Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 16

Læknablaðið - apr. 2020, Blaðsíða 16
184 LÆKNAblaðið 2020/106 R A N N S Ó K N Þrek Þrek sýndi neikvæða fylgni við alla mælda þætti holdafars hjá báðum kynjum á þann hátt að eftir því sem þrekið var meira, þeim mun lægri var líkamsþyngd, fituprósenta og LÞS þátttak- enda. Þetta er í samræmi við rannsóknir á börnum sem hafa feng- ið krabbamein41 og rannsóknir á frískum einstaklingum.42 Fylgnin milli þreks og holdafars gefur til kynna að hreyfing og líkams- þjálfun, í þeim tilgangi að bæta þrek, gæti einnig verið gagnleg til þess að sporna gegn því að holdafar fari yfir viðmiðunarmörk. Þrek sýndi jákvæða fylgni við marga þætti heilsutengdra lífs- gæða og eigið mat á heilsu beggja kynja. Þrek sýndi marktæka fylgni við alla þætti SF-36v2 kvenna. Meðal karla fannst fylgni milli þreks og líkamlegra lífsgæða, líkamlegrar virkni, skerðingar á virkni vegna líkamlegra kvilla og skerðingar á virkni vegna geðrænna kvilla. Þrátt fyrir að heilsutengd lífsgæði þátttakenda væru í meðallagi, gefur þetta til kynna að með bættu þreki mætti einnig bæta marga þætti heilsutengdra lífsgæða fólks eftir krabba- meinsmeðferð, eins og þekkist meðal annars hjá konum eftir með- ferð vegna brjóstakrabbameina.43 Þar sem fylgni á milli þreks og heilsutengdra lífsgæða finnst bæði hjá körlum og konum í þessari rannsókn, styður það klíníska notkun á 6MWT, meðal annars til að meta óbeint heilsutengd lífsgæði karla og kvenna sem hafa lok- ið við krabbameinsmeðferð. Styrkleiki og veikleiki Styrkleiki rannsóknarinnar var að allar mælingar voru fram- kvæmdar af sama aðila og því eins staðið að öllum mælingum á þeim 80 einstaklingum sem tóku þátt. Enginn sem kemur að rann- sókninni á hagsmuna að gæta varðandi rannsóknina eða niður- stöður úr henni. Veikleiki rannsóknarinnar var að allir þátttak- endur óskuðu eftir þátttöku að eigin frumkvæði. Því getur verið að úrtakið endurspegli ekki þýðið að fullu. Það gæti skekkt niður- stöður að einhverju leyti44 og jafnvel látið þennan samfélagshóp líta út fyrir að vera í æskilegri holdum og lifa við betri heilsutengd lífsgæði en raunin er. Sú staðreynd að einungis 14% þátttakenda mældust með persónuleika D styður þessa tilgátu, þar sem aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á hærra hlutfall fólks með persónuleika D meðal almennings og sjúklingahópa.32,40 Það gæti, eins og áður segir, skekkt niðurstöður á þann hátt að láta þýðið líta út fyrir að vera í betra ásigkomulagi en raunin er, vegna þess að hærra hlutfall fólks með persónuleika D gæti leitt af sér lakari útkomu í heilsufarsmælingum.31,40 Annar veikleiki rannsóknarinnar var sá hversu fáir karlmenn tóku þátt, sem gerði það að verkum að ekki var nægilegt tölfræðilegt afl til að athuga fylgni milli þreks og allra þátta heilsutengdra lífsgæða hjá körlum. Einnig er það veikleiki á rannsókninni að flestir þátttakendur komu inn í rann- sóknina í gegnum Ljósið – endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein. Stór hluti þessa hóps er því fólk sem hefur nýtt sér markvissa endurhæfingu og aðstoð sem er valfrjáls og mögulega notið góðs af því við að ná að byggja Tafla VI. Fylgni á milli breyta sem lýsa þreki og holdafari og breyta sem lýsa margvíslegum mælivíddum heilsutengdra lífsgæða kvenna. Konur (n=65) Pearson's r 6MWT p-gildi LÞS p-gildi Ummál mittis p-gildi Hlutfall á ummáli mittis og mjaðma p-gildi Fitu- prósenta p-gildi EQ-5D VAS 0,473 <0,001 -0,305 0,013 -0,364 0,003 -0,315 0,011 -0,276 0,026 EQ-5D TTO 0,441 <0,001 -0,217 0,082 -0,295 0,017 -0,243 0,017 -0,243 0,051 SF-36 PCS (líkamleg lífsgæði) 0,501 <0,001 -0,303 0,014 -0,343 0,005 -0,300 0,015 -0,314 0,011 SF-36 MCS (andleg lífsgæði) 0,320 0,009 -0,066 0,603 -0,078 0,535 -0,054 0,670 -0,130 0,304 SF-36 PF (líkamleg virkni) 0,494 <0,001 -0,190 0,130 -0,229 0,067 -0,239 0,055 -0,214 0,087 SF-36 RP (skerðing á virkni vegna líkamlegra kvilla) 0,435 <0,001 -0,177 0,158 -0,205 0,101 0,189 0,132 -0,299 0,016 SF-36 BP (líkamlegir verkir) 0,447 <0,001 -0,338 0,006 -0,375 0,002 0,349 0,004 -0,315 0,011 SF-36 GH (skynjun á eigin heilsu) 0,437 <0,001 -0,248 0,046 -0,258 0,038 -0,147 0,243 -0,229 0,066 SF-36 VT (þróttur) 0,493 <0,001 -0,270 0,030 -0,299 0,015 -0,181 0,149 -0,284 0,024 SF-36 SF (félagsleg virkni) 0,443 <0,001 -0,134 0,289 -0,198 0,113 -0,230 0,066 -0,171 0,174 SF-36 RE (skerðing á virkni vegna andlegra kvilla) 0,334 0,005 -0,038 0,762 -0,103 0,415 -0,109 0,386 -0,154 0,221 SF-36 MH (andleg heilsa) 0,280 0,024 -0,089 0,483 -0,026 0,838 -0,011 0,933 -0,131 0,297 Konur (n=65) Spearman's rho 6MWT p-gildi LÞS p-gildi Ummál mittis p-gildi Hlutfall á ummáli mittis og mjaðma p-gildi Fitu- prósenta p-gildi EQ-5D Hreyfigeta -0,308 0,012 0,227 0,068 0,220 0,079 0,225 0,072 0,128 0,308 EQ-5D Sjálfsumönnun -0,073 0,565 -0,027 0,833 0,090 0,476 0,120 0,341 -0,073 0,562 EQ-5D ADL (athafnir daglegs lífs) -0,249 0,045 0,273 0,028 0,255 0,040 0,191 0,128 0,162 0,197 EQ-5D Verkir -0,367 0,003 0,181 0,149 0,217 0,083 0,221 0,078 0,193 0,124 EQ-5D Kvíði -0,160 0,203 0,107 0,394 0,211 0,091 0,112 0,375 0,106 0,401 Skammstafanir og útskýringar: 6MWT (6 mínútna göngupróf), EQ-5D (spurningalisti sem metur heilsutengd lífsgæði), VAS (Visual Analogue Scale; sjónrænn kvarði sem merkt er við og metur alhliða heilsufar), TTO (Time Trade Off; kvarði sem metur hversu mörgum æviárum fólk er til í að fórna til að lifa við betri lífsgæði), SF-36 (spurningalisti sem metur heilsutengd lífsgæði).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.