Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 38
424 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106
V I Ð T A L
„Það er nú það. Við vitum ekki nákvæmlega hvað skýrir ásóknina
í námið,“ segir Elínborg Bárðardóttir, kennslustjóri í sérnámi í
heimilislækningum. Læknum í náminu hefur fjölgað um 71% á
fjórum árum, en haustið 2017 stunduðu 38 námið.
„Ég tel að margir þættir spili saman. Heilsugæslan er
sýnilegri, meira talað um hana og á jákvæðari nótum,“ seg-
ir Elínborg. Umhverfi hennar hafi eflst og vísar hún til
Þróunarmiðstöðvarinnar, geðheilsuteymanna, sálfræðiþjón-
ustunnar, heimahjúkrunar og endurhæfingar. Heilsugæslunni sé
ætlað ríkara hlutverk í framtíðinni.
Elínborg nefnir einnig að umgjörð námsins hafi vaxið með ár-
unum. Sérnámið sé það elsta hér á landi, yfir 20 ára gamalt. Hún
segir líka að ungt fólk kjósi meira jafnvægi milli vinnu og einka-
lífs en áður. „Margir tala um að það sé fjölskylduvænna að vera
heimilislæknir en sinna annarri sérgrein,“ segir hún en leggur
þó áherslu á að sveigjanleiki og góður vinnutími komi ekki í veg
fyrir að starfið sé krefjandi.
Margþætt starf
„Það reynir á marga þætti þekkingar og færni og viðhorfa í
viðtali heimilislækna og námið getur verið strembið en um leið
mjög fjölbreytt og gefandi,“ segir Elínborg.
Læknablaðið kom til hennar á starfsstöðina í Mjódd þar sem
hún vinnur á Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar. Þar eru fyrir á
fleti þau Áslaug Baldvinsdóttir, læknir á Heilsugæslunni í Grafar-
vogi, og Steinþór Runólfsson, læknir á heilsugæslunni á Selfossi.
Áslaug lauk læknanámi 2016 eftir BS-gráðu í lífefnafræði, og lýk-
ur sérnáminu um áramótin 2022. Steinþór lauk grunnnámi 2013
og sérnáminu einnig 2022.
Steinþór segir að öll vilji þau góða þjálfun svo þau verði
gott fagfólk. „Hópurinn okkar upplifir og heyrir vel talað um
prógrammið frá þeim nýútskrifuðu og þeim sem hafa verið í
sambærilegum prógrömmum.“ Gæði námsins séu mikil.
„Ég geri ráð fyrir að þetta sé oftast sterkasti þátturinn í
valinu,“ segir hann. „En svo spila aðrir þættir inn í. Til dæmis
maki sem hefur ekki tök á að flytja til útlanda eða stórar fjöl-
skyldur sem fólk sér sér hugsanlega ekki fært að rífa upp með
rótum og fara með út í nám.“
Heilsugæslan heillaði
En hvað heillaði þau Áslaugu og Steinþór við starfsvalið. „Þessi
tími á heilsugæslunni stóð upp úr eftir kandídatsárið,“ segir Ás-
laug. „Þá fórum við fjóra mánuði á heilsugæslu og ég fann mig
þar í fjölbreyttu og skemmtilegu starfi. Það vakti áhuga minn á
heimilislækningum og í framhaldinu fór ég beint í sérnámið,“
segir Áslaug. „Þetta er það sem ég vil.“ En íhugaði hún að fara út
til náms?
„Já, ég gerði það en valdi þessa sérgrein af áhuga en einnig
vegna fjölskylduaðstæðna. Maðurinn minn er í fastri vinnu hér.
Þá hafði ég ekki heyrt neitt nema gott af sérnáminu. Fólk hefur
verið ánægt með það.“
Steinþór segir lífsstílinn hafa spilað lykilhlutverk við valið.
Þótt hann hafi alist upp á höfuðborgarsvæðinu hafi hann langað
að búa úti á landi. „Síðan fann ég vinnu sem hentaði,“ segir hann.
„Ég byrjaði að leysa af, fékk vinnu úti á landi sem læknanemi
og fann mig þar. Mér fannst þó vanta reynslu af bráðalækningum
og hef því lokið ígildi þriggja ára náms þótt ég vissi að ég ætlaði
ekki að vinna á bráðamóttöku. Þegar ég svo flutti út á land fannst
mér nauðsynlegt að bæta heimilislækningunum við. Námið gefur
svo víðtæka þekkingu og því fannst mér liggja í augum uppi að
ég yrði betri með því.“
Námið henti samfélaginu
En finna þau gagnrýni á að sérnámið fari að fullu fram hér
heima? Þau neita því en segjast þó heyra raddir eldri lækna sem
spyrji hvort þau langi ekki að læra úti. Steinþór segir að ef eldri
heimilislæknir viðraði þessa skoðun myndi hann hlusta. Áslaug
tekur undir það.
„En ég hef ekki hitt einn einasta heimilislækni sem er á þeirri
skoðun,“ segir hann. „Nei, ekki einn einasta,“ tekur Áslaug undir.
Hann segir að hann hafi metið það svo eftir að hafa starfað ár í
útlöndum að sérnámið hér heima hentaði honum betur.
„Ég tel að ég fái betri menntun í prógramminu eins og það er
uppsett og með vinnu á starfsstöðinni minni. Ég sá ekki að ég
gæti komist í sambærilegar aðstæður annars staðar.“ Þá gefi nám-
ið honum tækifæri út fyrir landssteinana. „Það er eftirspurn eftir
heimilislæknum víða.“
Elínborg segir sérnámið til heimilislæknis betra hér en víða á
Norðurlöndum. „Það eru fín prógrömm í Danmörku og á mörg-
um stöðum í Svíþjóð en við erum betur skipulögð en margir
aðrir,“ segir hún. „Áratugareynsla hefur myndast af þessu
prógrammi. Umgjörðin er mjög fín.“
Hún leggur þó áherslu á að alltaf sé gott að hleypa heim-
draganum og prófa að fara inn í erfiðar aðstæður og áskoranir á
stórum sjúkrahúsum erlendis. „En það eru meira persónulegar
áskoranir. Ég held að faglega skipti það ekki öllu máli, enda eru
heimilislækningar fag þar sem læknar vinna með hið almenna
Lífsstíllinn dregur lækna í
heimilislækningar
65 læknar stunda sérnám í heimilislækningum nú í vetur og fjölgar því um 16% milli
ára. Þeim hefur fjölgað um rúm 70% á þremur árum. Elínborg Bárðardóttir, kennslu-
stjóri, segir námið sterkt, sterkara en í mörgum nágrannalöndum
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir