Morgunblaðið - 10.09.2020, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2020
Á K100.is má nálgast fjölbreyttar
og skemmtilegar fréttir sem hækka
í gleðinni. Vefsíðan er í stöðugri
sókn og nýverið bættist Aníta Est-
íva Harðardóttir í hóp starfsmanna
stöðvarinnar.
Hún leysir Rósu Margréti
Tryggvadóttur, sem farin er í
barnsburðarleyfi, af hólmi og miðl-
ar áhugaverðum viðtölum og frétt-
um á K100.is. Aníta hefur starfað
við fjölmiðla um árabil og sá hún
meðal annars um umsjón vefjarins
Bleikt.is.
„K100.is hefur verið í stórsókn
undanfarið enda ekki annað að sjá
en að mikil spurn sé eftir jákvæð-
um og skemmtilegum fréttum um
þessar mundir,“ segir Auðun Georg
Ólafsson, fréttastjóri K100.
„Aníta Estíva hefur mikla
reynslu og er mikill fengur í okkar
öfluga hóp. Upptökur úr dagskrá
stöðvarinnar eru alltaf aðgengilegar
á K100.is þar sem dagskráin er
reyndar send út í beinu streymi á
netinu og í Sjónvarpi Símans. Á
vefnum má einnig finna áhugaverð-
ar fréttir úr mannlífinu eða
skemmtileg brot úr viðtölum úr
morgun- og síðdegisþáttum stöðv-
arinnar.“
„Ég er virkilega ánægð að ganga
til liðs við jafn hressan, skemmti-
legan og öflugan hóp starfsfólks og
er hér á K100. Það verður gaman
að takast á við nýjar og spennandi
áskoranir og ekkert nema aukin
gleði og hamingja fram undan,“
segir Aníta Estíva, blaðamaður á
K100.is.
Vefur í sókn – Aníta Estíva
nýr liðsmaður á K100.is
Á K100.is má nálgast fjölbreyttar og skemmtilegar
fréttir sem hækka í gleðinni. Vefsíðan er í stöðugri
sókn og nýverið bættist Aníta Estíva Harðardóttir
í hóp starfsmanna stöðvarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Aníta Estíva Hún mun miðla
áhugaverðum viðtölum og frétt-
um til lesenda miðilsins.
Samfélagsmiðlastjarnan og
skemmtikrafturinn Eva Ruza geng-
ur til liðs við K100 og mun halda úti
daglegum pistlum um það sem er að
frétta af fræga fólkinu.
Hún hefur einstakan áhuga á
þeim ríku, frægu, fínu og fallegu og
heldur úti fréttasíðu á evaruza.is. Nú
munu hlustendur K100 fá allt slúðrið
beint í æð frá Evu en einnig munu
birtast pistlar frá henni á vefnum
K100.is.
„Eva er algjörlega fædd fyrir út-
varp, með svo mikla útgeislun og
sjálfsöryggi sem eru kostir sem fjöl-
miðlafólk þarf að hafa.
Hún hefur verið að leysa af í síð-
degisþættinum á K100 og staðið sig
einstaklega vel þar svo þegar tæki-
færið kom til þess að ráða hana inn í
fast verkefni var ég ekki lengi að
stökkva á það.
Okkar einkennisorð eru að hækka
í gleðinni og það gerum við svo sann-
arlega með því að fá Evu til liðs við
okkur,“ segir Sigurður Þorri Gunn-
arsson, dagskrár- og tónlistarstjóri
K100.
„Hollywood hefur átt hjarta mitt
síðan ég var unglingur og mætti í
raun segja að ég sé talskona hinna
ríku og frægu frá Hollywood. Kem
því í loftið sem skiptir máli.
Það er kominn tími á að þessar
virðulegu fréttir heyrist á K100 dag-
lega. Það hafa allir gott af því að
gleyma amstri dagsins og fá dass af
Hollywood beint í æð. Ég segi bara
fulla ferð áfram beint til Holly!“ seg-
ir Eva Ruza.
Stjörnufréttir Evu
Ruzu eru komnar
í loftið á K100
Samfélagsmiðlastjarnan og skemmtikrafturinn Eva Ruza
gengur til liðs við K100 og mun halda úti daglegum
pistlum um það sem er að frétta af fræga fólkinu.
Ljósmynd: Morgunblaðið
Eva Ruza Segist hafa einstakan áhuga á þeim ríku, frægu, fínu og fallegu.
Kardashian/Jenner-fjölskyldan hefur ákveðið að loka
dyrunum að lífi sínu og hætta tökum á raunveru-
leikaþáttunum Keeping up with the Kardashians.
Eftir 14 ár, 20 þáttaraðir, hundruð þátta og fjöldann
allan af spin off-þáttum er komið að leiðarlokum.
Raunveruleikaþættirnir hafa gert Kardashian/
Jenner-mæðgurnar að því sem þær eru í dag og skapað
veldi sem þær hafa byggt í kringum sig síðasta áratug-
inn. Þær velta mörgum milljörðum, og tvær af þeim billj-
ónum á ári hverju.
Þetta er gríðarlegur skellur fyrir aðdáendur þeirra
um allan heim. evaruza@evaruza.is
Kardashian-fjölskyldan skellir í lás
Kardashian/Jenner-fjölskyldan hefur
ákveðið að loka dyrunum að lífi sínu og
hætta tökum á raunveruleikaþáttunum
Keeping up with the Kardashians.
14 ár í loftinu Raunveruleikaþættirnir hafa gert Kar-
dashian/Jenner-mæðgurnar að því sem þær eru í dag.
Eva Ruza færir okkur stjörnufréttir:
Mikil umræða hefur skapast á sam-
félagsmiðlum undanfarna daga
vegna óhuggulegs myndbands sem
birst hefur á samfélagsmiðlinum
TikTok. Umrætt myndband er af
Ronnie McNutt sem framdi sjálfsvíg
í lok ágúst á þessu ári í beinni út-
sendingu á Facebook live.
Ormur Guðjónsson er einn af
þeim sem rákust á myndbandið og í
samtali við K00.is segist hann hafa
verið gráti næst og mælir hann ein-
dregið með því að foreldrar fylgist
vel með notkun barnanna sinna á
þessum vinsæla miðli.
„Ég var bara að skrolla og svo allt
í einu kemur þetta myndband, það
var minna en sekúnda áður en hann
tók í gikkinn þannig að ég skildi ekki
strax hvað var í gangi,“ sagði Orm-
ur.
Myndbandið hefur þegar birst á
fleiri miðlum svo sem YouTube,
Facebook og Instagram og þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir miðlanna til
þess að eyða myndböndunum virðist
það ganga illa.
Það er því mikilvægt fyrir for-
eldra að hafa augun vel opin þessa
dagana til þess að reyna að koma í
veg fyrir að börnin horfi á þetta efni.
anita@k100.is
Mikilvægt að foreldrar
fylgist með skjánotk-
un barnanna sinna
Mikil umræða hefur
skapast á samfélags-
miðlum undanfarna
daga vegna óhuggulegs
myndbands sem birst
hefur á samfélagsmiðl-
inum TikTok.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Netið Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
miðlanna til þess að eyða mynd-
böndunum virðist það ganga illa
Vara við óhuggulegu myndbandi á samfélagsmiðlum
R
GUNA
GÓÐAR
I