Morgunblaðið - 17.10.2020, Qupperneq 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
✝ Erlendur Guð-laugur Ey-
steinsson, fyrrver-
andi bóndi á Stóru--
Giljá, fæddist 10.
janúar 1932 á
Beinakeldu, Aust-
ur-Húnavatnssýslu.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Norðurlands
Blönduósi 1. októ-
ber 2020.
Foreldrar hans voru hjónin
Guðríður Guðlaugsdóttir, f.
1895, d. 1989, og Eysteinn Er-
lendsson, f. 1889, d. 1968. Systir
Erlendar er Ingibjörg, f. 1927.
Eftirlifandi eiginkona Erlend-
ar er Helga Búadóttir, fv. hús-
freyja á Stóru-Giljá, f. 16.5. 1938.
Börn þeirra eru: 1) Árdís Guð-
ríður, f. 1958. Börn hennar eru
Guðrún Elsa Giljan, Helga og
Sólveig Harpa. 2) Ástríður
Helga, f. 1959. Börn hennar eru
Erla, Erlendur Guðlaugur og
Gígja. 3) Eysteinn Búi, f. 1962,
kvæntur Bahrotut Takiyah, f.
1974. Börn hans eru Hulda Dóra,
Helga Þóra, Haukur Ingi, Brian
Eysteinn, Brady Eysteinn, Al-
fera Eysteinn og Alfero Ey-
steinn. 4) Sigurður, f. 1966,
kvæntur Þóru Sverrisdóttur, f.
1970. Börn þeirra eru Sigurveig,
Jóhannes, Sverrir Helgi og Eydís
Eva.
Erlendur ólst upp hjá for-
eldrum sínum á Beinakeldu.
Hann gekk í barnaskóla í fjóra
ustu sextán árin, sat í héraðs-
nefnd Austur-Húnavatnssýslu í
tólf ár, var oddviti hennar og
héraðsráðs síðustu fjögur árin.
Erlendur var virkur félagi í
Lionsklúbbi Blönduóss, var ritari
hans og síðar formaður, tilnefnd-
ur svæðisstjóri Lions svæði 5 109
B, var þar varaumdæmisstjóri og
síðan umdæmisstjóri og var kos-
inn fjölumdæmisstjóri Lions 109
á Íslandi 1991-92. Erlendur var
formaður fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Austur-Húnavatns-
sýslu um langt árabil, sat í mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins í
nokkur ár, var formaður Jör-
undar, félags ungra sjálfstæð-
ismanna, og Varðar, félags sjálf-
stæðismanna í Austur-Húna-
vatnssýslu, auk þess að sinna
ýmsum öðrum trúnaðarstörfum
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í héraði
og á landsvísu. Erlendur sat í
sóknarnefnd Þingeyrasóknar í
fjörutíu og níu ár, samhliða því
að gegna starfi gjaldkera í fjöru-
tíu ár og formennsku nefnd-
arinnar í 27 ár var hann með-
hjálpari í Þingeyrakirkju í 49 ár.
Erlendur hafði forystu með að
reisa þjónustuhúsið Klaust-
urstofu sem vígt var árið 2006 og
stendur við Þingeyraklaust-
urskirkju og gegnir hlutverki
tengdu kirkjunni.
Útförin fer fram frá Þing-
eyraklausturskirkju í dag, 17.
október 2020, klukkan 14.
Bein vefútsending er frá fa-
cebooksíðunni: Útför Erlendar
G. Eysteinssonar
https://tinyurl.com/y25guptt
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Útvarpað verður frá athöfn
við kirkju, bylgjulengd 106,5.
vetur, var einn vet-
ur í yngri deild
Hólaskóla, einnig
stundaði hann nám
við Bréfaskóla SÍS.
Erlendur vann sem
ungur maður á búi
foreldra sinna allt
til ársins 1955 þeg-
ar hann hóf störf
sem vinnumaður
hjá föðurbræðrum
sínum, Sigurði og
Jóhannesi, á Stóru-Giljá. Árið
1957 fluttist Erlendur aftur að
Beinakeldu og hóf þar búskap á
hálfri jörðinni ásamt eiginkonu
sinni, bjuggu þau þar til ársins
1972. Þá keyptu þau jörðina
Stóru-Giljá þar sem þau bjuggu
allt til ársins 2008 þegar þau
fluttu í hús sitt á Blönduósi.
Erlendur tók virkan þátt í
stjórnmála- og félagsstarfi.
Hann var einn af stofnendum
ungmennafélagsins Húna í
Torfalækjarhreppi, sat í stjórn
og var formaður þess um skeið.
Var formaður skólanefndar
Húnavallaskóla frá 1972-1982,
sat í stjórn Byggðasamlags
Húnavallaskóla, sat í stjórn
Sauðfjárræktarfélags Sveins-
staðahrepps um langt árabil, var
í stjórn Hrossaræktarsambands
Austur-Húnavatnssýslu, í stjórn
Veiðifélags Vatnsdalsár og for-
maður Búnaðarfélags Torfa-
lækjarhrepps. Erlendur var
hreppsnefndarmaður í rúm
fjörutíu og sex ár og oddviti síð-
Það er með söknuði sem mað-
ur kveður í hinsta sinn. Söknuður
að geta ekki heyrt röddina, að
geta ekki spurt eða sagt frá því
sem verið er að gera. Svo eru það
minningarnar sem maður á;
minning frá því maður var lítill
gutti að fylgjast með þér, og
ánægjan að hafa átt svo langan
tíma saman þar til leiðir skildi.
Allt í einu er til fjöldi minninga
um það sem þú varst að brasa í.
Byggja upp og sjá um stórt sauð-
fjárbú, vera í félagsmálum af
ýmsum toga. Ferðalög innan-
lands sem erlendis og heyra sög-
ur af þeim þegar heim var komið.
Og allar sögurnar sem þú hafð-
ir svo gaman af að segja, Frá-
sagnir sem var svo gaman að
hlusta á og komið hafa upp í hug-
ann eftir að þú kvaddir, minning-
in er eins og fræ sem vex og dafn-
ar.
Þær samverustundir sem þið
mamma áttuð með okkur Þóru og
krökkum eru svo ánægjulegar og
þakkarverðar er litið er um öxl.
Það eru einmitt minningarnar,
sögurnar og ferðalagið með þér
sem maður hefur í farteskinu
sem eru svo dýrmæt.
Takk fyrir mig pabbi.
Sigurður Erlendsson.
Fallinn er frá nágranni okkar
og heimilisvinur Erlendur á Giljá
(Elli). Elli hefur alltaf verið til í
lífi okkar systkinanna á Akri
enda voru þau hjón nánustu vinir
foreldra okkar. Faðir okkar og
Elli ólust upp hvor á sínum bæn-
um. Þegar þeir fullorðnuðust,
tóku við búum foreldra sinna, að-
stoðuðu þeir alltaf hvor annan í
fjárragi og bar þar aldrei á milli.
Þeir voru mjög vel inni í ræktun á
fé hvor annars, voru oft miklar og
heitar umræður um kindurnar,
smalamennskur og ævintýri
þessu tengt. Helgurnar þeirra
voru einnig nánar vinkonur alla
tíð en nú er hún Helga okkar á
Giljá ein eftir af þessu heiðurs-
fólki. Elli var hamhleypa til
vinnu, hugmyndaríkur, sá aldrei
vandamál í hugmyndum sínum,
alltaf lausnir, og sjaldan voru
hugmyndirnar smáar enda var
hann kjarkmaður mikill. Hann
var mikið snyrtimenni og ein-
hverju sinni þegar þetta kom til
tals sagðist hann oft leggja á sig
marga króka til að ganga frá
verkfærum til að geta gengið að
þeim að morgni. Við vitum að það
var rétt.
Mesta afrek hans í búskap
hans var án efa bygging hans á
fjárhúsum sem þá voru stærstu
fjárhús landsins, þvert á móti öll-
um reglum og leyfum frá Teikni-
stofu landbúnaðarins. Þeir höfðu
bara aldrei heyrt um svona stór
fjárhús og sögðust ekki lána fyrir
þeim. Hann ákvað samt að
byggja og leitaði annarra leiða,
sem vegna trausts sem hann naut
gengu eftir. Þegar fjárhúsin voru
fullbyggð leitaði teiknistofan eft-
ir að fá teikningarnar (sem voru
riss á blaði) og hafði hann gaman
af því að gefa þeim þær. Þau hjón
voru samhent og hugmyndarík í
búskapartíð sinni, t.d. ráku þau
sjoppu, sumarbústaði og hesta-
leigu langt á undan sinni samtíð
svo eitthvað sé nefnt.
Elli var glaðsinna og hljómar
hlátur hans í eyrum okkar þegar
hans er minnst með hlýju í
hjarta. Hann var alltaf til staðar
og reyndist Jóhönnu og Gunnari
óskaplega vel þegar þau tóku við
búi á Akri. Þar bilaði hann aldrei
frekar en fyrr.
Elli var mikill félagsmálamað-
ur og starfaði lengi í hrepps-
nefnd, lengst af sem oddviti. Jó-
hanna sat lengi í hreppsnefnd
með honum og minnist þess
hversu vel undirbúinn hann
ávallt var, fljótur að setja sig inn í
málefnin, kunni lagabálka og
reglugerðir utan að, opinn fyrir
skoðunum annarra í hrepps-
nefndinni en fylginn sér þegar á
þurfti að halda. Elli starfaði af
miklum áhuga í Lionshreyfing-
unni og komst til æðstu metorða
þar þegar hann varð fjölumdæm-
isstjóri Lions á Íslandi. Þá fóru
þau hjón m.a. til Ástralíu og varð
sú ferð honum oft umtalsefni.
Elli þurfti ekki vín né annað til
að halda kætinni og á tímabili átti
hann það til að standa á haus ef
honum fannst samkvæmið ekki
nógu líflegt. Það var alltaf gaman
að vera með Ella og Helgu enda
einstaklega lífsglöð, hlý og trygg
hjón.
Elsku Helga mín, börnin þín
og fjölskyldur, okkar innilegustu
samúðarkveðjur sendum við
systkinin fyrir hönd okkar fjöl-
skyldna til ykkar með innilegri
þökk fyrir tryggðina og traust
nábýli. Við minnumst höfðingj-
ans með hlýju.
Jón, Jóhanna, Nína Margrét
og fjölskyldur.
Elskulegur tengdafaðir minn
er nú fallinn frá eftir langa og
góða ævi. Þegar ég kom fyrst inn
á heimili tengdaforeldra minna
árið 1987, 17 ára gömul, fannst
mér húsið á Giljá svo stórt að mér
leið eins og ég væri komin inn á
gistihús. Margt var nýtt fyrir
mér þar sem ég hafði aldrei verið
í sveit sem barn en Elli og Helga
tóku mér vel frá fyrsta degi. Á
þessum tíma ráku tengdaforeldr-
ar mínir Esso-bensínsjoppu upp
við þjóðveginn og Ferðaþjónustu
bænda í kjallaranum ásamt því
að reka stórt fjárbú og Helga
starfaði við kennslu í Húnavalla-
skóla. Þau hjónin voru samhent
og alla tíð höfðingjar heim að
sækja. Árið 1991 hófum við Sig-
urður búskap á Stóru-Giljá en
fram að þeim tíma hafði Sigurður
alla tíð unnið að búi foreldra
sinna.
Tengdafaðir minn var farsæll
maður sem bjó yfir miklum
mannkostum og langar mig að
minnast hans með nokkrum orð-
um. Elli var atorkusamur, fram-
sýnn, ósérhlífinn, viljasterkur,
kátur, traustur, hreinskiptinn,
réttsýnn og góður við bæði menn
og dýr. Hann var hlýr og góður
félagi og hafði gaman af að segja
sögur sem oftar en ekki skemmtu
þeim sem á hlustuðu. Elli var
góður afi og reyndist börnunum
okkar Sigurðar afar vel, kenndi
þeim margt og var þeim ávallt
góður. Allt sem Elli tók að sér
leysti hann af mikilli trúmennsku
og samviskusemi svo sem á sviði
félagsmála, stjórnmála og kirkju-
mála. Elli var heimakær og mikið
náttúrubarn og undi sér hvergi
betur en heima í sveitinni við bú-
störfin og að sýsla við skepnurn-
ar. Eftir að hann og Helga
tengdamóðir mín fluttu til
Blönduóss árið 2008 gerðist hann
umboðsmaður Morgunblaðsins
og dreifðu þau hjónin blöðum til
íbúa bæjarins um langt árabil.
Einnig ráku þau Ferðaþjónustu
bænda í sumarhúsum sínum á
Stóru-Giljá eins lengi og heilsan
leyfði. Ósjaldan færði Elli okkur
höldupoka fullan af krækiberjum
síðsumars sem var vel þegið.
Jafnframt var Elli alltaf boðinn
og búinn að koma í sveitina til að
hjálpa til við búskapinn hjá okkur
á meðan hann hafði heilsu til. Þar
var hugur hans fram á síðustu
stundu enda gladdist hann alltaf
þegar við færðum honum fréttir
úr sveitinni. Það var mér mikils
virði að geta sem sjúkraliði á
HSN hlúð að Ella síðustu vikurn-
ar sem hann lifði. Einnig erum
við fjölskyldan afar þakklát fyrir
að hafa getað kvatt hann og verið
hjá honum síðustu stundirnar á
þessum óvenjulegu tímum.
Hér koma hinstu kveðjuorð frá
okkur fjölskyldunni:
Hver minning dýrmæt perla,
að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni
af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki
er gjöf sem gleymist eigi
og gæfa var það öllum
er fengu að kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín tengdadóttir,
Þóra Sverrisdóttir.
Elsku afi Elli, við hugsum til
þín og varðveitum með virðingu
og gleði. Afinn með stóru hend-
urnar, þéttingsfasta og hlýja
faðmlagið, smitandi dillandi hlát-
urinn. Þessar minningar koma
upp í hugann þegar við hugsum
til þín og segjum börnunum okk-
ar sögur af þér. Þú varst einn sá
skemmtilegasti þegar kom að því
að segja sögur. Skreyttir þær svo
vel með orðum og hlátri að sög-
urnar urðu ljóslifandi í huga lít-
illa systra sem sátu í gulköflótt-
um sófa í stofunni á Stóru-Giljá.
Og við trúðum þeim öllum og vel
það. Takk fyrir síðasta faðmlagið
okkar elsku afi sem við áttum í
vor, hvíslið í eyrað og tárin …
hinstu kveðjuna okkar. Við syst-
ur erum ótrúlega þakklátar,
heppnar og stoltar að hafa fengið
þig og ömmu Helgu fyrir ömmu
og afa. Alltaf gott að koma til
ykkar og þökkum við þér fyrir
samfylgdina elsku merkilegi afi
okkar.
Elsku amma Helga guð geymi
þig og verndi.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Þínar
Hulda Dóra og Helga Þóra.
Elsku afi, þú farinn ert okkur frá,
skemmtilegar sögur um menn og verur
þú sagðir okkur þá.
Gleðin, brosið og hláturinn svo kátur
ómaði frá þér,
ótal góðar minningar þú gefið hefur
mér.
Það yljar mér þegar ég segi börnum
mínum sögur af þér.
(Sólveig Harpa Kristjánsdóttir)
Sunnan yfir sæinn breiða
sumarylinn vinda leiða.
Draumalandið himinheiða
hlær og opnar skautið sitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar,
hjartað mitt!
Gakk þú út í græna lundinn,
gáðu fram á bláu sundin.
Mundu, að það er stutt hver stundin,
stopult jarðneskt yndi þitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar,
hjartað mitt!
Allt hið liðna er ljúft að geyma,
-láta sig í vöku dreyma.
Sólskinsdögum síst má gleyma,
-segðu engum manni hitt!
Vorið kemur heimur hlýnar,
hjartað mitt!
(Jóhannes úr Kötlum)
Sólveig Harpa Kristjáns-
dóttir og fjölskylda.
Erlendur Guðlaug-
ur Eysteinsson
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
BJÖRNS HAFLIÐA EINARSSONAR,
Lyngholti, Hofsósi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deildum
3 og 5 á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sauðárkróki.
Elsa Hlíðar Jónsdóttir
Guðbjörg Særún Björnsd. Jón Gísli Jóhannesson
Bára Björnsdóttir Hendrik Berndsen
Einar Guðmundur Björnsson
Sævar Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
JÚLÍUSAR KRISTJÁNSSONAR,
fyrrverandi framkvæmdastjóra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dalbæjar,
hjúkrunar- og dvalarheimilis á Dalvík.
Ragnheiður Sigvaldadóttir
Sigvaldi, Kristján Þór, Ásgeir Páll
og fjölskyldur
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför okkar heittelskuðu dóttur,
systur og barnabarns,
ALDÍSAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Dvergagili 40, Akureyri.
Sérstakar þakkir til barnadeildar
Sjúkrahússins á Akureyri og Heimahjúkrunar á Akureyri fyrir
einstaka umönnun og hlýju.
Þórður Vilhelm Steindórsson Rakel Hermannsdóttir
Indriði Atli Þórðarson
Jón Vilberg Böðvarsson
Steindór Ólafur Kárason Jóna Þórðardóttir
Sigurlaug Guðmundsdóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærs föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa og
langalangafa,
HARÐAR REYNIS HJARTARSONAR,
húsasmiðs og þúsundþjalasmiðs,
Hveragerði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Ási fyrir góða umönnun
og hlýju.
Helgi Harðarson
Hjörtur Lárus Harðarson G. Svava Guðmundsdóttir
Ingibjörg Pála Harðardóttir Þórður Rúnar Þórmundsson
Lilja Hafdís Harðardóttir Frank Þór Franksson
og fjölskyldur
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGURLAUGAR GEIRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Grenihlíðar á
Hlíð, Akureyri, fyrir yndislega alúð og
umönnun.
Margrét Ó. Jónsdóttir Sævar Óskarsson
Bryndís Jónsdóttir Egill Geirsson
Soffía Jónsdóttir Árni Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn