Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 27
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 521
Y F I R L I T
sjúkdómum, hvort sem litið er til greiningar eða meðferðar.88 Á
meðan margir læknar ræða reglulega um hreyfingu og mataræði
við skjólstæðinga sína eru þeir læknar í minnihluta sem ræða um
mikilvægi svefns89 og vísbendingar eru um að greiningu svefn-
sjúkdóma sé ábótavant, hvort sem litið er til heilsugæslunnar43,89
eða við meðferð á hjarta- og æðasjúkdómum.90
Í ljósi þessa er mikilvægt að vitundarvakning eigi sér stað um
áhrif svefns á líðan, lífsgæði, heilsufar og sjúkdóma.88,91,92 Auka
þarf fræðslu meðal lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks um ein-
kenni, greiningu og meðferð svefnsjúkdóma og ættu læknar að
taka þar frumkvæði og vera í forsvari fyrir og stýra slíkri fræðslu
í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir. Fræðsla og stuðningur við
góðar svefnvenjur ættu að vera hluti af allri heilsuvernd og mikil-
vægt er að læknar ræði reglulega um svefn við skjólstæðinga sína.
Fyrir þá sjúklinga sem hafa svefnkvartanir og/eða ef grunur vakn-
ar um svefnsjúkdóm, þarf aðgengi að svefnmælingum að vera gott.
Svefnmæling þarf að gefa upplýsingar um lengd og gæði svefns,
mæla þá þætti sem greining svefnsjúkdóma byggir á og bjóða upp
á möguleika á endurteknum mælingum til að fylgja eftir árangri
meðferðar þegar við á. Með þeirri tækniþróun sem hefur átt sér
stað á síðustu árum eru svefnmælingar orðnar mun einfaldari
fyrir sjúklinga sem nú geta mælt svefn sinn heima. Úrlestur mæl-
inganna getur verið sjálfvirkur, sem gerir kostnað raunhæfan, og
framsetning á niðurstöðum rannsókna auðveldar læknum að lesa
úr og túlka niðurstöður til sjúkdómsgreiningar og innleiðingar og
eftirfylgni á meðferð.35 Ef bættur árangur á að nást í meðhöndlun
svefnsjúkdóma og þeirra sjúkdóma sem eru beint tengdir skorti á
svefni og/eða svefngæðum og svefnsjúkdómum er mikilvægt að
meðhöndlun svefnsjúkdóma fylgi sambærilegum ferlum og gilda
fyrir meðhöndlun annarra langvinnra sjúkdóma. Nefna má sem
dæmi meðferð á háþrýstingi og sykursýki sem byggja á regluleg-
um mælingum, greiningum og endurmati þar sem ávallt er byggt
á hlutlægum upplýsingum.93
Lokaorð
Í dag er áhættumat hjarta- og æðasjúkdóma byggt á upplýsing-
um um hreyfingu, mataræði, blóðþrýsting, blóðfitur, blóðsykur,
þyngd og reykingar.94 Nýlega sendu Bandarísku hjartasamtök-
in (American Heart Association, AHA) frá sér yfirlýsingu sem
byggð er á rannsóknum og aukinni þekkingu á þeim neikvæðu
áhrifum sem stuttur svefn og/eða léleg svefngæði hafa á hjarta-
heilsu og þróun hjarta- og æðasjúkdóma. Í yfirlýsingunni leggur
AHA áherslu á mikilvægi svefns með það að markmiði að fyrir-
byggja þróun hjarta- og æðasjúkdóma og veltir upp þeirri spurn-
ingu hvort ekki sé kominn tími til að endurskoða núverandi
áhættumat (Simple 7) þannig að það feli í sér mat á svefngæðum
(Essential 8).64,95
Höfundar vona að með samantekt þessari hafi áhugi á svefni
glæðst hjá einhverjum lesendum. Meiri áhersla á greiningu og
meðferð svefnsjúkdóma ætti að geta haft jákvæð áhrif á gæði
þjónustu við sjúklinga og bætt árangur í meðhöndlun á svefnsjúk-
dómum og ýmsum langvinnum sjúkdómum, svo sem hjarta- og
æðasjúkdómum. Meiri áhersla á svefngæði, bæði í forvörnum og í
meðferð sjúkdóma, ætti einnig að geta haft jákvæð áhrif á rekstur
heilbrigðiskerfisins og skilað bættri lýðheilsu.96
Greinin barst til blaðsins 31. maí 2020, samþykkt til birtingar 24. ágúst 2020.
The role of sleep and sleep disorder management in reducing
cardiovascular- and cardiometabolic risk and improving
treatment outcomes
Sólveig Dóra Magnúsdóttir1
Erla Gerður Sveinsdóttir2
1MyCardio, Denver Colorado
2Heilsugerðin, Sporthúsinu
Key words: Sleep Quality, Sleep Duration, Sleep Disorders, Insomnia,
Sleep Apnea, Cardivascular Disorders, Cardiometabolic Disorders
Correspondence: Sólveig Dóra Magnúdóttir,
solveig.magnusdottir@sleepimage.com
doi 10.17992/lbl.2020.11.607
Despite extensive knowledge on the importance of quality sleep for health and
wellbeing, sleep quality and sleep disorders are commonly overlooked in both pre-
vention and treatment of chronic illnesses. The aim of this review is to draw atten-
tion to recently published literature focusing on how disrupted sleep contributes to
the onset and progression of chronic diseases, with focus on cardiovascular- and
cardiometabolic diseases.
Diagnosis and management of sleep disorders are an important part of prevention
and chronic disease management to optimize outcomes and improve patients´ health
and quality of life.
Objective sleep disorder diagnosis is relevant to ensure appropriate therapy inter-
vention, and for sleep disorders to be managed as other chronic diseases based on
regular objective assessments of treatment efficacy.
In light of the knowledge of how short sleep and/or low sleep quality negatively af-
fects the cardiovascular system, including objective sleep evaluation in the standard
of care for risk assessment and management of cardiovascular diseases may im-
prove cardiovascular risk prediction and improve outcomes.
E N G L I S H S U M M A R Y
Tafla yfir ritrýndar greinar um þetta efni frá árunum 2016-2020 er að finna á
heimasíðu blaðsins.