Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 Gæða- og öryggisstjóri Nánari upplýsingar: Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2020 Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is Landhelgisgæsla Íslands er löggæslu- stofnun sem samkvæmt lögum er falið að gæta ytri landamæra og standa vörð um fullveldisrétt Íslands á hafsvæðinu kringum landið. Landhelgisgæslan sinnir meðal annars löggæslu, eftirliti, leit og björgun á hafi auk þess að annast daglega framkvæmd öryggis- og varnartengdra verkefna hér á landi samanber heimild í varnarmálalögum. Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 200 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks. Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi – Þjónusta - Fagmennska Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Landhelgisgæslan áskilur sér rétt til að láta umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðuneytis. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. • Umsjón með gæðakerfi Landhelgisgæslunnar • Umsjón með öryggisstjórnunarkerfi og öryggisnefndum Landhelgisgæslunnar • Yfirumsjón með framkvæmd úttekta samkvæmt verkferlum og reglugerðum • Aðstoð við gerð og þróun gæðahandbóka og verkferla • Vinnsla áhættumata og þátttaka í neyðarstjórnun • Önnur tilfallandi verkefni sem falla undir verksvið gæða- og öryggisstjóra Landhelgisgæsla Íslands leitar að metnaðarfullum og kraftmiklum einstaklingi í starf gæða- og öryggisstjóra. Viðkomandi hefur yfirumsjón með gæða- og öryggiskerfum stofnunarinnar með áherslu á gæðakerfi flugdeildar. Gæða- og öryggisstjóri þarf að hljóta samþykki Samgöngustofu vegna starfsleyfa flugdeildar. Viðkomandi þarf að geta staðist öryggisvottunarkröfur samkvæmt lögum nr. 52/2006 og 34/2008. Helstu viðfangsefni og ábyrgð: Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi • Góð þekking og reynsla á sviði gæða- og öryggisstjórnunar • Góð þekking og reynsla af reglugerðum EASA og Samgöngustofu, er beinast að flugrekstri, þjálfun og viðhaldi loftfara er skilyrði • Reynsla á sviði flugmála er æskileg • Þekking á uppbyggingu, þróun og stjórnun gæða- og öryggiskerfa • Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Góð almenn tölvufærni • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti Laust er til umsóknar starf byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 100% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metn- aðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum í byggingarmálum sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Byggingarfulltrúi hefur yfirumsjón með byggingarmálum sveitar- félagsins, þjónustar íbúa Hvalfjarðarsveitar á því sviði, er ráðgefandi fyrir sveitarstjórn og nefndir og vinnur skv. samþykktum þeirra. Eftir- farandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið byggingarfulltrúa Hvalfjarðarsveitar: • Byggingareftirlit og umsjón með byggingarmálum sveitarfélagsins. • Móttaka og afgreiðsla byggingarleyfisumsókna og stöðuleyfa. • Framkvæmd úttekta og útgáfa leyfa ásamt staðfestingu eignaskipta- yfirlýsinga. • Ráðgjöf varðandi byggingarmál. • Samskipti við hagsmunaaðila. • Skráning og viðhald vegna Fasteignaskrár Íslands og landupplýsinga- kerfis. • Umsjón með lóðaúthlutunum sveitarfélagsins. • Gerð starfs- og rekstraráætlana fyrir þá málaflokka sem undir hann heyra. • Önnur verkefni sem byggingarfulltrúa eru falin af yfirmanni, þá helst er tengjast skipulagsmálum. Byggingarfulltrúi ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða. Almennt stjórnunarsvið: Byggingarfulltrúi starfar og stjórnar í samræmi við lög og reglugerðir sem gilda um byggingar- og skipulagsmál sveitarfélaga, eftir lögum er Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með um 650 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is Byggingarfulltrúi varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar og í samræmi við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á hverjum tíma. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði byggingarmála sbr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. • Viðkomandi skal hafa löggildingu sem hönnuður skv. 25. gr. mannvirkjalaga nr.160/2010. • Æskilegt er að viðkomandi sé með réttindi í skipulagsmálum sbr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. • Góð þekking og reynsla á sviði byggingarmála er æskileg. • Þekking á notkun skráningarkerfis fasteigna hjá Þjóðskrá er æskileg. • Reynsla af notkun kerfanna One System, Navision og AutoCAT eða Microstation er kostur. • Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur. • Reynsla af þátttöku í stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er kostur. • Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulagshæfileika. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Kjör: Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2020. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í síma 433-8500 og á netfanginu linda@hvalfjardarsveit.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.