Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
vissum því að honum mundu mæta
miklar gæðakröfur frá neytendum
og því kannski um ákveðinn próf-
stein á þessa áfengislausu fram-
leiðslu að ræða gagnvart okkar
helstu fylgjendum. Þá fannst okkur
augljóslega vanta áfengislausan val-
kost í annars frábært framboð af
jólabjórum hérlendis. Og þar sem
Froðusleikir er óhefðbundinn jóla-
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Viðtökurnar hafa verið frábærar.
Froðusleikir er þegar uppseldur hjá
okkur og byrjaður að klárast í
ákveðnum verslunum. Við erum að
skoða hvort við náum ekki að fram-
leiða meira fyrir hátíðirnar og von-
um að allt smelli þar,“ segir Stur-
laugur Jón Björnsson, brugg-
meistari hjá Borg brugghúsi.
Það fer vart fram hjá viðskipta-
vinum matvöruverslana að úrval af
áfengislausum bjór hefur aukist
hratt að undanförnu. Nýjasta við-
bótin er fyrsti íslenski óáfengi jóla-
bjórinn. Hann kemur úr smiðju
Borgar brugghúss og kallast Froðu-
sleikir. Jólabjórar Borgar bera jafn-
an nöfn hinna séríslensku jólasveina
og Froðusleikir ku vera einn þeirra
– þótt hann hafi ekki verið jafn
áberandi í seinni tíð og þeir allra
þekktustu.
Sturlaugur segir í samtali við
Morgunblaðið að hann og kollegar
hans hafi lengi haft trú á því að
nægur áhugi og markaður væri fyr-
ir metnaðarfullum áfengislausum
bjórum hér á landi. Af þeim sökum
hafi Bríó verið kynntur til leiks síð-
sumars að undangenginni langri
þróun. Sala á Bríó hafi farið fram
úr björtustu vonum.
„Froðusleikir fylgir hér í kjölfarið
og má segja að útgáfa hans hafi
fjölþættan tilgang hjá okkur. Um er
að ræða bjór í IPA-stíl, sem er einn
allra vinsælasti bjórstíll handverks-
bjóraðdáenda um allan heim. Við
bjór, þannig séð, þá beinum við
kastljósinu hér á utangarðsmenn í
hópi utangarðsmanna – það er að
segja þá fjölmörgu jólasveina sem
eitt sinn voru partur af íslenskum
jólasveinasögum en voru síðar
skornir niður við samantekt Jó-
hannesar úr Kötlum við gerð jóla-
sveinakvæðanna. Einhver þarf að
minnast þeirra.“
Ljósmynd/Hari
Tímamót Sturlaugur Jón Björnsson hefur framleitt fyrsta óáfenga jólabjórinn og kallast hann Froðusleikir.
Sturlaugur stoltur af því að
gera fyrsta óáfenga jólabjórinn
Froðusleikir
einn utangarðs-
manna meðal ís-
lenskra jólasveina
Thorvaldsensfélagið hefur gefið út
sitt árlega jólakort. Að þessi sinni
prýðir kortið mynd eftir Sigrúnu
Eldjárn og heitir „Ömmujól“.
Allur ágóði af jólakortasölunni
rennur ætíð til góðgerðarmála en
eins og mörg undanfarin ár eru
kortin nú til styrktar sykursjúkum
börnum og unglingum.
Tekið er við pöntunum á Thor-
valdsensbazar í síma 551-3509, á
bazar@thorvaldsens.is eða á net-
fangið sif.sigurvins@gmail.com.
Kortin verða einnig til sölu í
Smáralind í dag, 14. nóvember, líkt
og um síðustu helgi.
Pakki með 10 stykkjum kostar
1.500 kr. og pakki með 5 stk. af
litlum kortum kostar 500 kr., að því
er fram kemur í fréttatilkynningu
frá Thorvaldsensfélaginu.
Jól Svona lítur jólakort Thorvald-
sensfélagsins út þetta árið.
Jólakort
Thorvald-
sensfélags-
ins 2020