Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 38

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 38
424 L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 V I Ð T A L „Það er nú það. Við vitum ekki nákvæmlega hvað skýrir ásóknina í námið,“ segir Elínborg Bárðardóttir, kennslustjóri í sérnámi í heimilislækningum. Læknum í náminu hefur fjölgað um 71% á fjórum árum, en haustið 2017 stunduðu 38 námið. „Ég tel að margir þættir spili saman. Heilsugæslan er sýnilegri, meira talað um hana og á jákvæðari nótum,“ seg- ir Elínborg. Umhverfi hennar hafi eflst og vísar hún til Þróunarmiðstöðvarinnar, geðheilsuteymanna, sálfræðiþjón- ustunnar, heimahjúkrunar og endurhæfingar. Heilsugæslunni sé ætlað ríkara hlutverk í framtíðinni. Elínborg nefnir einnig að umgjörð námsins hafi vaxið með ár- unum. Sérnámið sé það elsta hér á landi, yfir 20 ára gamalt. Hún segir líka að ungt fólk kjósi meira jafnvægi milli vinnu og einka- lífs en áður. „Margir tala um að það sé fjölskylduvænna að vera heimilislæknir en sinna annarri sérgrein,“ segir hún en leggur þó áherslu á að sveigjanleiki og góður vinnutími komi ekki í veg fyrir að starfið sé krefjandi. Margþætt starf „Það reynir á marga þætti þekkingar og færni og viðhorfa í viðtali heimilislækna og námið getur verið strembið en um leið mjög fjölbreytt og gefandi,“ segir Elínborg. Læknablaðið kom til hennar á starfsstöðina í Mjódd þar sem hún vinnur á Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar. Þar eru fyrir á fleti þau Áslaug Baldvinsdóttir, læknir á Heilsugæslunni í Grafar- vogi, og Steinþór Runólfsson, læknir á heilsugæslunni á Selfossi. Áslaug lauk læknanámi 2016 eftir BS-gráðu í lífefnafræði, og lýk- ur sérnáminu um áramótin 2022. Steinþór lauk grunnnámi 2013 og sérnáminu einnig 2022. Steinþór segir að öll vilji þau góða þjálfun svo þau verði gott fagfólk. „Hópurinn okkar upplifir og heyrir vel talað um prógrammið frá þeim nýútskrifuðu og þeim sem hafa verið í sambærilegum prógrömmum.“ Gæði námsins séu mikil. „Ég geri ráð fyrir að þetta sé oftast sterkasti þátturinn í valinu,“ segir hann. „En svo spila aðrir þættir inn í. Til dæmis maki sem hefur ekki tök á að flytja til útlanda eða stórar fjöl- skyldur sem fólk sér sér hugsanlega ekki fært að rífa upp með rótum og fara með út í nám.“ Heilsugæslan heillaði En hvað heillaði þau Áslaugu og Steinþór við starfsvalið. „Þessi tími á heilsugæslunni stóð upp úr eftir kandídatsárið,“ segir Ás- laug. „Þá fórum við fjóra mánuði á heilsugæslu og ég fann mig þar í fjölbreyttu og skemmtilegu starfi. Það vakti áhuga minn á heimilislækningum og í framhaldinu fór ég beint í sérnámið,“ segir Áslaug. „Þetta er það sem ég vil.“ En íhugaði hún að fara út til náms? „Já, ég gerði það en valdi þessa sérgrein af áhuga en einnig vegna fjölskylduaðstæðna. Maðurinn minn er í fastri vinnu hér. Þá hafði ég ekki heyrt neitt nema gott af sérnáminu. Fólk hefur verið ánægt með það.“ Steinþór segir lífsstílinn hafa spilað lykilhlutverk við valið. Þótt hann hafi alist upp á höfuðborgarsvæðinu hafi hann langað að búa úti á landi. „Síðan fann ég vinnu sem hentaði,“ segir hann. „Ég byrjaði að leysa af, fékk vinnu úti á landi sem læknanemi og fann mig þar. Mér fannst þó vanta reynslu af bráðalækningum og hef því lokið ígildi þriggja ára náms þótt ég vissi að ég ætlaði ekki að vinna á bráðamóttöku. Þegar ég svo flutti út á land fannst mér nauðsynlegt að bæta heimilislækningunum við. Námið gefur svo víðtæka þekkingu og því fannst mér liggja í augum uppi að ég yrði betri með því.“ Námið henti samfélaginu En finna þau gagnrýni á að sérnámið fari að fullu fram hér heima? Þau neita því en segjast þó heyra raddir eldri lækna sem spyrji hvort þau langi ekki að læra úti. Steinþór segir að ef eldri heimilislæknir viðraði þessa skoðun myndi hann hlusta. Áslaug tekur undir það. „En ég hef ekki hitt einn einasta heimilislækni sem er á þeirri skoðun,“ segir hann. „Nei, ekki einn einasta,“ tekur Áslaug undir. Hann segir að hann hafi metið það svo eftir að hafa starfað ár í útlöndum að sérnámið hér heima hentaði honum betur. „Ég tel að ég fái betri menntun í prógramminu eins og það er uppsett og með vinnu á starfsstöðinni minni. Ég sá ekki að ég gæti komist í sambærilegar aðstæður annars staðar.“ Þá gefi nám- ið honum tækifæri út fyrir landssteinana. „Það er eftirspurn eftir heimilislæknum víða.“ Elínborg segir sérnámið til heimilislæknis betra hér en víða á Norðurlöndum. „Það eru fín prógrömm í Danmörku og á mörg- um stöðum í Svíþjóð en við erum betur skipulögð en margir aðrir,“ segir hún. „Áratugareynsla hefur myndast af þessu prógrammi. Umgjörðin er mjög fín.“ Hún leggur þó áherslu á að alltaf sé gott að hleypa heim- draganum og prófa að fara inn í erfiðar aðstæður og áskoranir á stórum sjúkrahúsum erlendis. „En það eru meira persónulegar áskoranir. Ég held að faglega skipti það ekki öllu máli, enda eru heimilislækningar fag þar sem læknar vinna með hið almenna Lífsstíllinn dregur lækna í heimilislækningar 65 læknar stunda sérnám í heimilislækningum nú í vetur og fjölgar því um 16% milli ára. Þeim hefur fjölgað um rúm 70% á þremur árum. Elínborg Bárðardóttir, kennslu- stjóri, segir námið sterkt, sterkara en í mörgum nágrannalöndum ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.