Morgunblaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2020 Þetta segir í pistli Frjáls lands ívikunni:    Þær gleðifregnir berast frá Eng-landi að nýr útvarpsstjóri BBC ætli að gæta hlutleysis (Mbl. 7.9. 2020). Þeir sem hafa fylgst með umfjöllun BBC um BREXIT, ESB, Trump, loftslagsmál, Pútín, Rússa eða Icesave vita að mikið hefur vantað þar á. BBC hef- ur útvarpað gagnrýnislaust lituðum og jafnvel röngum upplýsingum og ruslvísindum og ýtt undir óraunhæf stefnumál og sleppt að gera öfga- stefnum skil. BBC hefur oft horft framhjá hinni síversnandi siðmenningar- upplausn og öryggisleysi í Bret- landi og almennt á Vesturlöndum sem fylgt hefur vaxandi stjórn- málaskrumi, öfgahreyfingum, framandi trúarbrögðum og mönn- um frá framandi menningar- svæðum.    BBC hefur mikil áhrif á skoð-anamyndun. Eins og hjá mörg- um öðrum stórfjölmiðlum virðast margir frétta- og dagskrármenn þeirra aldir upp í vernduðu um- hverfi háskóla og stofnana með tak- mörkuð raunveruleikatengsl og litla vísindaþekkingu. En þeim mun meir af óraunsæjum hugsjónum og rétthugsunarkreddum. BBC er í eigu almennings og gæti því tekist að verða hlutlaust.    Verra er með suma einkareknafjölmiðla á Vesturlöndum sem auðmenn eða áróðursmenn ná að nota til æsinga, óhróðurs, spillingar eða skemmdarverka.“    Skipt hefur verið um stjóra á„RÚV“ oftar en einu sinni, en aldrei kemur nýr. Fordæmi BBC STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Verulega hefur hægt á íbúðafjárfest- ingu hér á landi samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Íbúða- fjárfesting dróst saman um 21% milli ára á öðrum fjórðungi þessa árs sem er mesti samdráttur sem hefur mælst síðan á öðrum fjórðungi árs- ins 2010. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. Þar kemur jafnframt fram að þetta er annar ársfjórðungurinn í röð sem samdráttur mælist, en á fyrsta ársfjórðungi dróst íbúðafjár- festing saman um 5%. Þrátt fyrir þetta er uppbygging enn þá mikil og má áfram gera ráð fyrir fjölgun íbúða inn á markaðinn næstu misseri þar sem tíma tekur að klára mörg þeirra verkefna sem þegar voru haf- in. Alls var fjárfest fyrir ríflega 35 milljarða króna á öðrum fjórðungi þessa árs. Ef frá er talið tímabilið frá fyrsta ársfjórðungi 2019 til fyrsta ársfjórðungs 2020 er þetta mesta fjárfesting sem hefur átt sér stað á stökum ársfjórðungi síðan 2008. „Við sjáum því að þó svo að það hægi á íbúðafjárfestingu er engu að síður talsvert í byggingu. Það má því segja að við séum að ganga í gegnum upp- byggingarskeið sem er ekki ósvipað því sem átti sér stað á árunum 2006- 2008 þegar að jafnaði var fjárfest fyrir tæplega 40 ma.kr. á hverjum ársfjórðungi, á verðlagi ársins 2019,“ segir í Hagsjánni. hdm@mbl.is Hægir verulega á íbúðafjárfestingu  Fjárfesting dróst saman um 21%  Fjárfest fyrir ríflega 35 milljarða Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hús Talsvert af húsnæði er í bygg- ingu þrátt fyrir hægari fjárfestingu. Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Mán. – Fim. 10–18 Föstudaga 10–17 Laugardaga 11–15 2 0 0 0 — 2 0 2 0 Eldhúsinnréttingar Árni Halldórsson skip- stjóri og útgerðar- maður á Eskifirði lést í gær, 9. september, á sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað eftir skamm- vinn veikindi. Árni fæddist á Eskifirði 3. október 1933 og ólst þar upp í stórum systkina- hópi, sonur hjónanna Halldórs Árnasonar útgerðarmanns og Sol- veigar Þorleifsdóttur frá Svínhólum í Lóni. Árni hóf sjómanns- ferilinn á unglingsárum en að loknu skipstjórnarnámi 1956 var hann m.a. skipstjóri á Austra SU, Hólmanesi SU, Krossanesi SU og fleiri skipum Hraðfrystihúss Eskifjarðar, sem hann sótti sum hver til skipa- smíðastöðva í Noregi og Austur- Þýskalandi. Hann stofnaði síðar og rak fyrir- tækið Friðþjóf hf. ásamt eiginkonu sinni Ragnhildi Kristjánsdóttur og nánum samstarfsmönnum og eig- inkonum þeirra. Hann var farsæll skipstjóri á skipum félagsins um áratugaskeið, allt fram á tíunda áratuginn, en þá fór hann til starfa í landi. Félagið rak botnfiskvinnslu á Eski- firði um langt skeið og var umsvifamikið í vinnslu á síldaraf- urðum. Árni gegndi ýmsum trúnaðarstörfum í þágu sjómanna og út- gerðar og sat um skeið i bæjarstjórn á Eskifirði fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Árni og Ragnhildur eignuðust sex börn;, andvana son 1955, Kristínu Aðalbjörgu, f. 1957, Halldór, f. 1958, Björn, f. 1959, Sigrúnu, f. 1960, og Guðmund, f. 1963, en að auki ólst Auður, dótturdóttir þeirra, að miklu leyti upp hjá afa sínum og ömmu. Ragnhildur lést í desember 2018. Afkomendur þeirra eru alls 30 tals- ins. Andlát Árni Halldórsson Allt um sjávarútveg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.