Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020 Tokaji-héraðið í Ungverja- landi er það vínhérað jarðarinnar sem býr til ein bestu sætvín sem framleidd eru. Þegar ég dvaldi í Búdapest um tíma sem náms- maður fór ég nokkrum sinnum í heimsókn til ungverskra vínbú- garða þar sem glaðværir heima- menn tóku á móti okkur í vín- smökkun og sögðu sögur, af víninu og landinu. Kommúnismanum tókst að eyðileggja áratuga hefð og heið- ur ungverskrar víngerðar sögðu þeir okkur gjarnan. Ungversku vínin eru ódýr og mörg hver al- veg óþekkt utan landamæranna, en standast flestum snúning í gæðum. Eða svo vildu vín- framleiðendurnir í það minnsta meina. Ég veit í raun lítið um vín, en meðal annars í gegnum það tók ég ástfóstri við Ungverja- land. Ungverjum vildi ég því sýna bróðurlega vinsemd í gær og horfði ég á umspilsleikinn yfir dásamlegri skál af heimalagaðri ungverskri gúllassúpu með miklu paprikukryddi. Hún var ljúffeng en eftirbragðið reyndist heldur beiskt. Íslendingur var ég að sjálf- sögðu yfir leiknum og óskaði þess einskis heitar en að Ísland myndi komast á þriðja stórmótið í röð. Og við vorum svo grátlega nálægt því! En ekki var okkur ætlað þetta ævintýrið. Íslenska landsliðið, strákarnir okkar, kem- ur tvíeflt til baka. Egészségédre sagði ég í leikslok og drakk staup af plómubrandíinu Pálinka, Ung- verjum, andstæðingum okkar, til heilla. Vonandi njóta þeir þess að spila á heimavelli á EM og von- andi verða áhorfendur leyfðir. Við Íslendingar snúum okkur nú að undankeppni HM sem hefst brátt og tökum undir með Aroni Einari fyrirliða: „Þetta markar engin endalok.“ BAKVÖRÐUR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is að þeir verði haldnir ef hægt er. Það verður að koma í ljós þegar nær dregur. En það var vissu- lega rætt hvort við ættum að aflýsa leikunum 2021 út af kórónuveirunni,“ sagði Frímann Ari Ferdinandsson, framkvæmdastjóri Íþrótta- bandalags Reykjavíkur, þegar Morgunblaðið spurði hann út í stöðuna. Á Reykjavíkurleik- unum, sem stundum eru einfaldlega kallaðir RIG, hefur verið keppt í miklum fjölda íþrótta- greina og umfangið er mismikið eftir greinum. „Það fer svolítið eftir greinum hversu langan tíma fólk þarf til að undirbúa mótshaldið. Rætt hefur verið við fólk sem fer fyrir öllum íþrótta- greinunum og allir tóku vel í þá hugmynd að stefna að því að leikarnir verði haldnir í ein- hverri mynd. Unnið er að því hörðum höndum að það verði en svo er það sett í hendurnar á fólki í hverri grein fyrir sig hvort það sjái ástæðu til að gera þetta eða ekki. Þessu fylgir líka kostnaður. Þetta er ekki bara gleði. Í hverj- um mótshluta á leikunum hefur oftar en ekki verið fjárhagslegt tap en menn hafa gjarnan réttlætt það með þeim hætti að alþjóðlegt mót hér heima dragi úr þeim kostnaði sem fylgir því að fara utan að keppa. Það sparar því kostnað á móti. En það má vera að fólk hugsi sig tvisvar um í þessum aðstæðum sem nú eru,“ sagði Frí- mann. Morgunblaðið/Eggert RIG Frá keppni í júdó á síðustu leikum. Verður hægt að halda leikana?  Reykjavíkurleikarnir árið 2021 hafa ekki verið slegnir út af borðinu RIG Kristján Jónsson kris@mbl.is Einn af þeim íþróttaviðburðum hérlendis sem ganga illa upp á tímum kórónuveirunnar eru Reykjavíkurleikarnir sem farið hafa fram í jan- úar eða byrjun febrúar síðustu tólf ár. Móts- haldið er orðið afar myndarlegt og í fyrra voru erlendir gestir rúmlega 700 talsins. Leikarnir í byrjun næsta árs hafa ekki verið slegnir af en nokkuð ljóst er orðið viðburðurinn verður ólíkur því sem verið hefur síðustu ár. „Já við erum með á áætlun að halda leikana en það er háð því hvernig ástandið verður. Ekki er alla vega útlit fyrir að hingað streymi útlend- ingar eins og verið hefur undanfarin ár. Leik- arnir verða þá trúlega með mjög breyttu sniði hvað það varðar. En við höfum horft til þess að þegar verið er að leggja niður mót innanlands sem utan vegna faraldursins að þá þurfi íþrótta- fólkið að hafa til einhvers að hlakka í vetur. Við höfum því ekki viljað lýsa því yfir að Reykjavík- urleikarnir verði ekki heldur að ganga út frá því Forráðamenn evrópska hand- boltasambands- ins hafa tilkynnt um frestun á öll- um riðlum í for- keppni HM kvenna. Fyrirhugað var að íslenska lands- liðið í handknatt- leik kvenna hæfi leik í Norður-Makedóníu í byrjun desember og myndi spila þar þrjá leiki en þeim hefur nú verið frestað. Leikið í mars Áætlað er að leikirnir þrír fari fram dagana 17.-19. mars á næsta ári. Í tilkynningu frá Handknatt- leikssambandi Íslands kemur fram að helstu ástæður frestunarinnar séu allar tengdar faraldrinum vegna kórónuveirunnar. Þannig séu flugsamgöngur tak- markaðar í Evrópu, undirbúningur sé erfiður þar sem reglur um æfing- ar og keppni eru mismunandi á milli landa, auk þess sem mikil áhætta sé fólgin í því að fá allt að 100 manns víðsvegar að úr Evrópu á sama stað- inn og viðhalda þar sóttvörnum. Þá sé alltaf hætta á frestun vegna smita sem greinast á leikstað. gunnaregill@mbl.is Leikjum landsliðsins frestað Steinunn Björns- dóttir línumaður. FÓTBOLTI Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Aron Ingi Andreasson hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með liði sínu í fjórðu deildinni í Þýskalandi og er á réttri leið með að ná markmiði sínu um að verða atvinnumaður. Aron er tvítugur sonur Andreas C. Schmidt og Önnu Valbjargar Ólafsdóttur og hefur verið búsettur í Þýskalandi frá ellefu ára aldri. Í sumar skipti hann yfir í ZFC Meuselwitz sem spilar í austurhluta 4. deildarinnar þar sem leikmenn eru hálfatvinnumenn. „Við æfum átta sinnum í viku og umgjörðinni í kringum deildina svipar til atvinnumennsku. Jafnvel þótt fjórða deildin sé strangt til tekið hálf atvinnumennska þá gera leikmenn- irnir sem ég spila með ekkert annað en að spila fótbolta,“ sagði Aron Ingi í samtali við Morgunblaðið. Hann spil- aði með yngri flokkum FH þangað til hann flutti til Þýskalands með for- eldrum sínum og lá leiðin svo í FC Hennef þar sem hann spilaði upp allra yngriflokkana á vesturhluta Þýska- lands. Þar spilaði hann svo í 5. deild- inni áður en leiðin lá til Meuselwitz, lítils bæjar í austurhluta landsins þar sem um tíu þúsund manns búa. „Þjálfari sem þekkti til mín hafði samband þegar hann fékk nýja stöðu hjá liðinu. Þetta var í mars, þegar fyrsta kórónuveirubylgjan var að komast af stað. Við ræddum nokkrum sinnum saman, mér leist vel á liðið og honum leist vel á mig. Þannig að ég skipti yfir um leið og félaga- skiptaglugginn var opnaður, 1. júlí.“ Aron er stór og sterkur miðvörður, 193 sentimetrar á hæð og var hann því hvergi banginn við að taka skrefið upp um deild. Erfiðara var þó að yf- irgefa hreiðrið. „Það var kannski erfiðast að flytja að heiman, nýorðinn tvítugur og eng- in mamma og pabbi í kringum mig. Það er auðvitað líka öðruvísi að vera í Austur-Þýskalandi en eftir nokkra mánuði var mér byrjað að líða mjög vel. Ef mig langar að komast lengra og fara út í atvinnumennsku, þá var þetta akkúrat það skref sem ég þurfti að taka,“ sagði Aron sem er aftur kominn heim til foreldra sinna um sinn, enda ekkert keppt þessa dag- ana vegna faraldursins. Þetta er byrjunin Eins og margir vita er það langt og strangt ferðalag að verða atvinnu- maður í fótbolta en Aron spilar nú í deild þar sem margar framtíð- arstjörnur þýska boltans þreyta frumraun sína. „Að taka skrefið úr unglingabolt- anum í meistaraflokk er risastórt hérna í Þýskalandi. Ég vildi því taka fyrsta árið hjá Hennef og kynnast að- eins hörkunni sem fylgir því að spila með og gegn fullorðnum mönnum og yngri atvinnumönnum bestu liða landsins. Í deildinni spilum við t.d. gegn varaliði Herthu Berlín og í vest- urdeildinni eru félög á borð við Dort- mund og Schalke með sín varalið.“ Aron vill festa sig í sessi hjá Meu- selwitz, þar sem hann hefur spilað nánast hverja mínútu á tímabilinu, fyrir utan einn leik þar sem hann sat hjá eftir óheppilegt rautt spjald. „Þetta er byrjunin, má segja. Það eru auðvitað lið og leikmenn í þessari deild sem hafa verið þar lengi og verða þar alltaf. En ungir atvinnu- menn, sem eru ekki tilbúnir í að spila fyrir sín félög, byrja gjarnan í þessari deild og kynnast þar að spila alvöru- fótbolta,“ sagði Aron sem á níu leiki að baki með U18 og U19 landsliði Ís- lands. Hann stefnir á að fá tækifæri með U21-árs liðinu í framtíðinni. „Það er kveikt á símanum og ég er alltaf tilbúinn að svara.“ Skref í átt að atvinnumennsku  Aron Ingi vekur athygli fyrir frammistöðu sína í þýsku fjórðu deildinni Þýskaland Miðvörðurinn Aron Ingi Andreasson í skallaeinvígi í leik með Meuselwitz. Óvænt úrslit urðu í danska hand- boltanum í gær þegar Ribe-Esbjerg burstaði Skjern 36:23 á heimavelli en fjórir Íslendingar tóku þátt í leiknum. Lögðu þeir allir nokkuð af mörkum en Rúnar Kárason þó langmest. Rúnar var illviðráðan- legur og skoraði 11 mörk fyrir Ribe-Esbjerg úr 14 skottilraunum. Gunnar Steinn Jónsson skoraði 4 mörk og Daníel Þór Ingason 2 mörk. Elvar Örn Jónsson skoraði 2 mörk fyrir Skjern sem er í 4.-7. sæti deildarinnar með 13 stig. Ribe- Esbjerg er með 7 stig í 12. sæti. Rúnar skoraði 11 gegn Skjern Morgunblaðið/Eggert Markahæstur Rúnar Kárason var í miklu stuði gegn Skjern í gær. Evrópumeistararnir í Lyon hafa gott tak á flestum andstæðingum sínum í frönsku deildinni í knatt- spyrnu og unnu Soyaux 5:1 á heimavelli í gær. Sara Björk Gunn- arsdóttir lék allan leikinn á miðj- unni hjá Lyon. Lyon og París St. Germain skera sig úr og hafa ekki tapað leik í deildinni. Lyon hefur unnið alla átta leikina en Parísarliðið er fimm stigum á eftir en á leik til góða. Le Havre, lið Berglindar Bjargar Þor- valdsdóttur og Önnu Bjarkar Krist- jánsdóttur, er í neðsta sæti. Lyon með fullt hús stiga Ljósmynd/Lyon Frakkland Sara Björk er á toppnum í Frakklandi með Lyon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.