Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 ✝ Sveinn Björg-vin Eysteins- son, bóndi á Þamb- árvöllum í Strandasýslu, fæddist 17. maí 1931. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 8. nóv- ember 2020. Hann var sonur hjónanna Eysteins Einarssonar bónda á Bræðra- brekku, f. 12. apríl 1904, d. 25. feb. 1991, og Kristínar Lilju Jóhannesdóttur, f. 26. ágúst 1900, d. 21. maí 1988. Systkini hans eru Jóhanna Margrét, f. 1925, látin, Bjarni Björnsson, f. 1926, látinn, Jón Bragi, f. 1928, látinn, Kristjana, f. 1929, látin, Steinunn, f. 1933, látin, Lauf- ey, f. 1935, Einar Magnús, f. 1936, Fanney, f. 1939, og Trausti, f. 1943, látinn. Hálf- systkin samfeðra Jens Ólafur, f. 1945, Dofri, f. 1947, Gísli Sigursteinn, f. 1949, móðir þeirra var Jensína Björns- dóttir. Hrafnhildur, f. 1949, látin, og Hilmar, f. 1951, móðir þeirra var Katrín Sæmunds- dóttir. Eftirlifandi eiginkona Sveins er Sigrún Magnúsdóttir, f. 20. okt. 1941, dóttir Magnúsar Kristjánssonar, f. 18. júní 1905, d. 12. ágúst 2001, bónda á Þambárvöllum og konu hans Magðalenu Guðlaugsdóttur, f. 6. sept. 1902, d. 22. ágúst 1994. Börn Sveins og Sigrúnar eru 1) Bryndís, f. 1962, gift Kristni Sig- urðssyni, þau eiga 3 börn og 6 barna- börn, 2) Elsa Hrönn, f. 1965, hún á eina dóttur og 3 barnabörn, 3) Magnús, f. 1970, kvæntur Stefaníu Jónsdóttur, þau eiga 3 syni, 4) Birkir Þór, f. 1979. Sveinn fæddist á Stóru- Hvalsá í Hrútafirði og þegar hann var tveggja ára fluttist fjölskyldan að Bræðrabrekku í Bitrufirði og ólst hann þar upp í stórum systkinahópi. Sveinn sótti farskóla í Bitrufirði og var síðan einn vetur á Héraðsskól- anum að Reykjum í Hrútafirði. Sveinn og bræður hans stunduðu búskap á Bræðra- brekku ásamt móður sinni. Ásamt því sótti hann ýmis störf meðfram bústörfum, svo sem ýtuvinnu og sótti vertíð í Vest- mannaeyjum í tvo vetur. Árið 1962 flyst hann að Þambár- völlum þegar þau Sigrún hófu þar búskap í félagi við foreldra hennar. Hann var bóndi allt til ársins 2004 þegar Magnús, son- ur þeirra, tekur við búinu. Með- fram búskapnum sinnti hann grenjavinnslu, vann í slátur- húsinu á Óspakseyri ásamt því að keyra flutningabíl hjá Kaup- félaginu. Útför Sveins fer fram frá Hólmavíkurkirkju í dag, 14. nóvember 2020, kl. 13. Elsku afi. Þá kom að því, ljós þitt slokknaði í síðasta sinn. Við munum ætíð minnast þín með þitt rólega fas og stóra og sterka faðm. Það var alltaf svo gott að koma í sveitina til ykk- ar ömmu og vorum við ekki há- ar í loftinu þegar við fórum að tala um sveitina sem okkar heimili enda voru öll skólafrí og sumarfrí nýtt hjá ykkur áður en vinnan fór að vera meira að- kallandi. Þolinmæði þín fyrir börnum var alveg einstök og alltaf varstu til í að leyfa okkur að vera með í öllum útiverkum og fylgjast með þér. Það voru heilu heyskaparsumrin sem við fylgdum með í dráttarvélunum og skiptumst á að vera með þér og Magga. Í þinni vél ómuðu harmon- ikkutónar á kasettunni og alltaf kunnir þú sögur um músíkkall- ana sem þú sagðir okkur, alveg óháð því hvort við vorum að hlusta eða ekki. Aldrei var það heldur vanda- málið þegar við komum skömmustulegar með stígvélin okkar og báðum þig um að gera við gatið sem komið var á og alltaf gastu skemmt þér yfir sögunum þegar við lýstum því hátíðlega hvernig gatið var til- komið. Við munum heldur aldrei gleyma hvað þú varst alltaf duglegur að minna okkur á að vera duglegar að gera mikið á föstudaginn langa, því það væri ekki mikið hægt að gera á laug- ardeginum stutta sem kæmi næsta dag á eftir. Á seinni árunum þegar við fórum að koma heim með okk- ar fjölskyldur ljómaðir þú all- ur að fá að kjassa framan í dætur okkar og sýndi sig góð- mennskan frá toppi til táar og yljaði það manni við hjarta- rætur. Við munum minnast þín með stolti í hjarta og verðum við ævinlega þakklátar fyrir allar þær stundir sem við átt- um saman. Alveg erum við vissar um að þú sért nú þegar búinn að finna Depil okkar og farinn á vit æv- intýra með honum og ríðandi um á Smára gamla. Þínar afastelpur, Dagrún og Sigrún Björg. Sveinn Björgvin Eysteinsson ✝ Gunnar MárKristófersson fæddist á Ísafirði 19. júlí 1944. Hann lést á Landakoti 6. nóvember 2020. Hann var sonur Kristófers Sigvalda Snæbjörnssonar bifreiðarstjóra og Svanhildar Snæ- björnsdóttur hús- móður. Gunnar Már giftist Guðrúnu Halldóru Cýrus- dóttur árið 1973 (skildu 1991) og eignuðust þau þrjú börn, Guðríði Sirrý Gunnarsdóttur, f. 1967, Lilju Dögg Gunnarsdóttur, f. 1978, og Atla Má Gunnarsson, f. 1980. Afkomendur Gunnars Más eru tólf talsins. Gunnar Már ólst upp á Hellu á Hellissandi, gekk í barnaskóla þar en tók um 16 ára gamall landspróf frá Skógum. Eftir það nam hann við Stýrimannaskól- ann. Gunnar Már sótti sjó sem ungur maður um tíma en á átt- unda áratug síðustu aldar hóf hann störf sem vélgæslumaður á Gufuskálum. Hann var virkur þátttakandi í stjórnmálum og varð fyrsti formað- ur Alþýðusam- bands Vesturlands eftir stofnþing þess 1977. Gunnar sat tímabundið á þingi 1979 og 1980 sem varaþingmað- ur Vesturlands fyr- ir Alþýðuflokkinn og beitti sér m.a. fyrir því að laug- ardagar yrðu skil- greindir sem frídagar sem og bættum vegi undir Ólafsvík- urenni. Árið 1984 hóf Gunnar Már störf sem sveitarstjóri Nes- hrepps utan Ennis og gegndi því starfi í tæpan áratug eða þar til hann hafði leitt samein- ingu sveitarfélaga í kring, sem úr varð Snæfellsbær. Um þetta leyti fluttist hann til Reykjavík- ur, hóf verslunarrekstur í nokkur ár og tók próf í bók- haldi. Hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Bókhaldsþjónustu Gunnars, í Reykjavík, undir lok tíunda áratugs síðustu aldar og rak hana þar til hann lét af störfum árið 2013. Útförin fer fram í kyrrþey. Elsku pabbi minn. Þú ert far- inn, óvænt og óundirbúið. Þarna varstu staddur á stað sem átti að færa þig til betri vegar, endur- hæfingar. Svo mætti veiran á staðinn og yfirtók þig svo þú gast ekki andað að lokum. Ég fékk að hitta þig í geimbúningi og tala við þig í gegnum grímu. Þú varst all- an tímann skýr og ekki á því að lífsandinn væri að hverfa í þessa veiru. Þannig var þinn karakter, tilbúinn til að trúa því að allt færi á besta veg, rólegur, tókst því sem að höndum ber. Enda laukstu daglegum símtölum okk- ar alltaf á sama máta, og þá skipti ekki máli hvort ég var að segja þér frá stórum eða litlum málum: „Sjáum til elskan, heyri aftur í þér á morgun.“ Einföld kveðja en öflug að því leytinu til að hún heitir á von og trú um að málin leysist í rólegheitum og í æðruleysi. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kveðja. Þótt ég hefði gjarna viljað knúsa þig, snerta og geta tjáð mig með öllu andlitinu en ekki í gegnum grímuna. Brosið þitt pabbi. Það náði alltaf til tindr- andi augna þinna. Þegar þú brost- ir innilega náði brosið utan um allan heiminn og inn að hjarta. Þú kvaddir einmitt með brosi og fingurkossi þegar ég gekk út síð- asta daginn þinn á Landakoti. Síðar, þann dag, að næturlagi kom ég aftur til að kveðja þig í hinsta sinn, með söng: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Hafðu þökk fyrir allt og allt pabbi minn. Allar sögurnar, bækurnar, útilegurnar og veiði- ferðirnar. Takk fyrir að passa stelpuna mína, Guðrúnu Sögu. Takk fyrir jólin. Takk fyrir að vera fyrirmynd í leiðtoga- mennsku. Takk fyrir alla góð- mennskuna, ljúfmennskuna, glettnina og hjálpsemina. Hvíl í friði elsku pabbi, Þín dóttir Lilja Dögg. Elsku besti pabbi minn hefur kvatt okkur. Það er svo skrítið og svo óraunverulegt að geta ekki hitt hann, hringt í hann og spjall- að. Pabbi var maður fólksins og bar hug allra fyrir brjósti og vildi öllum vel, hann var góður hlust- andi, hjálpsamur og duglegur. Það var ómetanlegt fyrir ungt fólk sem var að hefja sinn búskap að eiga pabba að, hann gaf okkur góð ráð sem hafa og munu nýtast okkur allt lífið. Pabba fannst gaman að ferðast og fórum við mjög oft í útilegur. Að veiða fisk fannst honum mjög gaman, hann kenndi mér til dæmis að setja maðk á öngul. Man ég eftir ófáum útilegum með bræðrunum frá Hellu og ömmu og afa í Dags- brún. Árin okkar á Gufuskálum voru eftirminnileg. Ófáar ferðir fór ég niður á stöð til að tala við pabba, þó oftast þegar ég var búin að gera eitt- hvað af mér, hann var góður huggari og alltaf leið mér betur eftir að hafa talað við hann. „Sirrý mín, það er alltaf best segja hlutina eins og þeir eru,“ var hann vanur að segja. Það er óhætt að segja að pabbi hafi verið félagslyndur. Hann tók virkan þátt í félagslífi í Nes- hreppi, einnig hafði hann mikinn áhuga á pólitík og sat meðal ann- ars í sveitarstjórn og síðar varð hann sveitarstjóri í Neshreppi ut- an ennis um árabil. „Hækkaðu í úvarpinu, það eru að koma fréttir,“ alla fréttatíma hvort sem var í útvarpi eða sjón- varpi þurfti hann að heyra og sjá og við systkinin máttum helst ekki mæla orð af vörum á meðan. Það var okkur vissulega mikið áfall þegar pabbi og mamma slitu samvistir og í kjölfarið flutti hann til Reykjavíkur. Sambandið varð óneitanlega minna en við spjöll- uðum alltaf saman í síma. Það var komið kerfi hjá okkur, ég hringdi alltaf á sunnudögum og ef það kom fyrir að ég hringdi ekki á réttum tíma þá hringdi hann. „Heyrðu elskan, þú hringd- ir aldrei í gær.“ Það var samt aldrei neitt mál því pabbi var mjög skilningsríkur. Pabbi elskaði fjölskyldu sína mikið og fylgdist vel með. Elsku pabbi, það hafa verið þung spor að stíga síðustu vikur eftir að þú veiktist. Í ljósi að- stæðna var ekki hægt að vera hjá þér með eðlilegum hætti. Síminn kom sterkur inn og töl- uðum við saman á hverjum degi síðustu vikurnar. Alltaf barstu þig vel og vildir örugglega ekki valda mér auka áhyggjum eða hræða okkur. Það var mér mikils virði að ná að kveðja þig í hinsta sinn. Ég trúi því að þú sért kominn á góðan stað. Mér þykir óendanlega vænt um þig, elsku pabbi minn. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Þín dóttir Sirrý. Gunnar Már Kristófersson ✝ GunnþórunnFriðriksdóttir fæddist á Felli í Skeggjastaða- hreppi í Norður- Múlasýslu 28. sept- ember 1929. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Tjörn á Þing- eyri þann 31. októ- ber 2020. Foreldrar henn- ar voru Friðrik Jó- hann Oddsson bóndi, f. 1894, d. 1973, og Helga Sigurðardóttir húsmóðir, f. 1894, d. 1938. Systkini Gunnþórunnar eru Guðríður, f. 1923, d. 2008, Kristín Gunnlaug, f. 1924, d. 2011, Sigurður Skúli, f. 1925, d. 1996, Gunnhildur, f. 1926, d. 2013, Oddur, f. 1926, d. 1927, Oddný Sigríður, f. 1928, d. 1981, Helga Guðrún, f. 1932, d. 1945, Júlía, f. 1934, og Sigurjón Jósep, f. 1936, d. 2007. Bróð- ursonur Helgu, Sigurður Sig- urðarson, f. 1914, d. 1983, var einnig alinn upp á Felli. Gunnþórunn giftist Jóni Kristni Valgeirssyni bónda og ferjumanni, f. 25. október 1927, d. 7. maí 1999, frá Gemlufalli í Mýr- arhreppi, þann 31. ágúst 1961. Dóttir þeirra er Helga Ingibjörg Jónsdóttir, f. 3. febr- úar 1960, dóttir hennar er Þór- unn Hildur Ólafsdóttir, f. 6. júlí 1995. Gunnþórunn var húsmóðir og bóndi á Lækjarósi í Dýrafirði. Útför Gunnþórunnar verður gerð frá Mýrarkirkju 14. nóv- ember 2020, klukkan 14. Streymt verður frá útför: https://tinyurl.com/y296vmwz Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat Það er nú margt hægt að segja um þessa merku konu, hana ömmu mína, en nú er hún komin til afa eftir mikinn sökn- uð og eflaust hafa þau það mjög gott og eru farin að dansa og fagna sínu 60 ára brúðkaups- afmæli á næsta ári sameinuð. Það eru margir sem dýrkuðu og dáðu hana Tótu á Lækjarósi, alltaf var talað til hennar með hlýleika og hjálpsemi. Margt kemur upp í huga minn, það að ég og amma létum okkur aldrei leiðast saman, ó, hvað við spiluðum mörg spil saman, ég get ekki talið á fingr- um mínum, mikið held ég upp á þær stundir. Við spiluðum langt fram á nætur og í hvert sinn hafði hún vinninginn, mætti segja að hún hafi verið göldr- ótt. Tóta amma og ég fórum alltaf niður í fjöruna við Lækj- arós að tína skeljar, okkur þótti hafið ávallt fagurt og friðsælt. Nú þegar ég horfi út á hafið þá sé ég hana með mér hvert sem ég fer. Henni þóttu harmonikku- hljómar alveg dásamlegir og gat hlustað tímunum saman. Alltaf hafði hún gaman af kindunum sínum í sveitinni, litlu lömbin voru eins og börnin hennar. Henni þótti sveitalífið dásamlegt og þar á meðal fugl- arnir. Hún þekkti hverja ein- ustu tegund. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Amma mín var mér dýrmæt rós, ljós mitt fagra og augna- yndi. Það sem ég elska þig, elsku hjartans amma mín, minning þín lifir með mér. Góða ferð. Kveðja, þín ömmustelpa, Þórunn Hildur. Fyrir tilviljun lágu leiðir okkar Tótu frænku minnar aft- ur saman skömmu eftir síðustu aldamót, í fermingarveislu á Suðureyri. Faðir fermingar- barnsins hafði verið í sveit hjá þér og Jóni á Lækjarósi. Þetta var óvæntur og ánægjulegur endurfundur, í æsku minni höfðum við hist þegar fjölskyld- an mín lagði leið sína í sum- arferðir um Vestfirði og komið við á Lækjarósi þegar heyskap- ur og aðrar annir stóðu yfir. Í minningunni var ferðin upp snarbratta Hrafnsfjarðarheið- ina eftirminnileg, skyldi bíllinn komast upp? Með lagni bílstjór- ans tókst það. Í nokkur skipti síðari ár höfum við ekið með þig yfir heiðina, á mun betri bíl og betri vegum en voru í þá daga. Síðan þá höfum við Sigurrós heimsótt Tótu frænku á Lækj- arósi næstum því árlega. Gist- um við oft á hlaðinu hjá henni og nutum skemmtilegra sam- verustunda og útsýnisins yfir Dýrafjörðinn. Þegar þú bjóst ein á Lækjarósi fórum við í bíl- túra og kynntumst við góðum og hjálpsömum sveitungum þín- um í leiðinni. Þú varst alltaf til í að koma með okkur á nýjar slóðir og ævintýraferðir eins og ferðin í Lokinhamra og veginn um Svalvoga, upp á Bolafjallið, Sandafellið, yfir Kvennaskarð og á Ingjaldssand, ekki skorti þig kjark í þessar ferðir. Til að þú kæmist upp í jeppann þurfti að notast við tröppur, sem við nefndum Tótutröppur. Eftir að þú varst komin á Tjörn urðu ferðirnar styttri. Á áttræðisafmæli þínu orti Valdimar Gíslason á Mýrum um þig: Ellimörk eygjum vart, er þeim lítt að flíka. Með hörund slétt og hárið svart hún á sér fáa líka. Þú varst alveg einstök. Glað- værð og létt lund einkenndi Tótu og svarði hún oft fyrir sig með hnyttnum og skemmtileg- um tilsvörum. Það kom fyrir að hún væri stríðin, en það var vel meint. Síðustu árin dvaldi Tóta á Tjörn á Þingeyri og naut þar góðrar umhyggju og alúðar starfsfólksins. Við kveðjum þig í dag, en minningarnar lifa áfram. Við vottum Helgu og Þórunni Hildi samúð. Ingvar og Sigurrós. Gunnþórunn Friðriksdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.