Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 Þjóðleikhúsið mun næstu fimm fimmtudaga kl. 20 vera með beinar vikulegar útsendingar í nýstofnuðu Hljóðleikhúsi og flytja lands- mönnum þekktar perlur leiklistar- sögunnar í bland við verk sem lítið hafa verið leikin. Þetta er meðal verkefna sem Þjóðleikhúsið stendur fyrir til að stytta landsmönnum stundir í samkomubanni meðan hefðbundið sýningahald er tak- markað. Útsendingar í Hljóðleik- húsi, sem verða í beinni frá Kristal- sal Þjóðleikhússins, verða í anda hins klassíska útvarpsleikhúss. Fimmtudaginn 19. nóvember verða flutt valin brot úr Skugga- Sveini eftir Matthías Jochumsson í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikur Skugga-Svein og Hilmir Snær Guðnason Grasa-Guddu. Þess má geta að Leikfélags Akureyrar hyggst í samstarfi við Þjóðleikhúsið setja verkið á svið á næsta leikári í leikstjórn Mörtu Nordal þar sem Ólafía Hrönn leikur Skugga-Svein. Fimmtudaginn 26. nóvember verður flutt Nýársnóttin eftir Indr- iða Einarsson í leikstjórn Hörpu Arnardóttur. Verkið, sem var opn- unarsýning Þjóðleikhússins 1950, fjallar um baráttu manna og álfa. Fimmtudaginn 3. desember er komið að Rung lækni eftir Jóhann Sigurjónsson í þýðingu Bjarna Jóns- sonar og leikstjórn Vigdísar Hrefnu Pálsdóttur. Verkið, sem samið var á dönsku 1905, hefur aldrei verið sett upp hérlendis, en þykir með athyglisverðustu verkum Jóhanns. Það fjallar um tilraunir Rungs læknis til að finna mótefni gegn berklum og um ástina í lífi hans. Um er að ræða frumraun Vigdísar Hrefnu sem leikstjóra, en hún lauk nýverið meistaranámi í leikstjórn frá Bretlandi. Fimmtudaginn 12. desember er komið að Dóttur faraós eftir Jón Trausta í leikstjórn Önnu Maríu Tómasdóttur. Verkið, sem var skrif- að 1914, hefur aldrei verið sett upp. Anna María Tómasdóttir lærði leik- stjórn í New York og leikstýrir hér sínu fyrsta verki í Þjóðleikhúsinu. Fimmtudaginn 17. desember er komið að alþýðukómedíunni Ævin- týri á gönguför eftir Hostrup í leik- stjórn Hilmis Snæs Guðnasonar. Hljóðleikhús hefur göngu sína í vikunni Vigdís Hrefna Pálsdóttir Ólafía Hrönn Jónsdóttir Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Egill Sæbjörnsson, myndlistar- og tónlistarmaður, gaf nýverið út breið- skífuna Moonlove, eða Tunglást, og er sú poppplata en síðasta poppplata Egils, Egill S, kom út fyrir ellefu ár- um. Egill bendir á að platan sem hann vann í samvinnu við tröllin Ugh og Boogar, fyrir uppsetningu sýning- arinnar Out of Controll in Venice sem var framlag Egils á 57. myndlistar- tvíæringnum í Feneyjum árið 2017, sé í raun hálfgert popp og við leyfum því tröllunum að vera með. Blaðamaður spyr Egil hvort hann sé alltaf að vinna að tónlist meðfram myndlistinni og segir hann svo vera. Á hann sér kannski draum um að verða poppstjarna? „Eee... kannski pínkulítinn en ekki beint eins og í gamla daga,“ svarar Egill. Í gamla daga hafi hann meira dreymt um að vera á MTV og fara í tónleikaferðir um heiminn í flugvélum. –Þessi nýja plata er miklu líkari plötunni sem þú gafst út árið 2009, Egill S, en Tonk of the Lawn sem kom út fyrir tuttugu árum. „Já, það getur verið, ég á erfitt með að staðsetja það,“ svarar Egill. Hann hafi unnið nýju plötuna að langmestu leyti sjálfur en J. Tyler Ludwig síðan fiktað í nokkrum lögum. „Hann pró- dúseraði plötuna svolítið til og kom með það mikið input í eitt lag, sem er fremst á plötunni, að það er hálfpró- dúserað af honum,“ segir Egill. –Það er alltaf sami húmorinn í tón- listinni hjá þér, ekki satt? „Jú eða einhver leikgleði. Það er húmor en það er bara eins og hvernig maður er, þetta er svo samvaxið manni. Líka í textagerðinni, af því þetta er svona bulltónlist og -tungu- mál, þá er húmor en ég get líka talað á dýpri nótum.“ Minni úr draumi Á umslagi plötunnar er listaverk sem Egill vann í PhotoShop og sýnir íslensk fjöll og fjörð í bland við furðu- legan turn úr leir og tívolí. Egill sést á gangi við turninn. „Myndin er minni úr draumi sem mig dreymdi þegar ég var um 17 ára, um að ég ætti eftir að fara frá Íslandi og ganga síðan alltaf bakdyramegin í gegnum skemmti- garð og sjá tækin aftan frá. Ég var að reyna að ná einhverjum náunga sem hét Emil sem þýðir „rival“ á ensku og svo gefst ég upp á því að reyna að ná honum, sný mér til hægri og geng inn í blómlegan dal þar sem er kyrrð og ró,“ útskýrir Egill. Þegar plötuumslagið er opnað sést svo landslag frá Rio de Janeiro í Brasilíu en Egill bjó að hluta til í borginni í átta ár eða þar um bil. –Það er margt skrítið á plötunni, hún er mjög skemmtileg en líka oft mjög skrítin. Það er betra að hlusta með heyrnartólum þannig að maður nái öllum hljóðunum og ég tek eftir því að þarna eru margir furðulegir hljóðbútar. Hvaðan koma þessi hljóð? „Ég bjó til syntesæsera bæði úr hljóðum sem ég fann á netinu og hljóðum sem ég tók upp sjálfur. Ég spila það bara á syntann og svo eru sum hljóðin bara úr einhverjum hljóðbanka og þetta getur verið blanda af öllu mögulegu,“ svarar Eg- ill. „Ég er bæði að búa til hljóð og setja inn í dýrsleg element sem skipta mig máli og mér finnst skemmtileg í tónlist. Svo eru líka tilbúin trommu- hljóð og basic trommuhljóð og svo eru líka þarna samplaðar raddir sem voru í forriti sem ég er að vinna í.“ Fundu ræturnar í kraftgöllum –Segðu mér aðeins frá laginu „Ísa- fjarðarmær“. Er þar líka draumur á ferð? „Nei, það var samið þegar ég var með kærustunni minn á Ísafirði ára- mótin 2017 til 1́8. Hún er frá Ísafirði og við vorum að labba um á Ísafirði í kraftgalla og vorum nakin inni í hon- um. Það er svo gaman að prófa hvað maður getur komist langt bara í kraftgalla,“ svarar Egill sposkur. „Ég er líka ættaður af Vestfjörðum og okkur fannst við vera að finna ræt- urnar í okkur þarna fyrir vestan, milli þessara háu fjalla.“ Og fleiri kærustur koma við sögu en sú frá Ísafirði því í textum má lika finna óuppgerðar tilfinningar til fyrr- verandi kærustu Egils sem er frá Rio de Janeiro. Þau lög voru samin á ár- unum 2017 og 2018. Egill segist mikið syngja um ástina á plötunni, enda sé hún flókið fyrir- bæri, bæði gagnvart öðrum og manni sjálfum. „Hin hliðin á ástinni er ein- hvers konar hatur, hatur út í aðra og hatur út í mann sjálfan,“ segir Egill og að fátt sé áþreifanlegt þegar komi að ástinni og hatrinu. „Hvort maður þurfi að elska sjálfan sig til að geta elskað aðra, hvað þetta er, ástin flýt- ur einhvern veginn á milli fyrstu, annarrar og þriðju persónu.“ Titill plötunnar er einnig vísun í ást og til- finningar, Moonlove, sem Egill segir melankólíska og týnda ást. Plata ekki plata nema hún sé komin út á vínyl Egill er spurður að því hvort miklu skipti fyrir hann að gefa plötuna út á vínyl og segir hann svo vera. „Mér finnst einhvern veginn að plata sé ekki plata nema hún sé komin út á ví- nyl,“ segir hann, „hún þarf að vera til sem hlutur þótt margir kaupi hana digital. Ég hef alltaf dýrkað þessa mynd framan á plötu, mér hefur alltaf fundist hún vera hliðið inn í heim plötunnar eða hún var það alla vega í gamla daga. Ég er líka að láta prenta Tonk of the Lawn í nokkrum eintök- um sem ég ætla að bjóða upp á fyrir lok þessa árs því hún kom út árið 2000. Ég er að láta prenta tuttugu eintök sem verða árituð, speseintök á vínyl en hún hefur aldrei komið út á vínyl. Í lok nóvember verður hún tilbúin,“ segir Egill og að platan komi svo út í 500 eintökum sem verði gefin út. Egill segir að líklega verði platan til sölu á Bandcamp-síðunni hans. Egill býr ýmist í Berlín eða á Ís- landi og segist vera að undirbúa nokkrar sýningar og verkefni. Hann segir þó hafa hægst á öllu út af kófinu og mörgu frestað fram á næsta ár. Þeir sem vilja fræðast frekar um Egil og hans listsköpun geta gert það á vefsíðu hans, egills.de. Morgunblaðið/Hari Reffilegur Egill fór í sparifötin fyrir jólablað Morgunblaðsins í fyrra. Melankólísk og týnd ást  Leikgleðin er áberandi á nýútkominni poppplötu Egils Sæbjörnssonar  Plötuumslagið vísar til draums sem Egil dreymdi þegar hann var 17 ára  Kærustur koma við sögu og pælingar um ástina Draumur Plötuumslagið sýnir Egil á gangi í átt að skemmtigarði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.