Morgunblaðið - 15.08.2020, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 15.08.2020, Qupperneq 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2020 klúbbnum alla tíð síðan. Þar hefur hann gegnt stöðu formanns og gjald- kera og setið frá upphafi í fjáröfl- unar- og líknarnefnd klúbbsins. Í ár- anna rás hafa helstu áhugamál Magnúsar verið lax- og skotveiðar, ferðalög og golf hin síðari ár. Þá hef- ur fjölskyldan ávallt verið honum efst í huga og sumarhúsið í Vaðnesi. Fjölskylda Eiginkona Magnúsar er Guðrún Beck, húsmóðir, f. 8.7. 1941. Þau eru búsett í Reykjavík. Foreldrar hennar voru hjónin Eiríkur Beck, f. 17.11. 1918, d. 26.2. 1951, stýrimaður hjá Eimskipafélagi Íslands, síðast á Sel- fossi, og Rósbjörg Hulda Magn- úsdóttir Beck, f. 22.7. 1919, d. 6.12. 1981, húsmóðir. Synir Magnúsar og Guðrúnar eru 1) Tryggvi Magnússon, f. 16.11. 1963, viðskiptafræðingur, kvæntur Katr- ínu Rut Sigurðardóttur, f. 9.5. 1965, yfirlækni, en þau eru búsett í Bergen í Noregi. Þeirra börn eru Jónína Kristín Tryggvadóttir, f. 28.6. 1990, Magnús Karl Tryggvason, f. 5.7. 1995 og Mikael Freyr Tryggvason, f. 9.1. 2001. 2) Eiríkur Magnússon, f. 26.7. 1966, viðskiptafræðingur, kvæntur Hjördísi Unni Jónsdóttur, f. 31.7. 1965, starfsmanni Valitor. Þeirra börn eru Jón Birgir Eiríksson, f. 28.4. 1993, Guðrún Eiríksdóttir, f. 1.2. 1996 og Birna Kristín Eiríksdóttir, f. 4.8. 2000. 3) Magnús Magnússon, f. 11.8. 1975, viðskiptafræðingur, kvæntur Ásdísi Margréti Finnbogadóttur, f. 31.10. 1974, hjúkrunarfræðingi. Þeirra börn eru Finnbogi Óskar Magnússon, f. 14.5. 2002, Eiríkur Ísak Magnússon, f. 18.1. 2008 og Auður Hilda Magnúsdóttir, f. 3.9. 2009. Systir Magnúsar er Anna Lovísa Tryggvadóttir, f. 19.4. 1947, meina- tæknir, gift Heimi Sindrasyni, f. 24.12. 1944, tannlækni. Foreldrar Magnúsar voru hjónin Kristín Magnúsdóttir, f. 17.6. 1912, d. 7.5. 1991, húsmóðir, og Tryggvi Jóns- son, f. 14.9. 1914, d. 11.12. 1987, for- stjóri. Magnús Tryggvason Ólína Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjarfirði Jón Sigurðsson bóndi í Reykjarfirði, V-Barð. Helga Jónsdóttir húsfreyja á Ísafirði og í Rvík Magnús Magnússon kaupmaður og síldarverkandi á Ísafirði, síðast bús. í Rvík Kristín Magnúsdóttir húsmóðir í Reykjavík Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja í Stóru-Hildisey Magnús Jónsson bóndi í Stóru-Hildisey í A-Landeyjum Anna Sigríður Árnadóttir húsfreyja á Drangsnesi Jón „eldri“ Jónsson bóndi og kennari á Drangsnesi Lovísa Jónsdóttir húsfreyja á Akureyri Jón Brynjólfsson kaupmaður og skósmíðameistari í Austurstræti 3, Rvík Guðrún Hannesdóttir húsfreyja á Hreðavatni Brynjólfur Einarsson bóndi á Hreðavatni í Norðurárdal Úr frændgarði Magnúsar Tryggvasonar Tryggvi Jónsson niðursuðufræðingur og forstjóri í Reykjavík Viðskipta Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi. Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is VIÐSKIPTAPÚLSINN VIÐSKIPTAPÚLSINN NÝTTU TÍMANN OG FYLGSTU MEÐ Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „LÁNAUMSÓKNIN ÞÍN VAR AÐ KOMA TIL BAKA FRÁ LÁNADEILDINNI.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að segja það í eigin persónu. VÁ … ÉG ER SVO FULLUR AF ORKU KANNSKI LAGAST ÞETTA EF ÉG LEGG MIG ERTU SAMMÁLA ÞVÍ AÐ LIST AUÐGI LÍF FÓLKS? ALGJÖRLEGA! ÉG HEF NÁÐ BESTA GÓSSINU ÞEGAR ÉG HEF RÆNT SÖFN! ÉG ELSKA ÞIG! „ÉG ER HÆTTUR AÐ REYNA AÐ VERA RÓLEGUR. ÉG ER SAMT OPINN FYRIR ÞVÍ AÐ VERA MINNA ÆSTUR.” Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Hestum komið hagann í. Um hafið sjáum vaða. Framin oft með ys og gný. Íþrótt seiglu og hraða. Hér er lausn Hörpu á Hjarðarfelli: Hestum líkar hagaganga. Um hafið fiskiganga veður. Skemmtileg þá skrúð- er –ganga og skíðaganga sem að kveður. Kennari í Vesturbænum sendi þessa hugmynd að lausn: Hagagöngu hrossin þrá. Hér var síldarganga. Í kröfugöngu gekk ég þá. Ganga er sportið stranga. Helgi Þorláksson svarar: „Við hjónin, ég og Auður, látum verða eitt fyrsta verkið á laugardags- morgnum að skoða gátu frá Guð- mundi. Við erum honum þakklát fyrir gáturnar og þér fyrir að halda úti vísnaþættinum. Hér kemur rím- uð lausn við síðustu gátu (nr. 40, er það ekki?).“ Hestar ganga í haga á beit, hamast ganga á síldarslóð, kröfuganga hvetur sveit, kappganga er holl og góð. „Þá er það lausnin,“ frá Helga R. Einarssyni: Á heiðum uppi hestagöngur. Höfin prýða síldargöngur. Víða sjá má gleðigöngur. Grannir stunda af kappi göngur. Þannig skýrir Guðmundur gát- una: Í hagagöngu hestum beitt. Um hafið fiskiganga þreytt. Í kröfugöngu köll og hróp. Í kappgöngu við sjáum hóp. Þá er limra: Það sást til Miðfjarðar-Möngu einn morgun hér fyrir löngu, hún gekk fram af sér, eins og gengur, og er víst orðin að afturgöngu. Og síðan ný gáta eftir Guðmund nr. 41: Í bólinu ég lengi lá, loks þó hafði mig á stjá, gátu síðan samdi þá, sem nú hérna líta má: Krakki þessi kátur er. Kerra, sem um veginn fer. Hér um ræðir heimskan ver. Heiti þetta maður ber. Útilegumaður kom á réttarvegg, en í réttinni átti hann sauð einn mik- inn, mórauðan að lit. Hann kvað: Mórauður með mikinn lagð mænir yfir sauða kranz. Hófur, netnál, biti, bragð á báðum eyrum mark er hans. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Eigi gengur illt til alls

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.