Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 42

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 42
428 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 Um þessar mundir er hálft ár frá því að fyrsti sjúklingurinn með COVID-19 greindist hér á landi og hættustig almanna- varna var virkjað. Aðgerðir af hálfu yfirvalda til að hindra útbreiðslu sjúkdóma eru ekki nýjar af nál- inni. Fyrstu skipulegu aðgerðirnar af þessu tagi má rekja til Feneyja og Mílanó á 14. öld þegar svarti dauði breiddist um Evrópu. Sýktum einstaklingum var meinuð að- ganga að borgum þannig að allir sem komu til hafnar voru settir í sóttkví. Fyrst voru menn látnir dvelja í sóttkví í 30 daga, tert- iana. Síðar töldu menn þann tíma of stuttan og hann var lengdur í 40 daga, quarantina. Þaðan er hugtakið quarantine dregið sem notað er um sóttkví. Þessar aðferðir voru notaðar í Evrópu fram á 19. öld, oft með góðum árangri. Stundum var gripið til enn harkalegri aðgerða eins og að brenna eignir smitaðra einstaklinga. Réttlæting aðgerð- anna var þá eins og nú að heilbrigði fjöld- ans væri mikilvægara en eignir og frelsi einstaklinga sem gætu verið smitaðir. Allar aðgerðir sem gripið hefur ver- ið til hér á landi, frá því að fyrsta smitið greindist, byggja á sóttvarnalögum nr. 19/1997. Við gildistöku þeirra féllu úr gildi mörg eldri lög á þessu sviði, sóttvarnalög frá 1954, farsóttalög frá 1958 sem og lög um sóttvarnir gegn einstökum sjúkdómum eins og holdsveiki, berklum, kynsjúkdóm- um, fýlasótt og sullaveiki. Sóttvarnalögin gera greinarmun á al- mennum sóttvörnum, sem eru þær ráð- stafanir sem ávallt skal beita vegna smit- sjúkdóma og opinberum sóttvörnum, sem eru þær ráðstafanir sem beita skal vegna hættulegra smitsjúkdóma þegar hætta er á að farsóttir berist til eða frá Íslandi, þegar hætta er á útbreiðslu farsótta innanlands og þegar smitaður einstaklingur skapar hættu á útbreiðslu smits með framferði sínu. Nánar er fjallað um opinberar sótt- varnaráðstafanir í IV. kafla laganna. Þær eru af þrennum toga: 1) Sóttvarnaráðstafanir vegna hættu á far- sóttum innanlands, sbr. 12. gr. laganna. Til þeirra teljast einangrun smitaðra, sótt- hreinsun, afkvíun byggðarlaga eða lands- ins alls, lokun skóla og samkomubann. Meginreglan er sú að heilbrigðisráðherra að fenginni tillögu sóttvarnalæknis ákveð- ur hvort til þessara opinberu sóttvarna- ráðstafana skuli gripið. Sóttvarnalæknir hefur þó samkvæmt lögunum vald til að beita þessum vörnum til bráðabirgða án fyrirfram heimildar ráðherra, ef hann telur að hvers konar töf sé hættuleg. Í faraldrin- um núna voru til dæmis settar reglur um sóttkví og einangrun vegna COVID-19 nr. 362/2020. 2) Sóttvarnaráðstafanir vegna hættu á far- sóttum til eða frá Íslandi, sbr. 13. gr. lag anna. Setja skal reglugerð í samræmi við alþjóða- heilbrigðisreglugerð Alþjóða heil brigðis- stofnunar innar. Nýjasta útgáfa hennar er frá árinu 2005 og tók gildi tveimur árum seinna. Markmið reglugerðarinnar er að hindra alþjóðlega útbreiðslu smitsjúkdóma og sjúkdóma af völdum eiturefna og geisla- virkra efna án þess að valda ónauðsyn- legri röskun á alþjóðlegri umferð og við- skiptum. Mörg ákvæði endurskoðuðu reglugerðarinnar byggðust á reynslu sem fékkst á síðasta aldarfjórðungi 20. aldar. Eldri reglugerð tók einungis til nánar til- greindra smitsjúkdóma. Endurskoðaða reglugerðin nær til allra sótta sem breiðst geta út og ógnað þjóðum heims. Reglugerð um sóttvarnaráðstafanir nr. 817/2012 hefur verið sett og breytt nokkrum sinnum, m.a. tvisvar eftir að COVID-19 kom upp. 3) Aðgerðir vegna hættu á útbreiðslu smits frá einstaklingum, sbr. 14. og 15. gr. laganna. Hér eru lögfestar heimildir sem beita má gagnvart einstaklingum til að fyrirbyggja eða hefta útbreiðslu smitunar sem ógnað getur almannaheill. Með aðgerðum er til dæmis átt við læknisrannsókn, einangr- un hins smitaða á sjúkrahúsi og aðrar nauðsynlegar ráðstafanir. Telji sóttvarna- læknir hættu á að næmar sóttir sem ógnað geti almannaheill berist til landsins, get- ur hann beint tilmælum til ráðherra um að setja reglugerð um að þeir sem koma til landsins og talin er hætta á að beri með sér slíkar sóttir skuli sæta læknis- rannsókn í samræmi við nánar tilgreind ákvæði alþjóðaheilbrigðisreglugerðarinn- ar. Sett hefur verið reglugerð nr. 580/2020 um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19. Undir þennan flokk aðgerða fellur einnig heimild sóttvarnalæknis til að ákveða að leggja einstakling, haldinn smitsjúkdómi, á sjúkrahús í einangrun eða einangra með öðrum hætti ef hann fellst ekki á að fylgja reglum um umgengni við aðra eða rökstuddur grunur er um að hann hafi ekki fylgt slíkum reglum. Ef þetta er gert í andstöðu við hinn smitaða þarf sóttvarna- læknir strax að bera ákvörðunina skriflega undir héraðsdómara, sem ákveður með úr- skurði hvort einangrun skuli haldast eða falla niður, en hún má ekki vara lengur en 15 sólarhringa í senn. Ef sóttvarnalæknir telur nauðsynlegt að hún vari lengur, þarf hann að nýju að bera kröfuna undir hér- aðsdóm. Málsmeðferð fyrir dómi frestar ekki framkvæmd einangrunar og skjóta má úrskurði dómara til æðri dómstóla. Af þessari samantekt sést að löggjafinn hefur með samþykkt sóttvarnalaga ákveðið að stjórnvöld skuli hafa ríkar heimildir til að takmarka frelsi einstaklinga í þágu al- mannaheilla. Er það í samræmi við það viðhorf sem gilt hefur um aldir þegar kem- ur að sóttvörnum. Dögg Pálsdóttir lögfræðingur Læknafélags Íslands Dogg@lis.isSóttvarnalögin L Ö G F R Æ Ð I 3 7 . P I S T I L L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.