Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 57

Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 57
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 551 Dögg Pálsdóttir lögfræðingur Læknafélags Íslands dogg@lis.isSjúkratryggingar L Ö G F R Æ Ð I 3 8 . P I S T I L L Sjúkratryggingar eru einn hornsteina heil- brigðiskerfisins. Þær tryggja sjúklingum aðgang að heilbrigðisþjónustu sem greidd er ýmist að fullu gegnum sjúkratryggingar eða að hluta á móti greiðsluþátttöku sjúk- lingsins, hins sjúkratryggða. Upphaf sjúkratrygginga má rekja til stofnunar sjúkrasamlaga hér á landi. Sjúkrasamlag Reykjavíkur var stofnað 19091 á frjálsum grundvelli. Tveimur árum síðar voru samþykkt lög um sjúkrasamlög sem mæltu fyrir um að sjúkrasamlög veittu að minnsta kosti ókeypis læknis- hjálp og sjúkrahúsvist auk dagpeninga. Ið- gjöld félagsmanna, sjúkratryggðra, skyldu hrökkva fyrir útgjöldum. Sjúkrasamlögin náðu framan af ekki almennri fótfestu. Lög um alþýðutryggingar 1936 og lög um al- mannatryggingar 1946 reyndu að bæta úr. En sjúkratrygging landsmanna var brota- kennd uns lögfest var árið 1951 að sjúkra- samlög skyldu starfa um land allt. Frá 1. október 1951 urðu allir landsmenn loksins sjúkratryggðir.2 Læknafélag Reykjavíkur (LR) var stofn- að árið 1909, gagngert til að koma að samn- ingsgerð lækna við hið nýstofnaða sjúkra- samlag.3 Þó starfsemi LR hafi fljótt orðið fjölbreyttari hefur LR allar götur síðan haft með höndum samningsgerð lækna vegna starfa þeirra í þágu sjúkratryggðra, fyrst við sjúkrasamlög, síðan Tryggingastofnun ríkisins þegar sjúkrasamlögin voru lögð niður árið 1990 og loks Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) þegar þær voru stofnaðar 1. október 2008.4 Gildandi ákvæði um sjúkratryggingar er að finna í samnefndum lögum nr. 112/2008. Þar segir m.a. að sjúkra- tryggingar taki til nauðsynlegra rann- sókna og meðferðar hjá sérgreinalæknum sem samið hefur verið um.5 SÍ semja um veitingu heilbrigðisþjónustu, m.a. við fyrirtæki og einstaklinga og greiða þeim endurgjald í samræmi við gerða samninga. Lögin breyttu eldra fyrirkomulagi og þó ekkert komi fram um það í lögunum sjálf- um er tiltekið í athugasemdum með frum- varpi því sem varð að lögum um sjúkra- tryggingar að ekki yrði samið við fagfélög eða stéttarfélög eins og tíðkast hefði. Velta má fyrir sér hvort þær athugasemdir eru skynsamlegar eða í samræmi við hvað mögulegt er og skynsamlegt. Spurning er hvort þessi breyting eigi þátt í þeim erfið- leikum sem virðast einkenna samnings- gerð SÍ og nánar er vikið að hér á eftir. Reynsla sérfræðilækna, og raunar annarra veitenda heilbrigðisþjónustu, er sú að það er torsótt að ná samningum við SÍ.7 Stofnunin tók til starfa 1. október 2008, fyr- ir réttum 12 árum. Á þeim tíma hafa sér- fræðilæknar verið samningslausir 1. apríl 2011 til 31. desember 2013 og frá 1. janúar 2019. Þannig hafa heilbrigðisyfirvöld boðið sjúkratryggðum upp á það að sérfræði- læknar séu samningslausir um þá þjónustu sem sjúkratryggðir eiga lögvarinn rétt á frá þeim nálægt 40% af líftíma stofnunarinnar. Lögin gera þó ráð fyrir að þessi staða geti komið upp, þ.e. að samningar um heilbrigðisþjónustu séu ekki fyrir hendi. Í því tilviki „er í sérstökum tilfellum heimilt tímabundið að endurgreiða sjúkratryggðum útlagðan kostnað vegna heilbrigðisþjónustu á grundvelli gjaldskrár sem sjúkratryggingastofn- unin gefur út.”8 Um þetta segir í skýringu:9 Ákvæðið er nýmæli. Meginreglan er enn sem fyrr að í öllum tilvikum þurfi að liggja fyrir samningar milli sjúkratrygginga- stofnunarinnar og veitenda þjónustu ef til þess á að koma að ríkið greiði hlutdeild í kostnaði við heilbrigðisþjónustu. Í einstök- um afmörkuðum tilvikum þykir þó rétt að sjúkratryggingastofnuninni sé heimilt að endurgreiða sjúkratryggðum útlagð- an kostnað vegna heilbrigðisþjónustu á grundvelli gjaldskrár sem sjúkratrygginga- stofnunin gefur út. Gert er ráð fyrir að ávallt verði gripið til slíks úrræðis tímabundið og að ákvæðið heimili ekki að komið sé á varanlegu endurgreiðslu- kerfi án þess að fyrir liggi samningar milli sjúkratryggingastofnunarinnar og viðsemjenda. Einkum er gert ráð fyrir að ákvæðið verði nýtt til að brúa millibils- ástand þegar samn ingaviðræður standa yfir og ekki hafa verið gerðir fullnægjandi samningar um heilbrigðisþjónustu á af- mörkuðu sviði. (Leturbreytingar DP.) Heilbrigðisráðherra hefur alltaf sett gjald- skrá þegar ekki hafa náðst nýir samningar um veitingu heilbrigðisþjónustu. Það tel ég ráðherra skylt, þó túlka megi lagaákvæðið svo að gjaldskrá skuli einungis setja í sér- stökum tilfellum. Sú túlkun stenst ekki því þar með gætu SÍ neitað að semja við veitendur þjónustu og svipt sjúkratryggða lögvörðum rétti til heilbrigðisþjónustu sem sjúkratryggingar ná til. Lögin gera ráð fyrir að þegar enginn samningur er um þjónustu skuli sjúkra- tryggður greiða sérfræðilækninum allan kostnað við þjónustuna og sækja endur- greiðsluhluta sinn til SÍ. Þessu ákvæði laganna fylgja SÍ ekki, heldur biðja sérfræðilækna og aðra heilbrigðisstarfs- menn í sömu stöðu samningsleysis að innheimta hlut sjúkratryggðra beint frá SÍ samkvæmt gjaldskránni. Með því hlífa SÍ sér og starfsmönnum sínum við að taka á móti endurgreiðslukröfum sjúkratryggðra vegna þeirra um það bil 500.000 heim- sókna sem sérfræðilæknar annast á ári hverju. Það er umhugsunarefni að sá tími sem sérfræðilæknar hafa verið án samnings við SÍ síðustu 12 árin er orðinn svo langur að heilbrigðisyfirvöld sýnast í raun búin að koma á varanlegu endurgreiðslukerfi án samninga. Margir óttast að í þessu ástandi skapist aðstæður fyrir tvöfalt heil- brigðiskerfi. Verði sú raunin hafa SÍ með tregðu sinni til að semja við sérfræðilækna og aðra veitendur þjónustu gengið þvert gegn einu meginmarkmiði laga um sjúkra- tryggingar sem er að tryggja sjúkratryggð- um jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Heimildir 1. Áður hafði sjúkrasamlag prentara verið stofnað árið 1897. 2. Guðmundsson G. Almannatryggingar á Íslandi. 50 ára saga Tryggingastofnunar ríkisins, Reykjavík 1992. 3. Böðvarsson S. Læknafélag Reykjavíkur 100 ára. Læknablaðið 2009; 95: 131. 4. Aðkoma LR að samningsgerðinni eftir gildistöku laga um sjúkratryggingar frá 2008 hefur falist í gerð rammasamn- ings sem einstakir sérfræðilæknar gerast aðilar að. 5. 19. gr. laga um sjúkrastryggingar. 6. Sjá skýringar við 39. gr. frumvarpsins. althingi.is/ altext/135/s/0955.html - október 2020. 7. Sjá t.d. nýlega úttekt KPMG á starfsumhverfi þjónustu- veitenda í heilbrigðisþjónustu 8. 38. gr. laga um sjúkratryggingar. 9. Sjá skýringar við 38. gr. frumvarpsins. althingi.is/ altext/135/s/0955.html - október 2020.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.