Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
✝ Helga Þór-hallsdóttir
fæddist á Orms-
stöðum í Eiða-
þinghá þann 3. júní
1931. Hún lést á
hjúkrunarheim-
ilinu Uppsölum á
Fáskrúðsfirði þann
4. nóvember 2020.
Foreldrar hennar
voru Sigrún Guð-
laugsdóttir frá
Fremstafelli í Köldukinn, S-
Þing, f. 30. júní 1898, og Þór-
hallur Helgason frá Skóg-
argerði í Fellum, f. 1. mars 1886.
Systkini hennar eru Ólöf, Guð-
laugur, Anna og Ásmundur.
Sonur Helgu er Þórhallur Borg-
arsson, húsasmiður á Egils-
stöðum. Kona hans er Sig-
urbjörg Óskarsdóttir og eiga
þau tvær dætur og tvö barna-
börn.
Helga gekk í Al-
þýðuskólann á Eið-
um og Húsmæðra-
skólann á Laugum,
en hélt síðan suður
til náms í Tónlistar-
skólanum í Reykja-
vík og útskrifaðist
þaðan með kennslu-
réttindi. Hún bjó
nær alla tíð á Orms-
stöðum ásamt
systkinum sínum,
Önnu og Guðlaugi. Hún kenndi
við Alþýðuskólann og Barna-
skólann á Eiðum, tónfræði, söng
og á píanó ásamt fleiri hljóð-
færum. Þá var hún einnig org-
anisti Eiðakirkju um árabil.
Útför Helgu fer fram frá
Eiðakirkju í dag, 14. nóvember
2020, kl. 11.
Steymt verður frá útförinni á
Facebooksíðu: Útför Helgu Þór-
hallsdóttur.
Ég var sjö ára held ég þegar
ég var sendur í sveit austur í
Ormsstaði í Eiðaþinghá, til Þór-
halls afabróður míns og Sigrúnar
konu hans sem þar bjuggu fé-
lagsbúi með börnum sínum fjór-
um: Guðlaugi, Önnu, Helgu og
Ásmundi. Elst var Ólöf en hún
var þá flutt til Akureyrar. Þór-
hallur bóndi var menntaður smið-
ur og mikill hagleiksmaður, Sig-
rún var ættuð frá Fremstafelli í
Köldukinn, móðursystir Jónasar
Kristjánssonar handritafræð-
ings. Heimilið var menningar-
heimili, orgel í stofu og bókakost-
ur góður. Systkinin voru ung og
lífsglöð, ólík en samhent, söngvin
og bókhneigð, og allt þetta hóg-
væra fólk átti sinn þátt í að móta
mig ungan þau mörgu sumur sem
ég dvaldi hjá þeim og þeirra for-
eldrum, og fyrir það verð ég æv-
inlega þakklátur.
Þau voru hagleiksfólk og list-
hneigð eins og þau áttu kyn til og
sóttu sér menntun eftir Eiða-
skóla og reynslu út fyrir túngarð-
inn á ólíkum sviðum: Ólöf mennt-
uð í vefnaði í Danmörku og
starfaði sem vefnaðarkennari á
Akureyri, Guðlaugur húsgagna-
smiður og Ásmundur búfræðing-
ur og húsasmiður, báðir einstakir
völundar á tré og járn, Anna
gekk á húsmæðraskóla á Akur-
eyri, drátthög og sótti sér mennt-
un í myndlist. Yngsta systirin,
Helga, fór fyrst á slóðir móður
sinnar í Þingeyjarsýslu og sótti
húsmæðraskóla á Laugum en síð-
ar lá leiðin í Tónlistarskólann í
Reykjavík þaðan sem hún út-
skrifaðist tónmenntakennari.
Hún starfaði síðan við tónlistar-
kennslu á Eiðaskólum, stjórnaði
kórum og tók þátt í tónlistarlífinu
í sinni heimabyggð.
Heimilið var fjölmennt þótt
húsakynni væru þröng, sumar-
gestum skipað í flatsæng í stof-
unni og ég fékk að liggja einhver
sumur undir bókaskápnum í her-
bergi Helgu og Önnu. Lífið var í
föstum skorðum og dagarnir liðu
í hægum takti með hóflegri
blöndu af hollri áreynslu og
bjástri við smíðar og leik, bækur
af öllu tagi tiltækar og lesnar upp
til agna; félagar mínir syðra voru
t.d. ekki jafnvel skólaðir í Be-
verly Gray og Margit Ravn og ég
varð eftir kynnin af bókakosti
heimasætanna. Heimilisfólkið
allt var eftirlátssamt og örlátt við
aðkomudrenginn eins og öll önn-
ur sumarbörn sem komu á undan
mér og eftir; alltaf nægur tími til
að spjalla, skýra og leiðbeina,
miðla fróðleik um hvaðeina milli
himins og jarðar.
Helga var kát og hláturmild,
háttvís og óframgjörn eins og þau
systkini öll en hafði ákveðnar
skoðanir og lifandi áhuga á fólki
og aðstæðum. Hamingja hennar
var ekki síst einkasonurinn Þór-
hallur sem varð sólargeisli í lífi
fjölskyldunnar allrar á Orms-
stöðum.
Minningin um Helgu er skýr í
björtu ljósi bernskunnar og ég er
þakklátur fyrir vegarnestið sem
vel dugði þótt samfundir hafi
strjálast þegar árin liðu. Við
Margrét Þóra sendum Þórhalli
og fjölskyldu hans, Ásmundi og
fjölskyldu hans og ættingjum öll-
um innilegar samúðarkveðjur.
Megi bjartar minningar sefa sára
sorg.
Örnólfur Thorsson.
Helga
Þórhallsdóttir
✝ Jón SkagfjörðStefánsson
fæddist á Gauks-
stöðum á Skaga 7.
júní 1931. Hann
andaðist á HSN
Sauðárkróki þann
31. október 2020.
Foreldrar hans
voru Stefán Pétur
Jónsson, f. 18. febr-
úar 1888, d. 17.
apríl 1951 og Stef-
anía Elísabet Sigurfinnsdóttir,
f. 5. ágúst 1901, d. 18. febrúar
1970. Bróðir Jóns var Eiður
Reykjalín Stefánsson, f. 24. júní
1926, d. 8. ágúst 2016, eig-
inkona hans var Helga Jóns-
dóttir, f. 9. febrúar 1932, d. 27.
desember 2018.
Eiginkona Jóns var Eiðný
Hilma Ólafsdóttir, f. 5. júlí 1936.
d. 17. nóvember 2017, þau
gengu í hjónaband 14. sept-
ember 1958. Börn þeirra eru: 1)
Stefán Pétur, f. 30. ágúst 1958,
hans kona er Ólöf Svandís
Eiði bróður sínum og Stefaníu
móður þeirra. Þar með hófst
hann handa við að byggja upp á
jörðinni, bæði húsakost rækta
tún. Honum var í blóð borið að
vera bóndi og bar djúpa virð-
ingu fyrir náttúrunni og land-
inu, árangur af hans langa ævi-
starfi, dugnaði, nýtni og útsjón-
arsemi blasir við á Gauks-
stöðum. Eiður bróðir hans
fluttist til Akureyrar 1974. Er
Eiður sonur hans komst til full-
orðinsára voru þeir feðgar sam-
an í búskapnun til 1988.
Jón tók þátt í ýmsum trúnað-
arstörfum á vegum Skefils-
staðahrepps, sat í hreppsnefnd
um árabil, sýslunefnd,
byggingarnefnd o.fl. einnig var
hann hreppstjóri 1974-1998.
Kirkjan í Hvammi í Laxárdal
var hans sóknarkirkja og var
hann formaður sóknarnefndar
og meðhjálpari frá 1976 þar til
hann vegna heilsubrests fór á
Dvalarheimilið á Sauðárkróki
2017.
Útför Jóns verður gerð frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 14.
nóvember 2020, kl 14. Streymt
verður frá athöfninni á
https://tinyurl.com/y5u47qe2
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á: httpw://www.mbl.is/andlat
Árnadóttir, dætur
þeirra eru: Gígja
Hrund, Klara
Björk, Halla Mjöll
og Edda Borg. 2)
Eiður, f. 5. nóv-
ember 1961,d.
20.júní 2016,
kvæntur Huldu
Rúnarsdóttur,
börn: Hilma og Jón
Ólafur, stjúpbörn:
Kolbrún, Þórunn,
Rúnar, Sigurður og Friðrik. 3)
Sveinfríður Ágústa, f. 8. júlí
1965, eiginmaður, Jóhannes Jó-
hannesson, synir: Máni Jón og
Ingi Sveinn. Langafabörnin eru
sjö stúlkur.
Jón ólst upp á Gauksstöðum
og fór snemma að taka þátt í
bústörfunum eins og títt var í
þá daga, hann gekk í farskóla
sveitarinnar og seinna í Gagn-
fræðaskólann á Sauðárkróki.
Jón var tæplega 20 ára er faðir
hans lést og hann tók við bú-
reksti á Gauksstöðum ásamt
Til pabba.
Englar Guðs þér yfir vaki og verndi
pabbi minn
vegir okkar skiljast núna, við sjáumst
ekki um sinn.
En minning þín hún lifir í hjörtum okkar
hér
því hamingjuna áttum við með þér.
Þökkum kærleika og elsku, þökkum
virðingu og trú
þökkum allt sem af þér gafstu, okkar
ástir áttir þú.
Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð-
leg var þín lund
og gaman var að koma á þinn fund.
Með englum Guðs nú leikur þú og lítur
okkar til
nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það
ég skil.
Og þegar geislar sólar um gluggann
skína inn
þá gleður okkur minning þín, elsku
pabbi minn.
Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á
braut
gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem
förunaut.
Og ferðirnar sem fórum við um landið
út og inn
er fjársjóðurinn okkar pabbi minn.
(Guðrún Sigurbjörnsdóttir)
Takk fyrir alla ástina,
hvíl þú í friði, elsku pabbi.
Börnin þín,
Stefán og Sveinfríður.
Elsku afi Nonni.
Nú kveðjum við þig í hinsta
sinn. Þegar við hugsum til þín rifj-
ast upp margar góðar minningar,
ófáar í sveitinni hjá þér og elsku
ömmu Diddu. Okkur fannst alltaf
svo gaman að koma á Gauksstaði,
þar máttum við leika okkur enda-
laust og við fundum okkur alltaf
nóg að gera. Við dáðumst alltaf að
því hvernig þú þekktir allar roll-
urnar með bæði nafni og númeri
og hvað þú elskaðir öll dýrin þín
mikið. Þú varst svo mikill dýra-
kall, þið Kátur voruð mestu mátar
og þú varst í miklu uppáhaldi hjá
Tásu. Það var alltaf jafn skemmti-
legt að sjá hana hjúfra sig undir
kuldagallanum þínum í gömlu,
eða öllu heldur elstu, Ferguson-
vélinni á bænum, sem er einmitt
jafngömul pabba. Stundum raul-
aðir þú lítið lag á meðan þú sinntir
verkunum, svo yndislega friðsæll
og rólegur.
Það varð snemma venja að við
tókum þátt í því að gefa þegar við
komum í sveitina. Þú leiðbeindir
okkur vandlega og varst svo þol-
inmóður.
Síðar meir áttuðum við okkur á
við gerðum líklegast lítið annað en
að tefja gjöfina en minningarnar
eru dýrmætar. Þú varst alltaf jafn
glaður og blíður og talaðir um
hvað það væri mikill munur að
hafa svona alvöruvinnukonur.
Enn í dag finnst okkur ómissandi
hluti af sveitaheimsóknum að gefa
kindunum.
Alltaf þegar við hittum þig
gafstu okkur hlýtt og gott faðm-
lag og straukst okkur þétt um
bakið. Stríðnisglottið var aldrei
langt undan og þú gast alltaf sagt
okkur eitthvað sniðugt, eða bara
spjallað um daginn og veginn. Þú
varst alltaf svo góður, með nær-
veru fulla af ást og umhyggju.
Þegar þú varst orðinn eldri og
kominn inn á sjúkrahúsið á
Króknum varst þú enn sami ynd-
islegi karakterinn, rólegur og rík-
ur af alúð þótt minnið hafi verið
farið að stríða þér. Þú vildir helst
halda í höndina á okkur frá því við
komum og þangað til við fórum og
hrósaðir okkur ítrekað fyrir að
vera með svona sítt og mikið hár.
Oft buðum við þér að flétta hárið
þitt - sem þér þótti sérlega fyndið.
Í gegnum tíðina komstu víða
við. Sinntir kirkjustarfi af miklum
áhuga í Hvammskirkju og varst
virkur í hinum ýmsu nefndum.
Þú varst bæði duglegur og drif-
inn og sinntir sveitastörfunum
með prýði. Síðast en ekki síst
traustur vinur, sannur sveitungur
og yndislegur pabbi, afi og lang-
afi.
Elsku afi, takk fyrir að reynast
pabba og okkur öllum svo vel. Við
minnumst þín með söknuði og
þakklæti. Við munum aldrei
gleyma góðu stundunum og ein-
staklega þéttu og góðu faðmlög-
unum.
Afi Nonni
Magnaður fjárbóndi og meiri háttar
knapi,
moldríkur af margri dygðinni.
Með vit á því að vera í góðu skapi,
jafnt í æsku sem og ellinni.
Snauður af skaphita, ríkur af rólyndum,
handlaginn, útsjónarsamur og knár.
Sérlegar fróður þegar kom að kindum,
þó sköllóttur væri, kunni allt upp á hár.
Á Gauksstöðum með ömmu og börnin
þrjú,
fumlaus, fjölhagur og léttur í lund,
Með að leiðarljósi þakklæti, von og trú,
allt fram á síðustu stund.
(Edda Borg Stefánsdóttir)
Þínar sonardætur,
Gígja Hrund, Klara Björk,
Halla Mjöll og Edda Borg.
Jón Skagfjörð
Stefánsson
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 11-16 virka daga
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
VALDIMARS JÓNSSONAR
skipasmiðs og fv. yfirlögregluþjóns.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
göngudeildar hjartabilunar, hjartadeildar
Landspítala, HERU líknarheimaþjónustu og heimahjúkrunar HH
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Aðalheiður Halldórsdóttir
Jóhanna Valdimarsdóttir Grétar Örn Marteinsson
Anna Valdimarsdóttir Guðmundur Örn Jónsson
Halldóra K. Valdimarsdóttir Jónatan Guðnason
Margrét G. Valdimarsdóttir
og fjölskyldur
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
elsku sonar míns, bróður okkar, frænda og
mágs,
ARNAR THORS.
Svanhildur J. Thors Örn Oddgeirsson
Lára Thors
Iðunn Thors Jakob Hagedorn-Olsen
Jóna Thors
Svanhildur Thors James M. Fletcher
börn og barnabörn
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÞYRI DÓRA SVEINSDÓTTIR
snyrtisérfræðingur,
lést miðvikudaginn 11. nóvember.
Útför verður auglýst síðar.
Kjartan W. Ágústsson
Kristinn Tómasson Herdís Sigurðardóttir
Dóra K. Welding Hinrik Þráinsson
Sveinn Helgi Kjartansson
barnabörn og barnabarnabörn
Mig langar að
minnast vinar míns
og veiðifélaga Sig-
urðar Halls sem far-
inn er til feðranna, langt um aldur
fram. Ég kynntist Halli í veiði-
skap í Miðfjarðará fyrir margt
löngu. Hallur var þá aðeins 17 ára
gamall og veiddi með föður sínum
ásamt fleirum húnvetnskum
veiðigörpum. Þessi veiðitúr var
upphafið á kynnum okkar Halls
og með okkur tókst ævilöng vin-
átta sem aldrei bar skugga á. Ég
og tengdafaðir minn, Eyjólfur
Ágústsson, veiddum eftir þetta til
fjölda ára í holli með þessum góðu
húnvetnsku veiðifélögum í Mið-
fjarðará og víðar. Oft var komið
við hjá Halli og Stellu á Hvamms-
tanga og jafnvel gist hjá foreldr-
um hans ef svo bar undir. Hallur
var einstaklega laginn veiðimað-
ur og hafði gott auga fyrir nátt-
úrunni og gjöfum hennar.
Hallur var hæfileikaríkur
maður, starfsamur og traustur
með afbrigðum. Hann leysti
mörg verkefnin fyrir Vegagerð-
ina, þar sem hann starfaði við
brúarsmíði alla sína ævi. Ég
minnist þess þegar hann var að
stýra viðgerð á gömlu hengi-
brúnni yfir Örnólfsdalsá, rétt of-
an við kirkjuna í Norðtungu í
Þverárhlíð. Endurgerð brúarinn-
ar var afar vandasamt verk og
Sigurður Hallur
Sigurðsson
✝ Sigurður Hall-ur Sigurðsson
fæddist 11. febrúar
1967. Hann lést 23.
október 2020.
Útför Sigurðar
Halls fór fram 2.
nóvember 2020.
var haft á orði hve
vel hafði til tekist að
verki loknu. Brúin
er einstök að allri
gerð og mikilsverð
minjabrú í sam-
göngusögu Íslend-
inga. Brúin liggur
yfir góðan veiðistað í
ánni sem kallast
Berghylur. Hallur
hringdi stundum í
mig þegar hann var
að vinna þarna til að segja mér frá
löxunum í hylnum. Og þó að veiði-
ferðunum okkar fækkaði, sér-
staklega eftir að Hallur datt í
golfíþróttina, hélst vinátta okkar
góð og náin. Oft kom Hallur í
heimsókn til mín í Skúlason og
Jónsson en þá voru málin rædd og
rifjaðar upp veiðisögur af stórum
löxum. Við Hallur áttum margar
góðar stundir saman í veiði sem
gleymast ekki.
Hallur glímdi við erfið og
ágeng veikindi en hann bar sig
vel. Hann hélt ró sinni og reisn þó
veikur væri, líkt og segir í sálm-
inum góða.
Þá ég hníg í djúpið dimma,
Drottinn, ráð þú hvernig fer.
Þótt mér hverfi heimsins gæði –
hverfi allt, sem kærast mér er:
Æðri heimur, himnafaðir,
hinumegin fagnar mér
(Matthías Jochumsson)
Að leiðarlokum minnist ég
Halls með þakklæti fyrir allar
góðu samverustundirnar. Ég
votta Stellu, börnum, Ásu, móður
hans, ættingjum og vinum samúð
mína og bið algóðan Guð að
styrkja þau í sorginni.
Gunnar H. Magnússon.