Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 47

Læknablaðið - nóv. 2020, Blaðsíða 47
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 541 Mörg sjúkrahús komin að þolmörkum Jón Atli segir alla almenna starfsemi nú fara fram á netinu, en hann kenni hins vegar einkum með beinni handleiðslu á göngudeild eða sjúkrahúsi á sama hátt og áður, nema hvað reynt sé að gæta þess að standa ekki of þétt og allir séu með grímur og andlitshlífar. „Hér var búist við holskeflu tilfella strax á vormánuðum, að spítalinn myndi yfirfyllast og fjöldi lækna veikjast. Því var á svipstundu gert nýtt vaktafyrirkomulag, þannig að alltaf væri einhver tiltækur ef einhver læknir veiktist. Auk þess var gerð áætlun um að kalla inn af göngudeildum þá sérfræðinga sem töldust enn nægilega vel að sér í sjúkrahúslækningum til geta gert gagn ef á þyrfti að halda. Ég er í þessum hópi og fékk smá upprifjun í sjúkrahúslækning- um. Ég hef sem betur fer ekki enn verið kallaður til þeirra starfa, en það kann að breytast því nú er mikil aukning í tilfell- um í Wisconsin-ríki og mörg sjúkrahús komin að þolmörkum.“ Faraldurinn afhjúpar veikleika Spurður um hvaða hug hann beri til þess tíma sem liðinn er af árinu í ár og hvaða væntingar hann hafi til næsta árs, segir Jón Atli að til þess að ástandið batni þurfi gott bóluefni. „Þó það komi vonandi brátt mun taka marga mánuði að bólusetja nógu marga til að það skili árangri. Ég býst því ekki við að neitt breytist næsta árið. Faraldurinn hefur afhjúpað þá veikleika sem eru í heilbrigðiskerfinu og stjórnkerfinu, bæði hér og á Íslandi. Þegar allt verður um garð gengið vona ég náttúrulega að við verðum öll reynslunni ríkari og berjum í brestina, en því miður er ólíklegt að stjórnmál batni neitt að ráði fyrr en stjórnmálamenn læra að fara eftir leiðbeiningum fagfólks.“ Íhaldssamir hunsa lýðheilsufyrirmæli Þegar Ísland og Bandaríkin eru borin saman segir Jón Atli að lengi vel hafi honum þótt aðdáunarvert hversu vel Íslendingar tóku á málum. „Ég sagði vinnufélögum og vinum mínum stoltur frá því hvernig stjórnmálamenn hefðu stigið til hliðar og látið fagfólk um að taka allar helstu ákvarðanir um viðbrögð við faraldrinum. Auðvitað var ég þarna líka að vísa til þess hvernig heimskir stjórnmálamenn hér gerðu hið gagnstæða, hundsuðu góð ráð og vísindi og gerðu illt verra. Reyndar voru viðbrögðin í mínu nánasta umhverfi, á háskólasjúkrahúsinu og háskólabænum Madison, líka allgóð og árangurinn svipaður og á Íslandi. Það er hins vegar ekki tilfellið í Wisconsin-ríki í heild, enda eru dreifbýlisbúar hér íhalds- samir og fara ekki eftir hollum lýðheilsu- fyrirmælum.“ Faraldurinn snertir stjórnmál og umhverfismál Hvað telur hann að hefði verið hægt að gera betur í aðgerðum gegn veirunni? „Grípa fyrr til aðgerða og líka hvetja fólk til að nota grímur strax í upphafi. Það var líka alltof snemma slakað á höftum. Ef beðið hefði verið með að opna og koma á eðlilegri starfsemi fram á haust, væri ástandið sennilega miklu betra en það er nú. Lærdómurinn af þessu er hins vegar sá að það er hægt að fá almenning til að standa saman ef rétt er staðið að málum og jafnvel stórar stofnanir, eins og háskólasjúkrahús þar sem þúsundir vinna, geta brugðist hratt við og aðlagað starfsemina að breyttum aðstæðum. Fjar- lækningarnar hafa gengið ótrúlega vel og ég býst við að þær haldi áfram í einhverri mynd. Við verðum þó að vera viðbúin því að svipaðir faraldrar geti komið á næstu árum. Við þrengjum að villtum dýrum og aukum þar með líkurnar á að við komumst í snertingu við sýkingavalda sem við höfum lítið ónæmi gegn. Þetta er því ekki bara læknisfræðilegt vandamál heldur snýst þetta um stjórnmál og um- hverfismál líka.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.