Morgunblaðið - 10.09.2020, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 0. S E P T E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 213. tölublað 108. árgangur
BORGARA HEIMA
BÚÐU TIL ÞINN
NÝTT
Í NETTÓ!
-20
ÞÚ FÆRÐ ALLT TIL ALLS Í NETTÓ!
Kölnarhryggur
Með gljáa
1.799KR/KG
ÁÐUR: 2.999 KR/KG
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 10.—13. september
-40% -50%VínberRauð
549KR/KG
ÁÐUR: 1.098 KR/KG
TALANDI PÁFA-
GAUKUR TEKUR
Á MÓTI GESTUM ALLIR LITIR LÍFSINS
LEIKÁRIÐ KYNNT 22 HEILSUBLAÐ HAGKAUPS FYLGIR MEÐ Í DAG STANSLAUST RENNERÍ 14
Dánartíðni 70 ára og eldri var lægri
fyrstu 33 vikur ársins en það tímabil
árin 2017 til 2019. Þá létust færri að
meðaltali í viku hverri í ár.
Þetta kemur fram hjá Hagstof-
unni. Að meðaltali dóu 43 í viku
hverri en til samanburðar hafa tíu
látist í kórónuveirufaraldrinum í ár.
Haraldur Briem, fv. sóttvarna-
læknir, segir þróunina innan vik-
marka. Hins vegar kunni betri smit-
varnir að hafa skilað árangri.
Hann bendir á að inflúensan hafi
verið væg síðasta vetur. „Það er allt-
af pínulítill umframdauði þegar hún
er að ganga,“ segir Haraldur.
Felur mögulega í sér vanmat
Brynjólfur Sigurjónsson, sérfræð-
ingur hjá Hagstofunni, segir stofn-
unina ekki hafa lagst í ítarlega grein-
ingu á gögnunum. Þess í stað sé lögð
áhersla á að gefa þau út sem fyrst.
Gera verði ráð fyrir einhverju van-
mati í tölunum, einkum vegna dán-
arvottorða sem berast seint.
„Við höfum ekki reiknað út hvort
þetta eru marktækt færri dánir en í
venjulegu ári,“ segir Brynjólfur og
bendir á að fleiri hafi dáið í aldurs-
hópnum 30-69 ára í ár en sömu vikur
síðustu ára. Sú aukning sé þó ekki
jafn afgerandi og lækkun dánartíðni
hjá 70 ára og eldri. baldura@mbl.is
Dánartíðnin lækkar
Læknir telur betri smitvarnir í ár mögulegan áhrifaþátt
MDánartíðnin … »6
Hús við Skólavörðustíg 36 var rifið í gær. Niku-
lás Úlfar Másson, byggingarfulltrúi Reykjavík-
ur, sagði við Morgunblaðið að ekki hefði legið
fyrir leyfi til þess að rífa húsið þar sem það nyti
verndar byggðamynsturs. Einungis hefði verið
veitt leyfi til að bæta við einni hæð ofan á það en
ekkert leyfi til niðurrifs hefði verið veitt. Sagði
hann að fulltrúar færu á staðinn á fimmtudags-
morgun til að kanna málið. Eigandi hússins
sagði í samtali við Morgunblaðið að fyrir hefðu
legið öll tilskilin leyfi. Til hefði staðið að byggja
hæð ofan á húsið en í ljós komið að burðarvirki
þess þyldi það ekki vegna þess að einhverju áður
hefðu gluggar verið skornir út á framhliðinni
sem veiktu burðarvirkið. Því hefði húsið verið
rifið og til stæði að byggja það aftur í uppruna-
legri mynd. Fullt samráð hefði verið haft við eft-
irlitsaðila. Þessu hafnar byggingarfulltrúi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Rifu verndað hús við Skólavörðustíg
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Faraldur kórónuveirunnar hefur
haft áhrif á skatteftirlit á árinu þar
sem farnar hafa verið töluvert færri
eftirlitsferðir á vinnustaði og í fyrir-
tæki en áður.
Vettvangseftirlit Skattsins hefur
heimsótt 1.453 fyrirtæki það sem af
er árinu. Í þessum heimsóknum
hafa ekki verið gerðar athuga-
semdir í 959 tilfellum. Í 130 heim-
sóknum hafa verið gerðar munn-
legar athugasemdir að því er segir í
skriflegu svari Kristínar Gunn-
arsdóttur sérfræðings hjá Skatt-
inum.
Veitt hafa verið 85 tilmæli um úr-
bætur og hafa þau tilmæli verið
ítrekuð í 34 skipti. Einu félagi hefur
verið lokað en 14 félög hafa fengið
viðvörun í þá veru.
Gæta þarf að því að öllum
reglum sé fylgt um sóttvarnir
„Covid-faraldurinn hefur óneit-
anlega haft áhrif á eftirlitið þar sem
gæta þarf að því að öllum reglum
um sóttvarnir sé fylgt í hvívetna í
slíkum heimsóknum. Slíkt hefur
m.a. haft þau áhrif að heimsóknum í
fyrirtæki hefur fækkað en til sam-
anburðar voru heimsóknir á sama
tímapunkti í fyrra orðnar rúmlega
2.000,“ segir Kristín.
Einu félagi
lokað og 14
viðvaranir
Færri eftirlitsferðir
vegna sóttvarna
Ætla má að útflutningsverðmæti
makríls sem veiðst hefur í ár verði
hátt í 25 milljarðar króna. Síðustu
vikur hefur fengist góður afli í Síld-
arsmugunni austur af landinu, en
langt hefur verið að sigla. Um miðja
vikuna höfðu 2⁄3 hlutar makrílafla
sumarsins fengist í Síldarsmugunni.
Fram undan eru veiðar á norsk-
íslenskri síld og eru fyrstu skipin
byrjuð á síld. Fréttir af afla Færey-
inga við Kolbeinsey lofa góðu, en auk
þess var síld víða við landið í sumar.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað er haft eftir Hjörvari
Hjálmarssyni, skipstjóra á Berki, að
mikið sé af síld austur af landinu.
Hann veltir því fyrir sér hvort hún
muni hafa vetursetu á Rauða torginu
eins og í gamla daga. »26
Um 25 milljarðar
fyrir makrílinn
Góður afli í Síldarsmugunni fyrir austan
MEIRA
FYRIR
HEILSUNA