Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 ✝ Aðalbjörn Arn-ar Aðalbjörns- son fæddist í Hvammi í Þist- ilfirði 14. apríl 1935. Hann lést á dvalarheimilinu Nausti 8. nóvember 2020. Foreldrar hans voru Að- albjörn Arn- grímsson, f. 8. mars 1907, d. 23. jan. 1989, og Jóhanna María Jónsdóttir, f. 27. nóv. 1899, d. 6. ágúst 1986. Systkini: Jón Aðalbjörnsson, f. 29. sept. 1927, d. 18. ágúst 2004, Guðrún Ragnhildur Að- albjörnsdóttir, f. 20. ágúst 1929, d. 5. mars 1944. Ari Aðalbjörns- son, f. 20. ágúst 1929, d. 4. mars 1986. Aðalbjörn giftist Sigríði Kristínu Andrésdóttur á jóla- dag 1961 og börn þeirra eru Gunnur Andrea Jóhannsdóttir, f. 7. jan. 1960, Arna Ragnhildur Arnarsdóttir, f. 13. júní 1961, Aðalbjörn Arnarsson, f. 15. nóvember 1962, Ölver H. Arn- arsson, f. 9. maí 1973. Arna á þrjú börn, Bjarna, Írisi Sigríði, hún býr með Svavari Dór og þau eiga saman tvö börn. Yngst er Nína Rut og hún á tvær dæt- réðst hann í ríkislögregluna á Keflavíkurflugvelli og sem lög- regluþjónn á Þórshöfn. Hjónin fluttu í Hvamm og stofnuðu þar nýbýlið Víðimörk og stunduðu búskap um 13 ára skeið, ásamt því að reka vélaverkstæði í Hvammi. Á seinni búskaparár- unum keypti Arnar jarðýtu, og vann með búinu á henni ásamt því að gera út á grásleppubát á vorin. 1976 brugðu þau búi og ákváðu að byggja á Þórshöfn, það varð úr. Í því húsi bjuggu þau í 44 ár. Mestan sinn starfs- aldur starfaði Arnar sem verk- taki, vann sjálfur á jarðýtu, átti verkstæði og gerði yfirleitt við sínar vélar sjálfur. Þeir feðgar stofnuðu félagið Arnar og Að- albjörn sf. utan um jarðýtu- rekstur og ráku það í nokkur ár. Hann vann sem lagermaður á bílaverkstæði KL. Arnar átti lengstan hluta ævi sinnar smá- báta, sem hann gerði út með annarri vinnu. Arnar var vara- maður í stjórn Sparisjóðs Þórs- hafnar og nágrennis, sat um árabil í stjórn veiðifélags Hafralónsár, var í Lionsklúbbi Þórshafnar um skeið. Útförin verður gerð frá Þórshafnarkirkju í dag, 14. nóvember 2020, klukkan 14. Fjöldatakmarkanir leyfa bara nánustu ættingja við athöfnina. Útförinni verður streymt: https://livestream.com/luxor/arnar Virkan hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat ur. Aðalbjörn og sambýliskona hans, Jóhanna Sigríður, eiga saman Hildi Kristínu sem býr með Daníel Harð- arsyni, Hildur á tvær dætur og Daníel fjögur börn. Jóhanna Regína er gift Jóni Haf- liðasyni, saman eiga þau tvær dætur, fyrir á Jón einn son. Yngstur er Arnar og hann býr með Lovísu Mar- gréti. Ölver Hjaltalín er kvæntur Önnu Maríu, saman eiga þau þrjú börn, Gísla, Andreu og Maríu. Unnusta Gísla heitir Hekla Gunnarsdóttir. Skólagangan var stutt og í formi farskóla í sveitinni. Arn- ar ólst upp við hefðbundin sveitastörf í Hvammi, ásamt smíðavinnu frá unga aldri með afa sínum, bæði við trésmíðar og járnsmíðar. Eftir að hann hleypti heimdraganum fór Arn- ar á vertíð suður og vann við landvinnslu á fiski. Fór aftur til Þórshafnar og réð sig á bíla- verkstæðið hjá Hauki frænda sínum. Gerði út vörubíl um nokkurra ára skeið. Eftir það Elsku pabbi. Mikill er miss- irinn. Ég var lamaður af sorg í tvo sólarhringa, en er aðeins að ná vopnum mínum á ný. Margs er að minnast. Ég naut þeirra forréttinda að vera yngstur af systkinunum. Því höfðum við meiri tíma einir. Ég var alltaf mjög mikill pabbastrákur og naut þess að þvælast með þér í öllu sem þú varst að brasa við. Liggja á olnboga þínum og hlusta á þig lesa fyrir mig. Ófá- ar ferðir fórum við til að gera við jarðýtuna þegar ég var 10 til 12 ára, alltaf virtist ýtan þannig staðsett að nauðsynlegt væri að ég keyrði hana nokkra metra og dræpi svo á henni. Það var ekki leiðinlegt fyrir 12 ára gutta. Þér þótti ekkert til- tökumál að ég færi á snjósleða í skólann 14 ára og enn minna mál að ég færi með á rjúpna- veiðar vopnaður riffli, fyrir fermingu. Þú varst alltaf fynd- inn og skemmtilegur og mér nægði bara að þvælast með sama hvert erindið var. Þú tal- aðir gullaldarmál, og nýt ég endalaust góðs af því að hafa al- ist upp við það orðfæri. Ég hefði ekki getað hugsað mér betri pabba, enda er óvíst að þeir séu til. Þú treystir mér strax eins og fullorðnum manni, og 15 ára fékk ég að vera með Víði ÞH á skaki aleinn. Allar snjósleðaferðirnar, gjarnan haft söngvatn á fleyg með og tekið af því á áningarstöðum. Þú varst hraustmenni, ótrú- lega handstór og handsterkur. Man sögur sem mér voru sagð- ar að þú hefðir dregið alla í kefli og smeyg, sem voru kraf- taíþróttir þess tíma enda voru hendurnar á þér eins og skrúf- stykki. En ótrúlega flinkur í höndunum, góður viðgerðamað- ur og suðumaður. Hrekkjalóm- ur varstu eins og flestir Háv- arðsstaðamenn. Ein saga er sérlega minnisstæð, þá varstu skotmaður á sláturhúsinu, skaust lamb og þegar það var dautt stakkstu steypustyrktar- teini ofan í hálsinn á því. Það þarf ekki mikið að fjölyrða um það hvernig manninum hinum megin við vegginn gekk að skera hausinn af, sargandi í steypustyrktarteininum. Þú hafðir fallega söngrödd, varst kvennaljómi, og eins og þær sögðu á sjúkrahúsinu á Húsavík „alger sjarmör“ fram í andlátið. Mér er ákaflega minnisstætt símtal sem við áttum. Þú orðinn áttræður, alveg ganglaus. „Það er grafa til sölu í Skagafirði.“ Ég spyr: hvað ætlar þú að gera með hana, þú kemst ekki einu sinni upp í hana. Gamli svaraði, „nei, ekki hjálparlaust, en ég gæti sem best unnið á henni all- an daginn, ef einhver gæti lyft mér upp í hana.“ Hverju svarar maður svona? Alltaf þessi hug- ur til framkvæmda þótt getan væri horfin úr skrokknum. Allir vinir mínir urðu þínir vinir líka. Öllum fannst þú svo indæll. Einn þeirra sagði um daginn „Mér finnst eins og ég hafi allt- af þekkt pabba þinn.“ Það sem við áttum var hrein og falleg vinátta, það leið varla sá dagur að við töluðum ekki saman í síma. Ég mun sakna þeirra sím- tala alveg hroðalega mikið. Ég var ekki bara að missa pabba minn, heldur líka minn allra besta vin í lífinu. Fyrirmynd mína. Guð geymi þig og varðveiti, elsku pabbi minn. Við lítum eft- ir mömmu fyrir þig. Góða ferð, elsku pabbi minn, í sumarland- ið. Kveðja Ölver. Elsku yndislegi tengdafaðir minn er dáinn, það brast eitt- hvað inni í mér þegar ég fékk fréttirnar. Þegar ég hitti Arnar tengda- föður minn í fyrsta sinn, sá ég strax að þarna var stórmenni. Hann var í skúrnum, skítugur upp fyrir haus að brasa í ein- hverri vél, algjörlega á sínum heimavelli. En þegar hann leit upp og horfði í augun á mér átti hann mig skuldlaust. Ég segi alltaf að ég hafi unnið í tengda- foreldralottóinu því betra fólk er ekki hægt að hafa í sínu horni. Heiðarleg, ráðagóð, húm- orísk og skemmtileg. Ég á eftir að sakna þess að sitja við eld- húsborðið á Sunnuveginum og spjalla um allt og ekkert, næla okkur í súkkulaðimola úr búrinu og leysa eins og eina krossgátu, horfa á söngva- keppnir og spurningaþætti. Hlusta á allar sögurnar sem hann sagði svo listavel eða bara sitja í þögninni, allt var gott með tengdapabba. Arnar var einstaklega barn- góður og sá ekki sólina fyrir öll- um afagullunum. Hann var ákaflega stoltur af þeim öllum og hafði ómældan áhuga á öllu því sem þau voru að gera, allt- af. Hann var með stóran faðm og umvafði hvert þeirra með ást og kærleika. Skarðið er stórt en við yljum okkur við minningar um fal- legan og góðhjartaðan mann. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku tengdapabbi, takk fyr- ir allt. Þín tengdadóttir Anna María. Elsku afi. Orð geta ekki lýst því hversu sárt við söknum þín. Við erum svo þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum sam- an. Þú varst með einstaka nær- veru og ljúfur maður. Þú sast aldrei auðum höndum, hvort sem það var að grúska í skúrn- um, bátnum eða bílum. Einstak- lega laginn og lausnamiðaður því í þinni orðabók var orðið ónýtt ekki til. Þú varst með hjarta úr gulli og voru öll barnabörnin þín kölluð afagull. Þú kenndir okkur þakklæti og varst alltaf tilbúinn til að hjálpa okkur, sama hversu stórt eða smátt verkefnið var. Allt sem þú kenndir okkur er ómetan- legt. Við vorum alltaf velkomin og áttum helst að koma með mola sem við gætum gætt okk- ur á saman og spjallað um dag- inn og veginn. Miklavatnsferðir með þér standa upp úr þar sem við brölluðum margt og þar feng- um við að sitja undir stýri og keyra. Þegar þú komst í bæjarferð var fyrsta stoppið á KFC þar sem þú bauðst okkur öllum upp á kjúkling sem þótti skondið þar sem þú hafðir oft orð á því að kjúklingur væri ekki manna- matur en KFC þótti þér þó af- skaplega góður matur. Þegar þú horfðir á okkur með þessum góðlegu og hlýju augum og sagðir að við værum afagullin þín með bros á vör fylltist maður ást og fann hversu mikla væntumþykju þú barst til okkar allra. Ást okkar til þín fá orð vart lýst. Þessar dýrmætu minningar munu lifa með okkur barnabörnunum þín- um að eilífu. Kveðja, afagullin þín úr Kópavogi, Bjarni, Íris, Nína, Gísli, Andrea og María. Nafni Elsku afi, mikið er erfitt að missa þig, þú hefur verið besti afi og vinur sem hægt er að hugsa sér, við áttum alveg sér- staka tengingu sem mér þykir óendanlega vænt um. Ýmislegt brösuðum við sam- an í gegnum tíðina og lærði ég margt af þér og ömmu. Mér þótti alltaf best að vera með þér að brasa hvort sem það var úti í skúr eða kúra hjá þér í stólnum og horfa á Tomma og Jenna. Það var alltaf gaman þegar við komum inn úr skúrnum með skítugar hendur og fórum inn til ömmu í kaffi þá var amma ekki mjög hrifin og rak okkur inn að þvo okkur betur, alltaf kom sama brosið hjá þér þegar hún bað okkur um þetta. Allar ómetanlegu stundirnar með þér og pabba í Miklavatni að brasa við alls konar smíðavinnu og viðhaldsvinnu, og allar stund- irnar niðri við vatn þar sem þú hjálpaðir mér við að veiða með veiðistöng þó að þú vissir alveg að silungurinn myndi ekkert bíta á. Þú hafðir endalausa þolin- mæði og leyfðir mér alltaf að koma með í alls konar ævintýri. Læt ljóð fylgja hér með sem mér finnst fallegt og eiga vel við: Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á ör- skammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo fallegur, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin - mig setur hljóða, við hittumst samt aftur á ný. Megi algóður guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ókunnur) Afi, ég er þér óendanlega þakklátur fyrir allt sem þú gafst mér. Elsku afi, þú hefur alltaf átt og munt alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Þakka þér fyrir allan okkar tíma saman og allt sem þú kenndir mér. Þinn nafni Arnar Aðalbjörnsson. Elsku besti afi okkar. Mikið var erfitt að fá símtalið um að þú værir farinn. Það er ekkert sem getur undirbúið mann fyrir að missa ástvin. Þetta gerðist hratt og við er- um afar þakklátar fyrir að þú þjáðist ekki eða fannst til. Mest þakklátar erum við fyr- ir allar minningarnar, allt sem þú kenndir okkur og gafst okk- ur. Minningar frá öllum jólun- um sem við áttum saman. Minningar frá Miklavatni, þangað fórum við öll saman heilu helgarnar og oft komum við um helgar að heimsækja ykkur pabba sem gátuð verið þarna dögum saman að brasa í alls konar smíðavinnu eða við- gerðum. Allir kaffitímarnir og matarboðin á Sunnuveginum, ævinlega var þetta eins og veisluborð, allt frá sviðalöppum og signum fiski sem vöktu mis- mikla hrifningu, til kjötsúpunn- ar hennar ömmu, lambalæris og tölum ekki um saltkjötið og baunirnar. Allt sem amma eld- aði og bakaði var alltaf best, einhvern veginn var alltaf pláss fyrir alla við eldhúsborðið. Best fannst þér að vinna á ýtunum þínum, komst heim í hádegis- mat og lagðist svo í bekkinn þinn inni á skrifstofu til að hlusta á hádegisfréttirnar áður en að þú færir aftur út að vinna, þú hélst þessu áfram eft- ir að þú hættir að vinna, nema þá fórstu út í bílskúr að brasa í alls konar hlutum. Þú hefur alla tíð verið alveg ótrúlega laghentur og alltaf til í að hjálpa þegar þurfti að laga eitthvað. Við höfum alltaf sagt „Ef afi og pabbi geta ekki lagað það þá er það ónýtt.“ Þegar við fórum að eignast börn þá kallaðir þú þau afagull eins og þú kallaðir okkur öll barnabörnin, ásamt öðrum gælunöfnum. Þú knúsaðir þau og kysstir eins og okkur, ævinlega laum- aðir þú einhverju gotteríi sem þú áttir ofan í skúffu til þeirra. Það er ekki hægt að lýsa því með orðum hvað þið amma haf- ið reynst okkur vel alla tíð, það var ómetanlegt að geta hlaupið margar ferðir á dag upp kirkju- túnið frá þriggja ára aldri til að koma til ykkar ömmu, yfirleitt var amma inni að baka og þú úti í bílskúr að gera við ein- hverja bíla eða með bátinn inni að gera hann fínan. Þú skilur eftir þig stórt skarð sem erfitt verður að venjast. Þú skilur líka eftir þig svo mikla hlýju og hjartagæsku. Við vitum að það voru margir góðir sem tóku á móti þér þeg- ar þú fórst. Við vitum líka að þú vakir yf- ir ömmu og okkur öllum. Við skulum passa upp á ömmu fyrir þig og hjálpa henni í gegnum þennan missi. Við elskum þig og gleymum þér aldrei. Takk fyrir allt, elsku afi. Þín afagull Hildur Kristín Aðalbjörnsdóttir og Jóhanna Regína Aðalbjörnsdóttir. Fyrrverandi tengdafaðir, Arnar Aðalbjörnsson, afi þriggja barna okkar Örnu og langafi 4 barna þeirra. Hans verður sárt saknað í fjölskyldu okkar. Hjálpsamur, kærleiksríkur, skilningsríkur, samúðarríkur, vongóður, glaður og ástríkur eru orð sem koma mér til hugar þegar lýsa á Arnari. Ég kynntist Arnari 19 ára að aldri og fann strax þegar ég horfði í augu þessa manns að hér væri maður sem geislaði birtu frá hjarta sínu og sál. Arnar og Sigga Stína opnuðu heimili sitt fyrir mig og þótti mér ég alltaf velkominn þaðan í frá. Hér var heimili sem mig langaði að vera á og fann þar ró og frið. Hér fannst mér heima- höfnin mín vera. Arnar var klettur og í mínum huga var hann fullkomin fyr- irmynd. Hann kenndi mér margt og hefði ég getað lært mun meira ef ég hefði verið móttækilegri fyrir því. Hann var rólegur herramað- ur og þegar upp komu erfiðleik- ar tók hann þeim af yfirvegun. Eitt af mörgum atvikum sem koma mér til hugar var þegar rör stíflaðist fyrir utan húsið um miðjan vetur, með tilheyr- andi frosti, vindi og snjó. Þetta stórviðri kom ekki í veg fyrir að hann tæki sig til og græfi upp freðna jörðina milli húss og bílskúrs. Eftir að hann hafði klárað verkið gat ég ekki annað en dáðst að dugnaðinum og spurði hvort hann fyndi ekki til í þessum stóru kraftmiklu höndum, þær voru ískaldar. Hann horfði til mín brosandi og leit beint í augun á mér og sagði „jú jú“ og fór inn í hús, án þess að segja nokkuð meir. Þetta var hann Arnar, alltaf ró- legur og yfirvegaður þegar eitt- hvað erfitt lá fyrir og gekk að verkinu eins og sjálfsögðum hlut án þess að vilja hrós né kossa. Börnin okkar Örnu voru allt- af spennt fyrir því að heim- sækja afa og ömmu. Hans verð- ur sárt saknað en minning hans lifir í sögum og anda. Þinn fyrrverandi tengdason- ur, Már. Yndislegur vinur er fallinn frá. Þrátt fyrir að okkar kynni haft aðeins staðið í einn áratug var vináttan gefandi og traust. Við kynntumst sæmdarhjónun- um á Heilsustofnun í Hvera- gerði. Arnar vakti strax máls á því hve mikilvægt væri fyrir mig að koma norður og aka út á Langanes með viðkomu á æsku- slóðum mömmu í Skoruvík þar sem hún var fædd og uppalin. Við renndum til Þórshafnar næsta sumar og áttum dýrð- ardaga á heimili Siggu og Arn- ars þar sem sonur þeirra Ölver sló upp stórveislum hvern dag, en hann var í heimsókn með fjölskyldu sína hjá foreldrunum. Við fórum þetta á tveimur stórum jeppum, við hjónin ásamt Siggu og Arnari, en Öl- ver sonur þeirra og hans fjöl- skylda með honum í bíl. Ferðin út á Langanes var samfellt æv- intýri. Að fara þessa áður fá- förnu leið með heimamönnum sem þekktu hvern krók og kima og kunnu einnig góð skil á for- feðrum mínum, amma var frá Skoruvík, en afi var frá Skálum á Langanesi en milli þessara staða eru ca. 4 km. Fyrir ferð- ina út á Nesið höfðu Sigga og Anna tengdadóttir hennar útbú- ið ríkulegt nesti til fararinnar og voru gerð þrjú „veislustopp“ í ferðinni. Eftir þennan stór- kostlega dag saman héldum við góðu sambandi ýmist um síma eða sendum bréf milli lands- hornanna. Síðastliðið sumar hringdi Arnar vinur minn og spurði hvort við hefðum ekki verið búin að ákveða að koma á Þórshöfn í sumar. Hann sagði við erum að flytja í Naust, sem er Dvalarheimili, en eigum hús- ið okkar tilbúið. Við ætlum ekk- ert að sleppa því fyrr en þið er- uð búin að koma og gista í því. Þar er nóg pláss eins og þú veist. Tveimur dögum síðar vor- um við mætt á Þórshöfn og átt- um enn einu sinni dýrðardaga með Arnari og fjölskyldu hans. Ölver sonur þeirra var mættur líkt og í fyrri ferð okkar og nú á glæsilegum húsbíl. Hann hopp- aði sem fyrr í eldhúsið hjá „mömmu“ og galdraði fram hverja stórveisluna af annarri. Á æskudögum mínum dvaldi ég í eitt og hálft ár hjá ömmu og afa á Þórshöfn. Ég gekk í barnaskóla hjá Ólafi Möller og man vel eftir honum þótt liðin séu um 70 ár síðan. Þegar ég lít um öxl finnst mér tíminn á Þórshöfn hafa verið einstaklega yndislegur og góður tími. Mér finnst svo ánægjulegt að muna bæinn svona eins og hann var, húsaskipan og hve snjórinn var mikill um veturinn. Alltaf var nægilegt að bíta og brenna, nógur matur í kjallaranum hjá ömmu og afa, AGA-kokseldavél- in hélt góðum yl í litla kotinu, sem hét Sólberg í þá gömlu góðu daga. Það hefur verið mér og Ið- unni minni ómetanlegt að eign- ast þessa góðu vini, Siggu, Arn- ar og stórfjölskyldu þeirra. Við þökkum yndislegar og gefandi samverustundir og trausta vináttu. Góður Guð blessi minningu Arnars. Við kveðjum hann með miklum söknuði og sendum Siggu og börnum þeirra og fjölskyldum okkar ljúfustu samúðarkveðju og þakkir fyrir einstaka og fal- lega vináttu. Ástarkveðjur. Iðunn og Ólafur Gränz. Aðalbjörn Arnar Aðalbjörnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.