Morgunblaðið - 14.11.2020, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 2020
er bæði spennandi
og ógnvekjandi
Bókin fæst í Eymundsson
UNGMENNABÓKIN
Buick Lesabre til sölu
Árgerð 1/1988, ek. 126.000 km. Bensínknúinn, 3.800 cc slagrými, 232 hestöfl,
sjálfsk., cruise control, skráður 5 manna. Armpúði, litað gler, rafdrifnar rúður,
segul band, 2ja svæða miðstöð, vökvastýri, samlæsingar, loftkæling, rafdrif-
nir hliðarspeglar, útvarp, gírskipting í stýri, rafdrifið sæti ökumanns, rafdrifin
framsæti, samlæsingar, reyklaust ökutæki, tauáklæði, höfuðpúðar á aftur-
sætum, veltistýri. Ný ryðvarinn. Mjög góður bíll.
Verð tilboð – Sími 893 7065
Guðni Einarsson
Ragnhildur Þrastardóttir
„Frumniðurstöður faraldsfræði-
legrar rannsóknar á Covid-19-
tilfellum á Landakoti benda til þess
að smit hafi borist inn á stofnunina
með nokkrum einstaklingum en
einnig er talið hugsanlegt að sum
smit á milli starfsmanna megi rekja
til eðlilegra náinna samskipta vegna
fjölskyldu- og vinatengsla utan
vinnustaðar,“ segir í skýrslu um al-
varlega hópsýkingu á Landakoti
sem Landspítalinn kynnti í gær.
Ástand húsnæðis, loftskipta og að-
búnaðar á Landakoti er talið ófull-
nægjandi með tilliti til sýkingar-
varnasjónarmiða. Það er líklega
meginorsök dreifingar kórónuveiru-
smitanna innan Landakots þegar al-
varleg hópsýking Covid-19 kom þar
upp um miðjan október. A.m.k. tvö
afbrigði veirunnar greindust.
„Þetta mat er rökstutt með
nokkrum atriðum, í fyrsta lagi þá er
ekki loftræsting á sjúkrastofum á
Landakoti, í öðru lagi var
kæfisvefnsvélarmeðferð beitt hjá
einkennalausum einstaklingi sem
greindist síðar Covid-19-smitaður.
Þekkt er að kæfisvefnsvél eykur
dropaframleiðslu einstaklinga og að
vélin dreifir úðaögnum frá önd-
unarfærum sem geta svifið í loftinu í
meira en klukkustund. Hér hafa lé-
leg loftskipti líklega magnað upp
aukna sýkingarhættu og smitdreif-
ingu á SARS-CoV-2,“ segir í skýrsl-
unni.
Hópsýkingin var tilkynnt 22.
október en líklega höfðu einhverjir
sjúklingar og/eða starfsmenn smit-
ast af veirunni um viku fyrr. Í henni
smituðust 46 sjúklingar Landakots
og 98 starfsmenn. Að minnsta kosti
tíu sjúklinganna hafa látist úr Co-
vid-19. „Það var greinilega gríðar-
lega mikil dreifing á smitefni innan
Landakots því hlutfall smitaðra
meðal útsettra var mjög hátt,“ segir
í skýrslunni.
Þar segir að æskilegt hefði verið
að mönnun hefði verið nægjanleg
svo mögulegt hefði verið að tryggja
hólfaskiptingu starfsmanna á deild-
ir. Einnig er nefnt að það sé óheppi-
legt að starfsmenn séu að fara á milli
deilda til að sækja margvíslegan
búnað, lækningartæki, hjálpartæki
o.fl., sem er sameiginlegur með
legudeildum Landakots.
Þá lágu margir sjúklingar í tvíbýli
þar sem tveggja metra fjarlægð var
ekki tryggð og var einungis eins
metra fjarlægð á milli rúma. Sam-
eiginleg salernis- og sturtuaðstaða
fyrir sjúklinga fjölgaði sameigin-
legum snertiflötum þeirra og gátu
smit því borist þannig á milli fólks.
Aðbúnaði starfsmanna á Landa-
koti er ábótavant. Engin loftun er í
búningsaðstöðu sem er þröng og
býður einungis upp á þrjár sturtur
fyrir alla starfsmenn. Þá hafa sumir
starfsmenn ekki aðstöðu í aðalbún-
ingsherbergjum þrátt fyrir að þeim
sé skylt að klæðast fötum frá Land-
spítala á vinnutíma.
Framkvæmdir eru í matsal
Landakots svo starfsmenn borða oft
á stigapöllum. Kaffistofur á legu-
deildum eru litlar svo oft reynist erf-
itt að halda tveggja metra fjarlægð
en þar þarf fólk að taka niður grím-
ur til að matast.
Margir þættir komið saman
„Það hafa áður komið upp sýk-
ingar í starfseminni hjá okkur sem
við höfum náð að stöðva þannig að
það virðast þarna hafa komið saman
ótrúlega margir þættir sem ein-
hvern veginn gerðu það að verkum
að þetta fór svona illa. Ég vona að
það séu ekki líkur til þess [að sam-
bærilegt hópsmit komi upp innan
Landspítala aftur],“ sagði Sigríður
Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar á Landspítala, í samtali
við mbl.is í gær. Að hennar sögn
reynir starfsfólk Landspítala sífellt
að undirbúa sig fyrir að hópsmit
komi upp.
„Maður er að reyna að vinna eftir
því sem er fyrirsjáanlegt en er á
sama tíma að undirbúa sig undir alla
mögulega þætti sem geta komið á
óvart. Það geta vissulega komið upp
svona sýkingar hvar sem er.“
Búin að læra rosalega mikið
Í skýrslunni segir að styrkja þurfi
stöðu sýkingavarnadeildarinnar og
fjölga starfsfólki hennar. Æskilegt
sé að hafa öflugra og skipulagðara
eftirlit með grunnþáttum sýkinga-
varna. Þá þurfi að bæta húsnæðis-
aðstæður öldrunarsviðs og m.a.
bæta þætti eins og loftræstingu og
fjölga einbýlum með sérsalerni og
sturtuaðstöðu fyrir sjúklinga.
Spurð hvort ráðist verði í þær
úrbætur sem lagðar eru til í
skýrslunni segir hún:
„Við tökum þennan lærdóm
og förum í að forgangsraða því
sem þar kemur fram og reyn-
um að hrinda eins miklu af
því í framkvæmd og við
mögulega getum, hvort
sem það er á Landakoti eða
annars staðar. Við erum
búin að læra rosalega mik-
ið rosalega hratt.“
Ástand spítalans ófullnægjandi
Meginorsök dreifingar sem olli hópsýkingu á Landakoti Engin loftræsting á sjúkrastofunum
Léleg loftskipti mögnuðu upp sýkingarhættu Starfsfólk spítalans býr sig sífellt undir hópsmit
Atburðarás kórónuveiruhópsýkingar á Landakoti
11.-29. október 2020
Fj
öl
di
ti
lfe
lla
15
10
5
0
Smitrakning og aftursýn yfirferð
á sjúkragögnum tilfella leiðir í ljós að
hugsanlegt er að nokkur tilfelli hafi ver-
ið með mjög væg, óljós eða ódæmigerð
einkenni á tímabilinu 12. til 19. október.
Við smitrakningu rakningarteymis
uppgötvast að eitt tilfellanna sem greindist með
skimun í tengslum við hópsýkingu hafði fengið
einkenni sem gátu samrýmst Covid-19 þann
12. október. Viðkomandi fór á þeim tíma í
skimun og voru niðurstöður prófs neikvæðar.
22. OKTÓBER
Fyrstu tilfelli Covid-19
greinast á deildum R og U.
29. OKTÓBER
Lok fyrstu viku. Ekki
hægt að lýsa yfir að
hópsýkingu sé lokið
því fleiri tilfelli greind-
ust í annarri viku.
24. OKTÓBER
Fyrstu Covid-19-tilfell-
in greinast á deild Q.
23. OKTÓBER
Fyrstu Covid-19-tilfellin
greinast á deildum T.
11. 12. 13. 14. 15. 16. 16. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29.
október októberDagsetning á upphafi einkenna
Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson/LSH
Landakot Stjórnendur Landspítalans sátu fyrir svörum á fjarfundi með
blaðamönnum í gær vegna skýrslunnar um kórónuveirusmitin á Landakoti.
Smit af Landakoti bárust bæði á
Reykjalund og á hjúkrunarheim-
ilið Sólvelli á Eyrarbakka við
flutning sjúklinga þangað. Ekk-
ert er rætt um það í skýrslu
spítalans um hópsýkinguna á
Landakoti.
Embætti landlæknis mun
gera aðra rannsókn á hópsýk-
ingunni. Spurð hvort ekki sé
hægt að læra af því, og hvort
búið að sé að ákveða að haga
slíkum flutningi með öðrum
hætti, segir Alma Möller
landlæknir:
„Því get ég ekki
svarað en það er eitt-
hvað sem við kom-
um til með að
skoða.“
Fara þurfi yfir í
dag og á
næstu dögum
hvernig
bregðast eigi
við því sem
fram kemur í
skýrslunni.
Skoða flutn-
ing sjúklinga
RÁÐAST Í AÐRA RANNSÓKN
Alma Möller
Þrjár breytingar
verða gerðar á
sóttvarnareglum
hérlendis með
nýrri reglugerð
heilbrigðisráð-
herra sem kynnt
var í gær. Reglu-
gerðin mun gilda
í tvær vikur, frá
18. nóvember til
2. desember.
Tíu manna
samkomubann verður enn í gildi,
en svokölluð einyrkjastarfsemi
verður heimiluð. Til að mynda
verður heimilt að opna hárgreiðslu-
stofur, rakarastofur og nuddstofur
á ný, svo lengi sem fjöldatakmörk
verði virt.
Þá verða íþróttir barna og ung-
menna, bæði með og án snertingar,
heimilaðar og takmörk í framhalds-
skólum verða rýmkuð. Innan fram-
haldsskóla mega að hámarki 25 ein-
staklingar koma saman, en tveggja
metra regla verður enn í gildi og
grímuskylda ef ekki er hægt að
uppfylla tveggja metra regluna.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigð-
isráðherra segir að breytingin inn-
an framhaldsskólanna sé gerð til
þess að liðka fyrir frekara staðnámi
í framhaldsskólum.
Engar breytingar verða gerðar á
fyrirkomulagi á landamærum að
þessu sinni, en sóttvarnalæknir hef-
ur lagt til að tvöföld skimun við
komuna til landsins, sem er nú val-
kvæð, verði gerð að skyldu. Svandís
segir að sú umræða hafi ekki verið
kláruð á ríkisstjórnarfundi í gær en
að ákvörðun verði tekin á næstu
dögum.
Breyta takmörkunum
á starfsemi og íþróttum
Atvinna
Skýrsla um kórónuveirusmit á Landakoti
Heimilt Börn og
ungmenni mega
stunda íþróttir.