Læknablaðið - apr. 2020, Síða 20
188 LÆKNAblaðið 2020/106
R A N N S Ó K N
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn og náði til allra sjúklinga á Íslandi
með gleiðhornagláku sem undirgengust fyrstu hjáveituaðgerð
vegna gláku á tímabilinu júní 2014 til mars 2016. Leyfi voru fengin
fyrir rannsókninni hjá vísindasiðanefnd (leyfi 15-215), Persónu-
vernd og framkvæmdastjóra lækninga á Landspítala.
Sjúklingar voru fundnir með leit að ICD-10 númeri hjáveituað-
gerða á augum (CHSD15) í aðgerða- og greiningarskrám Landspít-
ala. Fyrir varð að liggja sjónsviðsrannsókn sem gerð var innan við
15 mánuðum fyrir aðgerðardag. Sjúklingar sem undirgengust
augasteinaskipti samtímis voru útilokaðir. Á rannsóknartímanum
voru framkvæmdar 127 einangraðar hjáveituaðgerðir. Aðgerðirnar
voru framkvæmdar af tveimur skurðlæknum. Tólf einstaklingar
gengust undir aðgerð á báðum augum á rannsóknartímabilinu
og var þá einungis fyrra augað tekið með í rannsóknina. Tuttugu
og níu augu til viðbótar voru útilokuð. Ástæður útilokunar voru
að ekki tókst að endurheimta sjónsviðsskráningu (22 augu), fyrri
glákuaðgerð (5 augu) og sjónsviðsrannsókn framkvæmd meira en
15 mánuðum fyrir aðgerð (tvö augu). Ólíkar ástæður geta legið
að baki því að ekki tókst að endurheimta sjónsvið, meðal annars
að sjónsviðsrannsókn var gerð á annarri augnlæknastofu eða ekki
gerð þar sem gláka var það langt gengin að ekki var hægt að mæla
sjónsvið lengur og/eða aðrir sjúkdómar í augnbotnum, til dæmis
aldurstengd augnbotnahrörnun (age related macula, AMD), gerðu
mælinguna gagnslitla.
Skoðaðar voru sjúkraskrár þeirra 86 einstaklinga sem eftir
stóðu. Klínískar upplýsingar fengust úr sjúkraskrárkerfi Landspít-
alans og Augnlækna Reykjavíkur. Sjónsviðsrannsókn var fram-
kvæmd með Octopus-sjónsviðsmæli (automated perimetry). Upplýs-
ingar voru skráðar í Excel-gagnagrunn. Aðrar upplýsingar voru
meðal annars faraldsfræðilegar upplýsingar um sjúklingana, gerð
gláku, fjöldi glákulyfja og ástæða tilvísunar í aðgerð.
Alvarleiki sjónsviðsskerðingar var metinn með mean defect
(MD) tölugildi á sjónsviðsrannsókn og sjúklingar voru flokkaðir
í þrjá hópa eftir því. Við flokkunina var stuðst við Hodapp-flokk-
unina þar sem MD <6dB flokkast sem væg sjónsviðsskerðing, MD
6-12 dB sem miðlungsalvarleg og MD >12dB sem alvarleg sjón-
sviðsskerðing.13
Þegar sjúklingum er vísað í glákuaðgerð er litið til fjölda þátta,
svo sem alvarleika gláku, meðferðarheldni, óþols fyrir glákulyfj-
um, augnþrýstings, aldurs og fleira. Til einföldunar var einungis
aðalábendingin fyrir aðgerð skráð.
Tölfræðiúrvinnsla var gerð í Excel og Graphpad Prism v.5.01
statistical software (Graphpad Software Inc., LaJolla, CA, USA).
Niðurstöður eru gefnar sem meðaltal ± staðalfrávik. Gert var
ANOVA og svo Tukeys-eftirpróf við samanburð á þremur eða
fleiri hópum. Óparað t-próf var notað við samanburð á tveimur
hópum. Marktækni miðaðist við p<0,05.
Niðurstöður
Af 86 augum í rannsókninni voru 41 hægra auga (48%). Fjörutíu og
níu sjúklingar voru karlkyns (57%). Aldur sjúklinga var 45 til 94
ára og meðalaldur 75 ± 11 ár. Miðgildi tímalengdar frá framkvæmd
sjónsviðsrannsóknar til aðgerðar var 74 dagar, lágmark 4 dagar
og hámark 433 dagar. Miðgildi tímalengdar frá beiðni til aðgerðar
var 53 dagar.
Fimmtíu og sex augu höfðu frumgleiðhornagláku (primary open
angle glaucoma, 65%), 26 höfðu flögnunargláku (pseudoexfoliation
glaucoma, PEXG, 30%), þrjú höfðu litargláku (pigmentary glaucoma,
3%) og eitt hafði lágþrýstingsgláku (normal tension glaucoma, 2%).
Augnþrýstingur fyrir aðgerð var á bilinu 9-49 mmHg og meðal-
tal hans 22 ± 8 mmHg. Upplýsingar fengust um hornhimnuþykkt
hjá 56 sjúklingum og mældist hún að meðaltali 519 ± 33mm.
Tafla I. Faraldsfræðilegar upplýsingar og einkenni sjúklinga eftir alvarleika
sjónsviðsskerðingar. Fjöldi (%).
milda meðalb alvarlegc
Fjöldi sjúklinga 18 20 48
Meðalaldur, ár 70,2 ± 9,3 72,2 ± 11,0 76,9 ± 10,8
Konur 9 (50) 11 (55) 29 (60)
Meðalþykkt HH1, mm 521 ± 28* 541 ± 28** 510 ± 33***
Meðaltal sjónskerpu, Snellen 0,25 ± 0,14 0,34 ± 0,24 0,42 ± 0,31
Meðaltal lyfja, n 2,8 ± 1,3 3,1 ± 1,0 3,0 ± 1,3
Meðaltal augnþrýstings, mmHg 25,0 ± 9,9 21,0 ± 6,1 20,7 ± 8,2
Gerð gláku
Frumgleiðhorna 10 (56) 12 (60) 34 (71)
Flögnunar 8 (44) 5 (25) 13 (27)
Litar 0 3 (15) 0
Lágþrýstings 0 0 1 (2)
Ástæða tilvísunar
Versnun á sjónsviði 8 (44) 12 (60) 40 (83)
Hækkaður augnþrýstingur 7 (39) 6 (30) 7 (15)
Lyfjaóþol 3 (17) 2 (10) 1 (2)
aAugu með MD <6 dB, baugu með MD 6-12 dB, caugu með MD >12dB.
*Tölur fyrir 11 sjúklinga, **tölur fyrir 12 sjúklinga, ***tölur fyrir 33 sjúklinga.
1HH: hornhimna.
Mynd 1. Sjónsviðsskerðing (mean defect) fyrir aðgerð. Sjónsviðsskerðing mæld í desi-
bel (dB).
0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 22 24 26 28
15
10
5
0
Meðal sjónsviðsskerðing (dB) fyrir aðgerð
Fj
öl
di
a
ug
na