Læknablaðið - Apr 2020, Page 32
200 LÆKNAblaðið 2020/106
síðan; að landamærum einstakra ríkja yrði
lokað, landamærum Schengen lokað og að
útgöngubann yrði komið á í sumum lönd-
um innan þriggja vikna!
Fylgið ráðleggingum um sóttvarnir,
skipuleggið starfsemi fyrirtækja í litlum
teymum og afmörkuðum hólfum, þvoið
hendur reglulega með sápu og vatni (t.d.
alltaf þegar þið komið inn á heimili ykkar
til að bera ekki smitefni þangað), notið
spritt þess á milli þar sem ekki er aðgang-
ur að vatni og sápu, og fylgið viðmiðum
um 2 metra á milli fólks á fundum, í vinnu
og í röðum. Verið ekki með léttan endur-
tekinn hósta eða kvef eða hita innan um
aðra, VERIÐ ÞÁ HEIMA.
Gerið athugasemdir þegar fólk virðir
þetta ekki. Veiran fer ekki í manngreinar-
álit og fjölgar sér ekki nema hún komist
í öndunarveg okkar. Smitleiðir eru snert-
ismit og dropasmit (einhver hóstar eða
hnerrar smitefni beint á aðra manneskju).
Veiran lifir allt frá allmörgum klukku-
stundum upp í nokkra daga við bestu
aðstæður á yfirborði ýmissa hluta sem
við snertum oft í daglegu lífi. Þið þurfið
ekkert að klappa fyrir starfsfólki heilbrigð-
isþjónustunnar í rokinu og rigningunni
núna klukkan 19 - en í guðanna bænum
farið eftir samkomubanninu! (Deilist að
vild)
17. mars
Þórgunnur Ársælsdóttir
KVÍÐI Á ÓVISSUTÍMUM
Það er eðlilegt og algengt að finna fyrir
kvíða á óvissutímum. Kvíði er tilfinning
sem hefur tilhneigingu til að magna sjálfa
sig upp, og þegar kvíði tekur völdin hefur
hann víðtæk áhrif á starfsemi bæði líkama
og huga. Því er gott að eiga nokkur góð
Heilbrigðisstarfsmenn hafa verið senda svona fordæmislausar og brýnar kveðjur að undanförnu. Efri röð frá vinstri: Helga T. Jónasdóttir, Auður Karen Gunnlaugsdóttir, Áslaug
Pálsdóttir, Ilmur Dögg Níelsdóttir, Indriði Einar Reynisson, Íris Hafþórsdóttir og Ingunn Bjarnadóttir. Neðri röð frá vinstri: Elín Heiður Ólafsdóttir, Vilborg Hafsteinsdóttir, Ólaf-
ur Sveinbjörnsson, Kristín Björg Flygenring og Thelma Björk Árnadóttir. Mynd Kristín Björg Flygenring hjúkrunafræðingur í heilsugæslunni Firði í Hafnarfirði.
Frá LÍ. Jafningjastuðningur lækna
Ágætu kollegar.
Við stöndum frammi fyrir krefjandi verkefni. Það reynir á í störfum okkar um
þessar mundir, hefur áhrif á samskipti, skipulag og starfsumhverfi. Við þurfum öll
að breyta daglegum venjum. Tilvera okkar hefur tekið á sig breytta mynd í svip-
hendingu. Fréttir berast erlendis frá af miklu álagi á lækna. Á slíkum tímum er sam-
staða og umhyggja fyrir hvert öðru mikilvæg. Við læknar þurfum vera reiðubúin og
örugg frammi fyrir þessi verkefni. Spyrjum, æfum og þjálfum viðbrögð með sam-
starfsfólki við því ástandi sem kann að skapast. Verum viðbúin og aðgætin.
Skerpum á jafningjafræðslu og styðjumst við traust gögn og fyrirmæli á okkar
vinnustað. Byggjum líka upp jafningastuðning. Byrgjum hvorki áhyggjur ekki inni
né það hvernig álagið hefur áhrif á okkur og samstarfshópinn.
Gleymum heldur ekki fjölskyldum okkar. Styðjum þær og upplýsum og umvefjum
og veitum öryggi.
Göngum jákvæð til starfa sem samhentur og samstilltur vel undirbúinn og þjálf-
aður hópur, þannig klárum við þetta verkefni eins og önnur krefjandi sem falla okkur
í skaut sem læknar.
Að lokum er minnt á átakið læknar styðja lækna og lýst eftir fleiri kollegum sem
eru reiðubúnir að aðstoða um þessar mundir, ekki síst þeim sem eldri eru og reyndari
úr hópi öldunga og hafa séð tímana tvenna.