Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2020, Síða 29

Læknablaðið - sep. 2020, Síða 29
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 415 F R É T T I R „Læknar eru bæði vonsviknir og slegnir yfir þessari atburðarás,“ segir Anna Mar- grét Halldórsdóttir, starfandi formaður læknaráðs, um þá breytingu sem varð á heilbrigðislögum í sumar sem leggur læknaráð heilbrigðisstofnana niður. Ráðið sendi læknum á Landspítala bréf 26. ágúst vegna stöðunnar. „Stjórn læknaráðs lítur svo á að forsendur fyrir áframhaldandi starfi læknaráðs Landspítala séu brostnar sam- kvæmt lögum,“ segir í því. Stjórn ráðsins hafi í aðdraganda lagabreytinganna harð- lega gagnrýnt þær „- en án árangurs.“ Ráðið hvetur lækna til að íhuga og ræða stöðuna. „Við skiljum ekki af hverju var farið í þessa vegferð og hvernig hún á að leiða til góðs,“ segir Anna Margrét í samtali við Læknablaðið. „Þetta eru neikvæðar breytingar að okkar mati. Við læknar höfum lagt okkur fram um að vera rödd góðrar heilbrigðis- þjónustu, rödd sjúklinga og látið vita ef vandi er til staðar í starfsemi spítalans - ef eitthvað þarf að lagfæra.“ En er lagabreytingin þá liður í að þagga niður í læknum? „Maður fær það óneitan- lega á tilfinninguna. Það eru engin sann- færandi rök fyrir þessum breytingum og beinlínis búið að segja við lækna að þeir hafi verið með óþægilega gagnrýni. Okk- ur líður því mörgum eins og verið sé að þagga niður í læknum.“ Anna Margrét bendir á að læknaráð sé fyrst og fremst vettvangur fyrir faglega umfjöllun um starfsemi spítalans. „Það að einhver vilji hugsanlega þagga niður í því er óskiljanlegt,“ segir hún. Læknaráð viti ekki hvort gert sé ráð fyrir samráðs- vettvangi lækna innan spítalans eftir breytingarnar. „Nú hefur læknaráð ekki hlutverk gagnvart stjórnendum spítalans sam- kvæmt lögum,“ segir hún. Beðið er eftir útgáfu reglugerðar um fagráð og ræða þurfi framtíðarfyrirkomulagið við stjórn- endur spítalans. „Nákvæmlega hver hugur þeirra er í þessu máli á eftir að koma í ljós.“ En hvað er til ráða? „Læknar virðast einhuga um að það þurfi að vera faglegur vettvangur lækna til staðar á spítalanum. Búið er að fjarlægja læknaráð úr lögum en það er ekki þar sem að sagt að við getum ekki stofnað annan vettvang og haldið starfsemi okkar áfram. Einnig er mikil- vægt að læknar velji sjálfir sína fulltrúa í slíkt faglegt ráð eins og raunin var með læknaráð.“ Með breyttum lögum er nú gert ráð fyrir sameiginlegu fagráði lækna, hjúkr- unarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta sem forstjóri heilbrigðisstofnunar mun skipa í stað læknaráðs, hjúkrunarráðs og annarra fagráða. Anna Margrét segir enn óljóst hvernig staðið verði að því. „Við höfum ekki andmælt stofnun sameiginlegs fagráðs en ljóst er að sá hópur kemur alls ekki í staðinn fyrir læknaráð.“ Stjórn læknaráðs hvetur lækna til þess að taka þátt í aðalfundi Félags sjúkrahús- lækna 24. september. Þar á að ræða hvern- ig tryggja megi áfram faglegan umræðu- og samráðsvettvang fyrir lækna spítalans. „Læknar eru framlínustarfsmenn. Vel menntuð og öflug stétt. Það er óviðun- andi ef við höfum ekki farveg til að koma áhyggjum og ábendingum – góðum eða slæmum - á framfæri. Ekkert gott hlýst af því að leggja niður læknaráð – hvorki fyrir heilbrigðisstofnanir, starfsmenn né sjúklinga.“ Spítalalæknar undrandi og vonsviknir yfir örlögum læknaráðs og vilja tryggja framtíð fagráðs lækna Lagabreytingin sem leggur niður læknaráð er bæði ótrúleg og óskiljanleg segir starfandi formaður læknaráðs Landspítala. Hún segir að ráðgefandi hlutverk læknaráðs nú horfið úr lögum og framtíð ráðsins óljós ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Hvað breytist samkvæmt bréfi læknaráðs? • Læknar Landspítala hafa ekki lengur formlegan, sameiginlegan vettvang til umræðna og ályktana í stjórn lækna- ráðs sem kosin er af læknum á aðal- fundi læknaráðs • Forstjóra Landspítala ber ekki leng- ur lagaleg skylda til þess að leita álits læknaráðs í mikilvægum málum • Stöðunefnd læknaráðs hefur verið lögð niður og þar með umfjöllun lækna um starfsumsóknir sinna kollega • Fræðslunefnd læknaráðs hefur haldið uppi öflugu fræðslustarfi til margra ára en skipan og áframhaldandi starf fræðslunefndar er í óvissu • Almennir læknaráðsfundir hafa verið vettvangur fyrir samtal og ályktanir fyrir alla lækna spítalans en framhald slíkra funda er óvíst Anna Margrét Halldórsdóttir, starfandi formaður læknaráðs, segir ekkert gott hljótast af því að leggja niður læknaráð.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.