Morgunblaðið - 17.10.2020, Page 27

Morgunblaðið - 17.10.2020, Page 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020 Stefnan í málefnum hælisleit- enda hér á landi einkennist af örri fjölgun hælisleitenda og samsvarandi aukningu útgjalda hins opinbera til málaflokksins. Stjórnsýslan ræður ekki við verkefnið. Útgjöldin fara síhækk- andi og er þó stór hluti þeirra ógagnsær í meira lagi. Þessi málefni ber hátt meðal nágranna okkar á Norðurlöndum. Við hljótum að fylgjast með þróun- inni þar og læra af reynslu þeirra. Krafa um aðlögun að samfélaginu Forsætisráðherra Dana, Mette Fredriksen, formaður sósíaldemókrataflokksins, systur- flokks Samfylkingar, sagði á síðasta þingdegi fyrir sumarleyfi, 22. júní sl., að ekki ætti að taka við fleiri flóttamönnum en unnt væri að aðlaga þjóðfélaginu. Hún bætti við að gera skyldi kröfur til þeirra sem kæmu til Dan- merkur, enda fylgdust að réttindi og skyldur. Hún sagði við þetta tækifæri að hvort sem fólk ætti rætur í Danmörku eða utan hennar væri það jafnrétti karla og kvenna, stuðn- ingur við lýðræðisleg gildi og danskt sam- félag, sem byndi fólk saman þar í landi. Þessi gildi eiga við á Íslandi. Þá kröfu verður að gera til þeirra sem veitt er al- þjóðleg vernd hér á landi að þeir styðji þessi sjónarmið í orði og verki. Mistök fortíðar Í stefnuræðu sinni við setningu danska þjóðþingsins 6. október sl. kom forsætisráð- herrann víða við. Ummæli hennar um mál- efni hælisleitenda hljóta að vekja mikla at- hygli hér á landi. Hún sagði útlendingastefnu fortíðar mis- tök. Ríkisstjórnin myndi halda áfram strangri stefnu, en meira þyrfti að koma til. Evrópska hælisleitendakerfið væri í raun hrunið. Verum hreinskilin, sagði hún, mögu- leikinn á hæli er oft kominn undir því að flóttamaður greiði fólkssmyglara og vilji hætta lífinu í yfirfylltum gúmmíbát. Miðjarð- arhafið er orðið kirkjugarður. Enn fremur sagði danski forsætisráð- herrann: Enginn flýr að gamni sínu. Eins og komið er bregðumst við bæði þeim sem flýja með milligöngu smyglara og þeim sem eftir sitja og hafa mesta þörf fyrir hjálp. Aðstoð Dana hljóti að beinast að því fólki. Við viljum meðhöndla hælisumsóknir utan Danmerkur – í þriðju löndum, sem veitt geta öryggi þeim sem þurfa á vernd að halda. Hún bætti við, að frá sínum bæjardyrum væri þetta eina raunhæfa framtíð- arlausnin. Forsætisráðherra lauk þess- um kafla ræðu sinnar með því að segja: Látum verkin tala. Ríkisstjórnin mun á hinu nýja þingi leggja fram laga- frumvarp, sem geri kleift að flytja hælisleitendur til landa utan Evrópu og búa Danmörku undir nýtt hælisleitendakerfi. Þetta er er verkefni sem ég vona að við getum sameinast um, sagði forsætisráðherra. Umræðan hér í ólíkum farvegi Ræða danska forsætisráðherrans ber því glöggt vitni í hvílíkar ógöngur Danir hafa ratað í málefnum hælisleitenda. Umræður hér á landi falla í ólíkan farveg og er stýrt af aðilum, sem virðast leggja í vana sinn að kasta misjöfnum orðum að fólki, sem ekki er sama sinnis. Hvaða orð verða danska forsætisráð- herranum valin fyrir skoðanir sínar? Hvað segja skoðanasystkin hennar á vinstri væng íslenskra stjórnmála? Hvað segja þeir hinir sömu um ummæli sænska forsætisráðherrans Stefáns Löfvéns fyrr á þessu ári um að aukna glæpatíðni í Svíþjóð mætti rekja til mistaka hinnar pólitísku stefnu í útlendinga- málum? Hinn íslenski systurflokkur sósíaldemó- krata virðist hafa glatað tengslum við upp- runa sinn. Hann skilur ekki eins og gömlu kratarnir að velferðarkerfið brotnar niður, ef það er ekki reist á borgaralegum gildum. Sjálfstæðisflokkurinn beygir sig undir stefnu samstarfsflokka í málefnum hælisleitenda, í stað þess að tryggja örugg landamæri með markvissri löggæslu. Við verðum að hlusta og læra af reynslu nágrannaþjóða og afstýra miklum fyrirsjáan- legum vanda. Eftir Ólaf Ísleifsson » Við verðum að hlusta og læra af reynslu nágranna- þjóða og afstýra miklum fyrirsjáanlegum vanda. Ólafur Ísleifsson Höfundur er þingmaður Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hlustum og lærum Það er sláandi alvarleg staða á vinnumarkaði á Suðurnesjum og atvinnuleysið að fara yfir öll mörk. Þessi staða er fyrst og fremst verkefni til að takast á við og verður leyst með sam- eiginlegu átaki. En erum við að gera allt sem þarf til þess að skapa hér ný störf? Atvinnulíf verður ekki til með einni hend- ingu og það þarf að skapa að- stæður og tryggja sterka inn- viði til þess að hingað komi atvinnutækifæri sem skapa fleiri fjölbreytt og vel launuð störf. Hvernig hafa opinberir aðilar á Suð- urnesjum tekið þeirri hugmynd að sam- starfsaðilar okkar í varnarsambandi vest- rænna ríkja, NATO, ýti á framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli og Helguvík sem frek- ast má vera til að mæta þeirri stöðu sem er hér á vinnumarkaði? Það ætti að vera hag- ur allra að framkvæmdir sem þegar eru í sjónmáli komi til framkvæmda nú þegar í þeirri ógnarstöðu sem er á vinnumarkaði á Suðurnesjum. Við gerum líka kröfu til ríkisvaldsins um aðkomu að uppbyggingu hafnargarðs og hafnaraðstöðu í Njarðvíkurhöfn, sem er forsenda uppbyggingar skipaþjónustuklasa sem er í burðarliðnum. Í heild er fram- kvæmdakostnaður við garðinn og hafn- araðstöðuna um 1,2 milljarðar króna og gæti skapað hér á bilinu 230 störf. Ríkið á að koma myndarlega að þeirri uppbyggingu og tryggja með því ný störf og mikil umsvif. Leitað er leiða til að finna nýjan við- legustað fyrir varðskipin og horft til Njarð- víkurhafnar í því sambandi. Góð lausn fyrir alla. Meðan óveðursskýin hrannast upp í at- vinnulífinu berast góðar fréttir um að Sam- herji hugi að fiskeldi í húsum Norðuráls í Helguvík. Ekki liggur fyrir hvaða stærð af eldi eða fjöldi starfa fylgja þessum góðu tíðindum. Ef að líkum lætur er hér á ferð- inni stórhuga hugmynd með stórfelldu landeldi sem kallar á fjölda starfa. Nálægð við alþjóðaflugvöllinn í Keflavík, öryggi í afhendingu og nálægð við góð- ar samgöngur er hluti af gæð- um fyrirtækis sem flytur ferska vöru á erlendan markað víða um heim. Fiskeldis- fyrirtæki í fremstu röð er frá- bær viðbót við hugmynd um Flugvallarborg sem KADECO vinnur að í samstarfi við sveit- arfélögin. Kraftmikið eldi í Helguvík er orkufrek matvælaframleiðsla sem kallar á öryggi í raf- orkuflutningum og næga orku. Nú er ég að geta mér til en líklegt er að fyr- ir hvert megavatt af orku væri hægt að framleiða 1.000 tonn af eldisfiski. Dælu- kostnaður fer eftir því hvort um ræðir gegnumstreymiseldi eða að fyrirtækið end- urnýti vatn og sjó og hreinsi í gegnum líf- hreinsa, sem er lífræn hreinsun og klárlega hluti af nútímalegri ábyrgri matvælafram- leiðslu sem fyrirtæki eins og Samherji vill örugglega standa fyrir. Suðurnesin verða að standast álagskröfur sem tryggja hingað framsækið atvinnulíf með sterkum inn- viðum. Á Suðurnesjum eru góðar samgöngur í allar áttir, nægt landrými, nóg af hreinu vatni og sjó, öflugt atvinnulíf og þjón- ustuaðilar, nóg af vinnufúsum höndum sem vilja fjölbreyttara atvinnulíf. Ný og áður óþekkt stærð á landeldi gæti verið að ræt- ast í Helguvík. Tökum tækifærunum opnum örmum en þá verðum við líka að láta af hreppapólitík um Suðurnesjalínu 2, sem er ein forsenda nýsköpunar og nýrra tækifæra í fjölbreyttara atvinnulífi á Suðurnesjum. Það verður ekki bæði sleppt og haldið. Eftir Ásmund Friðriksson »Meðan óveðursskýin hrann- ast upp í atvinnulífinu ber- ast góðar fréttir um að Sam- herji hugi að fiskeldi í húsum Norðuráls í Helguvík. Ásmundur Friðriksson Höfundur er alþingismaður. asmundurf@althingi.is Sterkir innviðir for- senda atvinnuuppbygg- ingar á Suðurnesjum Þessa dagana er þjóð- in eðlilega upptekin af veirunni sem öllu ræð- ur. Reglulega birtast fyrirmæli eða tilmæli yf- irvalda um háttsemi fólks. Þá er frekar rugl- ingslegt að ætla að átta sig á því hvaða fyr- irmælum yfirvöldin telja mönnum skylt að fylgja og hver séu tilmæli sem menn ráða sjálfir hvort þeir fylgi. Núna síðast var golf- völlum lokað, þó að menn geti stundað golf- ið með svipuðum teng- ingum við annað fólk og gildir í gönguferðum. Þá virðist stefna í að Ís- landsmótinu í knattspyrnu verði lokið án fleiri kappleikja en þeirra sem þeg- ar hafa farið fram. Þetta gerist þó að ekki sé vitað annað en að knatt- spyrnuvellirnir séu flestir í ágætu ástandi og unnt sé að leika á þeim án áhorfenda. Til dæmis varð ekki betur séð en landsleikur í knattspyrnu sem fram fór á Laugardalsvelli fyrir fáum dögum tækist bara vel. Á ferðinni eru ríkir hagsmunir margra knattspyrnu- félaga, sem ýmist eiga von um að kom- ast á milli deilda eða jafnvel til að öðl- ast rétt til þátttöku í alþjóðlegum keppnum, þar sem háar tekjur eru í húfi. Fleiri dæmi mætti nefna af svipuðum toga. Ástæða er til að vekja athygli manna á að yf- irvöld í landinu hafa afar takmarkaðar heimildir til að stjórna háttsemi manna í veirufárinu með valdboði. Í sóttvarnar- lögum er ekki að finna víðtækar heimildir til slíks. Reyndar er í ýms- um tilvikum vafasamt að stjórnvöld gætu skert stjórnarskrárvarin rétt- indi manna með bind- andi fyrirmælum til al- mennings, þó að styddust við sett lög. Til slíkra fyrirmæla þarf heimildir í stjórn- arskránni sjálfri. Það er auðvitað sjálf- sagt að yfirvöld heil- brigðismála beini tilmælum til borg- aranna um æskilega hegðun þeirra við þessar aðstæður. Það er líka sjálfsagt fyrir almenning að fara að þessum til- mælum í flestum tilvikum, því að öll viljum við takmarka úrbreiðslu þessa vágests sem veiran er. Við ættum samt að hafa í huga að ábyrgðin er okkar sjálfra. Ef til dæmis stjórn- arráðið gæfi mér fyrirmæli um að halda mig í tveggja metra fjarlægð frá eiginkonunni myndi ég ekki hlíta því. Skítt með veiruna. Fyrirmæli eða tilmæli Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson Jón Steinar Gunnlaugsson » Við ættum samt að hafa í huga að ábyrgðin er okkar sjálfra. Höfundur er lögmaður. Heimsbyggðin hef- ur ekki tekist á við sambærilegan far- aldur og kór- ónuveirufaraldurinn í heila öld. Viðbrögð til þess að hefta út- breiðslu faraldursins eiga sér ekki sam- svörun og efnahags- legar afleiðingar eru taldar verða meiri en sést hafa frá krepp- unni miklu sem hófst árið 1929. Faraldurinn hefur mismunandi áhrif á þjóðfélagshópa og ljóst er að menning og listir munu koma sérstaklega illa undan þessum óvissutímum. Samkomubönn og takmarkanir setja þessum grein- um miklar skorður og því eru tekjumöguleikar nær engir. Samkvæmt gögnum Bandalags háskólamanna frá því í júlí hefur atvinnuleysi aukist mikið innan aðildarfélaga bandalagsins í list- og menningargreinum. Sé horft til hlutfalls bótaþega af heild- arfjölda félagsmanna má sjá að umsóknir hafa áttfaldast innan Félags íslenskra hljómlist- armanna, þrefaldast innan Félags íslenskra leikstjóra og ferfaldast í Leikarafélagi Íslands. Þá sýna gögn BHM og Vinnu- málastofnunar að fjöldi atvinnulausra einstaklinga með list- menntun á há- skólastigi hafi aukist um 164% milli ára, og sé því um 30% meira en á atvinnu- markaðnum í heild. Niðurstöður úr könnuninni benda til þess að einungis einn af hverjum fjórum hafi fengið úrræði sinna mála þrátt fyr- ir mikinn tekjusamdrátt. Ástæður þessa eru margvíslegar, en helst má nefna miklar tekjusveiflur hópsins í hefðbundnu árferði og hindranir sem hópurinn hefur mætt sökum samsetts rekstr- arforms. Stærstur hluti menningar- og listgreina á Íslandi samanstendur af minni fyrirtækjum og sjálf- stætt starfandi listamönnum. Því þurfti að finna leiðir til að mæta þessum hópi. Ákveðið var að fara í tíu aðgerðir, sem eru bæði um- fangsmiklar og fjölþættar. Það sem vegur þyngst í þeim aðgerð- um eru tekjufallsstyrkir sem ein- yrkjar og smærri rekstraraðilar munu geta sótt um. Ráðgert er að heildarfjármunir sem varið verð- ur til almenns tekjufallsstuðnings stjórnvalda geti numið rúmum 14 milljörðum kr. Aðgerðirnar tíu sem voru kynntar í gær eru afrakstur vinnu samráðshóps sem settur var á laggirnar í ágúst. Ég vil þakka BHM, Bandalagi íslenskra listamanna, ÚTÓN, félagsmála- ráðuneytinu og Vinnumálastofnun fyrir þeirra framlag. Öflugt menningarlíf hefur ein- kennt íslenska þjóð frá upphafi. Við erum söngva-, sagna- og bókaþjóð. Listsköpun Íslendinga hefur ítrekað vakið athygli á al- þjóðlegum vettvangi. Ég tel að við getum öll verið stolt af að- gerðum okkar í þágu menningar og lista, enda vitum við að efna- hagsleg og félagsleg áhrif af löm- uðu menningarlífi mun kosta samfélagið margfalt meira, til framtíðar litið. Verðmæti menningar og lista er mikið Eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur »Heildarfjármunir sem varið verður til almenns tekjufalls- stuðnings stjórnvalda geta numið rúmum 14 milljörðum kr. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningar- málaráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.