Læknablaðið - apr. 2020, Síða 36
204 LÆKNAblaðið 2020/106
26. mars
Magnús Gottfreðsson
Ritstjóri og ábyrgðarmaður Læknablaðsins, og
smitsjúkdómalæknir
Ég hef haft áhuga á smitsjúkdómum
og heimsfaröldrum frá því að ég var
læknanemi. Síðustu árin hef ég rannsakað
spænsku veikina og skrifað um til hvaða
viðbragða mætti grípa þegar til nýrra
heimsfaraldra kæmi á 21. öld. Fræðin og
sagan eru hins vegar ekki alltaf tengd
raunveruleika hversdagsins. Mig grunaði
ekki að á mínum starfsferli sem smitsjúk-
dómalæknir ætti ég eftir að upplifa þann
ótrúlega heimsfaraldur kórónaveirusýk-
inga sem heimsbyggðin hefur orðið vitni
að á fyrstu mánuðum þessa árs.
Í yfirstandandi faraldri hefur verið
bæði áhugavert og hrollvekjandi að fylgj-
ast með viðbrögðum mismunandi landa,
sem sum hafa einkennst af afneitun,
vanhæfni og seinagangi, en önnur hafa
gripið til harðneskjulegra og íþyngjandi
aðgerða til að draga úr útbreiðslu veik-
innar. Viðbrögðin hér á landi hafa verið
fagleg og einkennst af góðri samvinnu, en
fyrirsjáanlegt er að áhrifin á samfélagið og
heilbrigðiskerfið muni verða gríðarleg eins
og efni þessa tölublaðs Læknablaðsins ber
vott um.
Þegar þessi orð eru skrifuð er ekki ljóst
hvert mannfallið verður á heimsvísu, en
afleiðingarnar fyrir heimshagkerfið verða
risavaxnar, þótt vonir hinna bjartsýnu
standi til að þær verði ekki langvinnar.
Fyrir lækni er áhugavert að fylgjast með
umræðu um efnahagsmál í þessu sam-
hengi, en sumir segja að vandamálið sé
orðum aukið og hvetja til slökunar og
niðurfellingar á forvarnaraðgerðum „til að
koma hagkerfinu sem allra fyrst í gang“.
Þeir sem þannig tala virðast gefa sér að
með því að draga úr forvörnum gegn
vandanum hljóti faraldurinn að deyja út
og þeir sem ekki týna lífi geti áhyggju-
lausir tekið upp fyrri iðju. Þessi sýn er
bæði óraunsæ og óverjandi að mínu mati
því að ef illa tekst til munu þau verðmæti
sem eru öllum samfélögum svo dýrmæt,
- traust, samvinna og samhjálp - bera var-
anlegan hnekki eða glatast. Það leiðir af
sér háan fórnarkostnað og jafnvel mikinn
félagslegan óstöðugleika.
Ljóst er að mannkyn stendur núna
andspænis mikilli brekku og verkefnin
hrannast upp, en slíkar aðstæður kalla oft
fram það besta í fólki. Tileinkum okkur
raunsæi, æðruleysi, kærleika og bjartsýni.
Sagan mun svo dæma hvernig til tekst.
Már Kristjánsson á fundi
viðbragðsstjórnar og far-
sóttarnefndar. Það eru 2
metrar milli hans og Páls
Matthíassonar forstjóra
Landspítala. Mynd/Þor-
kell Þorkelsson.
Iðnaðarmenn á milljón að ganga frá nýrri göngudeild fyrir COVID við Borgarspítalann. Mynd/Þorkell Þorkelsson.