Morgunblaðið - 14.11.2020, Page 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
✝ Aðalbjörn Arn-ar Aðalbjörns-
son fæddist í
Hvammi í Þist-
ilfirði 14. apríl
1935. Hann lést á
dvalarheimilinu
Nausti 8. nóvember
2020. Foreldrar
hans voru Að-
albjörn Arn-
grímsson, f. 8.
mars 1907, d. 23.
jan. 1989, og Jóhanna María
Jónsdóttir, f. 27. nóv. 1899, d. 6.
ágúst 1986.
Systkini: Jón Aðalbjörnsson,
f. 29. sept. 1927, d. 18. ágúst
2004, Guðrún Ragnhildur Að-
albjörnsdóttir, f. 20. ágúst 1929,
d. 5. mars 1944. Ari Aðalbjörns-
son, f. 20. ágúst 1929, d. 4.
mars 1986.
Aðalbjörn giftist Sigríði
Kristínu Andrésdóttur á jóla-
dag 1961 og börn þeirra eru
Gunnur Andrea Jóhannsdóttir,
f. 7. jan. 1960, Arna Ragnhildur
Arnarsdóttir, f. 13. júní 1961,
Aðalbjörn Arnarsson, f. 15.
nóvember 1962, Ölver H. Arn-
arsson, f. 9. maí 1973. Arna á
þrjú börn, Bjarna, Írisi Sigríði,
hún býr með Svavari Dór og
þau eiga saman tvö börn. Yngst
er Nína Rut og hún á tvær dæt-
réðst hann í ríkislögregluna á
Keflavíkurflugvelli og sem lög-
regluþjónn á Þórshöfn. Hjónin
fluttu í Hvamm og stofnuðu þar
nýbýlið Víðimörk og stunduðu
búskap um 13 ára skeið, ásamt
því að reka vélaverkstæði í
Hvammi. Á seinni búskaparár-
unum keypti Arnar jarðýtu, og
vann með búinu á henni ásamt
því að gera út á grásleppubát á
vorin.
1976 brugðu þau búi og
ákváðu að byggja á Þórshöfn,
það varð úr. Í því húsi bjuggu
þau í 44 ár. Mestan sinn starfs-
aldur starfaði Arnar sem verk-
taki, vann sjálfur á jarðýtu, átti
verkstæði og gerði yfirleitt við
sínar vélar sjálfur. Þeir feðgar
stofnuðu félagið Arnar og Að-
albjörn sf. utan um jarðýtu-
rekstur og ráku það í nokkur
ár. Hann vann sem lagermaður
á bílaverkstæði KL. Arnar átti
lengstan hluta ævi sinnar smá-
báta, sem hann gerði út með
annarri vinnu. Arnar var vara-
maður í stjórn Sparisjóðs Þórs-
hafnar og nágrennis, sat um
árabil í stjórn veiðifélags
Hafralónsár, var í Lionsklúbbi
Þórshafnar um skeið.
Útförin verður gerð frá
Þórshafnarkirkju í dag, 14.
nóvember 2020, klukkan 14.
Fjöldatakmarkanir leyfa bara
nánustu ættingja við athöfnina.
Útförinni verður streymt:
https://livestream.com/luxor/arnar
Virkan hlekk á streymi má
nálgast á:
https://www.mbl.is/andlat
ur.
Aðalbjörn og
sambýliskona hans,
Jóhanna Sigríður,
eiga saman Hildi
Kristínu sem býr
með Daníel Harð-
arsyni, Hildur á
tvær dætur og
Daníel fjögur börn.
Jóhanna Regína
er gift Jóni Haf-
liðasyni, saman
eiga þau tvær dætur, fyrir á
Jón einn son. Yngstur er Arnar
og hann býr með Lovísu Mar-
gréti.
Ölver Hjaltalín er kvæntur
Önnu Maríu, saman eiga þau
þrjú börn, Gísla, Andreu og
Maríu. Unnusta Gísla heitir
Hekla Gunnarsdóttir.
Skólagangan var stutt og í
formi farskóla í sveitinni. Arn-
ar ólst upp við hefðbundin
sveitastörf í Hvammi, ásamt
smíðavinnu frá unga aldri með
afa sínum, bæði við trésmíðar
og járnsmíðar. Eftir að hann
hleypti heimdraganum fór Arn-
ar á vertíð suður og vann við
landvinnslu á fiski. Fór aftur til
Þórshafnar og réð sig á bíla-
verkstæðið hjá Hauki frænda
sínum. Gerði út vörubíl um
nokkurra ára skeið. Eftir það
Elsku pabbi. Mikill er miss-
irinn. Ég var lamaður af sorg í
tvo sólarhringa, en er aðeins að
ná vopnum mínum á ný. Margs
er að minnast. Ég naut þeirra
forréttinda að vera yngstur af
systkinunum. Því höfðum við
meiri tíma einir. Ég var alltaf
mjög mikill pabbastrákur og
naut þess að þvælast með þér í
öllu sem þú varst að brasa við.
Liggja á olnboga þínum og
hlusta á þig lesa fyrir mig. Ófá-
ar ferðir fórum við til að gera
við jarðýtuna þegar ég var 10
til 12 ára, alltaf virtist ýtan
þannig staðsett að nauðsynlegt
væri að ég keyrði hana nokkra
metra og dræpi svo á henni.
Það var ekki leiðinlegt fyrir 12
ára gutta. Þér þótti ekkert til-
tökumál að ég færi á snjósleða í
skólann 14 ára og enn minna
mál að ég færi með á rjúpna-
veiðar vopnaður riffli, fyrir
fermingu. Þú varst alltaf fynd-
inn og skemmtilegur og mér
nægði bara að þvælast með
sama hvert erindið var. Þú tal-
aðir gullaldarmál, og nýt ég
endalaust góðs af því að hafa al-
ist upp við það orðfæri. Ég
hefði ekki getað hugsað mér
betri pabba, enda er óvíst að
þeir séu til. Þú treystir mér
strax eins og fullorðnum manni,
og 15 ára fékk ég að vera með
Víði ÞH á skaki aleinn. Allar
snjósleðaferðirnar, gjarnan haft
söngvatn á fleyg með og tekið
af því á áningarstöðum.
Þú varst hraustmenni, ótrú-
lega handstór og handsterkur.
Man sögur sem mér voru sagð-
ar að þú hefðir dregið alla í
kefli og smeyg, sem voru kraf-
taíþróttir þess tíma enda voru
hendurnar á þér eins og skrúf-
stykki. En ótrúlega flinkur í
höndunum, góður viðgerðamað-
ur og suðumaður. Hrekkjalóm-
ur varstu eins og flestir Háv-
arðsstaðamenn. Ein saga er
sérlega minnisstæð, þá varstu
skotmaður á sláturhúsinu,
skaust lamb og þegar það var
dautt stakkstu steypustyrktar-
teini ofan í hálsinn á því. Það
þarf ekki mikið að fjölyrða um
það hvernig manninum hinum
megin við vegginn gekk að
skera hausinn af, sargandi í
steypustyrktarteininum. Þú
hafðir fallega söngrödd, varst
kvennaljómi, og eins og þær
sögðu á sjúkrahúsinu á Húsavík
„alger sjarmör“ fram í andlátið.
Mér er ákaflega minnisstætt
símtal sem við áttum. Þú orðinn
áttræður, alveg ganglaus. „Það
er grafa til sölu í Skagafirði.“
Ég spyr: hvað ætlar þú að gera
með hana, þú kemst ekki einu
sinni upp í hana. Gamli svaraði,
„nei, ekki hjálparlaust, en ég
gæti sem best unnið á henni all-
an daginn, ef einhver gæti lyft
mér upp í hana.“ Hverju svarar
maður svona? Alltaf þessi hug-
ur til framkvæmda þótt getan
væri horfin úr skrokknum. Allir
vinir mínir urðu þínir vinir líka.
Öllum fannst þú svo indæll.
Einn þeirra sagði um daginn
„Mér finnst eins og ég hafi allt-
af þekkt pabba þinn.“ Það sem
við áttum var hrein og falleg
vinátta, það leið varla sá dagur
að við töluðum ekki saman í
síma. Ég mun sakna þeirra sím-
tala alveg hroðalega mikið. Ég
var ekki bara að missa pabba
minn, heldur líka minn allra
besta vin í lífinu. Fyrirmynd
mína.
Guð geymi þig og varðveiti,
elsku pabbi minn. Við lítum eft-
ir mömmu fyrir þig. Góða ferð,
elsku pabbi minn, í sumarland-
ið. Kveðja
Ölver.
Elsku yndislegi tengdafaðir
minn er dáinn, það brast eitt-
hvað inni í mér þegar ég fékk
fréttirnar.
Þegar ég hitti Arnar tengda-
föður minn í fyrsta sinn, sá ég
strax að þarna var stórmenni.
Hann var í skúrnum, skítugur
upp fyrir haus að brasa í ein-
hverri vél, algjörlega á sínum
heimavelli. En þegar hann leit
upp og horfði í augun á mér átti
hann mig skuldlaust. Ég segi
alltaf að ég hafi unnið í tengda-
foreldralottóinu því betra fólk
er ekki hægt að hafa í sínu
horni. Heiðarleg, ráðagóð, húm-
orísk og skemmtileg. Ég á eftir
að sakna þess að sitja við eld-
húsborðið á Sunnuveginum og
spjalla um allt og ekkert, næla
okkur í súkkulaðimola úr
búrinu og leysa eins og eina
krossgátu, horfa á söngva-
keppnir og spurningaþætti.
Hlusta á allar sögurnar sem
hann sagði svo listavel eða bara
sitja í þögninni, allt var gott
með tengdapabba.
Arnar var einstaklega barn-
góður og sá ekki sólina fyrir öll-
um afagullunum. Hann var
ákaflega stoltur af þeim öllum
og hafði ómældan áhuga á öllu
því sem þau voru að gera, allt-
af. Hann var með stóran faðm
og umvafði hvert þeirra með
ást og kærleika.
Skarðið er stórt en við yljum
okkur við minningar um fal-
legan og góðhjartaðan mann.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Elsku tengdapabbi, takk fyr-
ir allt.
Þín tengdadóttir
Anna María.
Elsku afi. Orð geta ekki lýst
því hversu sárt við söknum þín.
Við erum svo þakklát fyrir allar
stundirnar sem við áttum sam-
an. Þú varst með einstaka nær-
veru og ljúfur maður. Þú sast
aldrei auðum höndum, hvort
sem það var að grúska í skúrn-
um, bátnum eða bílum. Einstak-
lega laginn og lausnamiðaður
því í þinni orðabók var orðið
ónýtt ekki til. Þú varst með
hjarta úr gulli og voru öll
barnabörnin þín kölluð afagull.
Þú kenndir okkur þakklæti og
varst alltaf tilbúinn til að hjálpa
okkur, sama hversu stórt eða
smátt verkefnið var. Allt sem
þú kenndir okkur er ómetan-
legt. Við vorum alltaf velkomin
og áttum helst að koma með
mola sem við gætum gætt okk-
ur á saman og spjallað um dag-
inn og veginn.
Miklavatnsferðir með þér
standa upp úr þar sem við
brölluðum margt og þar feng-
um við að sitja undir stýri og
keyra.
Þegar þú komst í bæjarferð
var fyrsta stoppið á KFC þar
sem þú bauðst okkur öllum upp
á kjúkling sem þótti skondið
þar sem þú hafðir oft orð á því
að kjúklingur væri ekki manna-
matur en KFC þótti þér þó af-
skaplega góður matur.
Þegar þú horfðir á okkur
með þessum góðlegu og hlýju
augum og sagðir að við værum
afagullin þín með bros á vör
fylltist maður ást og fann
hversu mikla væntumþykju þú
barst til okkar allra. Ást okkar
til þín fá orð vart lýst. Þessar
dýrmætu minningar munu lifa
með okkur barnabörnunum þín-
um að eilífu.
Kveðja, afagullin þín úr
Kópavogi,
Bjarni, Íris, Nína, Gísli,
Andrea og María.
Nafni
Elsku afi, mikið er erfitt að
missa þig, þú hefur verið besti
afi og vinur sem hægt er að
hugsa sér, við áttum alveg sér-
staka tengingu sem mér þykir
óendanlega vænt um.
Ýmislegt brösuðum við sam-
an í gegnum tíðina og lærði ég
margt af þér og ömmu. Mér
þótti alltaf best að vera með þér
að brasa hvort sem það var úti í
skúr eða kúra hjá þér í stólnum
og horfa á Tomma og Jenna.
Það var alltaf gaman þegar við
komum inn úr skúrnum með
skítugar hendur og fórum inn
til ömmu í kaffi þá var amma
ekki mjög hrifin og rak okkur
inn að þvo okkur betur, alltaf
kom sama brosið hjá þér þegar
hún bað okkur um þetta. Allar
ómetanlegu stundirnar með þér
og pabba í Miklavatni að brasa
við alls konar smíðavinnu og
viðhaldsvinnu, og allar stund-
irnar niðri við vatn þar sem þú
hjálpaðir mér við að veiða með
veiðistöng þó að þú vissir alveg
að silungurinn myndi ekkert
bíta á.
Þú hafðir endalausa þolin-
mæði og leyfðir mér alltaf að
koma með í alls konar ævintýri.
Læt ljóð fylgja hér með sem
mér finnst fallegt og eiga vel
við:
Þó sólin nú skíni á grænni grundu
er hjarta mitt þungt sem blý,
því burt varst þú kallaður á ör-
skammri stundu
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga
og góða,
svo fallegur, einlægur og hlýr.
En örlög þín ráðin - mig setur hljóða,
við hittumst samt aftur á ný.
Megi algóður guð þína sálu nú
geyma
gæta að sorgmæddum, græða
djúp sár.
Þó kominn sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Höf. ókunnur)
Afi, ég er þér óendanlega
þakklátur fyrir allt sem þú
gafst mér.
Elsku afi, þú hefur alltaf átt
og munt alltaf eiga sérstakan
stað í hjarta mínu.
Þakka þér fyrir allan okkar
tíma saman og allt sem þú
kenndir mér.
Þinn nafni
Arnar Aðalbjörnsson.
Elsku besti afi okkar.
Mikið var erfitt að fá símtalið
um að þú værir farinn.
Það er ekkert sem getur
undirbúið mann fyrir að missa
ástvin.
Þetta gerðist hratt og við er-
um afar þakklátar fyrir að þú
þjáðist ekki eða fannst til.
Mest þakklátar erum við fyr-
ir allar minningarnar, allt sem
þú kenndir okkur og gafst okk-
ur. Minningar frá öllum jólun-
um sem við áttum saman.
Minningar frá Miklavatni,
þangað fórum við öll saman
heilu helgarnar og oft komum
við um helgar að heimsækja
ykkur pabba sem gátuð verið
þarna dögum saman að brasa í
alls konar smíðavinnu eða við-
gerðum. Allir kaffitímarnir og
matarboðin á Sunnuveginum,
ævinlega var þetta eins og
veisluborð, allt frá sviðalöppum
og signum fiski sem vöktu mis-
mikla hrifningu, til kjötsúpunn-
ar hennar ömmu, lambalæris og
tölum ekki um saltkjötið og
baunirnar. Allt sem amma eld-
aði og bakaði var alltaf best,
einhvern veginn var alltaf pláss
fyrir alla við eldhúsborðið. Best
fannst þér að vinna á ýtunum
þínum, komst heim í hádegis-
mat og lagðist svo í bekkinn
þinn inni á skrifstofu til að
hlusta á hádegisfréttirnar áður
en að þú færir aftur út að
vinna, þú hélst þessu áfram eft-
ir að þú hættir að vinna, nema
þá fórstu út í bílskúr að brasa í
alls konar hlutum.
Þú hefur alla tíð verið alveg
ótrúlega laghentur og alltaf til í
að hjálpa þegar þurfti að laga
eitthvað.
Við höfum alltaf sagt „Ef afi
og pabbi geta ekki lagað það þá
er það ónýtt.“
Þegar við fórum að eignast
börn þá kallaðir þú þau afagull
eins og þú kallaðir okkur öll
barnabörnin, ásamt öðrum
gælunöfnum.
Þú knúsaðir þau og kysstir
eins og okkur, ævinlega laum-
aðir þú einhverju gotteríi sem
þú áttir ofan í skúffu til þeirra.
Það er ekki hægt að lýsa því
með orðum hvað þið amma haf-
ið reynst okkur vel alla tíð, það
var ómetanlegt að geta hlaupið
margar ferðir á dag upp kirkju-
túnið frá þriggja ára aldri til að
koma til ykkar ömmu, yfirleitt
var amma inni að baka og þú
úti í bílskúr að gera við ein-
hverja bíla eða með bátinn inni
að gera hann fínan.
Þú skilur eftir þig stórt skarð
sem erfitt verður að venjast.
Þú skilur líka eftir þig svo
mikla hlýju og hjartagæsku.
Við vitum að það voru margir
góðir sem tóku á móti þér þeg-
ar þú fórst.
Við vitum líka að þú vakir yf-
ir ömmu og okkur öllum.
Við skulum passa upp á
ömmu fyrir þig og hjálpa henni
í gegnum þennan missi.
Við elskum þig og gleymum
þér aldrei.
Takk fyrir allt, elsku afi.
Þín afagull
Hildur Kristín
Aðalbjörnsdóttir
og Jóhanna Regína
Aðalbjörnsdóttir.
Fyrrverandi tengdafaðir,
Arnar Aðalbjörnsson, afi
þriggja barna okkar Örnu og
langafi 4 barna þeirra. Hans
verður sárt saknað í fjölskyldu
okkar.
Hjálpsamur, kærleiksríkur,
skilningsríkur, samúðarríkur,
vongóður, glaður og ástríkur
eru orð sem koma mér til hugar
þegar lýsa á Arnari.
Ég kynntist Arnari 19 ára að
aldri og fann strax þegar ég
horfði í augu þessa manns að
hér væri maður sem geislaði
birtu frá hjarta sínu og sál.
Arnar og Sigga Stína opnuðu
heimili sitt fyrir mig og þótti
mér ég alltaf velkominn þaðan í
frá. Hér var heimili sem mig
langaði að vera á og fann þar ró
og frið. Hér fannst mér heima-
höfnin mín vera.
Arnar var klettur og í mínum
huga var hann fullkomin fyr-
irmynd. Hann kenndi mér
margt og hefði ég getað lært
mun meira ef ég hefði verið
móttækilegri fyrir því.
Hann var rólegur herramað-
ur og þegar upp komu erfiðleik-
ar tók hann þeim af yfirvegun.
Eitt af mörgum atvikum sem
koma mér til hugar var þegar
rör stíflaðist fyrir utan húsið
um miðjan vetur, með tilheyr-
andi frosti, vindi og snjó.
Þetta stórviðri kom ekki í
veg fyrir að hann tæki sig til og
græfi upp freðna jörðina milli
húss og bílskúrs. Eftir að hann
hafði klárað verkið gat ég ekki
annað en dáðst að dugnaðinum
og spurði hvort hann fyndi ekki
til í þessum stóru kraftmiklu
höndum, þær voru ískaldar.
Hann horfði til mín brosandi og
leit beint í augun á mér og
sagði „jú jú“ og fór inn í hús, án
þess að segja nokkuð meir.
Þetta var hann Arnar, alltaf ró-
legur og yfirvegaður þegar eitt-
hvað erfitt lá fyrir og gekk að
verkinu eins og sjálfsögðum
hlut án þess að vilja hrós né
kossa.
Börnin okkar Örnu voru allt-
af spennt fyrir því að heim-
sækja afa og ömmu. Hans verð-
ur sárt saknað en minning hans
lifir í sögum og anda.
Þinn fyrrverandi tengdason-
ur,
Már.
Yndislegur vinur er fallinn
frá. Þrátt fyrir að okkar kynni
haft aðeins staðið í einn áratug
var vináttan gefandi og traust.
Við kynntumst sæmdarhjónun-
um á Heilsustofnun í Hvera-
gerði. Arnar vakti strax máls á
því hve mikilvægt væri fyrir
mig að koma norður og aka út á
Langanes með viðkomu á æsku-
slóðum mömmu í Skoruvík þar
sem hún var fædd og uppalin.
Við renndum til Þórshafnar
næsta sumar og áttum dýrð-
ardaga á heimili Siggu og Arn-
ars þar sem sonur þeirra Ölver
sló upp stórveislum hvern dag,
en hann var í heimsókn með
fjölskyldu sína hjá foreldrunum.
Við fórum þetta á tveimur
stórum jeppum, við hjónin
ásamt Siggu og Arnari, en Öl-
ver sonur þeirra og hans fjöl-
skylda með honum í bíl. Ferðin
út á Langanes var samfellt æv-
intýri. Að fara þessa áður fá-
förnu leið með heimamönnum
sem þekktu hvern krók og kima
og kunnu einnig góð skil á for-
feðrum mínum, amma var frá
Skoruvík, en afi var frá Skálum
á Langanesi en milli þessara
staða eru ca. 4 km. Fyrir ferð-
ina út á Nesið höfðu Sigga og
Anna tengdadóttir hennar útbú-
ið ríkulegt nesti til fararinnar
og voru gerð þrjú „veislustopp“
í ferðinni. Eftir þennan stór-
kostlega dag saman héldum við
góðu sambandi ýmist um síma
eða sendum bréf milli lands-
hornanna. Síðastliðið sumar
hringdi Arnar vinur minn og
spurði hvort við hefðum ekki
verið búin að ákveða að koma á
Þórshöfn í sumar. Hann sagði
við erum að flytja í Naust, sem
er Dvalarheimili, en eigum hús-
ið okkar tilbúið. Við ætlum ekk-
ert að sleppa því fyrr en þið er-
uð búin að koma og gista í því.
Þar er nóg pláss eins og þú
veist. Tveimur dögum síðar vor-
um við mætt á Þórshöfn og átt-
um enn einu sinni dýrðardaga
með Arnari og fjölskyldu hans.
Ölver sonur þeirra var mættur
líkt og í fyrri ferð okkar og nú á
glæsilegum húsbíl. Hann hopp-
aði sem fyrr í eldhúsið hjá
„mömmu“ og galdraði fram
hverja stórveisluna af annarri.
Á æskudögum mínum dvaldi ég
í eitt og hálft ár hjá ömmu og
afa á Þórshöfn. Ég gekk í
barnaskóla hjá Ólafi Möller og
man vel eftir honum þótt liðin
séu um 70 ár síðan. Þegar ég lít
um öxl finnst mér tíminn á
Þórshöfn hafa verið einstaklega
yndislegur og góður tími. Mér
finnst svo ánægjulegt að muna
bæinn svona eins og hann var,
húsaskipan og hve snjórinn var
mikill um veturinn. Alltaf var
nægilegt að bíta og brenna,
nógur matur í kjallaranum hjá
ömmu og afa, AGA-kokseldavél-
in hélt góðum yl í litla kotinu,
sem hét Sólberg í þá gömlu
góðu daga.
Það hefur verið mér og Ið-
unni minni ómetanlegt að eign-
ast þessa góðu vini, Siggu, Arn-
ar og stórfjölskyldu þeirra.
Við þökkum yndislegar og
gefandi samverustundir og
trausta vináttu. Góður Guð
blessi minningu Arnars. Við
kveðjum hann með miklum
söknuði og sendum Siggu og
börnum þeirra og fjölskyldum
okkar ljúfustu samúðarkveðju
og þakkir fyrir einstaka og fal-
lega vináttu. Ástarkveðjur.
Iðunn og Ólafur Gränz.
Aðalbjörn Arnar
Aðalbjörnsson