Læknablaðið - apr. 2020, Síða 33
LÆKNAblaðið 2020/106 201
ráð til að grípa til þegar slík líðan kemur
upp.
1. Taktu eftir því sem þú finnur fyrir.
Það getur verið tilfinning, hugsun, eða
eitthvað sem þú finnur í líkamanum.
Gefðu því nafn, t.d. „ég finn fyrir kvíða“,
eða „ég finn fyrir spennu í maganum“
Prófaðu að leyfa því að vera, án þess að
reyna að bregðast við því eða breyta. Það
að leyfa sér að finna fyrir því sem er til
staðar hjá okkur sjálfum hér og nú, hvort
sem það er þægilegt eða óþægilegt er eitt
stærsta skrefið sem við getum tekið til að
geta notið þess að vera til.
2. Andaðu rólega. Gerðu uppáhalds
öndunaræfinguna þína úr jógatíma eða
hugleiðslu-appinu, eða bara þína eigin.
Þú getur til dæmis talið uppá 5 þegar þú
andar að og hægt uppá 5 þegar þú andar
frá, eða hugsað „friður“ þegar þú andar
að og „ró“ þegar þú andar frá.
3. Láttu ekki kvíðahugsanirnar hlaupa með
þig í gönur. Kvíði litar hugsanamynstrið
okkar þannig að við förum að búast við
því versta og sjáum síður mögulegar já-
kvæðar útkomur. Prófaðu að ímynda þér
ekki bara hvað væri það versta sem gæti
gerst, heldur líka hvað væri mögulega
það besta. Oftast verður það eitthvað þar
á milli. Við getum ekki vitað um fram-
tíðina eða stjórnað henni, en við getum
valið að dvelja ekki við hörmungarspár.
4. Ekki eyða miklum tíma í fréttir eða sam-
félagsmiðla. Það er sniðugt að skammta
sér daglegan tíma, og taka hlé á milli,
til dæmis eftir ákveðna tímasetningu á
daginn, eða til dæmis einn dag í viku.
Allt sem við sjáum, heyrum og skynjum
hefur áhrif á okkur, og við höfum val um
hvað og hversu mikið við ákveðum að
taka inn.
5. Settu góðan nætursvefn í forgang. Svefn-
inn er mikið vanmetinn töfra- elexír sem
læknar, líknar, endurhleður okkur og
styrkir líkama og sál.
6. Taktu inn góða næringu, hollan og góm-
sætan mat. Best er að gefa sér góðan tíma
og njóta matarins með fjölskyldu eða
vinum ef hægt er!
7. Hreyfðu líkamann, gjarnan úti. Veldu
hreyfingu sem þér finnst skemmtileg.
8. Ræktaðu tenginguna við náttúruna.
Landið okkar er fagurt og frítt, njóttu
þess, og mundu að þú ert hluti af sköp-
unarverkinu. Þú átt þitt pláss og þinn
stað á okkar sameiginlegu jörð.Runólfur Pálssonn á fundi viðbragðsstjórnar. Mynd/Þorkell Þorkelsson.
Birgðatalning í línskápnum á nýju göngudeildinni fyrir COVID í Birkiborg við Borgarspítalann.
Mynd/Þorkell Þorkelsson.
Í bílakjallara Hörpu, gljáfægðir bílar og glansandi sótthreinsaðar græjur. Mynd/Anton Brink.