Morgunblaðið - 01.08.2020, Page 8

Morgunblaðið - 01.08.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2020 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Aðalfundur í Valsmönnum hf. verður haldinn föstudaginn 14. ágúst nk. kl. 10:00 að Hlíðarenda við Laufásveg í Reykjavík. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar vegna liðins starfsárs. 2. Ársreikningur félagsins ásamt endurskoðunarskýrslu lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um hvernig fara eigi með tap eða hagnað ársins. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 5. Kjör stjórnar. 6. Kjör endurskoðanda. 7. Önnur mál. Dagskrá, tillögur, ársreikningur, skýrsla stjórnar og skýrsla endurskoðanda vegna ársreiknings, munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Hlíðarenda við Laufásveg í Reykjavík til sýnis fyrir hluthafa fram að fundinum. Hluthafar sem hyggjast skoða gögnin gefi sig fram við framkvæmdastjóra félagsins, Sigurð Lárus Hólm. Reykjavík, 28. júlí 2020 Stjórn Valsmanna hf. AÐALFUNDUR VALSMANNA hf. Yfirvöld kynntu í fyrradag nýjarog hertar ráðstafanir í barátt- unni við kórónuveiruna, sem því miður hafði tekið að láta á sér kræla á nýjan leik. Meðal ráð- stafana var að taka upp 2 metra reglu en þar sem ekki væri hægt að tryggja hana „verði krafist notkunar and- litsgrímu“, sagði í tilkynningu. Þar sagði enn fremur að þetta ætti „t.d. við um al- menningssamgöngur, þ.m.t. innan- landsflug og farþegaferjur“.    Strætó dró eðlilega þá ályktun aðþeir sem hygðust ferðast með vögnunum yrðu að bera andlits- grímur og kynntu þá reglu í gær- morgun. Sú tilkynning kom raunar eftir að fulltrúar yfirvalda höfðu skýrt grímuregluna á þann hátt að ekki væri þörf á grímu í strætó.    Allt var þetta mjög ruglingslegtog ekki batnaði það þegar strætó tilkynnti síðar í gær að grímuskyldan hefði verið dregin til baka samkvæmt tilmælum al- mannavarna.    Komið hafa fram skýringar áþessu, en eftir stendur þó að erfitt er að sjá hvers vegna ekki er viðhöfð grímuskylda í strætó fyrst hún gildir í flugi og ferjum. Sagt er að fólk staldri stutt við í strætó, en ef grímuskylda er gagnleg í mann- þröng, getur þá ekki verið að hún eigi þrátt fyrir allt við í strætó?    Nú er að vísu ekki oft mann-þröng þar, en þó kemur það fyrir á morgnana. Og ferðalögin, jafnvel í þéttbýlinu, geta tekið dá- góðan tíma. Getur verið að það þurfi að snúa reglunni við aftur? Grímulaus ruglingur STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ófögur sjón blasti við starfsmönnum garðyrkjudeildar Akraneskaupstaðar þegar þeir mættu til vinnu í fyrradag. Unnin höfðu verið skemmdarverk í skrúðgarði bæjarins sem staðsettur er við Suðurgötu. Frá þessu var greint á vef Akraneskaupstaðar. Miklar endurbætur höfðu átt sér stað í garðinum fyrr um sumarið þar sem gosbrunnur var endurgerður, listaverki komið fyrir og plöntur gróðursettar. Mikil ánægja hafði ríkt með lagfæringarnar en garðurinn nýtur talsverðra vinsælda meðal bæjarbúa. Nú hafa umræddar lagfærðingar hins vegar verið eyðilagðar. Þegar starfsmenn garðyrkjudeildar komu að garðinum var búið að rífa upp helming plantnanna sem gróðursett- ar voru í kringum gosbrunninn og lágu þær ofan í vatninu ásamt grjóti úr steinalögn í kringum beðið. Um leið og skemmdarverkið kom í ljós var farið í að veiða plönturnar úr brunninum. Starfsmennirnir þurftu hins vegar frá að hverfa um stund og þegar þeir sneru aftur var búið að rífa upp gróður og henda í brunninn ásamt verkfærum og grjóti. Er þetta þriðja sumarið í röð sem sambærileg skemmdarverk eiga sér stað í skrúðgarði bæjarins. aronthordur@mbl.is Unnu skemmdarverk á skrúðgarði  Eyðilögðu tvívegis endurbætur á skrúðgarði Akraneskaupstaðar Ljósmynd/Akraneskaupstaður Skemmdarverk Búið var að fleygja verkfærum og plöntum í vatnið. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Miðasölukerfið Midi.is skilaði nær 25 milljóna króna hagnaði á árinu 2019. Er það rétt um 47 milljóna króna viðsnúningur frá árinu áður þegar rekstrartapið nam tæpum 22 milljónum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins sem birtur var í gær. Þrátt fyrir jákvæða rekstrarnið- urstöðu var hægt að rekja hana til annars en tekna af miðasölu. Fyrirtækið var á árinu keypt af Tix miðasölu ehf. og í tengslum við söl- una gáfu fyrrverandi eigendur, 365 miðlar hf., auk nokkurra kröfuhafa eftir kröfur á félagið. Var eftirgefin fjárhæð færð til tekna undir liðn- um aðrar tekjur. Alls nam hún ríf- lega 45 milljónum króna, en til samanburðar voru tekjur af sölu ríflega 11 milljónir króna. Dróst salan saman um sex milljónir króna milli ára. Heildareignir fé- lagsins í árslok samkvæmt árs- reikningi voru 98,8 milljónir króna og eigið fé 28,3 milljónir króna. Nam eiginfjárhlutfallið undir lok árs því 28,7%. Að því er segir í ársreikningi Midi.is er ljóst að faraldur kór- ónuveiru mun hafa í för með sér tals- verða óvissu í rekstri fyrirtækisins. Afleiðingar sökum þessa eru óvit- aðar, en það er mat stjórnenda miða- sölukerfisins að ekki sé vafi á rekstr- arhæfi þess í náinni framtíð. Midi.is ehf. var stofnað árið 1988, en eiginleg starfsemi hófst ekki fyrr en árið 2003. Tilgangur félagsins var frá upphafi prófun, rekstur og þjón- usta á hugbúnaði fyrir miðasölukerfi og aðra starfsemi því tengdu. Midi.is skilaði 25 milljóna kr. hagnaði  Stærstan hluta tekna má rekja til eftirgjafar krafna Midi.is Fyrirtækið skilaði tals- verðum hagnaði árið 2019.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.