
ef farið væri eftir greiningarskilmerki Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar hefðu margir smitaðir ekki
uppfyllt skilyrði til skimunar hér á landi
4504 með COVID-19
4504 greindist með kórónuveiruna sem
veldur COVID-19 frá 28. febrúar til 26.
október. Öldruð kona lést af völdum
veirunnar um miðjan októbermánuð og
varð sú ellefta hér á landi sem deyr af
völdum hennar.
Landspítali var færður á neyðarstig
samkvæmt viðbragðsáætlun spítalans
þann 25. október. Spítalinn er þar í fyrsta
sinn eftir að núgildandi viðbragðsáætlun
tók gildi árið 2006.
unarpróf fyrir SARS-CoV-2. Það sem við
sjáum í okkar gögnum, þar sem lægri
þröskuldur var fyrir prófunum, er að
stór hluti þeirra sem sannarlega eru með
veiruna og höfðu jafnvel einkenni, upp-
fyllti ekki þessi skilyrði. Það gefur til
kynna að ef þessi skilmerki hefðu verið
notuð, hefðu þessir einstaklingar ekki
greinst. Þetta á kannski sérstaklega við
börn og ungmenni.“
Elías sagði að einstakt tækifæri hafi
gefist hér á landi í vor til að lýsa fram-
gangi einkenna hjá fólki með COVID-19.
Þessum 1564 manns hafi verið fylgt eftir
óháð alvarleika veikindanna í 15 daga að
miðgildi, og þeir spurðir um 19 einkenni
sjúkdómsins.
„Algengustu einkenni á fyrsta degi
veikinda voru vöðva- og beinverkir 55%,
höfuðverkur 51% og 49% fékk þurran
hósta,“ sagði hann og benti á að flestar
erlendar rannsóknir á COVID-19 miði við
þá sem leggist inn á spítala. Hins vegar
hefðu gögnin sýnt að hefði það einnig ver-
ið gert í þessu tilfelli hefðu þau talið 80%
einstaklinga þróa með sér hita og mæði og
60% niðurgang. Þess í stað sýndu gögnin
að tæpur helmingur fengju hita og mæði
og 30% niðurgang miðað við uppsöfnuð
einkenni að 21. degi. „Þetta er áhugaverð-
ur flötur í samanburði við önnur lönd.“
Elías S. Eyþórsson, sérnámslæknir í lyflækningum á
Landspítala. Mynd/Landspítali