Morgunblaðið - 10.09.2020, Page 14

Morgunblaðið - 10.09.2020, Page 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2020 Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is Svörum fyrirspurnum fúslega í síma 515 1100 eða á heilbrigdi@rekstrarland.is PI PA R\ TB W A • SÍ A • 18 30 88 ABENA ÞVAGLEKAVÖRUR FÁST Í REKSTRARLANDI samþykktar af Sjúkratryggingum Íslands og Ríkiskaupum OPIÐ ALLA VIRKA DAGA KL. 8–17. Abena hjálparvörurnar við þvagleka eru alhliða lausnir fyrir alla þá sem glíma við þvagleka. Sérfræðingar okkar aðstoða við rétt val og veita persónulega og faglega þjónustu. Skírteinishafar geta leitað beint til Rekstrarlands. Við komum vörunum heim til notenda. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Umferðin hingað til okkarhefur verið svo mikil ísumar að það mætti helstlíkja því við Laugaveg- inn. Í júlí var stanslaust rennerí til okkar frá hádegi og langt fram á kvöld. Við þurftum að færa morg- unmatinn fram og einfalda hádeg- ismatseðilinn til að ná að sinna öllu og öllum,“ segir Stella Guðmunds- dóttir, sem á og rekur ferðaþjónustu í Heydal í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi ásamt syni sínum Gísla Pálmasyni og tengdadótturinni Lóu Hrönn Harðardóttur. Í Heydal er hægt að gista á sveitahóteli, í sumarbústöð- um eða á tjaldsvæði og þar er veit- ingastaður sem býður upp á mat úr hráefni úr heimabyggð og bleikju úr bleikjueldi Gísla. Einnig er í boði heimaræktað grænmeti úr gróð- urhúsi Gísla og fölbreytt afþreying er í boði fyrir gesti, hestaleiga, kajaksiglingar, gönguferðir, veiði, mínígolf, heitir pottar og náttúru- laug. „Vegna covid fjölgaði Íslend- ingum mjög meðal okkar gesta í sumar og það var skemmtileg til- breyting, því í venjulegu árferði eru erlendir gestir í miklum meirihluta. Íslendingar haga sér á annan hátt en erlendu ferðamennirnir að því leyti að þeir hringja beint í mig til að panta gistingu eða mat með litlum fyrirvara en útlendingar panta allt með miklum fyrirvara,“ segir Stella sem hefur staðið í brúnni í Heydal í 17 ár, eða frá því þau opnuðu árið 2003. „Ég verð áttræð á næsta ári og mun standa hér áfram eins lengi og ég get, meðan aðrir þola mig og reka mig ekki í burtu,“ segir Stella. Tófan og hundarnir eru vinir Stella er mjög áhugasöm um náttúruna í öllum sínum myndum og hún er mikill dýravinur. Í Heydal eru ekki aðeins hross heldur vappa líka þrír hundar um hlaðið og kött- urinn Garpur heldur til í gróðurhús- inu þar sem Gísli ræktar m.a. epli, kirsuber og vínber. Gróðurhús þetta er mikill sælureitur og þar er lítil sundlaug sem gestum er velkomið að dýfa sér ofan í, en vatn þeirrar laugar hitar einnig upp gróðurhúsið. Stóri talandi páfagaukurinn Kobbi vekur mikla lukku hjá gestum sem koma í Heydal, en hann tekur á móti fólki fyrir utan hótelið þar sem hann prílar um í stóra búrinu sínu og mælir á íslensku. „Við leyfum honum að vera þar úti þegar vel viðrar en svo færum við hann hingað inn í móttökuna þegar degi hallar. Krakkar eru sér- staklega spenntir fyrir Kobba og hafa gaman af að láta hann herma eftir sér. Yngri sonur minn átti þennan páfagauk fyrst, fékk hann í vinnuskiptum hjá manni sem átti gæludýrabúð. Kobbi kom í okkar fjölskyldu þegar hann var hálfs árs og hefur verið með okkur síðan, eða í tuttugu ár. Sonur minn kenndi Kobba að tala íslensku þegar hann var ungi, núna hermir hann eftir öllu sem hann heyrir, símhring- ingum og hvers konar hljóðum. Hann býður góðan dag og góða nótt og hann getur farið með heilu sím- tölin.“ Hundarnir tveir sem fjöl- skylda Stellu á heita Loki og Bangsi, en sá þriðji heitir Þorri og er yngstur, en hann tilheyrir starfs- manni. „Loki kom hingað á sínum tíma sem hvolpur, en Bangsi var eldri þegar við fengum hann. Þeir eru góðir félagar hundarnir okkar og miklir vinir tófunnar sem heldur til hér fyrir ofan. Þetta er tæfa sem heitir Zorra og er með yrðlinga, hún hefur verið hér í fjögur ár með gren- ið sitt. Hún er orðin mannvön og kemur til okkar til að fá að éta. Við fengum hana sem yrðling frá refa- skyttu svo það voru hæg heimatökin að hæna hana að okkur frá unga- aldri. Hún er mjög góður vinur hundanna, þau leika sér mikið saman, tæfan og hundarnir.“ Hundur Loki kann vel að meta félagsskap gesta hótelsins. Vinir Hundurinn Bangsi leikur sér við yrðlinginn Zorru sem býr ofan við hótelið. Stór Garpur býr í gróðurhúsi Gísla. Stella og fjörugt dýralífið í Heydal Þótt Heydalur í Mjóafirði sé úr alfaraleið hefur verið mikið að gera þar í sumar hjá Stellu sem stendur vaktina allan liðlangan daginn á sveita- hótelinu sem hún rekur ásamt syni sínum og tengdadóttur. Friðsælt og fallegt er í Heydal og þar tekur stór talandi páfa- gaukur á móti gestum. Morgunblaðið/Kristín Heiða Kúnstugur Stella og tvítugi páfagaukurinn Kobbi sem talar mannamál og á það til að herma eftir heilu símtölunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.