Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 7

Læknablaðið - sep. 2020, Blaðsíða 7
L ÆK N A BL AÐIÐ 2020/106 393 R I T S T J Ó R N A R G R E I N New Zealand’s COVID-19 Elimination Strategy – Is it Working? David R. Murdoch MD, MSc, DTM&H, FRACP, FRCPA, FFSc(RCPA) Dean and Head of Campus University of Otago, Christchurch New Zealand | Aotearoa David R. Murdoch Rektor Otago-háskólans í Christchurch á Nýja-Sjálandi Murdoch er sérfræðingur í smitsjúkdómum og sýklafræði. Hefur Nýja-Sjáland fundið réttu leiðina gegn COVID-19? Nýja-Sjáland er eitt fárra landa sem hefur opinberlega lýst þeirri stefnumörkun að uppræta beri COVID-19 innan landamæranna (COVID-19 elimination stra- tegy). Þessi harða stefna, sem meðal annars fólst í lokun landamæranna, hefur bæði hlotið alþjóðlega eftirtekt og gagnrýni, en hún leiddi til örrar fækk- unar tilfella af COVID-19 og samfélagssmit hvarf í lengri tíma.1 Hvernig varð þessi stefnumörkun til og hverjar eru framtíðarhorfur þessa litla eyríkis með 5 milljónum íbúa, sem er jafnframt vinsæll áfanga- staður ferðamanna? Fyrsta COVID-19-tilfellið í Nýja-Sjálandi var greint 26. febrúar 2020. Fram að því höfðu viðbrögð yfirvalda falist í hertu landamæraeftirliti, eflingu á greiningargetu og undirbúningi fyrir fjölgun innlagna á sjúkrahús vegna COVID-19. Um miðjan mars fór að örla á samfélagssmiti og 26. mars ákvað ríkisstjórnin algera lokun (lockdown), en þá höfðu að- eins 102 tilfelli verið greind og ekkert dauðsfall enn í landinu. Auk þess voru settar hömlur á komur ferða- manna (fyrir utan íbúa og nýsjálenska ríkisborgara), og komið var á skyldubundinni 14 daga sóttkví fyr- ir alla nýkomna til landsins. Nákvæm smitrakning og einangrun hefur verið viðhöfð allan tímann sem heimsfaraldurinn hefur geisað. Hvers vegna ákváðu stjórnvöld Nýja-Sjálands að taka svona hratt og ákveðið til varna í COVID-19? Vísindasamfélaginu hér var mjög brugðið við lestur á sameiginlegri skýrslu WHO og Kína sem kom út í febrúar, en þar var sterklega gefið til kynna að SARS-CoV-2 smitum væri hægt að halda í skefjum með ákveðnum íhlutandi aðgerðum.2 Í ljósi þess að í óefni stefndi ákvað ríkisstjórnin strax í kjölfarið, byggt á þessari vísindalegu þekkingu, að stefna að upprætingu veirunnar úr samfélaginu. Þessi nálgun reyndist áhrifaríkari en flestir höfðu búist við. Eftir veldisvöxt tilfella í upphafi fækkaði tilfellum hratt (þau urðu 1500 alls) sem gerði stjórn- völdum kleift að losa mjög um höft. Nýja-Sjáland fór á lægsta stig viðbúnaðar 8. júní, 103 dögum eftir að fyrsta tilfellið greindist og eftir 7 vikna algera lok- un. Á þessu tímabili eftir að veiran hvarf úr sam- félaginu varð lífið næstum eins og áður og 9. ágúst staðfesti heilbrigðisráðuneytið að ekki hefðu greinst ný samfélagssmit COVID-19 á Nýja-Sjálandi í 100 daga. Nýja-Sjáland er með lægstu dánartíðni vegna COVID-19 í löndum OECD miðað við höfðatölu, alls 22 dauðsföll. Af hverju náði Nýja-Sjáland þessum góða ár- angri í baráttunni við COVID-19? Landið er fremur einangrað, það tafði komu veirunnar til landsins og gaf því tækifæri til að draga lærdóm af öðrum þjóðum. Það er líka auðveldara að loka landamær- um eyríkja. Viðbrögð stjórnvalda voru ákveðin og byggðu á bestu þekkingu þess tíma, en einkennd- ust jafnframt af manneskjulegum stjórnunarstíl og skýrri upplýsingagjöf. Daglegir upplýsingafundir með forsætisráðherra og landlækni urðu vinsælasta sjónvarpsefnið. Þrátt fyrir að árangri Nýja-Sjálands hafi víða verið fagnað má ekki sofna á verðinum. Hagkerfi landsins hefur fengið skell enda þótt stór hluti inn- lenda hagkerfisins sé kominn í sama gang og fyrir heimsfaraldur. Ferðamennska, sem er mikilvægur hluti þjóðartekna, hefur orðið fyrir stærsta áfallinu þar eð nánast engir erlendir ferðamenn geta komið til landsins. Þrátt fyrir þrýsting frá ferðaþjónust- unni er ólíklegt að landið verði opnað á næstunni og þá sennilega aðeins fyrir gesti frá svæðum þar sem COVID-19-smit fyrirfinnast ekki. Geta okkar til að viðhalda sóttkví með fullnægjandi hætti hefur þó ítrekað verið prófuð og leitt í ljós ýmsa vankanta sem síðan hefur verið leitast við að bæta úr. Nýja-Sjáland er áfram viðkvæmt gagnvart brestum á landamærum. Fjögur tilfelli af samfé- lagsmiti fundust í Auckland 11. ágúst og enn er ver- ið að reyna að komast fyrir útbreiðslu frá þeim. Uppruni smitanna er enn óþekktur. Viðbrögð stjórnvalda voru að herða aftur á reglum um sóttvarnir og smitgát á Auckland-svæðinu, hækka viðbragðsstig í landinu öllu og efla eft- irlit á landamærunum, í sóttkvíum og farsóttarhúsum. Endurvakning samfélagsmita hefur vakið áhyggjur meðal landsmanna um getuna til að ráða við slíka aukningu í smitum, þar til bólu- efni verður tiltækt. Erlendir gagnrýnendur á stefnu stjórnvalda í Nýja-Sjálandi hafa sýnt nokkra drýldni og jafnvel hroka gagnvart þessum háleitu markmið- um. Samt sem áður nýtur stefnan mikils stuðnings bæði meðal almennings hér og vísindasamfélags- ins, og vilji er til að halda henni til streitu. Þing- kosningar eru framundan í Nýja-Sjálandi og aðal- umræðuefni allra stjórnmálaflokkanna er hvernig stefnunni verði best haldið, en ekki hvort sveigja beri af leið. Reynsla Nýja-Sjálands hefur sýnt mikilvægi þess að taka ákvarðanir sem byggja á vísindalegri þekk- ingu, þess að hafa trausta forystu og miðla upplýs- ingum með skýrum hætti. Tíminn mun leiða í ljós hvort stefnumörkunin um útrýmingu veirunnar var besta leiðin fyrir landið. Það hefur aldrei verið brýnna en nú að alþjóðasamfélagið læri af reynslu annarra, forðist kreddur og sýni aðlögunarhæfni þegar kemur að viðbrögðum við COVID-19. 10.17992/lbl.2020.09.593 Það hefur aldrei verið brýnna en nú að alþjóðasamfélagið læri af reynslu annarra, forðist kreddur og sýni aðlögunarhæfni þegar kemur að viðbrögðum við COVID-19. david.murdoch@otago.ac.nz Salmex . Við astma og langvinnri lungnateppu . Einfalt og þægilegt í notkun . Hagstætt val fyrir þína sjúklinga Salmex er samheitalyf við Seretide. Lyfjaform: Innöndunarduft. Virk efni: Salmeteról (sem salmeterólxínafóat) og flútíkasónprópíónat. Styrkleikar: 50 míkrógrömm/100 míkrógrömm/skammt, 50 míkrógrömm/250 míkrógrömm/skammt og 50 míkrógrömm/500 míkrógrömm/skammt. Ábendingar: Astmi og langvinn lungnateppa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Markaðsleyfishafi: Glenmark Pharmaceuticals Nordic AB. Umboðsaðili á Íslandi: Icepharma hf. Lynghálsi 13, 110 Reykjavík, sími 540 8000, www.icepharma.is. Dags. nýjasta samþykkta SmPC: 2. júlí 2019. Nálgast má upplýsingar um lyfið og samantekt á eiginleikum þess, fylgiseðil, verð og greiðsluþátttöku sjúkratrygginga á vef Lyfjastofnunar, www.serlyfjaskra.is. GLE200401 - Apríl 2020. ÚTSKIPTANL EGT! (Salmeteról og flútíkasónprópíónat) Heimildir 1. Baker MG, Wilson N, Anglemeyer A. Successful elimination of Covid- 19 transmission in New Zealand. N Engl J Med 2020; 383: e56. 2. who.int/docs/default-source/ coronaviruse/who-china-joint- mission-on-covid-19-final-report. pdf - ágúst 2020. Íslensk þýðing Magnús Gottfreðsson og Védís Skarphéðinsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.