Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 47
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 541
Mörg sjúkrahús komin að þolmörkum
Jón Atli segir alla almenna starfsemi nú
fara fram á netinu, en hann kenni hins
vegar einkum með beinni handleiðslu á
göngudeild eða sjúkrahúsi á sama hátt
og áður, nema hvað reynt sé að gæta þess
að standa ekki of þétt og allir séu með
grímur og andlitshlífar. „Hér var búist
við holskeflu tilfella strax á vormánuðum,
að spítalinn myndi yfirfyllast og fjöldi
lækna veikjast. Því var á svipstundu gert
nýtt vaktafyrirkomulag, þannig að alltaf
væri einhver tiltækur ef einhver læknir
veiktist. Auk þess var gerð áætlun um að
kalla inn af göngudeildum þá sérfræðinga
sem töldust enn nægilega vel að sér í
sjúkrahúslækningum til geta gert gagn ef
á þyrfti að halda. Ég er í þessum hópi og
fékk smá upprifjun í sjúkrahúslækning-
um. Ég hef sem betur fer ekki enn verið
kallaður til þeirra starfa, en það kann að
breytast því nú er mikil aukning í tilfell-
um í Wisconsin-ríki og mörg sjúkrahús
komin að þolmörkum.“
Faraldurinn afhjúpar veikleika
Spurður um hvaða hug hann beri til þess
tíma sem liðinn er af árinu í ár og hvaða
væntingar hann hafi til næsta árs, segir
Jón Atli að til þess að ástandið batni þurfi
gott bóluefni. „Þó það komi vonandi brátt
mun taka marga mánuði að bólusetja
nógu marga til að það skili árangri. Ég
býst því ekki við að neitt breytist næsta
árið. Faraldurinn hefur afhjúpað þá
veikleika sem eru í heilbrigðiskerfinu
og stjórnkerfinu, bæði hér og á Íslandi.
Þegar allt verður um garð gengið vona ég
náttúrulega að við verðum öll reynslunni
ríkari og berjum í brestina, en því miður
er ólíklegt að stjórnmál batni neitt að ráði
fyrr en stjórnmálamenn læra að fara eftir
leiðbeiningum fagfólks.“
Íhaldssamir hunsa lýðheilsufyrirmæli
Þegar Ísland og Bandaríkin eru borin
saman segir Jón Atli að lengi vel hafi
honum þótt aðdáunarvert hversu vel
Íslendingar tóku á málum. „Ég sagði
vinnufélögum og vinum mínum stoltur
frá því hvernig stjórnmálamenn hefðu
stigið til hliðar og látið fagfólk um að
taka allar helstu ákvarðanir um viðbrögð
við faraldrinum. Auðvitað var ég þarna
líka að vísa til þess hvernig heimskir
stjórnmálamenn hér gerðu hið gagnstæða,
hundsuðu góð ráð og vísindi og gerðu illt
verra. Reyndar voru viðbrögðin í mínu
nánasta umhverfi, á háskólasjúkrahúsinu
og háskólabænum Madison, líka allgóð og
árangurinn svipaður og á Íslandi. Það er
hins vegar ekki tilfellið í Wisconsin-ríki í
heild, enda eru dreifbýlisbúar hér íhalds-
samir og fara ekki eftir hollum lýðheilsu-
fyrirmælum.“
Faraldurinn snertir stjórnmál og
umhverfismál
Hvað telur hann að hefði verið hægt að
gera betur í aðgerðum gegn veirunni?
„Grípa fyrr til aðgerða og líka hvetja fólk
til að nota grímur strax í upphafi. Það var
líka alltof snemma slakað á höftum. Ef
beðið hefði verið með að opna og koma
á eðlilegri starfsemi fram á haust, væri
ástandið sennilega miklu betra en það
er nú. Lærdómurinn af þessu er hins
vegar sá að það er hægt að fá almenning
til að standa saman ef rétt er staðið að
málum og jafnvel stórar stofnanir, eins
og háskólasjúkrahús þar sem þúsundir
vinna, geta brugðist hratt við og aðlagað
starfsemina að breyttum aðstæðum. Fjar-
lækningarnar hafa gengið ótrúlega vel og
ég býst við að þær haldi áfram í einhverri
mynd. Við verðum þó að vera viðbúin
því að svipaðir faraldrar geti komið á
næstu árum. Við þrengjum að villtum
dýrum og aukum þar með líkurnar á að
við komumst í snertingu við sýkingavalda
sem við höfum lítið ónæmi gegn. Þetta er
því ekki bara læknisfræðilegt vandamál
heldur snýst þetta um stjórnmál og um-
hverfismál líka.“