Morgunblaðið - 17.10.2020, Síða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2020
Það er stór ákvörðun fram
undan hjá KSÍ um næstu skref
Íslandsmótsins eftir að íslensk
yfirvöld tilkynntu að íþrótta-
iðkun yrði áfram bönnuð hér
landi, næstu tvær til þrjár vik-
urnar í það minnsta.
KSÍ gaf sér út nóvember til
þess að klára tímabilið, þegar
leikir hófust í vor, en fari svo að
blátt bann verði lagt við íþrótt-
um hérlendis næstu þrjár vik-
urnar gæti reynst erfitt að klára
Íslandsmótið á tveimur vikum, í
öllum deildum í það minnsta.
Það virðast allir hafa skoð-
un á þessu máli og skoðanirnar
eru jafn misjafnar og þær eru
margar. Það virðist hins vegar
vera þannig að ef lítið er undir
hjá eigin liði virðist það vera
hin almenna skoðun að það eigi
að slaufa Íslandsmótinu. Ef hins
vegar mikið er undir vilja allir
halda leik áfram.
Sé allra sanngirnissjón-
armiða gætt þá á að sjálfsögðu
að gera allt til þess að klára Ís-
landsmótið. Þau félög sem hafa
farið offari í erlendum leik-
mannaviðskiptum hljóta að geta
spilað á ungum og efnilegum
leikmönnum í lokaleikjum sum-
arsins, líkt og mörg lið hafa
gert í allt sumar.
Ef ákveðið verður að slaufa
Íslandsmótinu má alveg skoða
þá hugmynd að fjölga liðum í
efstu deildunum. Neðsta lið úr-
valsdeildar karla hefur ekki
unnið leik í sumar og á skilið
að fara niður. Efstu þrjú liðin í
1. deildinni gætu því öll farið
upp.
Kvennamegin á ekkert lið
að fara niður eins og sakir
standa og væri því hægt að
fjölga þeim í tólf kvennamegin.
Það væri sanngjörn lausn að
mínu mati.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
vann Búlgara 3:1 og Serba 1:0, og
gerði síðan 0:0-jafntefli við Rússa í
þremur útileikjum í vikunni.
Útfæra 4-4-2 mjög vel
Spurður hvort hægt væri að bera
Íslendinga saman við þessa þrjá and-
stæðinga sagði Rossi að það væri
ekki einfalt.
„Ef þú átt við leikstílinn þá er svar-
ið neikvætt. Ísland beitir dæmigerðri
4-4-2-leikaðferð og útfærir hana mjög
vel. Þeir þekkja þetta leikkerfi inn og
út og beita því á árangursríkan hátt.
Þeir eru með hávaxna leikmenn
frammi og líka í hjarta varnarinnar,
eiga hættulegar fyrirgjafir af könt-
unum, rétt eins og aukaspyrnurnar
og hornspyrnurnar þeirra.
Þetta lið er ólíkt hinum, við mætum
öðruvísi leikstíl, en gerum eins vel og
við getum. Við höfum grandskoðað
Íslendingana undanfarna átta til níu
mánuði þar sem við vissum að við
gætum mögulega mætt þeim. Nú höf-
um við tæpan mánuð til undirbún-
ings.
Ísland betra en Búlgaría
Ég tel að Ísland sé með betra lið en
Búlgaría en ekki sterkara en Serbía
eða Rússland. Þetta verður hörku-
leikur en við höfum trú á að við get-
um unnið,“ sagði Rossi sem er 56 ára
gamall Ítali og lék lengst með Brescia
en einnig m.a. með Sampdoria, Am-
érica í Mexíkó og Eintracht Frank-
furt í Þýskalandi. Hann tók við ung-
verska landsliðinu í júní 2018 en
þjálfaði áður Honvéd í Búdapest í
fimm ár og síðan Dunajská Streda í
Slóvakíu í eitt ár.
Höfum grandskoðað Íslendinga
Þjálfari Ungverja segir Ísland sigur-
stranglegra liðið í Búdapest 12. nóv-
ember Leikaðferðin sé árangursrík
AFP
Moskva Ítalinn Marco Rossi, sem þjálfar lið Ungverja, gefur sínum mönn-
um fyrirskipanir í markalausa jafnteflinu við Rússa í Moskvu á miðvikudag.
UNGVERJAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Marco Rossi, þjálfari ungverska
karlalandsliðsins í knattspyrnu, segir
að Ísland sé sigurstranglegri aðilinn í
úrslitaleik þjóðanna um sæti á EM
sem fer fram í Búdapest 12. nóv-
ember. Hann hafi hinsvegar grand-
skoðað íslenska liðið ásamt aðstoð-
armönnum sínum undanfarna átta til
níu mánuði.
Rossi var í viðtali við ungverska
íþróttavefinn Nemzeti Sport í gær og
var spurður hvort hann og hans
menn væru klárir í slaginn gegn Ís-
landi.
„Þetta verður öðruvísi leikur en
þeir þrír sem nú eru að baki en við
hlökkum til hans. Sem stendur er
mikilvægast að halda okkur með báða
fætur á jörðinni. Ég hef þó ekki
áhyggjur af því að menn fari fram úr
sér því liðið okkar er með hárrétta
hugarfarið. Ísland er samkvæmt
styrkleikalistum með betra lið en við
þannig að við erum ekki sigurstrang-
legra liðið. En við munum sjá eftir
nokkrar vikur hve mikið er að marka
þessa lista,“ sagði Rossi en lið hans
Óvíst er með þátttöku Dagnýjar
Brynjarsdóttur í leik Svíþjóðar og
Íslands í undankeppni EM í knatt-
spyrnu þann 27. október næstkom-
andi vegna meiðsla. Sigurvegarinn
í leiknum fer afar langt með að
tryggja sér toppsæti F-riðilsins og
sæti á lokamóti Evrópumótsins á
Englandi 2022. Dagný meiddist í
leik með Selfossi gegn Val og sagði
hún í viðtali við Vísi í gær að hún
biði fyrirmæla frá bæklunarsér-
fræðingi með framhaldið. Lék hún
meidd gegn Lettlandi og Svíþjóð í
undankeppninni í síðasta mánuði.
Dagný tæp fyrir
stórleikinn
Morgunblaðið/Eggert
Tæp Dagný Brynjarsdóttir skoraði
þrennu gegn Lettlandi í september.
Alfreð Finnbogason missir af leik
Augsburg gegn RB Leipzig í þýsku 1.
deildinni í knattspyrnu í dag vegna
meiðslanna sem hann varð fyrir
snemma leiks gegn Dönum síðasta
sunnudagskvöld.
„Þetta er synd, hann var kominn á
mjög gott skrið. Þetta er að sjálf-
sögðu bakslag fyrir hann,“ sagði
Heiko Herrlich, knattspyrnustjóri
Augsburg, á fréttamannafundi liðsins
í gær. Alfreð missti mikið úr vegna
meiðsla á síðasta tímabili en hafði
komið inn á sem varamaður í fyrstu
þremur leikjum Augsburg í haust.
Meiðslin bakslag
hjá Alfreð
Morgunblaðið/Eggert
Meiðsli Alfreð Finnbogason meidd-
ist gegn Dönum á Laugardalsvelli.
TAKMARKANIR
Jóhann Ingi Hafþórsson
Bjarni Helgason
Ólík staða er uppi hjá fótboltanum,
körfuboltanum og handboltanum í
landinu eftir að ljóst varð í gær að
bann við íþróttaiðkun á höfuðborg-
arsvæðinu yrði framlengt um
minnst tvær vikur frá næsta mánu-
degi.
KSÍ stendur frammi fyrir þeirri
erfiðu ákvörðun hvort hætta eigi
keppni á Íslandsmótinu, sem úr
þessu getur ekki haldið áfram fyrr
en í fyrsta lagi í byrjun nóvember,
eða freista þess að bíða og ljúka
mótinu.
Klara Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri KSÍ, á ekki von á svörum frá
KSÍ um helgina varðandi framhald
Íslandsmótsins, en ljóst er að miklir
hagsmunir eru undir hjá mörgum
félögum. „Það þarf að skoða þetta
vel og þá möguleika sem verða í
stöðunni og hvernig spilin leggjast
út. Við vitum að það eru mörg sjón-
armið og skoðanir í gangi um fram-
haldið og það er eðlilegt, þetta er
stórt mál sem snertir marga. Það er
ekki óeðlilegt að fólk og félög hafa
mismunandi skoðanir á málunum,“
sagði Klara við Morgunblaðið.
Vont fyrir körfuboltann
Hannes S. Jónsson, formaður
Körfuknattleikssambands Íslands,
sagði við Morgunblaðið að tveggja
vikna stopp í viðbót hefði alvarleg
áhrif á körfuboltann og biðin eftir
upplýsingum frá stjórnvöldum væri
heldur ekki ásættanleg.
„Menn þurfa að æfa áður en þeir
byrja að spila og við sjáum því fram
á að byrja ekki að spila á ný fyrr en í
fyrsta lagi um miðjan nóvember.
Það er líka vont því það er landsliðs-
gluggi hjá FIBA í nóvember, bæði
hjá strákunum og stelpunum, og
vegna ástandsins í heiminum í dag
þurfum við að fara erlendis til að
spila,“ sagði Hannes en tók fram að
KKÍ tæki þátt í öllum sótt-
varnaaðgerðum og stæði með yf-
irvöldum í baráttunni.
Höfum enn átta mánuði
Róbert Geir Gíslason, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, sagði við Morg-
unblaðið að tíðindin kæmu ekki á
óvart og myndu ekki hafa alvarleg
áhrif á handboltann í landinu.
„Við erum nú þegar búin að
fresta tveimur umferðum hjá okkur
og ef við erum að tala um tvær vikur
enn, þá verða þetta tvær umferðir
til viðbótar og síðan tekur við lands-
liðshlé. Við eigum að geta unnið upp
þessar fjórar umferðir fyrir áramót
ef ekki þarf að fresta mótahaldinu
frekar. Síðan erum við tilbúin til að
spila út júní á næsta ári og það eru
því átta mánuðir eftir af tímabilinu
eins og staðan er í dag,“ sagði Ró-
bert.
Morgunblaðið/Íris
Óvissa Mikil óvissa ríkir um framhald Íslandsmótsins í fótbolta.
Stórt mál sem snertir marga
Ekki von á niðurstöðu hjá KSÍ um
helgina Formaður KKÍ óhress en
framkvæmdastjóri HSÍ rólegur
Óskar Ólafsson,
leikmaður
Drammen í Nor-
egi, er í fyrsta
skipti í íslenska
landsliðshópnum
í handknattleik.
Guðmundur Þ.
Guðmundsson til-
kynnti í gær
sautján manna
hóp fyrir leikina
gegn Litháen og Ísrael í undan-
keppni EM sem fram fara í Laug-
ardalshöllinni 4. og 7. nóvember.
Óskar hefur leikið með Drammen
undanfarin ár og er alinn upp í Nor-
egi. Hann hefur verið lykilmaður í
varnarleik liðsins en látið meira að
sér kveða í sóknarleiknum en áður á
þessu keppnistímabili.
Þá kemur Gísli Þorgeir Kristjáns-
son leikmaður Magdeburg aftur inn
í hópinn eftir talsverða fjarveru
vegna meiðsla.
Aðrir í hópnum eru Björgvin Páll
Gústafsson, Viktor Gísli Hallgríms-
son, Bjarki Már Elísson, Oddur
Gretarsson, Ólafur Guðmundsson,
Aron Pálmarsson, Daníel Ingason,
Elvar Örn Jónsson, Janus Daði
Smárason, Ómar Ingi Magnússon,
Viggó Kristjánsson, Arnór Þór
Gunnarsson, Sigvaldi Björn Guð-
jónsson, Arnar Freyr Arnarsson og
Ýmir Örn Gíslason.
Óskar er
nýliði í
landsliðinu
Óskar
Ólafsson