Morgunblaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi, Akureyri | ) 588 0640 | casa.is
Cuero Mariposa
Hannaður árið 1938 af:
Bonet, Kurchan & Ferrari
Leður stóll verð 159.000,-
Leður púði verð 15.900,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Slegin voru öll fyrri met á fyrri helmingi ársins er fram-
leiðsla vind- og sólorku nam 10% af allri raforku-
framleiðslu heimsins. Á sama tíma voru orkuver sem
ganga fyrir kolum keyrð á innan við helmingsafköstum.
Kemur þetta fram í nýrri greiningu Ember-hugveit-
unnar sem helgar sig orkumálum.
Þrátt fyrir næstum metsamdrátt spurnar eftir orku í
heiminum vegna kórónuveirufaraldursins var framlag
endurnýjanlegra orkugjafa 1.129 teravattstundir mán-
uðina janúar til júní. Til samanburðar nam framleiðslan
992 teravattstundum fyrstu sex mánuðina í fyrra, 2019,
samkvæmt greiningu Ember.
Hefur hlutfall vind- og sólorku meira en tvöfaldast frá
2015 er það nam 4,6%. Á því ári var Parísarsamkomulag
um loftslagsbreytingar undirritað.
Orkuframleiðsla úr kolum hefur á hinn bóginn dregist
saman um 8,3% á fyrri helmingi ársins. Samdrátturinn
átti sér stað þrátt fyrir að Kínverjar hafi lítillega aukið
hlut sinn í raforkuframleiðslu með kolum.
„Vöxtur vind- og sólorku hefur aukist lygilega frá
2015,“ sagði Dave Jones, aðalsérfræðingur Ember um
raforkumál, við frönsku fréttaveituna AFP. „Þegar við
spyrjum okkur hvort þetta sé nóg erum við í raun að tala
um hversu hratt útblástur dregst saman. Þrjátíu prósent
losunar jarðefnaeldsneytis í heiminum kemur bara frá
raforkuverum sem brenna kolum. Til að takmarka lofts-
lagsbreytingar verða kolaverin að lækka losun sína
hratt,“ sagði Jones.
Í greiningunni má glögglega sjá, að stór hagkerfi – þar
á meðal Kína, Bandaríkin, Indland, Japan, Brasilía og
Tyrkland – framleiða að minnsta kosti 10% raforku sinn-
ar með vind- og sólorkuverum. Bretland og Evrópusam-
bandið eru tekin sérstaklega út fyrir sviga og hrósað fyr-
ir framleiðslu raforku með endurnýjanlegum
orkugjöfum. Skerfur Bretlands er 21% og ESB 33%.
„Ekki nógu skjótvirkt“
Í Parísarsamkomulaginu skuldbundu þjóðir sig til að
takmarka hækkun lofthita við „vel undir“ tvær gráður á
Celsíus frá því sem var fyrir iðnbyltinguna. Aðallega
hétu þær að ná því fram með verulega lækkaðri losun
gróðurhúsalofts. Markmið samkomulagsins er að tak-
marka hlýnunina við 1,5°C. Til að ná settu marki hafa
Sameinuðu þjóðirnar sagt að losun þyrfti að minnka um
7,6% árlega út núverandi áratug.
Jones sagði að 30% af samdrætti kolaveranna mætti
rekja til aukinnar raforkuframleiðslu vind- og sól-
orkuvera. Afgangurinn skrifaðist svo líklega allur á
kórónuveirufaraldurinn. „Stór hluti þessa er augljóslega
af völdum faraldursins fremur en langvarandi þróunar.
Og í hreinskilni sagt er breytingin ekki nógu hröð ef tak-
markið er 1,5°C.“
Ríkjapallborðið um loftslagsbreytingar segir að kola-
notkun þurfi að falla 13% ár hvert til að markmiðið um
1,5%°C lifi.
APF
Sólarorka Crescent Dunes-sólarorkuverið við Tonopah í Nevada, rúmlega 310 km norðaustur af Las Vegas.
Vind- og sólar-
orka aldrei meiri
Þeir sem brjóta gegn reglum um
andlitsgrímur í Bretlandi og neita
þráfaldlega að fara eftir þeim eiga
yfir höfði sér allt að 3.200 punda
sekt, jafnvirði 576.000 króna.
Boris Johnson forsætisráðherra
skýrði frá þessu er hann aflétti í gær
ýmsum þvingunum í glímunni við
kórónuveiruna.
Þeir sem neita að setja upp grímu
eru sektaðir um 100 pund, 18.000
krónur. Borgist sektin innan 14 daga
lækkar hún í 50 pund. Sektin tvö-
faldast við hvert brot, upp í 3.200
pund að hámarki.
Skylda er að bera grímu í t.d. al-
mannasamgöngum, verslunum, hár-
greiðslu- og snyrtistofum, söfnum og
kvikmyndahúsum.
Sú ákvörðun Breta að skima fyrir
kórónuveirunni og setja alla sem
koma frá Frakklandi í sjálfskipaða
tveggja vikna sóttkví hefur sett
sumarleyfi margra þúsunda í upp-
nám. Olli þetta ringulreið í breskum
höfnum í gær er fólk freistaði þess
að komast til baka fyrir klukkan 16 í
dag er nýju sóttvarnareglurnar öðl-
ast gildi. Frakkar hafa hótað Bret-
um að svara í sömu mynt.
AFP
Annríki Mikið var að gera í ferjuhöfninni í Dover í gær er keppst var við að
koma tugþúsundum til Bretlands áður en reglur um sóttkví tóku gildi.
Ringulreið í höfnum
Grímulausir eiga yfir höfði sér allt
að 3.200 punda sekt í Bretlandi
Er henni var sleppt úr fangelsi í
Minsk kvaðst stærðfræðikennarinn
Yana Bobrovskaja, sem er 27 ára,
aldrei hafa búist við að sleppa lifandi
úr dýflissunni í Hvíta-Rússlandi.
„Við héldum að við yrðum jarðsett
hér. Þeir geta gert hvað sem er því
maður er sviptur öllum rétti,“ sagði
hún snöktandi í gær.
Bobrovskaya var ein nokkur
hundruð mótmælenda og hlutlausra
áhorfenda sem voru látnir lausir í
gær, en þeir voru fangelsaðir í viku-
byrjun í aðgerðum lögreglunnar
gegn pólitískum andstæðingum Al-
exanders Lúkasjenkó, í kjölfar um-
deilds sigurs hans í forsetakosning-
unum á sunnudag.
Hundruð angistarfullra vina og
vandamanna biðu við fangelsið í
Minsk og fjölda sjúkrabíla dreif að
og flutti slasaða mótmælendur á
brott. Margir hinna fangelsuðu
sögðu skelfilegar sögur af barsmíð-
um, niðurlægingu og pyntingum.
Konum var hótað nauðgun, karl-
menn klæddir úr öllum fötunum og
síðan lúbarðir með kylfum, að sögn
Amnesty International.
Maður einn sagði fréttaveitunni
AFP að hann hefði verið brenndur
með logandi sígarettum og annar
lýsti hvernig hann var laminn með
prikum og gefið rafstuð á meðan.
Margir virtust óhræddir við að
segja allt af létta og nokkrir menn
fækkuðu fötum til að sýna blaða-
mönnum AFP blámarin læri, þjó-
hnappa og maga.
Bobrovskaja sagðist hafa verið
handtekin þótt hún hafi alls ekki tek-
ið þátt í mótmælunum. Mátti hún
dúsa í þrjá sólarhringa án matar
ásamt um 50 öðrum konum í fanga-
klefa sem ætlaður var fjórum. Bæðu
þær um tíðatappa og salernispappír
var þeim sagt að þurrka sig með föt-
unum sínum, sagði hún. „Það er erf-
itt að gera sér í hugarlund að svona
nokkuð skuli gerast á 21. öld,“ sagði
hún og bætti við að Hvíta-Rússland
væri friðsælt land.
Gerum það sem okkur sýnist
Olesjaa Stogova, rússneskur borg-
ari á fertugsaldri, sagðist hafa verið
meðhöndluð grimmdarlega eins og
aðrir. Hún er búsett í Pétursborg í
Rússlandi en var í heimsókn í Hvíta-
Rússlandi. Var hún hrifsuð af götum
Minsk í herferð lögreglu og hers.
Sagðist hafa sætt spörkum og kylfu-
höggum. Þegar hún tjáði fangelsis-
vörðum að hún væri Rússi rigndi yfir
hana fúkyrðum og hótunum. „Við
gerum það sem okkur sýnist. Við
munum afmynda þig – þú munt ekki
þekkja sjálfa þig,“ sagði hún verðina
hafa hótað sér. Í klefanum sem hún
deildi með tugum kvenna var ein-
ungis rennandi vatn að hafa. „Við
vorum eins og sardínur í dós, allar
kófsveittar,“ sagði Stogova við AFP.
Og bætti við: „Þetta var pyntinga-
klefi.“
Helsti mótframbjóðandi Lúkasj-
enkó, Svetlana Tíkhanovskaja, hefur
hvatt til fjölmennra mótmæla gegn
forsetanum um helgina. Víða lögðu
starfsmenn iðnfyrirtækja niður
vinnu í mótmælaskyni í gær.
agas@mbl.is
Lýsa barsmíðum
og niðurlægingu
Boðað til mikilla mótmæla í Hvíta-
Rússlandi um helgina gegn forsetanum
AFP
Mótmæli Andstæðingar Ljúkasj-
enkó mótmæla í Minsk.