Morgunblaðið - 24.12.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Lokað 24.-27. des.
Opnum aftur 28.des.
www.spennandi-fashion.is
Gleðileg jo´l kaeru viðskiptavinir
Hafið það notalegt yfir ha´ti´ðirnar!
Söfnum í neyðarmatarsjóð til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
Guð blessi ykkur öll
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hlutfall rjúpnaunga var mjög lágt í
afla rjúpnaskyttna í haust, sam-
kvæmt greiningu á vængjum af
veiddum rjúpum. „Þetta endur-
speglar líklegast lélega viðkomu
rjúpunnar í sumar frekar en mikil
og hröð afföll ungfugla nú í haust,“
segir dr. Ólafur Karl Nielsen, vist-
fræðingur og rjúpnasérfræðingur
Náttúrufræðistofnunar Íslands, í
bréfi til rjúpnavina. Þar gerði hann
grein fyrir stöðu aldursgreininga
þann 22. desember sl.
Þá hafði hann fengið 1.409
rjúpnavængi til greiningar frá veiði-
tímanum 2020. Hann gerði ráð fyrir
að fá um 1.000 vængi til viðbótar.
Marktæk sýni voru komin fyrir
Norðausturland og Austurland. Af
meðfylgjandi töflu sést að ungahlut-
fallið er lægst á Vestfjörðum þar
sem það var 2,2 ungar á kvenfugl
en hæst á Vesturlandi, Norðaust-
urlandi og Suðurlandi þar sem það
var 3,6 ungar á kvenfugl. Meðaltalið
yfir landið var 3,2 ungar á kvenfugl.
Samanburður við hlutfall unga í
veiði á árunum 1995-2019 sýnir að
ungahlutfallið árið 2020 er með því
daprasta sem sést hefur síðustu 26
árin.
Ólafur hvetur veiðimenn sem eiga
eftir að skila öðrum væng af veidd-
um rjúpum að senda vængina til
Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Nafn veiðimanns og hvernig er
hægt að hafa samband við hann
þarf að fylgja með auk upplýsinga
um í hvaða landshluta rjúpurnar
voru veiddar. Hægt er að skila
vængjum til NÍ í Urriðaholti í
Garðabæ eða í Borgum við Norð-
urslóð á Akureyri. Eins er hægt að
senda vængina í böggli til NÍ þann-
ig að viðtakandi greiði sendingar-
kostnað.
Heimild: Náttúrufræðistofnun Íslands
Ungahlutfall í rjúpnaveiði 2020
Staðan 22. desember
Landshluti Fullorðnir Ungfuglar Samtals
% ung-
fuglar
Ungar á
kvenfugl
Vesturland 69 125 194 64% 3,6
Vestfi rðir 26 28 54 52% 2,2
Norðvesturland 63 82 145 57% 2,6
Norðausturland 177 321 498 64% 3,6
Austurland 166 237 403 59% 2,9
Suðurland 41 74 115 64% 3,6
Samtals 542 867 1.409 62% 3,2
Vísbending um lélega
afkomu rjúpunnar
Mjög lágt
hlutfall unga var í
rjúpnaveiði í haust
Starfsmönnum Hölds – Bílaleigu Ak-
ureyrar hefur fækkað um 60 frá síð-
ustu áramótum. Þetta segir Stein-
grímur Birgisson,
forstjóri fyrir-
tækisins, í samtali
við Morgunblaðið.
Segir hann að
faraldri kór-
ónuveiru sé þar
um að kenna en
tekjufall bílaleig-
unnar er talið
vera í kringum
35% á þessu ári.
Höggið er þó ekki
nægilega mikið til að hægt sé að nýta
styrki stjórnvalda. „Við höfum ekki
getað nýtt neina leið frá því í vor,
hvorki uppsagnarstyrki né hlutabóta-
leið. Tekjufallið okkar er ekki nægi-
lega mikið þótt það sé um 1,8 millj-
arðar, en „aðeins“ 32% þannig að við
lendum í raun milli skips og bryggju,“
segir Steingrímur og bætir við að
höggið hafi verið mest í útleigu bif-
reiða. „Það er fyrst og fremst bíla-
leigan sem hefur hrunið en við erum
sömuleiðis með bílasölu, dekkjaverk-
stæði, útleigu á fasteignum og bíla-
verkstæði. Þetta hefur áhrif á allt en
hvergi eins mikið og í ferðaþjónust-
unni,“ segir Steingrímur.
Til að bregðast við ástandinu var
farið í hagræðingaraðgerðir. Þannig
hefur starfsmönnum fækkað úr 250
um síðustu áramót í 190 í dag.
„Okkur hefur fækkað um 60 frá
síðustu áramótum. Mest munar um
fækkun á Reykjanesi og í Reykjavík
þar sem höggið er mest þótt það sé
auðvitað eitthvað um allt land. Auk
þess höfum við hagrætt í öllum horn-
um, lækkað laun og selt eignir til að
fara í gegnum þennan pakka með
okkar frábæra starfsfólki.“
Aðspurður segist hann hæfilega
bjartsýnn fyrir næsta ár. „Maður er
alveg þokkalega bjartsýnn á að hægt
verði að opna landið þegar líður á vor-
ið. Það verða þó engin læti í sumar,
það er alveg ljóst. Miðað við fregnir
af bóluefni mun þetta dragast eitt-
hvað fram eftir ári,“ segir Stein-
grímur sem kveðst eiga von á því að
það taki nokkur ár að byggja ferða-
þjónustuna upp að nýju. Þá megi
gera ráð fyrir því að hún muni ekki ná
fyrri hæðum fyrr en árið 2024.
aronthordur@mbl.is
Hafa sagt upp 60
manns á einu ári
Mikil hagræðing vegna tekjufalls
Steingrímur
Birgisson
Tímaritið Faxi, sem málfunda-
félagið Faxi gefur út, fagnaði 80
ára afmæli 21. desember sl. Tíma-
ritið á óslitna útgáfusögu og hafa
útgefendur frá upphafi fylgt stefnu
sem sett var fram á fyrstu forsíðu
blaðsins um að leggja áherslu á
menningar- og framfaramál á Suð-
urnesjum, segir í tilkynningu.
Málfundafélagið Faxi var stofn-
að af valinkunnum Keflvíkingum
10. október 1939, aðeins tæpum
mánuði eftir byrjun seinni heims-
styrjaldarinnar. Þegar á fyrsta
starfsári vaknaði áhugi Faxafélaga
á því að efna til blaðaútgáfu til að
skapa vettvang fyrir skrif og um-
ræður.
„Þau 541 tölublöð sem gefin hafa
verið út af Faxa eru ein haldbær-
asta sögulega heimildin um Suð-
urnesin síðustu 80 árin og má finna
þau á stafrænu formi á timarit.is.
Þannig hefur Suðurnesjamönnum,
og þeim sem vilja fræðast um Suð-
urnesin, verið tryggt aðgengi að
þessum heimildum,“ segir m.a. í
tilkynningu frá málfundafélaginu.
Faxi Haraldur Helgason, formaður Faxa, tekur við nýjasta Faxa frá Svan-
hildi Eiríksdóttur ritstjóra og Eysteini Eyjólfssyni, formanni blaðstjórnar.
80 ára útgáfa mál-
fundafélagsins Faxa
Nánast allar kirkjur landsins bjóða
upp á einhvers konar streymisþjón-
ustu yfir hátíðarnar, að sögn Péturs
G. Markan, samskiptastjóra Bisk-
upsstofu. Hann mælir með því að
fólk leiti sína hverfiskirkju uppi á
Facebook þar sem flestar sóknir
bjóða upp á streymisþjónustu þar,
sama hvort um ræðir aftansöng,
bænastund eða söngstund.
Streymt verður frá helgistundum
á vef Morgunblaðsins, mbl.is, í
kvöld.
„Það stórkostlega við þennan
Covid-tíma er að kirkjan hefur tekið
alveg ótrúlegt stökk í að tæknivæða
sig,“ segir Pétur.
„Við hvetjum fólk til að leita uppi
sína hverfissókn,“ bætir hann við.
Þá verður helgistund með biskupi
Íslands sjónvarpað klukkan hálfníu í
kvöld á RÚV. Einnig verður hátíð-
armessu með biskupi sjónvarpað
klukkan ellefu á jóladag, einnig á
RÚV. „Kirkjan hefur aldrei verið
jafn virk í fjarþjónustu,“ segir Pétur.
Hann telur að fjarþjónustan sé
komin til að vera þótt að sjálfsögðu
muni starfsfólk þjóðkirkjunnar taka
vel á móti fólki í kirkjum landsins
þegar faraldrinum lýkur.
Í kvöld klukkan sex verður messu
frá Dómkirkjunni útvarpað hjá Rík-
isútvarpinu eins og vant er.
Flestar kirkjur í streymi
Morgunblaðið/Eggert
Dómkirkja Eins og venjulega verð-
ur messu Dómkirkjunnar útvarpað.