Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 29
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 415
F R É T T I R
„Læknar eru bæði vonsviknir og slegnir
yfir þessari atburðarás,“ segir Anna Mar-
grét Halldórsdóttir, starfandi formaður
læknaráðs, um þá breytingu sem varð
á heilbrigðislögum í sumar sem leggur
læknaráð heilbrigðisstofnana niður. Ráðið
sendi læknum á Landspítala bréf 26. ágúst
vegna stöðunnar.
„Stjórn læknaráðs lítur svo á að
forsendur fyrir áframhaldandi starfi
læknaráðs Landspítala séu brostnar sam-
kvæmt lögum,“ segir í því. Stjórn ráðsins
hafi í aðdraganda lagabreytinganna harð-
lega gagnrýnt þær „- en án árangurs.“
Ráðið hvetur lækna til að íhuga og ræða
stöðuna.
„Við skiljum ekki af hverju var farið í
þessa vegferð og hvernig hún á að leiða til
góðs,“ segir Anna Margrét í samtali við
Læknablaðið.
„Þetta eru neikvæðar breytingar að
okkar mati. Við læknar höfum lagt okkur
fram um að vera rödd góðrar heilbrigðis-
þjónustu, rödd sjúklinga og látið vita ef
vandi er til staðar í starfsemi spítalans - ef
eitthvað þarf að lagfæra.“
En er lagabreytingin þá liður í að þagga
niður í læknum? „Maður fær það óneitan-
lega á tilfinninguna. Það eru engin sann-
færandi rök fyrir þessum breytingum og
beinlínis búið að segja við lækna að þeir
hafi verið með óþægilega gagnrýni. Okk-
ur líður því mörgum eins og verið sé að
þagga niður í læknum.“
Anna Margrét bendir á að læknaráð sé
fyrst og fremst vettvangur fyrir faglega
umfjöllun um starfsemi spítalans. „Það
að einhver vilji hugsanlega þagga niður í
því er óskiljanlegt,“ segir hún. Læknaráð
viti ekki hvort gert sé ráð fyrir samráðs-
vettvangi lækna innan spítalans eftir
breytingarnar.
„Nú hefur læknaráð ekki hlutverk
gagnvart stjórnendum spítalans sam-
kvæmt lögum,“ segir hún. Beðið er eftir
útgáfu reglugerðar um fagráð og ræða
þurfi framtíðarfyrirkomulagið við stjórn-
endur spítalans. „Nákvæmlega hver hugur
þeirra er í þessu máli á eftir að koma í
ljós.“
En hvað er til ráða? „Læknar virðast
einhuga um að það þurfi að vera faglegur
vettvangur lækna til staðar á spítalanum.
Búið er að fjarlægja læknaráð úr lögum en
það er ekki þar sem að sagt að við getum
ekki stofnað annan vettvang og haldið
starfsemi okkar áfram. Einnig er mikil-
vægt að læknar velji sjálfir sína fulltrúa
í slíkt faglegt ráð eins og raunin var með
læknaráð.“
Með breyttum lögum er nú gert ráð
fyrir sameiginlegu fagráði lækna, hjúkr-
unarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta
sem forstjóri heilbrigðisstofnunar mun
skipa í stað læknaráðs, hjúkrunarráðs og
annarra fagráða. Anna Margrét segir enn
óljóst hvernig staðið verði að því. „Við
höfum ekki andmælt stofnun sameiginlegs
fagráðs en ljóst er að sá hópur kemur alls
ekki í staðinn fyrir læknaráð.“
Stjórn læknaráðs hvetur lækna til þess
að taka þátt í aðalfundi Félags sjúkrahús-
lækna 24. september. Þar á að ræða hvern-
ig tryggja megi áfram faglegan umræðu-
og samráðsvettvang fyrir lækna spítalans.
„Læknar eru framlínustarfsmenn. Vel
menntuð og öflug stétt. Það er óviðun-
andi ef við höfum ekki farveg til að koma
áhyggjum og ábendingum – góðum eða
slæmum - á framfæri. Ekkert gott hlýst
af því að leggja niður læknaráð – hvorki
fyrir heilbrigðisstofnanir, starfsmenn né
sjúklinga.“
Spítalalæknar undrandi og vonsviknir
yfir örlögum læknaráðs og vilja tryggja
framtíð fagráðs lækna
Lagabreytingin sem leggur niður læknaráð er bæði ótrúleg og óskiljanleg segir
starfandi formaður læknaráðs Landspítala. Hún segir að ráðgefandi hlutverk
læknaráðs nú horfið úr lögum og framtíð ráðsins óljós
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Hvað breytist
samkvæmt bréfi
læknaráðs?
• Læknar Landspítala hafa ekki lengur
formlegan, sameiginlegan vettvang til
umræðna og ályktana í stjórn lækna-
ráðs sem kosin er af læknum á aðal-
fundi læknaráðs
• Forstjóra Landspítala ber ekki leng-
ur lagaleg skylda til þess að leita álits
læknaráðs í mikilvægum málum
• Stöðunefnd læknaráðs hefur verið lögð
niður og þar með umfjöllun lækna um
starfsumsóknir sinna kollega
• Fræðslunefnd læknaráðs hefur haldið
uppi öflugu fræðslustarfi til margra
ára en skipan og áframhaldandi starf
fræðslunefndar er í óvissu
• Almennir læknaráðsfundir hafa verið
vettvangur fyrir samtal og ályktanir
fyrir alla lækna spítalans en framhald
slíkra funda er óvíst
Anna Margrét Halldórsdóttir, starfandi
formaður læknaráðs, segir ekkert gott
hljótast af því að leggja niður læknaráð.