Læknablaðið - Apr 2020, Page 13
LÆKNAblaðið 2020/106 181
R A N N S Ó K N
og þeir gátu í 6 mínútur án þess að skokka eða hlaupa. Þeir voru
látnir vita með reglulegu millibili hvað tímanum leið, án þess að
vera hvattir áfram. Þeir máttu stoppa og hvíla sig, ásamt því að
notast við stuðning eða hjálpartæki við gönguna ef þeir þurftu
þess. Gerðar voru tvær tilraunir og sú tilraun tekin gild þar sem
lengri vegalengd var gengin, að því gefnu að þátttakendur hefðu
hvorki hlaupið né skokkað á nokkrum tímapunkti í tilrauninni, en
ef það gerðist var hin tilraunin tekin gild, þó svo að vegalengdin
hefði verið styttri.
Holdafar var metið með því að reikna LÞS (kílógrömm líkams-
þyngdar deilt niður á hæð í metrum í öðru veldi: kg/m2), mæla
ummál mittis og mjaðma með MYOTAPE málbandi, samkvæmt
stöðlum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar34 og með fjögurra
punkta fitumælingu með SLIM GUIDE húðfellingaklípu, sam-
kvæmt leiðbeiningum framleiðanda. Hver húðfelling var mæld
þrisvar sinnum og meðaltalið af þeim tveimur mælingum sem
voru næst hvor annarri notað við úrvinnslu.35
Miðað var við LÞS 25 kg/m2 og hærra sem viðmið um yfirþyngd
hjá báðum kynjum. Miðað var við að ummál mittis væri of mikið
ef það var >94 cm á körlum og >80 cm á konum, ásamt því var
viðmið um of hátt hlutfall milli ummáls mittis og mjaðma >0,89
á körlum og >0,84 á konum.34 Viðmið fyrir offitu samkvæmt fitu-
prósentu var hjá körlum >22% (18-34 ára), >25% (35-55 ára), >23%
(eldri en 55 ára) og hjá konum >35% (18-34 ára og eldri en 55 ára)
og >38% (35-55 ára).36
Tölfræðileg úrvinnsla
Notað var IBM SPSS Statistics 23 við tölfræðilega úrvinnslu á öll-
um gögnum. Lýsandi tölfræði var notuð til að skrá fjölda sjúk-
dómsgerða, meðferða og mælingar innan og utan æskilegra við-
miðunarmarka. Óháð t-próf var notað á samfelldar breytur til að
meta mun milli kynja og lýsandi tölfræði til að reikna út meðaltal og
staðalfrávik fyrir þær breytur. Fylgnistuðull kenndur við Pearson var
notaður til að reikna út fylgni milli línulegra breyta fyrir 6MWT, LÞS,
ummál mittis, hlutfall milli ummáls mittis og mjaðma, fituprósentu
og allar niðurstöður úr spurningalistum um heilsutengd lífsgæði,
nema 5 flokka EQ-5D (hreyfigetu, sjálfsumönnun, athafnir daglegs
lífs, verki og kvíða), þar sem notaður var fylgistuðull kenndur við
Spearman, vegna þess að þeir flokkar gefa raðbreytur. Miðað var við
95% marktektarmörk (p<0,05) í öllum tilfellum. Með 80 þátttakendur
er skýringargeta 80% ef Pearson-fylgni í þýði er 0,307. Með 65 þátttak-
endur er skýringargeta 80% ef Pearson-fylgni í þýði er 0,339 og með
15 þátttakendur er skýringargeta 80% ef Pearson-fylgni í þýði er 0,657.
Skýringargeta fyrir Pearson- og Spearman-fylgnistuðla er um það bil
sú sama.
Niðurstöður
Þátttakendur
Þátttakendur voru 80, þar af 65 konur og 15 karlar á aldrinum 25-77
ára. Tafla I sýnir helstu gerðir krabbameina sem þátttakendur höfðu
greinst með. Taflan sýnir einnig helstu meðferðarform sem þátttak-
endur gengu í gegnum vegna meinanna. Fjórir þátttakendur þurftu
að fara í stofnfrumumeðferð eða mergskipti og einn þátttakandi fékk
meðferð með geislavirku joði. Alls mældust 10 þátttakendur með blóð-
þrýsting eða hjartsláttartíðni yfir viðmiðunarmörkum í öllum þremur
mælingunum. Þeir voru allir beðnir um að ljúka þátttöku eftir að hafa
ráðfært sig við lækni og fengið samþykki til þess, sem þeir og gerðu.
Tafla I. Tegundir krabbameina og meðferða þátttakenda.
Upprunalíffæri krabbameins Fjöldi
Brjóst 46
Eitlar (Hodgkins) 9
Ristill 4
Eitlar (non-Hodgkins) 3
Eggjastokkar 3
Blöðruhálskirtill 3
Mergfrumur 2
Önnur mein 10
Meðferðir Fjöldi %)
Frumudrepandi lyfjagjöf 71 (88,8)
Geislar 45 (56,3)
Skurðir* 62 (77,5)
Andhormónar 32 (40,0)
* Að undanskildum sýnatökum.
Þátttakendur undirgengust meðferð vegna krabbameina einhvern
tíma á tímabilinu frá og með 1. janúar 2003 til og með 31. mars 2014.
Allir þátttakendur höfðu lokið virkri meðferð vegna krabbameina og
voru í sjúkdómshléi eða álitnir læknaðir af því. Þátttakendur máttu
vera í andhormónameðferð vegna brjóstakrabbameina ef þeir voru
álitnir í sjúkdómshléi eða læknaðir af krabbameininu og allri annarri
krabbameinsmeðferð var lokið.
Tafla II. Meðaltöl aldurs, holdafarsmælinga, þreks og heilsutengdra lífsgæða.
Konur (n=65)
M ± sf
Karlar (n=15) M
± sf
Alls (n=80)
M ± sf
Aldur (ár) 53 ± 10 53 ± 17 53 ± 12
Þyngd (kg)*✦ 71,0 ± 10,1 89,8 ± 17,7** 74,3 ± 13,7**
LÞS (kg/m2) 25,3 ± 3,5 27,0 ± 17,7** 25,6 ± 3,7**
Mitti (cm)* 86,8 ± 10,1 97,0 ± 15,5 88,7 ± 12,0
Mjaðmir (cm) 103,5 ± 7,1 103,5 ± 6,6 103,5 ± 7,0
Hlutfall milli mittis og mjaðma (cm/cm)* 0,84 ± 0,07 0,93 ± 0,12 0,86 ± 0,09
Fituhlutfall (%)* 37,0 ± 4,9 24,2 ± 8,0 34,6 ± 7,5
Húðfellingar (mm)* 75,9 ± 24,3 55,5 ± 31,6 72,1 ± 26,9
6MWT (m) 626 ± 74 614 ± 118 624 ± 83
EQ-5D TTO (ár) 0,79 ± 0,22 0,84 ± 0,24 0,80 ± 0,23
EQ-5D VAS (0-10 stig) 7,7 ± 1,4 7,7 ± 1,2 7,7 ± 1,4
SF-36 PCS (norm 50 stig ± 10 stig) 48,9 ± 9,0 50,5 ± 8,4 49,2 ± 8,9
SF-36 MCS (norm 50 stig ± 10 stig) 51,1 ± 9,1 50,2 ± 6,3 50,9 ± 8,6
✦skráning á þyngd eins þátttakanda var ófullnægjandi og því ekki notuð við útreikninga sem hafa með
þyngd að gera.
* marktækur munur milli kynja p<0,05
** niðurstöður vantar frá einum þátttakanda (n-1)
Skammstafanir og útskýringar: LÞS (líkamsþyngdarstuðull), 6MWT (6 mínútna göngupróf), EQ-5D
(spurningalisti sem metur heilsutengd lífsgæði), TTO (Time Trade Off; kvarði sem metur hversu mörgum
æviárum fólk er til í að fórna til að lifa við betri lífsgæði), VAS (Visual Analogue Scale; sjónrænn kvarði
sem merkt er við og metur alhliða heilsufar), SF-36 (spurningalisti sem metur heilsutengd lífsgæði), PCS
(líkamleg heilsa), MCS (andleg heilsa).
Viðmið WHO um æskilegt ummál mittis eru < 81 cm fyrir konur og < 95 cm fyrir karla.
Viðmið WHO um æskilegt hlutfall á ummáli mittis og ummáli mjaðma eru < 0,85 fyrir konur og < 0,90 fyrir
karla.