Morgunblaðið - 01.08.2020, Síða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 2020
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is
»Örn Alexander
Ámundason flutti í
fyrrakvöld gjörninginn
„Inngangskúrs í slag-
verki“ í galleríinu Kling
& Bang í Marshallhús-
inu. Örn útskrifaðist frá
Listaháskólanum í
Malmö árið 2011 og tel-
ur að það séu náin en
óljós tengsl milli hins
performatífa og hins
skúlptúríska, eins og því
er lýst í tilkynningu.
Segir þar að hann hafi
ítrekað gert tilraunir
með báða miðlana og
reynt á þolmörk beggja.
Inngangskúrs í slagverki í Kling & Bang
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kúrs Örn Alexander í Kling & Bang framdi gjörning í fyrrakvöld.
Áhugaverður Inngangskúrs í slagverki hélt athygli viðstaddra.
Gaman Gjörningurinn lagðist vel í
gesti, sem skemmtu sér hið besta.
Einkasýning Hugleiks Dagssonar,
RÍÐA DREPA KÚRA, verður opn-
uð í galleríinu Þulu í dag, 1. ágúst, kl.
16. Er það jafnframt fyrsta einka-
sýningin í hinu nýja galleríi, þar sem
aðeins ein samsýning hefur verið
haldin. Galleríið var opnað fyrir mán-
uði.
Ásdís Þula Þorláksdóttir, leikari
og rithöfundur, rekur galleríið í nýju
húsnæði á Hjartatorginu sem er á
Hljómalindarreitnum svokallaða
milli Hverfisgötu og Laugavegar.
Hún segist aðallega ætla að sýna tví-
víða list í galleríinu og líka skúlptúra.
„Akkúrat núna eru aðallega málverk
og teikningar, upphengd verk en þau
er öll eftir samtímalistamenn og
þetta verða í bland vel þekktir lista-
menn eins og Hugleikur og Tolli, sem
verður í haust með vatnslitasýningu,
og minna þekkt nöfn. Ég er búin að
bóka alveg fram í júlí á næsta ári,“
segir Ásdís. Hún segist leita til lista-
manna með sýningahald og stefna að
því að Þula verði umboðsgallerí
þannig að hún komi til með að vinna
með ákveðnum listamönnum.
Persónur úr spili
Í tilkynningu frá Ásdísi stendur að
Hugleikur sýni á sér nýja hlið á sýn-
ingunni sem opnuð verður í dag og er
hún beðin um að útskýra nánar hvað
hún á við. „Hann er að fara að gefa út
spil í lok mánaðarins sem heitir
RÍÐA DREPA KÚRA og í því verða
ákveðnar persónur sem eiga í sam-
skiptum,“ svarar Ásdís en nafn spils-
ins ætti að gefa nokkuð góða vís-
bendingu um út á hvað spilið gengur.
„Hugleikur sagði sjálfur að þetta
væri rosalega súrt en svo er líka mik-
ill rómans,“ útskýrir Ásdís kímin.
Hún er spurð að því hvort sýningin
sé við hæfi barna, í ljósi titilsins og
svarar hún því til að það sé undir for-
eldrum komið hvort börn fái að sjá
verkin eða ekki. Hún bendir á að
Hugleikur geri alla jafna mjög litlar
myndir en á sýningunni megi hins
vegar sjá níu stórar myndir, 50x50
cm að stærð. Stærð verkanna og
einnig hvernig Hugleikur vinnur þau
eru ný hlið á listamanninum, segir
Ásdís. Sjón er sögu ríkari.
Fimm hleypt inn í einu
Galleríið er um 50 fermetrar að
stærð og það sem kallað er hvítur
kassi í myndlistarheiminum, þ.e.
fjórir hvítir veggir og jöfn birta en þó
hlýleg, útskýrir Ásdís.
Fjöldatakmörkun og tveggja
metra reglan verður að sjálfsögðu í
hávegum höfð við opnun sýningar-
innar í dag og fimm manns hleypt inn
í galleríið í einu. Myndir og frekari
upplýsingar um galleríið Þulu má
finna á Facebook-síðu með slóðinni
facebook.com/thula.gallery/.
helgisnaer@mbl.is
Rosalega súrt en
líka mikil rómantík
Hugleikur Dagsson opnar einkasýningu í galleríinu Þulu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einkasýning Hugleikur Dagsson með Ásdísi Þulu Þorláksdóttur sem rekur galleríið Þulu á Hjartatorginu.
svo flygildi. Mörg áhugaverð verk
hafa prýtt stöpulinn frá því að byrj-
að var að leyfa hinum ýmsu lista-
mönnum að spreyta sig á honum og
er Phillipson þrettándi listamað-
urinn sem hlýtur þann heiður. Seg-
ist hún hafa fengið hugmyndina að
því árið 2016 þegar atkvæða-
greiðsla fór fram um hvort Bret-
land ætti að vera áfram í Evrópu-
sambandinu eða ekki og Donald
Trump var kjörinn forseti Banda-
Nýtt listaverk var afhjúpað á fjórða
stöplinum við Trafalgar-torg í
London í fyrradag og hefur það
vakið mikla undrun og athygli veg-
farenda, sem ljósmynda það í gríð
og erg. Verkið nefnist „The End“,
eða „Endalokin“ og er eftir bresku
myndlistarkonuna Heather Phillip-
son. Er það skúlptúr af rjómaís
með kirsuberi ofan á sem húsfluga
virðist í þann mund að fara að
gæða sér á. Utan á kirsuberinu er
ríkjanna. Í samtali við dagblaðið
Guardian segist Phillipson hafa
haft það á tilfinningunni allar götur
síðan að mannkynið lifði nú á tím-
um óreiðu og gefur listaverkið til
kynna, sem og titillinn, að einhvers
konar endalok séu í nánd. Rjómaís-
inn er að leka niður en þegar einu
lýkur tekur annað við. Dróninn vís-
ar svo eflaust til eftirlitssamfélags-
ins með sínum mörgu eftirlits-
myndavélum.
AFP
Tímanna tákn Kona með grímu gengur fram hjá skúlptúr Heather Phillipson á meðan önnur myndar hann.
Rjómaís, kirsuber, flygildi og fluga