Morgunblaðið - 24.12.2020, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 2020
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Gefðu
dekurgj
öf
um jóli
n
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ekki er að sjá að sú stefna Reykja-
víkurborgar að minnka umfang olíu-
birgðastöðvarinnar í Örfirisey um
50% á næstu fimm árum gangi upp,
sé mið tekið af nýrri samþykkt
stjórnar Faxaflóahafna.
Á fundi borgarráðs 7. maí 2019 var
samþykkt tillaga borgarstjóra þess
efnis að herða á því markmiði að
fækka bensínstöðvum í borginni um
helming. Á grundvelli þeirrar að-
ferðafræði og samningsmarkmiða
sem lágu fyrir verði stefnt að því að
það markmið náist fyrir árið 2025 en
ekki árið 2030 eins og segir í að-
gerðaáætlun Reykjavíkurborgar í
loftslagsmálum.
Samhliða verði teknar upp við-
ræður um að umfang olíubirgða-
stöðvarinnar í Örfirisey minnki með
tímanum og markmiðið verði að um-
fang hennar verði helmingi minna en
nú er, eigi síðar en árið 2025.
Stjórn Faxaflóahafna kom saman
til fundar 26. nóvember 2020 til að
fjalla um Aðalskipulag Reykjavíkur
2010-2040. Í umsögn stjórnarinnar
segir m.a. að Faxaflóahafnir geri
ekki athugasemdir við að olíustöðin í
Örfirisey verði lögð af fyrir lok gild-
istíma aðalskipulags en bendi þó á að
sú tímalína kunni að vera óraunhæf.
„Spá Orkuspárnefndar (ágúst
2019) gerir ráð fyrir að notkun á kol-
efnaeldsneyti minnki um 27% á ár-
unum frá 2020 til 2040. Notkun á líf-
eldsneyti hefur hins vegar aukist og
er í dag um 8% af gegnumstreymi ol-
íustöðvarinnar og fer vaxandi. Heild-
armagn fer minnkandi en tegundum
fer fjölgandi svo nettóáhrifin verða
ekki veruleg og áframhaldandi þörf
er á sama geymafjölda. Samkvæmt
áhættumati ráðgjafastofunnar Cowi,
árið 2007, var niðurstaðan sú að hag-
stæðasti kosturinn væri sá að olíu-
stöðin yrði áfram í Örfirisey,“ segir
meðal annars í umsögninni.
Þá bendir stjórnin á að lóðaleigu-
samningur við Olíudreifingu sé í gildi
til ársins 2036 og gera Faxaflóahafn-
ir ráð fyrir að hann verði fram-
lengdur. Hins vegar styðji Faxaflóa-
hafnir við frumkvæði til að bregðast
við þróun í loftslagsmálum og breyt-
ingar sem mögulega þarf að gera þar
að lútandi.
Olíugeymarnir áfram í Örfirisey
Borgin vill minnka umfang olíubirgðastöðvar Faxaflóahafnir telja að þörf sé á óbreyttum fjölda
Morgunblaðið/Ómar
Örfirisey Olíubirgðir hafa verið geymdar þarna allt frá árinu 1950 þegar Olíufélagið hóf að byggja olíugeyma á svæðinu. Olíuskipin leggjast að Eyjagarði, sem byggður var við stöðina í Örfirisey.
„Í stað gleði og tilhlökkunar í að-
draganda jóla þá er það einmitt
þessi tími sem veldur hvað mestum
kvíða, áhyggjum og einsemd hjá
okkar viðkvæmasta hópi í samfélag-
inu. Það er bæði mikilvægt og
ánægjulegt að geta stutt ein-
staklinga og fjölskyldur sem á þurfa
að halda með þessum hætti,“ segir
Ásmundur Einar Daðason, félags-
og barnamálaráðherra, en í gær var
tilkynnt að hann muni úthluta sam-
tals 20 milljónum króna í styrki til
hjálparsamtaka. Umrædd samtök
styðja við viðkvæma hópa í sam-
félaginu um land allt, einkum með
matarúthlutunum og ráðgjöf.
Það eru alls níu hjálparsamtök
sem fá styrk til þess að geta stutt
enn betur við sína skjólstæðinga;
Hjálpræðisherinn, Hjálparstarf
kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndir í
Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði,
Akureyri og Akranesi, Fjölskyldu-
hjálp Íslands og Kaffistofa Sam-
hjálpar.
Styrkirnir eru liður í aðgerðum
stjórnvalda til þess að bregðast við
afleiðingum kórónuveirufaraldurs-
ins og er beint sérstaklega að þeim
sem búa við fátækt.
Mikil aukning hefur orðið á beiðn-
um um aðstoð í ár af völdum kórónu-
veirunnar, ekki síst nú í aðdraganda
jóla.
Framlag Ásmundur Einar hefur út-
hlutað 20 milljónum í hjálparstarf.
20 milljónir
til hjálpar-
samtaka
Ásmundur í jóla-
skapi Mikil þörf