Morgunblaðið - 10.09.2020, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 10.09.2020, Qupperneq 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2020 Komdu í BÍLÓ! M.BENZ E 350E AVANTGARDE nýskráður 05/2018, ekinn 21 Þ.km, bensín, 9 gíra sjálfskiptur. 18“ álfelgur, stafrænt mælaborð, leiðsögukerfi, bakkmyndavél o.fl. Verð 6.490.000 kr. Raðnúmer 251514 VW PASSAT GTE COMFORTLINE Nýskráning 9/2018, bensín/rafmagn, ek. 18 þkm. Sjálfskipting. Stafræntmælaborð. Dráttarkrókur, 18“ álfelgur o.fl. Verð 4.550.000 kr. Raðnúmer 251481 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is – ALLTAF VIÐ SÍMANN 771 8900 – AUDI A3 E-tron Panorama Nýskráður 05/2018 ek. 36þkm. bensín og rafmagn, sjálfskiptur. Hlaðinn aukabúnaði s.s. Stafræntmæla-borð, glerþak, leður og alcantara sportsæti, Bang & Olufsen hljóm- kerfi, Matrix LED, leiðsögukerfi, flatbotna leðurstýri, 17“ álfelgur o.m.fl. Verð 4.550.000 kr. Raðnúmer 251482 M.BENZ E 350E AVANTGARDE nýskráður 03/2018, ekinn 29 Þ.km, bensín og rafmagn (plug in hybrid), 9 gíra sjálfskiptur, 18“ álfelgur, dráttarkrókur, stafrænt mælaborð, leiðsögukerfi o.fl. Verð 6.590.000 kr. Raðnúmer 251299 M.BENZ C 300E 4MATIC AMG nýskráður 01/2020, ekinn 14 Þ.km, bensín og raf- magn (plug in hybrid), 9 gíra sjálfskipting. Stafrænt mælaborð, leiðsögukerfi og hellingur af flottum aukahlutum. Síðast en ekki síst er hann með AMG útlitspakka! Verð 8.490.000 kr. Raðnúmer 251520 Það voru mikil von- brigði að þurfa að tak- marka heimsóknir á ný á hjúkrunarheimilin eftir dásamlegt hlé fyr- ir daglega lífið frá lok- um fyrstu bylgju. Opn- un landamæra og fjölgun smita sem þannig bárust inn í landið höfðu þau áhrif að annað var ekki hægt. Starfsfólk og ættingjar voru í æfingu og settu sig strax í stellingar og í sameiningu unnu allir aðilar eins og vel smurð vél. Lagðist misvel í okkar fólk Flestir íbúar tóku þessu með ró, þótt sumir yrðu auðvitað hundfúlir og örfá dæmi komu upp þar sem fjöl- skyldur fóru ekki eftir leiðbeiningum og reglum. Starfsfólk fór að vinna í sóttvarnahólfum og takmarkanir á heimsóknum voru miðaðar við hættu- stig, en ekki neyðarstig. Það þýddi að makar eða nánasti ættingi geta kom- ið daglega og íbúar geta farið út í garð og í bíltúra. Rökin fyrir því að takmarka umferð inn á heimilin voru og eru að draga úr líkum á smiti. Erfiðastar voru veislurnar Fermingar voru loksins haldnar og þá vill hin íslenska stórfjölskylda koma saman og umvefja ferming- arbarnið og ömmur, afar, langömmur og langafar vilja vera með. Í stórum veislum eru miklar líkur á að einhver sé lasinn og því alls ekki hægt að mæla með því að farið yrði í stórar veislur og takmarkanir voru því við 10 eða færri. Með góðu samstarfi við fjölskyldur íbúa var reynt að finna aðrar lausnir, t.d. að fermingarbarnið hitti þann sem telst til viðkvæms hóps og býr á hjúkrunarheimili á undan veislunni eða sérstaklega. Í flestum dæmum leystist þetta. Haustið – breytingar Miklar breytingar eru í þjóðfélag- inu á þessum tíma árs og hjúkrunar- heimilin fara ekki varhluta af því. Núna eru fardagar og þá verða breytingar í starfsmannahópnum. Flottur hópur starfsmanna sem hafa leyst okkar starfsfólk af í sumar er að fara í skólann og einnig eru börn starfsmanna að hefja aftur skóla- göngu. Fjarvera starfsfólks frá vinnu vegna Covid eykst Vegna Covid sjáum við að starfs- fólk er mögulega ekki að skila sér inn eftir sumarfrí eða hefur seinna störf þar sem skólar hófu ekki eðlilegt starf á áætluðum tíma. Margir Ís- lendingar hafa einnig farið í sóttkví og margt starfsfólk er reglulega í verndarsóttkví, á meðan beðið er skimunar og niðurstöðu rannsóknar, til að tryggja að ekki berist smit inn á heimilin/vinnustaðinn til verndar okkar viðkvæma hópi. Þetta ástand hefur í för með sér verulegan kostn- að, bæði launa- og rekstrarkostnað og ekki er í augsýn hvernig verður bættur. Hrós til starfsfólks hjúkrunarheimila Starfsfólk hjúkrunarheimilanna á mikið hrós skilið fyrir hversu faglega tekist er á við COVID-19-veiruna og ber að þakka íbúum og ættingjum sem hafa unnið og vinna vel saman í takt við leiðbeiningar. Gaman er að segja frá því að Belgía hefur óskað eftir þýddum leiðbeiningum um við- brögð hjúkrunarheimila á Íslandi við Covid frá samráðshópi um starfsemi hjúkrunarheimila og dagdvala í CO- VID-19-faraldri hjá sóttvarnalækni. Þar hafa hjúkrunarheimilin gegnt lykilhlutverki í að smíða og deila leið- beiningum í sameiningu. Saman komumst við í gegnum þetta. Hjúkrunarheimilin og seinni COVID-19- bylgjan Eftir Önnu Birnu Jensdóttur og Maríu Fjólu Harðardóttur » Þetta ástand hefur í för með sér veru- legan kostnað, bæði launa- og rekstrar- kostnað og ekki er í aug- sýn hvernig hann verð- ur bættur. María Fjóla Harðardóttir Anna Birna er framkvæmdastjóri Sóltúns. María Fjóla Harðardóttir er forstjóri Hrafnistuheimilanna. Báðar eru í stjórn Samtaka fyrirtækja í vel- ferðarþjónustu og í samstarfshópi um starfsemi hjúkrunarheimila og dag- dvala í COVID-19-faraldri. annabirna@soltun.is maria.hardardottir@hrafnista.is Anna Birna Jensdóttir Hinn stórkostlegi Demantshringur, 250 kílómetra langur hringvegur á Norður- landi, var loks opnaður um síðustu helgi. Íslendingar og ferðamenn sem heim- sótt hafa landið eru vanir hinum Gullna hring en nærri því hvern einasta dag sl. áratug hafa rútur safn- að fólki saman á hótelum í Reykja- vík og ekið sem leið liggur hinn róm- aða Gullna hring; að Gullfossi, Geysi, Þingvöllum, Skálholti, Kerinu og aftur til baka. Þessi víðfarna ferðamannaleið hefur gert ferða- þjónustunni kleift að vaxa og dafna. Það er því mikil innviðabót sem nýr Dettifossvegur og bundið slitlag hefur fært Norðlendingum og norð- lenskri ferðaþjónustu en Norðlend- ingar hafa í áraraðir kallað eftir þessari samgöngubót. Á Demantshringnum eru fimm lykiláfangastaðir; hinn sögufrægi Goðafoss þar sem þjóðsagan segir að Þorgeir Ljósvetningagoði hafi varpað goðalíkneskjum sínum þegar hann sneri heim frá Lögbergi, til staðfestingar á því að hann hefði tekið nýjan kristinn sið; nátt- úruperlan Mývatn, Dettifoss sem er aflmesti foss í Evrópu, nátt- úruundrið Ásbyrgi sem lætur hvern þann snortinn sem þangað kemur, og Húsavík sem er hvalaskoð- unarhöfuðborg landsins en hefur nú hlotið náð fyrir augum heimsins á nýjan og annan skemmtilegri hátt – í gegnum streymisveit- una Netflix. Íslendingar leggja sitt af mörkum Samkvæmt umfjöll- un á ferðavefnum Túr- isti.is stóðu Íslend- ingar undir um sjö af hverjum tíu gistinótt- um á íslenskum gisti- stöðum í júlí. Til sam- anburðar í fyrra var vægi þetta innan við fimmtungur af heildinni. Vissulega skrifast skýringin á heimsfaraldur kórónuveiru, samdrátt í utanlands- ferðum landsmanna vegna veir- unnar og ferðatakmarkanir. En sumarið endurspeglaði jafnframt vilja hjá landsmönnum til að kynn- ast landinu sínu upp á nýtt og ferðast innanlands. Ísland, landið okkar hefur eins og margir hafa kynnst á ferðalögum sínum í sumar, upp á svo margt að bjóða – ótal afþreyingarmöguleika og fallega náttúru. Hér er líka allt til staðar, fjölbreytt gistiþjónusta, nóg af bíla- leigubílum og flugvélar til að komast landshluta á milli á skömmum tíma. En þrátt fyrir mikinn samdrátt í alþjóðafluginu er mikið minni sam- dráttur í innanlandsfluginu, en rétt um fjörutíu þúsund farþegar fóru um innanlandsflugvelli landsins í júlí. Hlutfallega fækkaði farþegum minnst á Egilsstöðum en mest í Reykjavík og á Akureyri og er það vissulega umhugsunarefni. Hátt verðlag í innanlandsflugi er fyrir löngu farið að bitna á lífsgæðum þeirra sem búa úti á landi. Þetta þekkjum við. Það er dýrt að fljúga og íbúar landsins verða að geta sótt sér nauðsynlega miðlæga þjónustu á vegum ríkisins með greiðari sam- göngum. Nauðsynlegt er því að koma til móts við hátt verðlag á inn- anlandsflugi og hef ég lengi, bæði sem þingmaður og formaður starfs- hóps um uppbyggingu flugvallakerf- isins og eflingu innlandsflugsins, tal- að fyrir innleiðingu á skosku leiðinni svokölluðu sem veitir íbúum með lögheimili á ákveðnum lands- svæðum rétt til afsláttar á flugfar- gjöldum. Skoska leiðin tekur flugið Hin skoska leið felur í sér heimild fyrir ríkissjóð til að niðurgreiða far- gjöld íbúa og nemenda af lands- byggðinni til að jafna aðgengi þeirra að þjónustu sem ekki er í boði í heimabyggð. Niðurgreiðslan sam- kvæmt skosku leiðinni nær aðeins til einstaklinga sem búa á viðkom- andi svæði, ekki til fyrirtækja eða einstaklinga sem vilja sækja svæðið heim sem ferðamenn. Samkvæmt nýrri flugstefnu fyrir Ísland er niðurgreiðsla á flugi íbúa á landsbyggðinni til höfuðborgarinnar orðin að veruleika og hóf skoska leiðin formlega göngu sína í þessari viku en síðustu mánuði þessa árs munu íbúar landsbyggðarinnar, sem búa í meira en 275 kílómetra fjar- lægð frá höfuðborginni, fá end- urgreiddan hluta fargjalds af ferð til og frá Reykjavík eða af tveimur flugleggjum á þessu ári en af sex flugleggjum á því næsta. Verkefnið er hluti af stjórnarsáttmála rík- isstjórnarinnar um að gera innan- landsflugið að hagkvæmari kosti fyrir íbúa landsbyggðanna og að áfram þurfi að byggja upp almenningssamgöngur um land allt. Flug til Eyja hefur hingað til verið rekið á markaðsforsendum og fór Flugfélagið Ernir sína síðustu áætl- unarferð, í bili að minnsta kosti, til Vestmannaeyja þann 4. september sl. Nú gæti hins vegar orðið breyt- ing á þegar niðurgreiðslur ríkisins í innanlandsflugi komast í gagnið en 200 milljónir króna eru eyrnamerkt- ar í verkefnið á þessu ári og um 600 milljónir króna eru áætlaðar á því næsta. Meginmarkmiðið er ljóst Meginmarkmiðið er ljóst að mínu mati, þ.e. að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Ís- land er og verður í fararbroddi með lausnir fyrir nútímainnviði, verð- mætasköpun, jöfn lífsgæði og bætt lífskjör landsmanna. Þessu megum við ekki gleyma þrátt fyrir að efna- hagur okkar og atvinnulíf standi frammi fyrir erfiðum tímum, því verður að hafa hugfast að þeir eru tímabundnir, ekki varanlegir. Demantshringurinn og skoska leiðin Eftir Njál Trausta Friðbertsson »Meginmarkmiðið er ljóst að jafna tæki- færi allra landsmanna til atvinnu og þjónustu Njáll Trausti Friðbertsson Höfundur er þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Norðausturkjördæmi og nefndarmaður í atvinnuveganefnd og fjárlaganefnd Alþingis. ntf@althingi.is Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsend- ar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfs- fólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.