Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 50
436 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106
Eiga læknanemar að
fá aðild að LÍ?
Nú er að ljúka viðburðaríku sumri hjá fjöl-
mörgum læknanemum sem hafa starfað
í afleysingum víðs vegar um landið. Þar
fáum við tækifæri til að taka okkar fyrstu
skref í starfi og afla dýrmætrar reynslu
og þekkingar. Til að tryggja öryggi sjúk-
linga og nema sem best er þó mikilvægt
að stöðurnar séu vel skilgreindar og að
læknanemar fái viðeigandi leiðsögn.
Eingöngu þannig geta nemarnir starfað í
viðunandi fagumhverfi.
Þegar kemur að réttinda- og kjaramál-
um eru nemar í afleysingum hins vegar
síður en svo í vernduðu starfsumhverfi.
Læknanemar vinna eftir kjarasamningi
Læknafélags Íslands (LÍ) en hafa þrátt
fyrir það ekki aðild að LÍ sem stéttarfélagi.
Læknanemar eru því í raun samnings-
lausir þegar kemur að kjaramálum og
tilheyra ekki því félagi sem semur um
þeirra kaup og kjör. Það þýðir að ef upp
koma ágreiningsmál við vinnuveitanda, til
að mynda um túlkunaratriði kjarasamn-
inga, er enginn sem hefur það hlutverk að
standa vörð um réttindi læknanema. Því
getur vinnuveitandi leyft sér að haga mál-
um læknanema eins og hann kýs, vitandi
að afleiðingar af réttindabrotum í garð
læknanema verða litlar eða engar.
Læknanemar hafa þess vegna lengi
barist fyrir því að fá aðild að LÍ. Bæði til
að tryggja kjarasamningsbundin réttindi
í gegnum stéttarfélagsaðild og til að verða
hluti af fagfélagi lækna. Nú stendur til að
stjórn LÍ leggi fram lagabreytingartillögu
þessa efnis á næsta aðalfundi LÍ. Við
höfum fundið mikinn meðbyr með okkar
sjónarmiðum í þessu máli og fyrir það
erum við þakklát.
Málið á sér nokkurn aðdraganda í þess-
ari atrennu. Stjórn Félags læknanema (FL)
hóf samtalið árið 2018 og aflaði upplýs-
inga um stöðu nema hjá læknafélögum á
öðrum Norðurlöndum og meðal annarra
heilbrigðisstétta á Íslandi. Sú vinna leiddi
í ljós að mörg fordæmi eru fyrir því að
læknanemar og nemar í heilbrigðisgrein-
um hafi aðild að stéttarfélagi sinnar starfs-
greinar. Í kjölfarið skrifaði stjórn FL grein
í Læknablaðið sem bar heitið „Stéttlausir
læknanemar“ til að vekja athygli á málinu.
Á aðalfundi LÍ 2019 var svo samþykkt
ályktunartillaga sem Félag almennra
lækna (FAL) lagði fram um hvernig mætti
hátta inngöngu læknanema í LÍ. Sú til-
laga fól í sér að skipaður yrði starfshópur
með aðkomu allra aðildarfélaganna og
læknanema. Starfshópurinn ætti að út-
færa skynsamlega aðild læknanema að
LÍ sem breið sátt gæti ríkt um. Sigurveig
Pétursdóttir, formaður samninganefndar
LÍ, leiðir starfshópinn. Hópurinn hefur
verið að störfum í sumar og mun á næstu
vikum skila tillögu til stjórnar LÍ. Laga-
breytingartillagan verður sniðin að niður-
stöðum starfshópsins.
Þrátt fyrir að talsvert sé liðið frá því
að baráttan hófst er ekki hægt að segja að
þörfin fyrir slíka breytingu hafi minnkað.
Fjölmörg ágreiningsmál hafa komið upp
síðastliðinn vetur þar sem læknanemar
hafa verið ósammála túlkun vinnuveit-
anda á kjarasamningnum. Starfandi
læknanemar hafa verið rækilega minntir á
hve erfitt það getur verið að reka slík mál
utan stéttarfélags. Læknanemar hafa því
endurtekið leitað eftir aðstoð hjá LÍ og FAL
sem hafa liðsinnt okkur eftir megni í þess-
um efnum í ljósi aðstæðna. Þetta undir-
strikar að þörfin fyrir aðild læknanema að
LÍ er brýn og ótvíræð. Eðlilegast væri ef
læknanemar ættu formlega rétt á aðstoð
en þyrftu ekki að reiða sig á velvild emb-
ættismanna eða starfsmanna ofangreindra
félaga.
Við teljum einnig æskilegt að lækna-
nemar hafi aðgang að LÍ sem fagfélagi.
Það er mikilvægt að efla sem fyrst á
starfsferlinum stéttarvitund og samstöðu
meðal lækna og þar ber einnig að huga að
yngri kollegum, læknum framtíðar. Með
því að veita læknanemum aðild getur LÍ
ennfremur haft áhrif á hvernig stöður
læknanema eru skilgreindar. Þannig getur
félagið betur staðið vörð um hagsmuni
læknanema og tryggt að ábyrgð í starfi sé
við hæfi. Sú tilhögun eykur öryggi sjúk-
linga og læknanema í afleysingum.
Það er í senn skemmtilegt og lærdóms-
ríkt að fá viðeigandi afleysingastarf sem
læknanemi. Vinnuframlag læknanema í
slíkum störfum hefur skipt miklu fyrir
marga þætti heilbrigðisþjónustunnar á
síðustu árum og áratugum. Með því að
bjóða læknanema velkomna í LÍ er unnt að
skapa traustari umgjörð fyrir læknanema
í slíku starfi og huga betur að réttindum
þeirra og öryggi. Það er að okkar mati afar
óheppilegt og ekki í takt við raunveruleik-
ann að læknanemar standi utan stéttarfé-
lags og eigi sér ekki málsvara ef brotið er
á þeim eða ef önnur vandamál koma upp.
Þessu er hægt að breyta á næsta aðalfundi
LÍ.
Við treystum á stuðning ykkar á aðal-
fundinum!
Teitur Ari Theodórsson
formaður Félags læknanema
Sólveig Bjarnadóttir
fyrrum formaður Félags læknanema
F É L A G L Æ K N A N E M A