Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 ✝ Bárður Guð-mundsson fæddist 10. apríl 1964 á Landspít- alanum í Reykja- vík. Hann lést 7. nóvember 2020 á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi. Foreldrar hans eru Guðmundur Sigfússon, f. 27. ágúst 1921 á Arnheiðarstöðum í Fljótsdal, d. 26. desember 1978, og Ester Guðlaugsdóttir, f. 9. mars 1931 í Vík í Mýrdal. Systkini Bárðar eru þrjú: 1. Guðlaugur, f. 1949, sambýlis- kona hans er Ásta Hallsdóttir. Dóttir þeirra er Ester, f. 1989. Sonur Ástu er Ágúst Atli, f. ásamt móður sinni alla tíð. Hann vann hjá Ullarstöðinni í Vík um árabil auk þess sem hann vann við sláturtíð á haustin í Vík. Einnig fór Bárð- ur á vertíð til Hafnar í Horna- firði ásamt bræðrum sínum Guðlaugi og Sigfúsi. Þegar Bárður var ungur maður fór að bera á andlegum veikindum sem varð til þess að hann datt út af vinnumarkaði, nú undir lok lífskeiðs hans hefur hann barist við krabbamein. Útför Bárðar fer fram frá Víkurkirkju í dag, 14. nóv- ember 2020, og hefst hún kl. 13. Vegna aðstæðna í þjóð- félaginu verða einungis nán- ustu aðstandendur viðstaddir útförina. Streymt verður frá útförinni á facebookslóðinni: Víkurprestakall í Suðurpró- fastsdæmi. Stytt slóð á útför: https://tinyurl.com/y57esk68 Virkan hlekk á slóð má nálgast á https://www.mbl.is/andlat 1976. 2. Guðbjörg, f. 1950, fyrrver- andi eiginmaður hennar er Bjarni Jón Matthíasson, f. 1953, d. 2020. Dóttir þeirra er Ester Elín, f. 1972, sambýlis- maður hennar er Björgvin Rún- arsson. Dóttir Esterar er Elva Ösp, f. 1999. Faðir hennar er Helgi Örn Frederiksen, f. 1971, d. 2000. Sonur Esterar er Sólon Tumi, f. 2010. Faðir hans er Steinar Orri Sigurðs- son. 3. Sigfús, f. 1959, d. 2014. Bárður ólst upp í Vík í Mýrdal og var búsettur þar Elsku Bárður minn. Við höfum verið saman alla okkar tíð og því er sárt að þurfa að kveðja þig elsku drengurinn minn. Við áttum einstakt samband sem ein- kenndist af mikilli hlýju og mikilli ást. Þú varst mjög fal- legt barn og alla tíð varstu fal- legur að innan sem utan. Þú barst mikinn húmor og gátum við hlegið mikið saman og þá sérstaklega þegar þú hermdir eftir þjóðþekktum einstakling- um. Þú veiktist á unga aldri og núna af krabbameini. Þú hefur verið einstaklega duglegur og sýnt mikinn styrk í veikindum þínum. Ég gisti hjá þér á spít- alanum í nokkrar nætur og átt- um við yndisleg samtöl inn á milli þess sem þú svafst. Ég veit að Sigfús okkar og pabbi þinn taka vel á móti þér elsku drengurinn minn. Ég mun sakna þín sárt og ég mun elska þig að eilífu. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Þín, mamma. Elskulegi kæri bróðir minn. Ég man þegar þú varst lítill í kerrunni þegar ég fékk að keyra þig um hvað ég var montin af litla fallega bróður mínum. Þú varst bæði hjálp- samur og gjafmildur og hefur þú hjálpað mér mikið og fyrir það verð ég þér ævinlega þakk- lát. Æðruleysið og hugrekkið var mikið í veikindum þínum og er ég mjög hreykin af þér elsku bróðir. Ég elska þig. Lýs, milda ljós, í gegnum þennan geim, mig glepur sýn, því nú er nótt, og harla langt er heim. Ó, hjálpin mín, styð þú minn fót; þótt fetin nái skammt, ég feginn verð, ef áfram miðar samt. Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög trú og hennar ljós? Mér sýndist bjart, en birtan þvarr, og nú er burt mitt hrós. Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið, uns fáráð öndin sættist Guð sinn við. Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, í gegnum bárur, brim og voðasker. nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fögru dyr og engla þá, sem barn ég þekkti fyrr. (Matthías Jochumsson) Þín systir, Guðbjörg. Elsku bróðir og vinur. Þú varst svo miklu meira en bróðir minn, þú varst fyrst og fremst mikill vinur minn og reyndist mér alltaf með ein- dæmum vel. Ég er svo þakk- látur að hafa eignast þig sem litla bróður minn og fá að fylgja þér í gegnum lífið. Við eigum margar góðar minningar saman við bræðurnir og ylja þær mér mikið þegar ég hugsa um þig. Mér er það minnisstætt þegar þú eignaðist fyrsta bílinn þinn en alltaf hugsaðir þú vel um bíl- ana þína og voru þeir alltaf hreinir. Við ásamt Fúsa fórum saman á vertíð á Hornafirði og var ýmislegt brallað þar. Við fórum saman á Þjóðhátíð og seint mun ég gleyma því er þú barst stóra bróður í sófa í Daln- um og höfum við oft minnst á þetta í gegnum tíðina. Elsku bróðir, þú hefur komið mér á óvart í veikindum þínum, hversu æðrulaus þú hefur verið og stað- ið þig eins og hetja. Ég var hjá þér þegar kallið að handan kom og ég veit að bróðir okkar og pabbi okkar hafa tekið fallega á móti þér. Við Guðbjörg systir hugsum áfram vel um mömmu okkar. Kveð þig í bili minn kæri, leyndarmálin geymi ég hjá mér. Þinn bróðir, Guðlaugur (Gulli). Elsku Bárður frændi, það er erfitt að kveðja. En það sem ég er þakklát fyrir að er að hafa haft þig í mínu lífi alla tíð og gæsku þína við börnin mín. Það var dýrmætt að finna og ekki sjálfgefið. Í hvert skipti sem ég talaði við þig í síma eða hitti þig fann ég svo sterkt til væntum- þykju og virðingar í minn garð. Við höfum átt margar stundir saman sér í lagi upp á síðkastið. Ég er svo stolt af þér hvernig þú tókst á við verkefnið þitt, af skynsemi, æðruleysi og sýndir ótrúlegan styrk. Margt af hjúkr- unarfólkinu sem annaðist þig hefur komið að orði við mig og sagt: „Mikið er hann frændi þinn yndislegur maður, svo þakklátur fyrir allt.“ Þetta er eitt af því sem einkenndi þig, þakklæti. Þú varst líka senni- lega einn af traustustu hlust- endum Rásar 2, máttir helst ekki missa af neinum fréttatíma, hringdir stundum til að senda „bestu kveðjur “ til fólksins. Það var stutt í húmorinn og þú hafð- ir gaman af að herma eftir áhugaverðu fólki og hlusta á góða tónlist. Ég kveð þig, elsku kallinn minn, með fullt hjarta af góðum minningum og þakklæti. Og mundu að ég elska þig. Þín Ester Elín. Elsku Bárður. Þú varst alltaf svo gjafmildur, góður og almennilegur við okk- ur systkinin. Tókst svo vel á móti okkur þegar við komum í heimsókn á Víkurbrautina þar sem spjallað var um allt á milli himins og jarðar við eldhúsborð- ið og við gæddum okkur á kök- unum hennar langömmu. Ekki má gleyma húmornum en þú varst afar duglegur að sjá það spauglega í hlutunum og grín- aðir og hermdir eftir hinum og þessum sem vakti alltaf jafn mikla lukku, enda einstaklega orðheppinn. Væntumþykjan í okkar garð skein í gegn og fór ekki fram hjá okkur. Við þökkum fyrir samveru- stundirnar og minnumst þeirra með hlýhug í hjarta, við söknum þín og elskum, elsku Bárður frændi. Elva Ösp Helgadóttir og Sólon Tumi Steinarsson. Elsku besti Bárður frændi minn, Mikið afskaplega er ég stolt af því að vera frænka þín enda varstu alltaf svo einstaklega góður við mig og alla tíð hef ég fundið mikla væntumþykju frá þér. Þú hefur verið svo ótrúlega stór hlekkur í mínu lífi og þú hefur haft mikil áhrif á mitt líf og ég er svo þakklát fyrir okkar góðu stundir í gegnum tíðina. Allar góðu æskuminningar mín- ar tengjast Víkurbrautinni hjá ykkur ömmu og Fúsa en þar var ég dekruð í drasl af ykkur öllum og þá sérstaklega af ást og um- hyggju. Þar varst þú mjög nat- inn við að sýna mér upptekið sjónvarpsefni eins og til dæmis Nonna og Manna. Þú hafðir mikla unun af tónlist og þú kenndir mér að meta Bubba enda varstu aðdáandi hans núm- er eitt. Það var alltaf kveikt á útvarpinu hjá þér og fylgdist þú mikið með fréttum og því gat ég alltaf treyst á þig með hvað væri að frétta. Þú fylgdist einn- ig náið með veðurfregnum og gast alltaf upplýst mig um veðr- ið fram undan. Þú hringdir mjög reglulega í mig og þér var alltaf umhugað um mig og vildir mér alltaf það allra besta. Síð- asta daginn þinn vorum við pabbi saman hjá þér og þú baðst mig um fjarstýringuna sem ég lét í hendurnar á þér og sofnaðir þú vært í kjölfar þess. Ég kvaddi þig þá og sagði við þig eins og alltaf að ég elska þig. Seinna sama daginn rétt fyrir miðnætti kom kallið að handan og kvaddir þú í hinsta sinn að pabba viðstöddum. Við amma komum saman um nótt- ina til þín og kvöddum við þig elsku kallinn minn. Kyrrðin yfir þér var mikil en hvíldin var kærkomin eftir erfið veikindi. Ég er svo stolt af þér og styrk þínum í gegnum veikindi þín alla tíð. Ég veit þið Fúsi eruð saman komnir og eflaust farnir að sprella saman. Ég sakna þín strax og ég mun heiðra minn- ingu þína um ókomin ár. Ég lofa þér því að ég mun passa elsku ömmu vel en ég veit að miss- irinn er mikill fyrir hana að missa þig, elsku drenginn henn- ar. Hvíldu í friði elsku frændi minn. Þín frænka, Ester Guðlaugsdóttir. Að lokinni göngu lagst er til hvílu. Dagur að kveldi kominn. Í dag er kvaddur góður vinur langt um aldur fram. Á lífsgöngunni kynnist maður mörgum, sumir staldra stutt við, leiðir liggja saman um stund en aðrir dvelja lengur við. Besta vináttan er sú sem endist ævina út, hvort sem leiðir liggja saman eður ei en þegar hist er, er eins og síðast hafi það verið í gær. Setjast saman, geta talað um allt mögulegt, hlegið að gömlum og nýjum atvikum og finnast eins það hafi aldrei liðið langt á milli samverustunda. Bárði kynntist ég sem unglingur og við urðum góðir vinir, töluðum endalaust, hlógum, hlustuðum á tónlist og höfðum gaman. Þrátt fyrir veikindi hans náðum við að gera þetta aftur, reyndar alltof sjaldan og alltof stutt. Það var eins og við hefðum síðast hist í gær. Slík vinátta er dýrmæt. Elsku Bárður, þakka þér fyrir vináttu þína og tryggð alla tíð, þú ert farinn á vit nýrra æv- intýra og þeirra sem þú kvaddir fyrr og saknaðir alla tíð. Ég segi bara „sjáumst seinna“. Elsku Ester og fjölskylda, ykkur sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Guðný Sigurðardóttir. Bárður Guðmundsson Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR MÁR KRISTÓFERSSON frá Hellu, Hellissandi, Jökulgrunni 4, Reykjavík lést á Landakoti laugardaginn 7. nóvember. Jarðarförin fer fram í kyrrþey í dag, laugardaginn 14. nóvember. Guðríður Sirrý Gunnarsdóttir Lilja Dögg Gunnarsdóttir Atli Már Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐNI ÞÓR GUÐMUNDSSON bílstjóri, lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar 9. nóvember. Útför fer fram 15. nóvember klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni, hægt er að hafa samband við aðstandendur til þess að fá vefslóð. Alexandra Guðný Guðnadóttir Sara Dögg Guðnadóttir Sigfús Jónsson Berglind Amy Guðnadóttir Bjarki Hólmgeir Halldórsson Gunnar Þorgeir Guðnason Jan Þór Fliegl Guðnason og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Grænhól, Sóltúni 43, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þriðjudaginn 10. nóvember. Útförin fer fram frá Kotstrandarkirkju fimmtudaginn 19. nóvember klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni https://promynd.is/jonina Sigrún Guðmundsdóttir Jón Halldór Gunnarsson Jóhanna Guðmundsdóttir Ölver Bjarnason Guðbjörg Guðmundsdóttir Sigvaldi Guðmundsson Steindór Guðmundsson Klara Öfjörð Sigfúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÓLAFSSON, Hraunvangi 7, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 6. nóvember. Útförin fer fram frá Safnaðarheimili Keflavíkurkirkju, Kirkjulundi, föstudaginn 20. nóvember klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á https://www.facebook.com/groups/UtforGudmundarOlafssonar Ólöf Helga Klein Guðrún F. Guðmundsdóttir Ástríður Guðmundsdóttir Jón Guðlaugsson Margrét Ó. Guðmundsdóttir Þórir Björnsson Ólafur S. Guðmundsson Grace Guðmundsson Bjarnheiður J. Guðmundsd. Óskar Bjarni Ingason barnabörn og barnabarnabörn Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur og bróðir, ÁKI SIGURÐSSON rafiðnfræðingur, Holtastíg 22, Bolungarvík, lést á sjúkrahúsi í borginni Petropavlowsk í Kamchatsky í Rússlandi miðvikudaginn 11. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Ásta Ákadóttir Þorsteinn Elías Sigurðsson Karl Davíð Ákason Jakob, Alexandra og Ragnhildur afabörn Sigurður Borgar Þórðarson Ásta Ákadóttir Þórður, Nanna og Una systkini Áka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.