Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 55
Ö L D U N G A D E I L D
nefndri úttekt frá 1767. Á annarri myndinni sést flattur fisk-
ur og yfir honum þrjár kórónur. Til hliðar er svo eins konar
þakkarávarp eða tileinkun til konungs eins og áður hefur
verið greint frá (myndir 1, 2).
Á hinni myndinni er eldfjall og táknmyndir af pelíkana,
vog, akkeri og gnægtahorni (mynd 3).
Ein kóróna, þrjár eða fjórar?
Var hann krýndur, þessi klofni eða flatti fiskur sem var mál-
aður í apótekinu – og ef svo var, hafði hann eina eða þrjár
kórónur?
Merki Íslands var um aldir flattur fiskur með einni kórónu
yfir. Þetta merki var á innsigli landsins frá 1593 (mynd 4)3 og
hafði meðal annars verið notað á titilsíðu bóka sem prentaðar
voru á Hólum, til dæmis Guðbrandsbiblíu og Grallarann.
Merkið var alþekkt. Íslandsfiskurinn kom oft fyrir í
skjaldarmerkjum og innsiglum Danakonunga (mynd 5).
Í úttektinni 1767 segir ,,med flecket Fisk som Iislands
Vaaben, og 3de Croner over samme.” Ég tel að þessi orð beri
að skilja svo að merki Íslands sé flattur fiskur með einni
kórónu en þar fyrir ofan séu þrjár kórónur til viðbótar.
Danakonungar höfðu um aldir haft þrjár kórónur í
skjaldarmerki ríkisins og Margrét Þórhildur Danadrottning
hefur reyndar enn þrjár kórónur í skjaldarmerki sínu. Þetta
er sagt vera til minningar um Kalmarsambandið, þegar Dan-
mörk, Noregur og Svíþjóð höfðu sama konung.
Táknmyndirnar eldfjall, vog, pelikani, gnægtahorn og
akkeri hafa verið málaðar á mynd, en ekki málaður texti til
útskýringar á þýðingu táknanna. Alls óvíst er að textinn á
hinni endurgerðu myndinni, þakkarorð til konungs, hafi ver-
ið hluti af myndinni sem lýst er í úttektinni 1767. Þakkarorðin
til konungs geta alveg eins hafa komið fram í úttektinni sem
útskýring Bjarna á því hvers vegna hann lét mála merki Ís-
lands og kórónurnar þrjár.
Niðurstaða
Bjarni Pálsson lét mála tvær myndir sem voru í apótekinu í Nes-
stofu. Kórónurnar þrjár yfir flatta fiskinum á endurgerðri mynd
eru á misskilningi byggðar. Tilgáta mín er að flatti fiskurinn á
myndinni í Nesstofu 1767 hafi verið málaður hvítur eða silfur-
litur á rauðum grunni með einni gylltri kórónu yfir og þar fyrir
ofan, á bláum grunni, þrjár gylltar kórónur (mynd 6).
Mynd 5. Skjaldarmerki Kristjáns IV á líkkistu hans í dóm-
kirkjunni, Hróarskeldu. Krýndi Íslandsfiskurinn og kórón-
urnar þrjár sjást greinilega. Cand. phil. Nils G. Bartholdy,
Frederiksberg, útvegaði myndina.
Mynd 6. Teikning: Matthías Á. Jóhannsson.
Heimildir
1. Pálsson S. Ævisaga Bjarna Pálssonar. Leirárgörðum við Leirá 1800: 56.
2. Þjóðskjalasafn, rentukammerskjöl, askja B02/0032. Úttekt 1767: „Over begge
Dörrene har LandPhysicus ladet forfærdige 2de Tabeller, med Sindbilleder, Nemlig:
Over Glas-dörren til Studier-Cammeret Een med flecket Fisk som Iislands
Vaaben, og 3de Croner over samme, til Aller Underdanigste og Tackskyldigste
Ihukommelse af Vores Aller Naadigste Kongers Vigilance og Barmhiærtighed, for
sine Undersaatters Vel og Fremtarv.
Og over Dörren til Udgangen af Huuset, andet af Sindbilleder, Nemlig: Pellecanen,
som Barmhiærtiged. Balancen, eller Vægten, som Retfærdighed. Krytsede Ankere,
som Haab og Taalmodighed. Cornucopiæ, som nödvendige Sagers Forraad.
NB: Disse 4re ere hver i sin Hiörne, og i Mitten: Eet Ildsprudende Biærg; til
Ihukommelse af Stædet, hvor Huuset er opfört.“
3. Thorlacius B. Ágrip af sögu skjaldarmerkis Íslands. Fáni Íslands, skjaldarmerki,
þjóðsöngur, heiðursmerki. Saga, gildandi lög og reglur. Leiðbeiningar um notkun
fána. Forsætisráðuneytið, Reykjavík 1991: 49-52.
Í Lækningu, Lágmúla 5 er laus aðstaða
og stofur fyrir sérfræðilækna. Innan
Lækningar eru nú þegar 8 starfandi
sérgreinar og Skurðstofan ehf með
fullkomnar og endurnýjaðar skurðstofur
búnar nýjum tækjum og áhöldum.
Til staðar er miðlæg stjórnsýsla með
ritaraþjónustu, sjúkraskrárkerfum ofl.
Sanngjörn leiga. Sérgreinar með
skurðstofusækni æskilegar.
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Eyjólfsdóttir
skrifstofustjóri Lækningar,
hildur@laekning.is
Aðstaða til lækninga